Morgunblaðið - 10.04.1984, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
Ásgeir yfirburðamaður
á ólympíuleikvanginum
— er Bayern og Stuttgart gerðu jafntefli
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaósins í Vestur-Þýskalandi.
„SIGURVINSSON sýndi Bayern hverju þeir töpuðu er hann var seldur,“
sagði þýska stórblaðið BILO eftir leík Bayern MUnchen og Stuttgart á
Ólympíuleikvanginum í Bayern á laugardag — en jafntefli varð í leikn-
um, 2:2, og skoraði Ásgeir Sigurvinsson síðara mark Stuttgart. Mark
hans var glæsilegt og Ásgeir var besti maður vallarins. „Yfirburða-
maöur á vellinum,“ eins og BILO sagöi. Stuttgart er því enn einu stigi
á eftir Bayern sem er í efsta sætinu ásamt Borussia Mönchenglad-
bach, en Gladbach geröi einnig jafntefli um helgina.
Aðalleikur helgarinnar var að
sjálfsögöu viöureign Bayern og
Stuttgart. Uppselt var á völlinn —
áhorfendur 78.000, og þeir fengu
að sjá góöa knattspyrnu. Meöal
áhorfenda voru fjórir af frægustu
leikmönnum Bayern á árum áöur:
Franz Beckenbauer, Paul Breitnar,
Sepp Meier og Gerd Muller. Beck-
enbauer sagöi eftir leikinn: „Ég
elska knattspyrnu eins og þá er
liöin léku í dag — þegar barist er á
hæl og hnakka. Þá hefur maður
það virkilega á tilfinningunni aö
veriö sé aö spila í Bundesligunni
en ekki sé um vináttuleik aö
ræöa!“
Lítum á úrslit Bundesliguleikj-
anna áöur en viö höldum lengra:
Staðan
STAOAN í veitur-þýíku Bundeslígunni
er þannig eftir leiki helgarinnar:
Bayern MUnchen27 16 8 5 65—29 38
Gladbach 27 16 6 5 81—36 38
VFB Stuttgart 27 14 9 4 57—28 37
Hamburger 27 15 6 6 59—30 36
Werder Bremen 27 14 6 7 59—35 34
Leverkusen 27 12 6 9 46—43 30
FC Köln 27 12 4 11 50—43 28
DUeeeldorf 27 10 7 10 52—46 27
Bíelefeld 27 9 8 10 33—40 26
Kaiserslautern 27 10 5 12 56—52 25
Bayer Urdingen 27 9 7 11 48—59 25
Mannheim 27 7 11 9 32—43 25
Braunschweig 27 11 3 13 45—59 25
Dortmund 27 8 6 13 38—53 22
VFL Bochum 27 7 7 13 45—60 21
Frankfurt 27 4 12 11 33—49 20
Offenbach 27 5 5 17 33—81 15
1 FC NUrnberg 27 6 2 19 31—57 14
Bremen — Ordingen 5:2
Offenbach — Leverkusen 0:2
Gladbach — Frankfurt 1:1
Bayern — Stuttgart 2:2
Mannheim -=• Kaiserslautern 2:0
1. FC Köln — Nurnberg 3:1
Bochum — Hamburger SV 1:1
Dússeldorf — Bielefeld 0:0
Braunschweig — Dortmund 5:0
Bayern tók forystuna k 14. mín.
gegn Stuttgart meö mjög fallegu
marki Grobe. Lerby sendi inn í
vítateiginn og Grobe tók boltann á
lofti — þrumaði honum viöstööu-
laust meö vinstri fæti í bláhorniö.
Óverjandi fyrir Roleder. Aöeins
tveimur míh. síöar jafnaði Stutt-
gart. Sören Lerby hinn danski
braut gróflega á Ásgeiri nokkru
utan vítateigs. Karl Heinz Förster
skaut yfir varnarvegginn og af
höföinu á Nachtweih, varnarmanni
Bayern, fór knötturinn í netiö. Þaö
sem eftir var fyrri hálfleiks var hart
barist á miöju vallarins og ekki
mikið um marktækifæri. Karl Heinz
Rummenigge fékk þó eitt en skor-
aöi ekki. Annars voru framlínu-
menn Bayern í strangri gæslu —
Karl-Heinz Förster elti Rummen-
igge eldri út um allan völl, og
Benthaus þjálfari Stuttgart lét líka
elta Dieter Höness og Michael
Rummenigge.
Undir íok hálfleiksins meiddust
Roleder og Makan og var þeim
skipt út af í leikhléinu. í staö Rol-
eder kom Jáger í markið, þetta var
hans fyrsti leikur í Bundesligunni
þrumuskot úr aukaspyrnunni aö
marki Bayern en Jean-Marie Pfaff
varöi frábærlega vel í horn.
Hornspyrnuna tók Ohlicher; gaf vel
fyrir markiö og þaöan barst boltinn
út í teiginn til Ásgeirs. Hann hugs-
aöi sig ekki tvisvar um heldur
sendi þrumufleyg til baka, „fram-
hjá vinum og fjandmönnum" eins
og BILD oröaði það, og knötturinn
þandi út netmöskvana áöur en
Pfaff fékk nokkuö að gert. Glæsi-
legt mark.
Leikurinn var mjög opinn og
fjörugur eftir þetta og bæöi liö
fengu tækifæri til aö bæta við
mörkum. En ekki var skoraö meira
og sanngjarn úrslit jafntefli. Þjálf-
arar beggja liöa voru sammála um
þaö. „Viö komum hingað til aö ná í
stig og þaö tókst," sagöi Benthaus
þjálfari Stuttgart og var ánægöur.
Hann má líka vera þaö, staöa
Stuttgart er sterk. Liöiö er aöeins
einu stigi á eftir Bayern.
Leikmenn Borussia Mönchen-
gladbach voru mjög óstyrkir í
leiknum gegn Frankfurt og náöu
ekki aö jafna fyrr en á síöustu mín-
útu er Edwald Lienen skoraöi. Uwe
Múller geröi mark Frankfurt á 80.
mín. Markvöröur Frankfurt varöi
víti í leiknum. Gladbach tapaöi
þarna sínu fyrsta stigi á heimavelli
í vetur. Uwe Reinders og Rudi Völl-
er geröu tvö mörk hvor í 5:2 sigri
Bremen og Bruno Pezzey skoraöi
eitt. Bremen var 0:2 undir í leikhléi.
Fortuna Dússeldorf er enn í
þeim öldudal sem liöiö hefur veriö
í undanfarið. Pétur Ormslev lék
meö liöinu gegn Bielefeld og fékk
4 í einkunn. Atli Eövaldsson fékk
einkunnina 5. Hvorugur lék því vel,
og áhorfendur voru aöeins 6.700 á
Rheinstadion. Aö lokum: Wolfram
Wuttke geröi mark Hamburger
gegn Bochum á 63. mín. en áöur
haföi Walter Oswald náö forystu
fyrir heimaliöiö.
• Ásgeir var besti maður vallarins er Stuttgart geröi jafntefli viö
Bayern MUnchen á ólympíuleikvanginum, og skoraöi annað mark
Stuttgart.
og strax á fyrstu mín. var dæmd á
hann vítaspyrna fyrir að fella Hön-
ess. Grobe skoraöi annað mark
sitt í leiknum úr vítinu.
En leikmenn Stuttgart gáfust
ekki upp og á 67. mín. náöi Ásgeir
aö jafna. Hann óö fram völlinn
meö boltann en Pflugler braut
gróflega á honum með þvi aö rífa í
peysu hans. Karl-Heinz Förster átti
Víkingar þurftu lít-
ið að hafa fyrir sigri
Víkingur vann Stjörnuna ör-
ugglega, 32:23, ó laugardaginn í
úrslitakeppninni. Leikurinn var
heldur óskemmtilegur, áhorfend-
ur sárafáir og stemmningin því
sem næst engin.
Víkingar léku þó nokkuö vel á
köflum — en þurftu ekki aö leggja
mikiö á sig til aö sigra. Stjarnan
komst aldrei á loft aö þessu sinni.
Vikingar náöu góöri forystu fljót-
lega í leiknum, eftir aö Gunnar
Stjarna Einarsson haföi skorað
fyrsta mark leiksins. Stjarnan
ógnaöi aldrei sigri Víkings — staö-
an var 15:9 í hálfleik, minnstur
varð munurinn þrjú mörk í seinni
hálfleik, 20:17, eftir góöan kafla
Stjörnunnar. Skömmu áöur haföi
staöan veriö 20:13.
En Víkingar keyröu upp hraöann
lokakaflann og sigruöu örugglega.
Kjör manns leiksins var víst ekki
tilkynnt aö þessum leik loknum
eins og tíökast hefur í úrslita-
keppninni. Dómnefndarmönnum
kannski ekki þótt viö hæfi aö
heiðra neinn leikmann.
Sumir léku þó vel. Bjarni Bessa-
son blómstraöi hjá Stjörnunni og
skoraöi nánast þegar hann vildi á
timabili og Hilmar Sigurgíslason
skoraöi mörg mörk fyrir Víking —
flest meö iangskotum. Fleiri Vík-
Víkingur —
Stjarnan
32:23
ingar léku vel og vert er aö geta 17
ára nýliöa í liöinu: Siggeirs Magn-
ússonar sem skoraöi eitt mark og
sýndi skemmtilega takta. Greini-
lega mikiö efni þar á feröinni.
Mörk Víkings: Hilmar Sigurgísla-
son 9, Steinar Birgisson 7, Karl
Þráinsson 5, Hörður Harðarson 3,
Guðmundur Guömundsson 3,
Ólafur Jónsson 2, Siguröur Gunn-
arsson 2/2 og Siggeir Magnússon
1. Mörk Stjörnunnar: Bjarni
Bessason 9, Gunnar Einarsson
5/2, Skúli Gunnsteinsson 3, Her-
mundur Sigmundsson 2, Magnús
Teitsson 1, Eyjólfur Bragason 1,
Sigurjón Guömundsson 1, Gunn-
laugur Jónasson 1. Víkingur fékk
tvö víti og nýtti bæöi — Stjarnan
fékk fjögur víti, nýtti tvö. Víkingar
voru reknir út af í samanlagt 8
mín., en Stjarnan missti aöeins
einn leikmann út af í tvær mín.
— SH.
• Sverrir Kristinsson, snjall gegn Val.
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Sex mörk í fyrsta leiknum
VALUR og KR geröu jafntefli, 3—3, í
fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu á Melavellinum á sunnu-
dag, í rigningu og roki. Víkingur og
Þróttur áttu að leika á laugardag en
þeim leik var frestað vegna veðurs.
KR-ingar komust i 3—0 á fyrstu 20
min. leiksins á sunnudag: Sverrir Her-
bertsson skoraöi tvívegis og Gunnar
Gíslason einu sinni. Valsmenn hófu svo
seinni hálfleikinn eins og KR-ingar þann
fyrri — meö því aö skora þrjú mörk.
Hilmar Sighvatsson skoraöi þaö fyrsta
ur víti, Guömundur Kjartansson geröi
annaö markiö og Hilmar Sighvatsson
það þriöja. Bæöi liðin fengu því tvö stig
úr leiknum — eitt fyrir jafntefliö og eitt
aukasfig fyrir aö skora þrjú mörk.
!
i
Litlu munaði að FH tapa
„ÞETTA var nú kannski eitthvert
kæruleysí í strákunum en það er líka
þreyta í þeim. Þetta er erfitt mót og
viö lékum í bikarkeppninni í Eyjum í
vikunni. En við höfum sýnt að viö er-
um með langbesta liðið og erum á
toppnum nú — á réttum tíma,“ sagöi
Geir Hallsteinsson, þjálfari FH, eftir að
liðið haföi sigrað Val naumlega í úr-
slítakeppni efri liða 1. deildarinnar í
handbolta í Laugardalshöll á laugar-
dag 23:22.
Ekki munaöi miklu aö FH-ingar töp-
uðu þarna sínu fyrsta stigi í allan vetur.
Er sex sekúndur voru til leiksloka sveif
Jakob Valsari Siyurösson inn úr horn-
inu — fékk boltann á lofti og skaut á
markiö en Sverrir Kristinsson, sem var
frábær í FH-markinu í leiknum, varöi
vel. Sigurinn þar meö í höfn.
Valur - FH
22:23
í upphafi leiks virtust FH-ingar ætla
aö kafsigla Valsmenn, þeir komust í 6:1
og síöar 9:3 er 14 min. voru búnar. En
þá hljóp kæruleysi í veröandi íslands-
meistara úr Hafnarfiröi, vörnin var ekki
svipur hjá sjón og sóknin bágborin.
Valsmenn gengu á lagiö — skoruöu
fjögur mörk í röö, og breyttu stööunni í
9:7. Sá munur hélst mestallan fyrri hálf-
leikinn — þar til Valdimar Guölaugsson
skoraöi 12. mark Vals í lokin — boltinn
var varla kominn nema millimeter yfir
línuna er flautaö var til leikhlés. Staðan
13:12.
Valsmenn komu ákveönir til leiks eft-
ir hlé: Jakob Sigurösson jafnaöi og
fljótlega kom Ólafur H. Jónsson þeim
yfir í fyrsta, og reyndar eina skiptiö í
leiknum. FH-ingar tóku sig saman í
andlitinu og náöu forystu strax aftur,
sem þeir héldu þar til fjórar og hálf mín.
var eftir. Þorbjörn Guömundsson jafn-
aöi þá 22:22 úr vítakasti. Kristján Ara-
son geröi 23. mark FH er þrjár mín.
voru eftir og ekki tókst leikmönnum liö-
anna aö skora meira. Litlu munaöi í lok-
in hjá Jakob eins og áöur sagöi.
Þorgils Óttar Mathiesen og Sverrir
markvöröur Kristinsson voru bestu
menn FH í leiknum — Sverrir varöi 16
skot. Einar Þorvaröarson var bestur
Valsara — varöi 13 skot í leiknum, og