Morgunblaðið - 18.03.1983, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1983
Sérframboð og nýir flokkar:
Framboð ýmist óákveðin
eða listar ófrágengnir
„ÁKVÖRÐUN um hugsaniegt framboð liggur ekki fyrir enn, en við höfum
boðað til fundar á laugardaginn, og þá reikna ég með að þetta verði ákveðið,
af eða á,“ sagði Valdimar Kristinsson hagfræðingur í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær.
Valdimar er einn forsvars-
manna áhugamanna um jafnan
kosningarétt, sem gengust fyrir
undirskriftasöfnun nýlega um
kjördæmamálið, en fréttir hafa
verið uppi um að hópurinn hyggi á
framboð við alþingiskosningarnar.
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra sagði í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær-
kveldi, að ákvörðun hans um hugs-
anlegt framboð lægi ekki fyrir,
hvorki af né á. Er hann var spurð-
ur hvort hann hefði fengið í hend-
ur lista með áskorunum um fram-
boð, sagði forsætisráðherra:
„Hann mun vera á leiðinni."
Er blaðamaður hafði samband
við Vilmund Gylfason í gærkveldi
til að spyrja um hvort framboðs-
listar Bandalags jafnaðarmanna
væru tilbúnir, kvaðst hann vera á
fundi, og ekki geta rætt við blaða-
mann.
Ingibjörg Hafstað í uppstill-
inganefnd kvennalistans í Reykja-
vík sagði í gærkvöldi, að fram-
boðslistar Kvennalista yrðu vænt-
anlega tilbúnir og frágengnir á
sunnudag, að öllum Iíkindum í
þremur kjördæmum; Reykjavík,
Reykjanesi og Norðurlandi eystra.
Sólveig Leifs-
dóttir önnur
í alþjóðlegri
hárgreiðsíu-
keppni
SÓLVEIG Leifsdóttir, hár-
greiðslumeistari, varð númer tvö í
alþjóðlegri hárgreiðslukeppni í
New York í byrjun vikunnar, í
keppni um meistarabikar (Inter-
national Hairstyle of the Year) og
munaði aðeins nokkrum stigum á
henni og þeirri sem sigraði.
í annarri keppni, um svokall-
aðan alþjóðabikar (World Su-
preme Styling Competition),
varð hún fimmta af 29 þátttak-
endum. í keppninni um alþjóða-
bikarinn keppa þeir einir sem
unnið hafa til verðlauna í viður-
kenndri hárgreiðslukeppni, en
keppnin um meistarabikarinn
er opin. Geysilegur fjöldi kepp-
enda víðsvegar að úr heiminum
tók þátt í keppninni í New York,
en keppnin er nefnd „Beauty
Show“ og er til hennar efnt af
heimssamtökum ýmissa einka-
aðila. Þessi keppni er sú stærsta
sinnar tegundar og vekur ávallt
Sólveig Leifsdóttir. Myndin er tek-
in fyrir 2 árum þegar hún varð ís-
landsmeistari í hárgreiðslu.
mikla athygli. Það var sjón-
varpað frá keppninni í einn og
hálfan tíma.
Var Sólveigu Leifsdóttur sér-
staklega boðin þátttaka, en hún
er núverandi Islandsmeistari í
hárgreiðslu. Og annar hár-
greiðslumeistari af íslandi,
Elsa Haraldsdóttir, var fengin í
hóp dómara. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslendingar taka þátt
í þessari keppni.
Mannréttindabrotum í
E1 Salvador mótmælt
EL Salvador-nefnd Alþýðuflokks-
ins og fulltrúi Mannréttinda-
nefndar E1 Salvador hér á landi
stóðu fyrir fundi við Bakarabrekk-
una í gærdag, þar sem fjallað var
um mannréttindabrot stjórnvalda
í E1 Salvador og morðið á Marian-
ellu Garcíu Villas. Eftir fundinn
var mótmælastaða við bandaríska
sendiráðið.
„Arnarflugsvélin var
á hárréttri leið“
Miðað við hraða flugvélanna minnkaði bilið
milli þeirra um kílómetra á þriggja sekúndna fresti
„FLUGMENN Boeing-flugvélar Arnarflugs voru á hárréttri leið samkvæmt
flugheimildum og brugðust rétt við,“ segir í tilkynningu, sem Flugmálastjórn
gaf út í gær vegna atviksins á þriðjudag er flugmenn Arnarflugsþotu afstýrðu
með snarræði árekstri við Orion-flugvél varnarliðsins undan suðurströnd
landsins. Af tilkynningunni má ráða að varnarliðsflugvélin hafi farið út fyrir
sitt afmarkaða svæði í heimildarleysi og verið í hægri beygju þvert á stefnu
Arnarflugsvélarinnar, er flugmenn Arnarflugsvélarinnar tóku eftir flugvél-
inni og áttuðu sig á hættunni. í nokkrar mínútur stefndu (lugvélarnar beint
hvor mót annarri, en á korti Morgunblaðsins í gær, sem teiknað var eftir
lýsingum sjónarvotta, var að sjá sem Orion-flugvélin kæmi ofan af landi.
Skýringin á því er sú að þegar flugvélin sást var hún í hægri beygju og virtist
því koma frá hægri, þ.e. ofan af landi. Að sögn Skúla Jóns Sigurðssonar hjá
Loftferöaeftirlitinu er rannsókn málsins ekki lokið og því væri ekki hægt að
skýra nánar frá atvikum en segði í tilkynningu Flugmálastjórnar, sem er
svohljóðandi:
„Þriðjudaginn 15. marz sl.
klukkan 12:00 fór Orion-flugvél
frá varnarliðinu í æfingarflug frá
Keflavíkurflugvelli. Var áformað
að þjálfa flugmenn og var flugtími
áætlaður fimm klukkustundir í
svæði suður af Keflavík í geira
sem afmarkast af 160 og 240 gráðu
geislum frá fjölstefnuvitanum í
Keflavík, 15 til 35 sjómílur frá
Keflavík milli 10 þúsund og 15
þúsund feta hæðarmarka.
Laust eftir klukkan 13:00 var
Boeing 737-áætlunarflugvél Arn-
arflugs að koma til Keflavíkur frá
Amsterdam. Flugvélin kom yfir
Vestmannaeyjar og þaðan beint
til Keflavíkurflugvallar. Hún var
yfir Vestmannaeyjum klukkan
13:03 og fékk heimild til lækkunar
á venjulegan hátt inn til Keflavík-
ur.
Um klukkan 13:14 fór Orion-
flugvélin út úr svæði sínu nálægt
ströndinni og um klukkan 13:15,30
er hún komin inn á og flýgur út
geisla 140, eða sama geisla og Arn-
arflugs-vélin flýgur inn á í gagn-
stæða átt. Flugumferðarstjóri sá
sem annaðist radarflugumferðar-
stjórn á viðkomandi svæði tók
ekki eftir því strax að Orion-vélin
var komin inn á flugferil Arnar-
flugs-vélarinnar og á gagnstæða
stefnu. En klukkan 13:17,46 gaf
hann Orion-flugvélinni fyrirmæli
um að beygja til hægri vegna um-
ferðar og flugstjóri Orion-vélar-
27 þúsund tonn af salt-
físki seld til Portúgal
Minna magn og lægra verð í dollurum en á síðasta ári
SAMII) hefur verið við portúgalska rfkisfyrirtækið Reguladora um salt-
fisksölu til Portúgal á þessu ári. Gert er ráð fyrir, að Portúgalir taki á
móti að minnsta kosti 27 þúsund tonnum til ársloka og auk þess allt að 7
þúsund tonnum á fyrstu mánuðum næsta árs. Saltfiskframleiðslan var
mjög mikil síðastliðin tvö ár og þá voru afgreidd 37 þúsund tonn hvort ár.
Það sem af er þessu ári hefur verið afskipað upp í saltfisksamninga frá
síðasta ári. Nú sem áður var samið við Portúgali í Bandaríkjadölum og
var samið um lægra verð en á síöasta ári.
Samningamenn SÍF héldu til Spánverja er ólokið. Samning-
Ítalíu á miðvikudag til samninga ana í Portúgal önnuðust fyrir
við ítali um saltfiskkaup héðan I SÍF þeir Þorsteinn Jóhannesson,
ár. Þaðan eru þeir væntanlegir stjórnarformaður, stjórnar-
heim eftir helgi. Samningum við mennirnir Dagbjartur Einars-
son í Grindavík og Stefán Páls-
son í Vestmannaeyjum, Friðrik
Pálsson, framkvæmdastjóri SlF,
og Sigurður Haraldsson, skrif-
stofustjóri SÍF.
í fréttatilkynningu frá SÍF
segir, að Portúgalir hafi mikinn
áhuga á fiskveiðiréttindum inn-
an landhelgi þjóða við N-Atl-
antshaf, eins og fram hefur kom-
ið í fréttum. í þessum viðræðum
nú hafi þeir ekki séð ástæðu til
að taka það mál upp einu sinni
enn, en hafi hins vegar lagt
mikla áherzlu á, að íslendingar
skildu að þeir mætu fiskveiði-
réttindi mikils. Loks hafi þeir
undirstrikað þá margyfirlýstu
kröfu sína, að íslendingar héldu
áfram að auka kaup frá Portúgal
á hvern þann hátt, sem möguleg-
ur fyndist. Með því móti einu
gætu íslendingar vænzt þess, að
halda hlut sínum á portúgalska
saltfiskmarkaðnum.
innar kvittaði fyrir klukkan
13:17,51.
Flugvélarnar mættust síðan um
klukkan 13:19 og var Orion-vélin
þá í hægri beygju þvert fyrir Arn-
arflugsvélina sem sveigði snöggt
til hægri þegar flugmennirnir sáu
Orion-vélina framundan. Hæðar-
aðskilnaður þeirra var um eða
innan við 300 fet og lengdarað-
skilnaður nokkur hundruð fet, en
slíkt er erfitt að sjá eða meta
nákvæmlega á radarmyndinni.
Flugmenn Boeing-flugvélar
Arnarflugs voru á hárréttri leið
samkvæmt flugheimildum og
brugðust rétt við. Unnið er að
fullnaðarskýrslu samkvæmt
starfsreglum og verður hún vænt-
anlega tilbúin fljótlega."
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var varnarliðsflugvélin
við æfingar í svæðinu sem henni
hafði verið afmarkað. Verið var að
þjálfa flugmenn í að stjórna vél-
inni eins og vökvastýrin væru bil-
uð, en undir þeim kringumstæðum
er flugvélin mjög þung í stýrum.
Flugmenn Arnarflugsvélarinnar
sáu varnarliðsflugvélina nokkrum
sekúndum áður en flugvélarnar
mættust, og á ratsjármynd mætt-
ust merkin, sem flugvélarnar
sendu frá sér, hvort í öðru.
Eins og fram kemur í tilkynn-
ingu Flugmálastjórnar verður
fullnaðarskýrsla samin að rann-
sókn lokinni. Samkvæmt starfs-
venjum stofnunarinnar eru
skýrslur af þessu tagi gerðar til að
stuðla að flugöryggi, og þess vegna
verða í skýrslunni gerðar tillögur
um aðgerðir til að fyrirbyggja að
atvik af þessu tagi geti gerzt aft-
Nálgast hratt
Þar sem flugvélarnar flugu á
tímabili beint hvor mót annarri
hafa þær nálgazt hratt. Miðað við
að farflugshraði Orion-flugvélar-
innar hafi verið 330 hnútar, eins
og Janes-flugvélabókin gefur upp,
og að lækkunarhraði Boeing-
flugvélarinnar hafi verið á milli
280 og 320 hnútar, þá hafa flugvél-
arnar nálgazt hvor aðra með rétt
tæpra 1200 kílómetra hraða að
meðaltali, eða um 330 metra á
hverri sekúndu.
Miðað við þessar forsendur hef-
ur verið einn kílómetri á milli
flugvélanna þremur sekúndum áð-
ur en þær mættust, og 10 kíló-
metrar hálfri mínútu áður. Það
þýðir að 20 kílómetrar voru á milli
þeirra einni mínútu áður en flug-
vélarnar mættust. Þegar flugvél-
arnar mættust voru innan við
hundrað metrar á milli þeirra, að
sögn sjónarvotta.