Morgunblaðið - 10.04.1984, Qupperneq 14
Gunnlaugur Rögnvaldsson
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
Bílasýningin 1984
flllfil
Trompið hjá Ford er þessi glæsilegi Sierra XR4i, oft nefndur fjölskyldu-sportbfll. Morgunhiaðið/G.K.
Sveinn Egilsson hf.:
Sportbíll fyrir fjölskylduna
Sveinn Egilsson, umboð Ford og Suzuki, er
með stærstu sýnendum á bflasýningunni.
Tromp þeirra er Ford Sierra XR4i, óvenju-
legur bfll í útliti, sportlegur og með nóg pláss.
Sierre XR4i er dýrasta útgáfa Sierra-
bílsins og flaggskip Ford. Vélin er 2,8 lítra
með beinni innspýtingu, vinnur frísklega
og skilar 160 hestöflum. í hraöakstri líður
bíllinn léttilega áfram, en er dálítið þung-
lamalegur í innanbæjarakstri. Útlit bíls-
ins minnir dálítið á geimskutlu, en þrátt
fyrir sportlegt útlit er ekki meining Ford
að bíllinn sé sportbíll, heldur rúmgóður
fjölskyldubíll; bíll með útlit, sem kitlar hé-
gómagirndina. Annar frísklegur Ford er
Éscort XR3i, skemmtilegur bíll með vel
heppnað útlit. XR3i hefur stífari fjöðrun
en venjulegi bíllinn og meiri vélarorku, en
sömu sæti og flestan annan frágang. Ódýr-
ari Excort-bíllinn, sem Ford kynnir á sýn-
ingunni, er ættaður frá Brasilíu, hlutirnir
í hann koma frá verksmiðjum í V. Þýska-
landi, en eru settir saman á suðrænum
slóðum.
Suzuki-bílar eru á sýningunni, þeirra at-
hyglisverðastur Pick-Up, sem byggður er
upp á sama hátt og Suzuki Fox-jeppinn.
Blæja er á bílnum og því er létt verk að
smíða yfirbyggingu á bílinn, en hann er
töluvert lengri en jeppinn. Er líklegt að
margir taki þessum bíl opnum örmum.
Litlu Suzuki-bílarnir eru allir á sýning-
unni, en þeir hafa allir sannað það í spar-
aksturskeppni hérlendis og erlendis að
eyðslan er með minnsta móti.
Ræsir hf.:
Umtalsverð breyting á Benz
Mercedez Benz 190 E, sem er á bíla-
sýningunni er einn laglegasti bíll sýn-
ingarinnar, rauður og rennilegur. Um-
talsverð útlitsbreyting er á 190 bflnum
frá hinum hefðbundna Benz, sem lítið
hefur breyst á undanförnum tíu árum
og bfllinn er mun sportlegri en fyrir-
rennarar hans.
Bfllinn á sýningunni er búinn 122
DIN hestafla og 4 cyldindr. bensínvél.
Fjöðrunarkerfi Benz 190 er nýtt af
nálinni, að aftan eru hvorki meira né
minna en fjórar stífur á hvoru hjóli,
sem hafa sjálfstæða fjöðrun eins og
framhjólin. Auka þessar stífur diska-
bremsur á öllum hjólum.
Sætin í bílnum eru mjög stinn, sem
ætti að veita góðan stuðning í lang-
varandi akstri. Nokkur þrengsli eru
innan í bílnum, frammí er stýrið full
nálægt lærum ökumanns, a.m.k. við
fyrstu kynni. Nokkur þrengsli eru
afturí með framsætin í öftustu still-
ingu. í heildina er plássið innan í
bílnum lítið miðað við stærð bílsins.
Einn fallegasti bfll sýningarinnar er Benz 190 E sem Ræsir kynnir ásamt Benz-jeppa.
Morgunbladiö/GR
Ólafur Kr. Guðmundsson
c/o Trévirki hf.
„Allir fagmenn hljóta að þekkja Thorsmans boltana og vita um þeirra festigetu, enda er Thorsmans nafnið
gæöamerki sem allir geta treyst."
Ef óskað er eftir sýnishornum af ofanskráöu efni frá Thorsmans þá góðfúslega fyllið
þennan miða. Sýnishornin eru send án endurgjalds.
X
JOHAN RÖNNING HF s^rrú 8^0c3>
Nafn:
Heimilisfang:
Staður:
I