Morgunblaðið - 04.04.1982, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Leirmunir og málverk
Valtýr Pétursson
I Ásmundarsal við Freyjugötu
er nú sýning á leirmunum og
leirmyndum, ásamt málverkum.
Það er ungur maður, að nafni
Ilelgi Björgvinsson, sem hlut á að
máli, og ef ég veit rétt, hefur
hann ekki haldið sjálfstæða sýn-
ingu á verkum sínum fyrr. Þarna
eru 20 leirhlutir, 14 leirmyndir og
að endingu 15 málverk. Það er því
nokkurt magn, sem hér er sýnt af
vinnu þessa unga manns, og ekki
verður annað sagt með sanni, en
að nokkuð er misjafn hlutur mál-
verksins í þessu sýningarefni.
Helgi Björgvinsson er að mínu
áliti ágætur i list sinni, er hann á
við leirinn. Það eru bæði snotrir
og látlausir munir, sem hann
framleiðir, og myndir hans bera
einnig góðan þokka, þegar hann
gerir þær úr leir. En ef satt skal
segja, fer heldur í verra, er hann
höndlar olíumálverkið á léreft.
Þar er vart að finna nokkurt mál-
verk, sem er þess verðugt, að á
það sé minnst. Það er engu líkara
en að mikill misskilningur á
þeirri list sé hér á ferð hjá þess-
um unga manni. Það mætti jafn-
vel segja mér, að hann hefði lagt
svo stífa áherslu á leirgerðina, að
þess gætti nokkuð í litameðferð
hans í olíumálverkunum. Stund-
um vaknar sú spurning, er litið er
á það, sem á boðstólum er af mál-
verkum hér í borg, hvers vegna
menn séu að leggja alla þessa
vinnu á sig, halda sýningar og
jafnvel leggja í persónulega fjár-
hættu, þegar hlutirnar eru ekkj í
hærra gæðaflokki en raun ber
vitni oft á tíðum. Ekkert svar
kann ég við slíkum spurningum,
enda vart hægt að búast við neinu
algildu svari. En svona er nú einu
sinni samtíðin, og til er það fólk,
sem heldur því fram, að þróttlaus
og vanmátta myndlist sé nauð-
synleg fyrir þá grósku, sem óneit-
anlega er hér í þessari listgrein.
Ekki vil ég leggja neinn dóm á
slíkt, en ég nefni þetta hér vegna
þess, að mér finnst ágætt, ef fólk
staldrar aðeins við og athugar
gang sinn en meltir ekki allt
ótuggið og hrátt.
Eins og þessar línur hafa þegar
gefið til kynna, er ég ekki sérlega
ánægður með þessa sýningu
Helga Björgvinssonar. Raunveru-
lega hef ég engu við að bæta,
nema hvað ég held, að hæfileikar
hans séu einkum og sér í lagi á
sviði leirmunagerðar, og vonast
ég tii, að hann eigi eftir að sjá
sjálfur þann reginmun, sem er á
málverkum hans og þeim gripum,
er hann hefur unnið í leirinn. En
koma tímar, koma ráð, hver veit
nema bjart sé fyrir stafni, það á
eftir að koma í ljós með þróun
þessa unga manns.
Fínar um páskana
Þær eru fínar stelpurnar í
sparifötunum sínumfrá Hagkaup.
Eigum úrval af fallegum peysum,
buxum og kjólum.
HAGKAUP
SKEIFUNN115
Suðumes:
Þroskahjálp
vígir nýtt hús
í gær, 3. apríl, tók Þroskahjálp á
Suðurnesjum formlega í notkun ný-
byggingu félagsins að Suðurvöllum 9
í Keflavík.
Félagið „Þroskahjálp á Suður-
nesjum" var stofnað 10. október
1977. Á árinu 1979 hóf félagið
rekstur leikfangasafns að Hafnar-
götu 86 og í byrjun árs 1980 kom
félagið upp endurhæfingarstöð að
Faxabraut 13 í samráði við
Sjálfsbjörg á Suðurnesjum. Báðir
þessir þættir í starfsemi félagsins
voru reknir við mjög ófullnægj-
andi aðstæður. Á sl. vori var því
hafist handa um byggingu hússins
að Suðurvöllum 9. Ákveðið var að
festa kaup á einingahúsi frá Hús-
einingum hf. í Siglufirði. Byrjað
var að grafa fyrir grunni þess 18.
apríl 1981. Lauk smíði hans í ágúst
sama ár. Húsið var síðan reist og
fullfrágengið að utan á 10 dögum í
september.
einingahús frá Húseiningum hf. í
Siglufirði, er 2042 að stærð og hið
vistlegasta. Kemur það til með að
gjörbreyta allri aðstöðu til starf-
semi félagsins. Til dæmis má
nefna, að endurhæfingarstöðin
sem áður var til húsa í 302, hefur
nú til umráða 140*. Þá hafa skap-
ast möguleikar á samstarfi milli
leikfangasafnsins og endurhæf-
ingarstöðvarinnar. Börn sem
koma til endurhæfingar fara, ef
þess gerist þörf, í leikfangasafnið í
beinu framhaldi af æfingunum.
Forstöðukona leikfangasafnsins
er Kristjana Kjartansdóttir
fóstra. I endurhæfingarstöðinni,
sem rekin er algerlega af Þroska-
hjálp á Suðurnesjum, fer fram öll
almenn endurhæfing, allt frá með-
ferð á smávægilegum kvillum til
þjálfunar á fjölfötluðu fólki. Þeir
sem njóta þar þjónustu eru á öll-
um aldri. Sjúkraþjálfari hefur frá
upphafi verið Sigríður Þórarins-
í byrjun janúar sl. var síðan
flutt í húsið. Þar eru endurhæf-
ingarstöðin og leikfangasafnið
starfrækt nú, auk þess sem að-
staða er til félagsstarfsemi. Mikil
vinna er eftir utanhúss, þ.e. við
lóð, stéttar og bílastæði.
Kostnaðarverð hússins í dag er
kr. 1.200.000. Fjármögnun þess er
með eftirfarandi hætti:
Framlag úr Framkvæmdasjóði
þroskaheftra og öryrkja 70%
Framlag úr Erfðafjársjóði 5%
Lán úr Erfðafjársjóði 5%
Eigið fé 20%
Húsið, sem eins og fyrr segir er
dóttir. Væntanlegur er annar
sjúkraþjálfari um miðjan apríl, en
stefnt er að því að þeir verði þrír í
fullu starfi, enda hefur sýnt sig að
þörfin er brýn.
Rekstrarstjóri hins nýja húss er
Ásta Björnsdóttir. Þroskahjálp á
Suðurnesjum hefur einnig fengið
úthlutað lóðinni nr. 7 við Suður-
velli. Þar hyggst félagið reisa ann-
að hús af svipaðri stærð, ef fjár-
mögnun tekst. Þar er fyrirhugað
að starfrækja skammtíma fóst-
urheimili, afþreyingarheimili og
ef til vill vísi að skóladagheimili.
FrétUtilkynning.
Fuglakvöld í Arnarhól
Þriðjudaginn 6. apríl verður sér-
stakt FUGLAKVÖLD í veitingahús-
inu Arnarhóli.
Á matseðlinum verða eingöngu
réttir úr fuglakjöti. Boðið verður
upp á Arnarstél við komu gesta og
hinn margréttaði matseðill hljóð-
ar svo:
Kjúklingasalat, gæsakjötseyði,
hleypt egg með karrý, melónu-
kraum (sorbet), kalkún með fyll-
ingu, gljáð önd með valhnetum og
að síðustu páskaegg.
Þessi sjörétta matseðili ásamt
fordrykknum kostar aðeins kr.
445,- fyrir manninn.
Til að krydda kvöldið enn betur
verður gestum boðið að hlýða á
úrvals skemmtikrafta í koníaks-
stofunni eftir máltíðina. Anna
Júlíana Sveinsdóttir syngur létt
spönsk lög við undirleik Láru
Rafnsdóttur og þar verða þeir
bræður Maggi Kjartans og Finn-
bogi, sem halda uppi stemmning-
unni með sínum ljúfu lögum.
Veitingahúsið Arnarhóll tók
upp þessa nýbreytni að helga
ákveðnu kvöldi eina tegund hrá-
efnis nú fyrir skömmu. Voru gest-
Anna Júlíana Sveinsdóttir
irnir ákaflega ánægðir með hinn
sérstæða matseðil og þótti Skúla
og matsveininum hans hafa tekist
frábærlega vel og var stemmning-
in í koníaksstofunni eftir máltíð-
ina alveg einstök, segir í frétt frá
Arnarhóli.
Röng nöfn fermingarbarna
NÖFN tveggja fermingarbarna mis- Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir,
rituðust í Morgunblaðinu í gær, og Háaleitisbraut 107, Reykjavík. Ás-
skulu þau leiðrétt. Nöfnin eru. gerður Hrönn fermist í Grensás-
kirkju klukkan 14.00.
Hallur Vignir Hallsson, Iðufelli
8, Reykjavík. Hallur Vignir ferm-
ist í Háteigskirkju klukkan 10.30.
\lCI.VSIV.ASIMINN KH:
22480
Jflorounbloöib