Morgunblaðið - 18.12.1982, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
41
sem eiga að koma út 1985, 1986 og
1987.
Hið sjaldgæfa hefur nú gerst, að
tekist hefur að endurlífga sögu-
persónu látins rithöfundar, sem
ekki virðist ætla að verða síður
vinsæl í höndum hins nýja „föð-
ur“, en hún var í sögum upphafs-
mannsins.
Hefur Bond breyst?
Þeirri spurningu, hvort James
Bond hafi breyst við það að skipta
um faðerni á miðjum aldri, getur
sjálfsagt enginn svarað til fulls
nema hann hafi þekkt fyrirrenn-
ara hans náið, og líklega verður
hver lesandi að svara því fyrir sig.
Af erlendum blöðum má þó
ráða, að ekki hafi verið komist hjá
því að breyta ýmsu í fari 007 um
leið og hann var vakinn af Þyrni-
rósarsvefni sínum. Annað væri
enda fráleitt, svo margt sem hefur
breyst í heiminum frá kaldastríðs-
tímanum til okkar daga í upphafi
níunda áratugarins.
James Bond drekkur til dæmis
ekki eins marga þurra Martini-
drykki og hann gerði. Kvennafar
hans er með öðrum og snyrtilegri
hætti en var, og hann hefur breytt
reykingavenjum sínum. Hann er
ekki eins harður af sér og hann
var, eða að minnsta kosti á annan
hátt, en hann tekur sífellt meiri og
meiri tækni í þjónustu sína, þegar
hann berst við fúlmennin and-
stæðinga sína. — Hið mikilvæg-
asta er þó, segir Janson-Smith
sem áður er vitnað til: James Bond
er enn sami persónuleikinn og
hann var, annars hefði ekki verið
leyft að hann bæri hið fræga nafn
007 — James Bond.
Sean Connery ad leika í nýrri kvikmynd nm 007. Connery befur lengst túlkað
James Bond, og í huga margra eni þeir óaðskiljanlegur hluti af ímynd hins
eina og sanna leyniþjónustumanns.
HfflUAMR
Hefur þú kynnst sígildum hljómburði Scala óperunnar í Mílanó, Boston Symphony
Hall, Planetarium eða Royal Albert Hall í London?
Vissir þú að á slíka staði eru ea hátalarar valdir, auðvitað vegna hljómgæðanna?
Það er því engin tilviljun, að heimsfrægt kunnáttufólk á borð við Herbert von
Karajan, Miles Davis og strákana í hljómsveitinni Electric Light Orchestra (ELO)
kjósa ca hátalara til eigin nota, auðvitað vegna hljómgæðanna
E3 hátalarar hafa einstakt tónsvið. Það sem skiptir þó öllu máli í reynd er hinn
hárnákvæmi tónblær þeirra, hvernig þeir endurhljóma nákvæmlega hin ólíkustu hljóð-
færi, einmitt þannig sem kunnáttufólk kýs og kann að meta.
Suðurlandsbraut 8, sími 85884
Fullkomið tölvu mótor-
stillingatæki
Ljósastillingar
Ljósaviðgerö
Hjólastilling
Vönduð vinna
Bílastilling Birgis, Skeifan 11,
sími 37888.
Geymið auglýsinguna.
„Wð verðið
aðlesa
þessabók"
Ein eftirminnilegasta
örlagasaga allra tíma
ÉG LIFI, hin ógleymanlega saga
Martins Gray, er nú komin út í þriðja
sinn. ,,Hér er bók sem ekki er eins og
aðrar bcekur. Maður opnar hana og
byrjar að lesa og maður getur ekki lokað
henni aftur... Mig skortir orð til að lýsa
henni. Það eina sem ég get sagt er. þið
verðið að lesa þessa bók, þið verðið að
lesa hana!“ Þannig var komist að orði um
þessa einstœðu bók, eina sérstœðustu og
eftirminnilegustu örlagasögu allra tíma,
sögu sem er ótrúlegri en nokkur skáld-