Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
71
fclk í
fréttum
Enginn frið-
ur til að lesa
lexíurnar
+ Leikkonan Brooke Shields,
sem tók sér frí frá kvikmyndun-
um til aó Ijúka námi vió Prince-
ton-háskólann, fær lítið næöi til
aö lesa lexíurnar sínar. Blaöa-
menn og Ijósmyndarar frá hin-
um og þessum blöðum eru alltaf
á höttunum eftir henni, bæöi í
skólanum og annars staóar.
Skólayfírvöldin draga enga dul á
aö helst af öllu vildu þau aö hún
kæmi sér burt úr skólanum.
Sum blaóanna hafa dreift miö-
um meöal nemendanna þar sem
þeim eru boönar stórar fúlgur
fyrir myndir af Brooke Shields,
allt að 450.000 ísl. kr„ en þá
veröa þaö líka aö vera nektar-
myndir.
Vegna þessa eru sumir nem-
endanna, ekki síst kynsystur
Brooke, alltaf meó litla Ijós-
myndavél á sér og bíöa eftir
hentugu tækifæri til myndatöku.
Brooke leióist þetta aö sjálf-
sögóu og ekki bætti úr skák
þegar hún reyndi aö komast í
skólakórinn en var hafnað þar
sem hún þótti ekki syngja nógu
vel. Brooke segir aó ástandiö sé
aó veróa óþolandi fyrir hana og
ekki sé útilokaö að hún finni sér
einhvern annan skóla þar sem
hún getur fengiö frið til aö vera
hún sjálf og Ijúka námi.
Brigitte Bardot. Þessi mynd var tekin at henni árió 1977 þegar hún gerói
stuttan stans á Reykjavfkurflugvelli.
Lífið
brosir
aftur
við
Brigitte
Bardot
+ Brigitte Bardot
hefur nú tekiö gleöi
sína á ný en hún hef-
ur verið ákaflega
óhamingjusöm um
nokkurt skeiö og
oftar en einu sinni
reynt að fyrirfara sér.
Sem betur fer hafa
sjálfsmoróstilraun-
irnar mistekist. Nú
síöast reyndi hún aö
drekkja sér í sjónum
fyrir framan viíluna
sína. Þá kom George
Boeri til skjalanna og
lét sér svo annt um
Bardot, aö nú eru
þau orðin algjörlega
óaðskiljanleg og
leiðast hönd í hönd
þegar þau þræöa
dýrustu verslanirnar í
St. Tropez í Suöur-
Frakklandi. Boeri er
tæplega fimmtugur
aö aldri, fyrrverandi
hermaöur í útlend-
ingahersveitinni,
góöur kokkur og fer
helst feröa sinna á
mótorhjóii.
síðasta námskeiö fyrir jól
Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri.
5 vikna námskeiö 14. nóv.—15. des.
Morgun-, dag- og kvöldtímar.
Fyrir þær sem eru í megrun:
3ja vikna kúrar. Tímar 4 sinnum í viku. Nýir og
spennandi matarkúrar. Viktun — Mæling — Sér-
flokkar.
Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk
Þú finnur örugglega flokka viö hæfi hjá okkur. Viö
erum meö tíma alla morgna — allan daginn og allt
kvöldið.
★ Sturtur — Sauna — Tæki — Ljós
Ath.: Samlokubekkirnir eru í Bolholti. Afsláttur á(
10 tíma kortum fyrir allar sem eru í skólanum. Ljósin í
Suöurveri eru innifalin.
50 mín. kerfi J.S.B. með músík.
Kennarar Suðurveri: Bára — Margrét — Sigríður.
Kennarar Bolholti: Bára — Anna.
Samningatækni á
erlendum mörkuðum
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að auka hæfni þeirra sem í starfi sínu eiga 1
samningaviðræðum við erlenda viðskiptaaðila. Eftir námskeiðið eiga
þátttakendur að ná betri árangri ( samningaviðræðum og geta beitt
skipulegum vinnubrögðum við samningaborðið.
EFNI:
Á námskeiðinu verður stuðst við noktun myndbanda, og munu þátttak-
endur fá tækifæri til að sjá sjálfan sig við samningaborðið.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeið þetta er einkum ætlað sölu- og innkaupastjórum og þeim
aðilum sem ábyrgð bera á framkvæmd markaðsmála í fyrirtækjum. Allir
sem þurfa að ná árangri við samningaborðið á erlendum vettvangi eiga
erindi á námskeiðið.
LEIÐBEINANDI:
Charles H. Haukatsala, en
bann starfar sem markaðsráð-
gjafi í Finnlandi fyrir fyrir-
tækið A/B Förhandlingskon-
sult. Hann hefur stjórnað
þessu námskeiði bæði í Finn-
landi og Bretlandi og hefur
haldið þetta námskeið einu
sinni hér á landi áður. Nám-
skeiðið fer fram á ensku.
TÍMI OG STAÐUR:
91.—22. nóvember 1983. Hótel Esja.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTOKU
í SÍMA 82930
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS t!!S«23
Metsölubladá hverjum degi!