Morgunblaðið - 10.04.1984, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
Reykhólar:
Idnfyrirtæki styðji fjárbúið
„í þeirri von að starfsemi Til-
raunafjárbúsins á Reykhólum fái
að halda áfram til hagsbóta fyrir
ullar- og skinnaiðnað hefur komið
t.il umræðu að iðnfyrirtæki á
þessu sviði leggi fram fjármagn til
að létta á rekstrarvanda tilrauna-
stöðvarinnar," sagði doktor Stefán
Aðalsteinsson, deildarstjóri hjá
Rannsóknastofnun Landbúnaðar-
ins aðspurður. En á Reykhólum,
þar sem ræktaður hefur verið
stofn af hreinhvítu fé, hefur staðið
til að leggja sauðfjárhald niður
vegna erfiðleika í rekstri og skorts
á rekstrarfé.
„Slík lausn ætti að draga veru-
lega úr þeim vanda, sem tilrauna-
stöðin hefur átt við að etja og
standa vonir til að þetta mál leys-
ist á farsælan hátt,“ sagði Stefán.
HLJOMBÆR
HUOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SÍMAR 25999 & 17244
HELSTU UMBOÐSMENN:
Portið, Akranesi
Kaupf Borgfirðinga
Sería. ísafiröi
Álfhóll. Siglufiröi
Skrifstofuval. Akureyri
Kaupf Skagf Sauöárkróki
Radíóver, Húsavík
Ennco. Neskaupstaö
Eyjabœr. Vestm eyjum
M.M., Selfossi
Fataval. Keflavík
Kaupf. Héraösb. Egilsstööum
Plötuspilarí sem spilar
Ijóðrétt af plötunni.
• Þessa einstæðu samstæöu er nú
hægt aö eignast meö aöeins 4.000 kr.
útborgun og afganginn á næstu 6 mán.
Verö kr. 17.500 stgr.
Fimmta hefti „Vötn
og veiði“ komið út
Liðtækur leiðarvísir fyrir stangaveiðimenn
ÚT ER komið fimmta hefti af bækl-
ingi Landssambands veiðifélaga,
„Vötn og veiði“, sem Hinrik A. Þórð-
arson hefur tekið saman. Má segja að
í heftinu sé öðru sinni haldið af stað í
hringferð um landið.
Bæklingar þessir lýsa, sem unnt
er, silungsveiðistöðum vítt og breitt
um landið, upplýsingar eru um
sölustaði veiðileyfa, stystu leiðir
þangað, einnig hugmyndir um
hvers megi vænta af viðkomandi
veiðistað. Sem dæmi um það má
nefna frásögn Hinriks um smáárn-
ar Almenningsá, Beiná og Laugá í
Biskupstungnahreppi. Þar stendur:
„Aðeins hefur orðið vart bleikju og
dvergbleikja, eins og fingur, mun
sjást á einstaka stað.“ Síðar segir:
Veiðitími er frá 1/4 til 20/9 og eru 6
stengur á dag, og eru veiðistaðirnir
fleiri en fiskarnir."
í þessu fimmta hefti „Vötn og
veiði" er lýst fyrir 38 veiðistöðum á
svæðinu frá Rangárþingi til Snæ-
fellsness. Um innihald bæklingsins
er annars helst að segja það sem
umsjónarmaður segir sjálfur í
formála: „f fyrstu umferðinni urðu
helst fyrir valinu vötn, sem þekkt
voru að sæmilegri veiði, lágu eigi
mjög fjarri þjóðleið eða hægt að
komast með ökutæki til veiðistaðar.
Þau vötn, sem nú verður gefin lýs-
ing af, eru flest minna þekkt, mis-
jafnari sem veiðivötn og ekki nærri
alltaf seld á leigu til stangaveiða.
En þó eru sum þeirra með allra
fiskiauðugustu vötnum landsins."
Sem fyrr segir er útgefandinn
Landssamband veiðifélaga og um-
sjónarmaður ritsins, Hinrik A.
Þórðarson. Til fulltingis hafa þeir
aðilar fengið Jean Pierre Biard,
korta- og landafræðing, einnig
Rafn Hafnfjörð, sem tók kápu-
myndina, en hún er frá Hvítár-
vatni.
Aðalfundur Lögmannafélags íslands
AÐALFUNDUR Lögmannafélags fs-
lands var haldinn 30. mars sl. Jón
Steinar Guðmunsson hrl. var endur-
kjörinn formaður.
Aðrir í stjórn eru Páll A. Pálsson
hrl., Eiríkur Tómasson hrl., Hall-
grímur B. Geirsson hdl. og Gísli
Baldur Garðarsson hdl. Fram-
kvæmdastjóri er Hafþór Ingi Jóns-
son hdl.
Félagsmenn eru alls 265, þar af
114 hæstaréttarlögmenn og 150
héraðsdómslögmenn. Heiðursfélagi
er Rannveig Þorsteinsdóttir hrl.
HUSBYGGJENDUR -
MÁLARAR
í Málingarvörudeild hinnar nýju og glæsilegu
Byggingavöruverslunar Húsasmiðjunnar býðst
einstakt úrval lita og tegunda málningar
ásamt ýmsum gerðum fúavarnar- og þéttiefna.
Notfærið ykkur reynslu starfsmanna Málningar-
vörudeildarinnar við ráðgjöf um litaval, magn
innkaupa og þá tegund málningar og áhalda sem
best henta hverju sinni. Notið tækifærið og kynnið
ykkur samtímis hið ótrúlega og vandaða vöruval í
öðrum deildum Byggingavöruverslunar Húsasmiðjunnar.
MALNINGAVORUR
Jafnt til eigin nota sem í atvinnuskyni
8
l
§
HÚSA
SMIOJAIM
SÚÐARVOGI 3-5, 104 REYKJAVÍK 0 687700