Morgunblaðið - 22.07.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1981
23
Kveðja írá sóknarnefnd Árbœj-
arsóknar.
Sú fregn sem barst okkur
mánudaginn 13. þessa mánaðar,
að Geirlaugur Árnason, organisti
og fyrrverandi sóknarnefndarfor-
maður, hefði látist þá um morgun-
inn, kom eins og reiðarslag yfir
okkur. Hann hafði daginn áður
gegnt starfi sínu i safnaðarheimili
okkar við síðustu messu fyrir
sumarleyfi, hress og kátur eins og
ævinlega. En vegir Guðs eru
órannsakanlegir, hann hefur nú
hlýtt kalli til starfa á æðri vett-
vangi.
Á stofnfundi Árbæjarsóknar 4.
febrúar 1968 var Geirlaugur
Árnason kjörinn formaður sókn-
arnefndar og gegndi hann því
starfi til 2. nóvember 1980, eða
eins lengi og sóknarnefndin gat
notið hans formennsku, en Geir-
laugur flutti í aðra sókn með
fjölskyldu sína árið 1976 og var
því ekki lengur kjörgengur lögum
samkvæmt í safnaðarstjórn Ár-
bæjarsóknar. í ársbyrjun 1970 var
Geirlaugur ráðinn organisti sókn-
arinnar og gegndi hann því starfi
af stakri prýði til dauðadags.
Árbæjarhverfið byggðist að
mestu upp á árunum 1965 til 1970.
Fyrir í hverfinu var sterkur kjarni
íbúa, sem búið hafði um langt
skeið í strjálbýli fjarri hinni
eiginlegu byggð Reykjavíkur.
Skyndilega reis upp fjöldi nýbygg-
inga, blokkir, raðhús, einbýlishús.
íbúum fjölgaði ört, úr nokkrum
hundruðum í nokkur þúsund.
Árbæjar- og Seláshverfi var
hluti af Lágafellssókn og safnað-
arkirkja þess Lágafellskirkja.
I nýju íbúðarhverfi sem byggist
hratt upp af ungu fólki er mikil
þörf fyrir frjótt og lifandi safnað-
arstarf. Það var Arbæjarsókn og
Árbæjarhverfi mikil gæfa, að einn
af hinum nýju íbúum hverfisins
skyldi vera Geirlaugur Árnason
og hans fjölskylda. Eins og fyrr
sagði var Geirlaugur kjörinn í
fyrstu sóknarnefnd og strax kos-
inn formaður hennar. Með honum
í sóknarnefndinni voru fulltrúar
eldri og yngri íbúa hverfisins.
Geirlaugur Árnason var ein-
stakur maður. Hann lagði sig
allan fram við að ná því takmarki
sem hann setti sér og hann hreif
samstarfsmenn sina með sér,
dugnaður hans og starfsfýsi smit-
aði frá sér. Hann var aldrei hálfur
í verki. Lægi eitthvert verkefni
fyrir, þá framkvæmdi hann, beið
ekki eftir að aðrir gerðu hlutina.
Með honum var gott að starfa.
Verkefni hins nýja safnaðar
voru mörg. Eitt hið fyrsta var að
vinna að því að Árbæjarsókn yrði
sérstakt prestakall og var því
takmarki náð 1. janúar 1971. Að
koma upp húsnæði fyrir safnaðar-
starf er brennandi nauðsyn í
hverri nýrri sókn. Geirlaugur var
sjálfkjörinn í fyrstu kirkjubygg-
ingarnefnd sóknarinnar og vann
af lífi og sál að framgangi þess
máls til dauðadags. Hans þáttur í
því stórvirki að koma upp safnað-
arheimili Árbæjarsóknar, sem
vigt var á pálmasunnudag 1978,
verður seint fullþakkaður.
Þáttur Geirlaugs Árnasonar
sem organista og stjórnanda
kirkjukórs sóknarinnar var ekki
siður stór. Hann var mjög góður
organisti og kórstjórn hans var
einstök. Fyrir hans dugnað og
harðfylgi keypti söfnuðurinn lítið
en gott pípuorgel í byrjun árs
1975. Tókst söfnuðinum, með góðri
hjálp kirkjukórsins, að komast
yfir orgelið þrátt fyrir yfirstand-
andi byggingarframkvæmdir og
peningaþrot.
Erfitt er að sætta sig við að
Geirlaugur sé ekki lengur á meðal
okkar. Fráfall hans bar svo brátt
að, kom svo óvænt. Að maður njóti
ekki lengur hans glaðværa við-
móts, að hinn hvelli hlátur hans
hljómi ekki lengur. Eitt af hans
hjartans málum var að reisa
klukkuport við safnaðarheimilið í
Árbæ. Þar hafa hinar nýju klukk-
ur hringt til messu síðan um
síðustu jól. Nú hafa klukkurnar
kallað hann.
Við kveðjum Geirlaug Árnason
með mikilli hryggð. Við þökkum
honum fyrir þá gæfu sem okkur
hlaust af því að fá að starfa með
honum. Við þökkum honum fyrir
allt og allt. Við biðjum Guð að
blessa frú Sveinbjörgu, börn,
tengdabörn og barnabörn og send-
um þeim hlýjar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd sóknarnefndar
Jóhann E. Björnsson
Geirlaugur Árnason var einn af
stofnendum Kristilegra skóla-
samtaka 1946. Æ síðan hafa verið
tengsl milli heimiiis hans og
kristilega skólastarfsins, ekki síst
eftir að fjölskyldan fluttist til
Reykjavíkur og börnin urðu þátt-
takandi í áðurnefndu starfi.
Á þessum árum hafa Sveina og
Geirlaugur unnið hugi og hjörtu
fjölmargra KSS-inga með alúð-
legri framkomu og glöðu sinni. Og
ég veit, að óneitanlega hefur það
lengi verið forsvarsmönnum KSS
styrkur að vita af þessum hressu
og uppörvandi hjónum og eiga þau
að.
Okkur er ekki gefið að skilja,
hvers vegna Geirlaugur var svo
skyndilega burtkallaður. En við
vitum, að kærleikur Guðs megnar
að hugga sorgmædda og bæta böl
hryggra.
Það er einnig huggun að vita, að
Geirlaugur á góða heimvon á
himnum. Ekki er það vegna mik-
illa mannskosta hans eða ósér-
hlífni í að þjóna Guði og mönnum,
þótt allt til hinstu stundar væri
hann glaður þjónn Drottins, ætið
reiðubúinn að inna margvislega
þjónustu af hendi, ekki hvað síst á
tónlistarsviðinu. Nei, það er vegna
þess eins, að ungur hlýddi hann
kalli Krists til samfélags og eftir-
fylgdar. Hann treysti Jesú Kristi
fyrir lífi sínu, Guðssyninum, sem
með dauða sínum og upprisu gaf
okkur mönnunum sátt við Guð og
eilíft lif.
Ég þakka Guði fyrir kynni mín
af Geirlaugi Árnasyni og bið
Sveinu og börnunum blessunar
Guðs í söknuði þeirra.
Guð gefi kristni landsins sem
flesta slíka sívakandi og sívinn-
andi þjóna.
Ó.J.
Einn af bestu sonum þessa
lands er fallinn frá. Allir sem
þekktu Geirlaug Árnason vissu að
þar fór óvenju mikill mannkosta-
maður og góður drengur.
í 14 ár hef ég þekkt Geirlaug
mjög náið. Hann var stórbrotinn
persónuleiki sem aldrei líður
manni úr minni. Langt mál væri
hægt að rita um mannkosti hans
og dugnað, því fáir menn bjuggu
yfir eins margþættum hæfileikum
og hann, en hér skal aðeins gerð
fátækleg tilraun til að minnast
hans sem einstaklega góðs tengda-
föður.
í nær sjö ár hef ég ásamt
fjölskyldu minni búið á hlið við
Geirlaug og fjölskyldu hans. Betra
sambýli bar ekki hægt að hugsa
sér og var aldrei skugga þar á.
Hann var hinn tryggi og staðfasti
heimilisfaðir og afi, sem ávallt gaf
hversdeginum hátiðlegan og
hressilegan blæ.
Fátt var Geirlaugi jafn ljúft og
að aðstoöa börnin sín við verkleg-
ar famkvæmdir og lagfæringar,
því allt lék í höndunum á honum.
Þetta gerði hann með svo mikilli
gleði að unun er um að hugsa. í því
sambandi er mér ofarlega í minni
hve oft hann sagði, þegar hann t.d.
var að smíða: „Þetta finnst mér
skemmtilegt!" Lífsgleði hans kom
fram í vinnu jafnt sem í fjöl-
skyldu- og félagslífi.
Skarðið sem fráfall Geirlaugs er
fyrir ástvini hans er stórt. En
minningin er ljúf um hinn síglaða
eiginmann, föður, tengdaföður,
afa, bróður og vin. Ekki síst er
minningin ljúf vegna þess for-
dæmis sem hann gaf með lífi sínu
og starfi. Hann var sannkristinn
maður, sem vissi á hvern hann
trúði. Hann hafði játast Jesú
Kristi á unga aldri og vildi sýna
trú sína í öllu góðu verki.
Geirlaugur tók mikinn þátt i
kirkjulegri þjónustu og starfi
fyrir hin ýmsu kristilegu félög
sem hann var félagi í, svo sem
KFUM og Gideon. Þar var hann
hinn gefandi maður í tónlist,
stjórnunarstörfum og jafnvel
ræðumennsku.
Þó svo Geirlaugur væri mikið að
heiman vegna sinna starfa, þá
mótaði hann börnin sín mikið og
lagði mikla rækt við heimilislífið.
Hann var réttsýnn og lagði börn-
unum sínum ríkt á hjarta að vera
heiðarleg og sönn í allri fram-
göngu. Sérstaklega var honum
lagið að gera hátíðir kirkjuársins
að sönnum hátíðisdögum.
Ég þakka Guði fyrir þá ómetan-
legu gjöf sem hann hefur gefið
mér í Geirlaugi. Samskipti mín
við hann og allt samfélag er mér
meira virði en ég kann að móta í
orð. Ég bið þess að fordæmi hans
og líf verði mörgum til blessunar
og til vitnisburðar um gildi hins
kristna lífs.
Tengdasonur
Sunnudagskvöldið 12. júlí sat
Geirlaugur Árnason við hljóðfær-
ið í samkomusal KFUM og KFUK
við Amtmannsstíg eins og svo oft
áður. Að samkomu lokinni keypti
hann tvær nýjar hljómsnældur,
annars vegar með söng Æskulýðs-
kórs KFUM & K, en þeim kór
hafði Geirlaugur áður stjórnað
um hríð, hins vegar var upptaka
frá söngsamkomu á sl. vori, en á
henni söng m.a. Karlakór KFUM
undir stjórn Geirlaugs og þau
hjón, Geirlaugur og Sveinbjörg
ásamt börnum sínum sex. Þegar
heim kom gladdi hann sig við að
hlusta á þennan söng, jafnframt
því sem hann sat við reiknings-
uppgjör fyrir sumarbúðirnar í
ölveri, en þar var eiginkona hans
einmitt að störfum.
Þessi kvöldstund er í mínum
huga mynd af lífi Geirlaugs Árna-
sonar og reyndar þeirra hjóna
beggja. Þegar Geirlaugur var enn
innan við fermingu missti hann
móður sína og mun þá hafa kynnst
sr. Friðriki Friðrikssyni, sem vitj-
aði heimilisins af því tilefni. Allar
götur síðan var Geirlaugur virkur
þátttakandi í starfi KFUM og
KFUK á Akranesi og síðar hér í
Reykjavík. Þegar sem unglingur
tók hann að leika undir söng á
fundum og samkomum félaganna
og var ekki óalgengt að hann léki á
allt að þremur fundum hvern
sunnudag meðan hann dvaldi á
Akranesi.
Að þessum störfum sínum gekk
Geirlaugur glaður og hress i anda.
Breitt brosið og hvellur hláturinn
fylgdi manninum að hverju sem
hann gekk, létti samferðamönnum
gönguna og samstarfsmönnum
verkin.
En Geirlaugur lagði víðar lið,
Guðs kristni til eflingar. Hann tók
virkan þátt í hreyfingu Gideonfé-
laga, sem hefur útbreiðslu Biblí-
unnar á stefnuskrá sinni, og var
hann forseti landssambands
þeirrar hreyfingar þegar hann
lést. Einnig var hann organisti i
Árbæjarsókn í Reykjavík og for-
maður sóknarnefndar um árabil.
Það var okkur vinum Geirlaugs
og samstarfsmönnum í KFUM
reiðarslag er sú fregn barst morg-
uninn eftir fyrrnefnt sunnudags-
kvöld, að Geirlaugur væri allur,
aðeins 54 ára gamall. Við máttum
ekki við því að missa hann úr
hópnum. Tilgangur þessara fáu
lína er ekki að gera úttekt á lífi og
starfi Geirlaugs, heldur aðeins að
votta látnum vini virðingu og þökk
og aðstandendum samúð.
Við fregnina af andláti Geir-
laugs komu mér ósjálfrátt í hug
setningar úr einni af dæmisögum
Jesú: „Gott, þú góði og trúi þjónn.
Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið
mun ég setja þig. Gakk inn til
fagnaðar herra þíns.“ Miðað við
mannlegan kvarða hafði Geirlaug-
ur þegið ríkulega úr hendi skapara
síns. Hann vissi sig þiggjanda og
þjónaði frelsara sínum með hæfi-
leikum sínum. Hann vissi einnig
að inngangan til fagnaðarins í
Guðsríki var gjöf, vegna dauða og
upprisu Jesú Krists.
Dauði þess manns sem hefur
sett von sína á Jesúm Krist er ekki
skelfilegur endir alls, heldur inn-
ganga til fagnaðar. Það er hugg-
unarefni þeim sem eftir standa.
Söknuðurinn er sár, hryggðin
þungbær, missirinn mikill, en í
gegnum allt þetta skín von hins
kristna manns sem veit sig í hendi
þess kærleika, sem hefur sigrað
dauðann.
Sigurður Pálsson,
form. KFUM í Reykjavik.
+
Maöurinn minn,
BJÖRN KALMAN,
var jarösettur í Reykjavík 17. júlí.
Alúöarþakkir til þeirra sem hafa minnst hins látna.
Þórdis Kalman.
Móöir okkar og tengdamóöir,
HILDUR JÓNSDÓTTIR
fyrrverandi Ijósmóðir fré Þykkvabæjarklaustri,
veröur jarösungin að Lágafelli föstudaginn 24. júlí kl. 3 e.h.
Sigrföur S. Sveinsdóttir, Karl Ó. Guömundsson,
Signý Sveinsdóttir, Margrét Einarsdóttir,
Siguröur Sveinsson, Sigríöur Magnúsdóttir,
Jón Sveinsson, Guörún Jónsdóttir,
Einar S.M. Sveinsson, Ingveldur Oskarsdóttir,
Steinunn G. Sveinsdóttir, Siguröur Jónsson.
Þökkum hlýhug og samúö viö andlát og útför
FANNEYJAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Faxabraut 4, Keflavik.
Börn, tangdabörn og barnabörn.
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu vináttu og hlýhug viö andlát
og jarðarför eiginmanns míns og fööur okkar,
KARLS HELGASONAR.
Ásta Sighvatsdóttir,
Sigrún Karlsdóttir, Sighvatur Karlsson.
+
Viö þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug
viö andlát og útför
JÓNS HELGASONAR
ritstjóra.
Margrét Pétursdóttir,
synir, tangdadastur og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför
eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
INGUNNAR JÓNSDÓTTUR,
Hjaröarhaga 60.
Haukur Halldórsson,
Ólafur Jakobsson, Guóný Jónsdóttir,
Brynhildur Hauksdóttir, Howard Dale.
Jón Hauksson, Svala Hauksdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
SIGURDAR KRISTJÁNSSONAR,
Malgaröi 6,
Kópavogi.
Olga Gisladóttir,
Grétar Kristjénsson, Hildur Jóhannsdóttir,
Álfheióur Siguröardóttir, Mér Þorvaldsson,
Gfsli Sigurösson, Grata Engilbarta
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum viö öllum þelm er auösýndu okkur samúö
og hlýhug vegna fráfalls sonar okkar, bróöur og barnabarns,
HELGA ERLINGSSONAR
Sandlask.
Erlingur Lottsson,
Guörún Helgadóttir,
Elín Erlíngsdóttir,
Valgeróur Erlingsdóttir,
Loftur Erlingsson,
Valgeröur Ingvarsdóttír,
Elin Guöjónsdóttir.