Morgunblaðið - 10.04.1984, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
Við seljum SSfalke:
Tískuverslunin Assa
Parísarbúðin
Thorella
Laugavegs Apótek
Holts Apótek
Háaleitis Apótek
Borgar Apótek
Laugarnesapótek
Ingólfs Apótek
Ninja, Vestmannaeyjum.
Snyrtivöruv. Glæsibæ
Lady Rose
falke
Hefur þú kynnst fflfalke?
ESfalke fyrir konur á öllum aldri.
Elfalke hátísku sokkabuxur.
Hfalke sjúkrasokkabuxur.
Hfalke bómullar- og ullarsokkabuxur
og gammosíur.
Hfalke lágir tískusokkar.
SSfalke þýsk gæðaframleiðsla.
Einu sinni Hfalke alltaf ESfalke.
falke
Hfalke söluaðilar um allt land.
ÁSTUND AUSTURVERI -heildverslun Háaleitisbraut 68 Simi 84240
Askriftarsíminn er 83033
Bubbi
fær að
borga
Athugasemd frá Stein-
ari Berg ísleifssyni
MIG LANGAR að koma nokkrum at-
hugasemdum að varðandi viðtal við mig
sem birtist í Morgunblaðinu sunnudag-
inn 8. apríl. Mér gafst ekki kostur á að
lesa það áður en til birtingar kom og tel
að ekki komi skýrt fram hvað ég sagði,
og annað mishermt.
1. Það eru ekki mín orð að ég sé að
fara alfarinn af landi brott. Hér er
um að ræða ákveðnari aðgerðir til
búsetuflutnings, þ.e. selja hús hér og
kaupa í Englandi. Þetta er gert af
hagkvæmnisástæðum, þar sem um
dvöl í einhvern óákveðinn tíma er að
ræða. Hinsvegar mun ég eftir sem
áður halda mjög nánu sambandi við
Steina hf. og koma hingað reglulega
og nýta þá þekkingu og reynslu, sem
mér tekst að afla mér í þágu hins
íslenska móðurfyrirtækis.
2. Mér fannst ummæli mín um mis-
mun íslenskra og erlendra útgáfu-
samninga ekki komast til skila, en
ætla ekki að gera tilraun hér til nán-
ari útskýringa þar á. Hins vegar vil
ég leiðrétta setninguna „Við tryggj-
um hlutaðeigandi ákveöinn hlut af
hverri seldri plötu, ekki helming af
ágóða ef einhver verður". Eitthvað
hefur merking þess sem ég sagði
skolast til, þar sem okkar samningar
miðast við að tryggja listamönnum
ákveðnar tekjur hvort sem um hagn-
að eða tap á viðkomandi útgáfu er að
ræða. HÍutfall ágóða flytjenda og
höfunda af heildarhagnaði fyrirtæk-
isins, sé um slíkt að ræða, ræðst að
sjálfsögðu af því um hversu dýrar
útgáfur er að ræða i hvert sinn.
Einnig vil ég bæta við að þær tölur
sem Bubbi Morthens hefur verið að
gaspra um í viðtölum og þau orð sem
hann hefur látið falla um útgáfu-
samninga sýna eingöngu flótta hans
frá raunveruleikanum og skort á
kjarki við að horfast í augu við stað-
reyndir. Samanburðarfræði sú sem
hann hefur haft í frammi er á álíka
háu stigi og þegar hann sagði í út-
varpsviðtali fyrir nokkrum dögum að
níutíu prósent allrar íslenskrar æsku
væru á kafi í dópi og að ’68-kynslóðin
væri lokuð inni á geðsjúkrahúsum.
3. Það hefur aldrei hvarflað að mér
að gefa Bubba eftir skuldir sínar við
fyrirtækið. Hann verður að sjálf-
sögðu að standa við fjárhagslegar
skuldbindingar sínar, eins og annað
fólk. Hins vegar mun Steinar hf, ekki
framfylgja rétti sínum hvað varðar
að hann geri fleiri plötur fyrir fyrir-
tækið né hindra önnur fyrirtæki í að
gera útgáfusamning við hann, þó svo
að við teljum okkur í fullum rétti til
slíkra aðgerða. Um útgáfúrétt Steina
hf. á hinni nýju plötu Egó hefur
aldrei verið deiít, þó umræður hafa
átt sér stað um hugsanlegt framsal
okkar á þeim réttindum. Steinar hf.
munu gefa út næstu plötu Egó I fullu
samkomulagi við hljómsveitina, og
öll hugsanleg deilumál, sem upp
kunna að koma, leyst í beinum við-
ræðum aðila, en ekki á opinberum
vettvangi.
Virðingarfyllst,
Steinar Berg ísleifsson.
éUUIMNlASIUfAN Ht ■
verölækkun á
öli og gosdrykkjum
HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON