Morgunblaðið - 10.04.1984, Síða 23
ftlovflnnftlntnft
ENSKA KNATTSPYRNAN:
i iii i m ii
I Ibróttlr I
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
Sýningarleikur
á Anfield!
— Sjó nánar á bls. 26
aWr feaSI xarajfe iv m lr áwmr ’V \ lyp
Atli Ásmundsson:
„Það var magnað
að horfa á leikinn4
Það var hreint út sagt alveg
magnað að vera áhorfandi aö leik
Stuttgart og Bayern í MUnchen á
laugardaginn. Leikur liðanna var
stórkostlegur. Knattspyrna leikin
eins og hún gerist best.
Og ekki skemmdi það fyrir að
Ásgeir Sigurvinsson var besti
maður vallarins. Hann lék af
hreinni snilld allan leikinn út í gegn
og bar öllum saman um það að
leikur hans hefði verið á heims-
mælikvarða. Það var engin spurn-
ing aö hann sýndi aödáendum
Bayern og forráðamönnum liösins
að þeir misstu snilling þegar hann
var látinn fara.
Daninn Lerby sem lék á miðj-
unni hjá Bayern sást ekki í leikn-
um. Ég sat mitt á meðal mikilla
aödáenda Bayern og þeir lofuöu
leik Ásgeirs í hástert og sögöu að
fyrrum þjálfari Bayern, Cesarnai,
hefði gert mikil mistök aö láta
hann fara, sagði Atli Ásmundsson,
en hann var meðal áhorfenda á
leik Stuttgart og Bayern á laugar-
daginn var. — ÞR.
Asgeir Sigurvinsson:
„Lékum vel gegn Bayern“
MÉR TÓKST sérlega vel upp í
leiknum gegn Bayern. Þetta hefur
allt gengið Ijómandi vel hjá
manni aö undanförnu. Ég þakka
það mest aö ég er alveg laus viö
öll meiðsli og hef getaö leikið af
fullum krafti án nokkurra óþæg-
inda, sagöi Ásgeir eftir glansleik
sinn gegn Bayern.
— Nú er áframhaldandi spenna
í deildinni. Það var nauðsynlegt að
taka stig af Bayern-liðinu og það
var gott að þaö skyldi takast á úti-
velli. Þetta styrkir okkur mjög á
lokasprettinum. Viö eigum núna 4
heimaleiki eftir og 3 útileiki. Við
lékum vel gegn Bayern og ég hef
fulla trú á því að við verðum sterkir
á lokasprettinum, sagði Ásgeir, en
Stuttgart hefur núna mjög mikla
möguleika á að hreppa meistara-
titilinn. — ÞR.
Þrír íslenskir
sigurvegarará
stórmóti í Austin
• Geir tolleraðurll FH-ingar tryggöu sér fslandsmeistaratitilinn í handbolta á sunnudagskvöldið meö sigri á
Stjörnunni. FH-ingar fögnuðu mikið að vonum eftir leikinn — og hér tollera þeir þjálfara sinn, Geir
Hallsteinsson. Helgi Ragnarsson, liðsstjóri, fékk svo „flugferð" stuttu síöar. Morgunbiaöiö/Júiius
ÍSLENSK A frjálsíþróttafólkiö sem
dvelur viö nám og æfingar í
Arangur fimm ára erf-
iðis að koma í Ijós
— segir Geir Hallsteinsson þjálfari íslandsmeistara FH
„MED ÞESSUM sigri er að koma í
Ijós árangur langra og erfiöra æf-
inga, sem segja má aö staðið hafi
yfir í fimm ár. Strákarnir hafa lagt
mikið á sig sem sést á því að frá
því í ágúst höfum við æft aö meö-
altali sex sinnum í viku,“ sagöi
Geir Hallsteinsson, þjálfari ný-
bakaðra fslandsmeistara FH í
handknattleik, eftir sigur liðsins á
Stjörnunni á sunnudagskvöldið
er titillinn var í höfn.
„Árangurinn er líka i samræmi
við æfingarnar. Við höfum unniö
fjögur mót, Reykjanesmótiö, úti-
mótið, deildarkeppnina og nú síö-
ast íslandsmótiö. Aö sjálfsögöu
stefnum við að þvr aö vinna fimmtu
keppnina," sagði Geir og átti þar
við bikarkeppnina sem stendur nú
yfir.
Geir sagði að strákarnir í liöinu
væru ekki þeir einu sem lagt hefðu
mikið á sig í þessu sambandi. „Eig-
inkonur þeirra hafa sýnf mikinn
skilning á þeim tíma sem í æfingar
hefur fariö og eiga þær bestu
þakkir skildar. Einnig vil ég þakka
I aðstoöarmanni mínum og liðs-
stjóra, Helga Ragnarssyni, reglu-
| lega vel unnin störf. Hann hefur
veriö mín stoð og stytta og skilað
sínu hlutverki framúrskarandi vel,"
sagði Geir. — BJ.
Tveir Islendingar
Þýskalandsmeistarar?
TALSVERDIR möguleika'r eru nú
á því að tveir íslenskir íþrótta-
menn verði Þýskalandsmeistarar
með liöum sinum á þessu keppn-
istimabili: Ásgeir Sigurvinsson
knattspyrnumaður hjá Stuttgart
og Alfreð Gíslason handknatt-
leiksmaður hjá Essen.
Asgeir og félagar gerðu jafn-
tefli við Bayern Munchen á úti-
velli um helgina og eru aöeins
einu stigi á eftir Bayern og Glad-
bach, sem eru í efsta sætinu.
Stuttgart á eftir eftirtalda leiki i
deildinni: Fortuna Dusseldorf
(h.), 1. FC Nurnberg (ú.), Kickers
Offenbach (h ), Eintracht Frank-
furt (h.), Werder Bremen (ú.) og
Hamburger SV (ú.). Tveir erfiöir
útileikir í lokin, en Bayern og
Gladbach eiga mjög svipaö
„prógram'' eftir.
Alfreö og félagar í Essen kom-
ust í efsta sæti Bundesligunnar í
handbolta um helgina er liöiö
vann auðveldan sigur á Hofweier,
24:14, en Grosswaldstadt sem
verið hefur í efsta sætinu í allan
vetur tapaöi öðrum leiknum í
röð. Möguleikar Essen á meist-
aratitli eru nú miklir — liöið leik-
ur mjög góðan handknattleik og
viröist ekki líklegt til að gefa eftir
i baráttunni um meistaratitilinn.
Sjá nánar á bls. 24 og 26.
Bandaríkjunum gerði það mjög
gott á stóru háskólamóti sem
fram fór í Austin í Texas síðast-
liöinn föstudag. Eins og við höf-
um skýrt frá þá setti Einar Vil-
hjálmsson nýtt íslandsmet í
spjótkasti, kastaði 92,40 metra.
Það er jafnframt nýtt bandarískt
háskólamet.
Einar kastaöi 303,1 fet ná-
kvæmlega. Það varð uppi fótur og
fit á leikvanginum þegar spjótiö
flaug yfir 300 fetin og það tók
dómara og starfsmenn tuttugu
mínútur aö mæla kastiö. Var Einari
fagnað ákaflega eftir aö metið sást
á Ijósatöflu leikvangsins. Metkast
Einars var síöan sýnt tvívegis í
fréttatíma sjónvarpsins í Austin. j
blaöinu á morgun er viðtal við Ein-
ar þar sem meöal annars kemur
fram að hann er aö ná mjög góðu
valdi á tækni sinni i spjótinu.
Þórdís Gísladóttir keppti á mót-
inu og sigraði í hástökkinu, stökk
1,84 metra. Þórdís'er í mjög góðri
æfingu og á án efa eftir aö setja
met á næstu mótum. Vésteinn
Hafsteinsson sigraði í kringlukasti
á mótinu kastað 62,24 metra. Þrá-
inn Hafsteinsson, bróöir hans,
kastaði 54,14 metra. Þá varö íris
Grönfelt önnur í spjótkasti, kastaði
53,32 metra. Óskar Jakobsson
keppti sem gestur í kúluvarpinu,
hann náði að kasta alveg viö 20
metra markiö í upphitun. En þegar
keppni hófst fór að rigna og
kasthringurinn varð sleipur. Öskari
gekk þá ekki eins vel og gerði köst
sín ógild.
— ÞR.