Morgunblaðið - 07.12.1984, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
Kvikmyndin Hvitir mávar er
skrifuö með hliösjón af 60. ára-
tugnum, sem endurspeglast m.a.
i búningum Dóru Einarsdóttur,
leikmynd Kristjáns Karlssonar og
útliti leikara sem þær Ólöf Ing-
ólfsdóttir og Guöbjörg Hólmfríöur
Kristinsdóttur sáu um. „Þetta
tímabil býöur upp á skemmtilega
möguleika varöandi útlit á mynd-
inni. Þaö er helsta ástæöan fyrir
tímasetningunni. Söguþráðurinn
er hins vegar þess eölis aö hann
gaBti gerst á hvaöa tíma sem er,“
segir Valgeir. Um söguþráöinn
vilja þeir sem minnst raBöa aö svo
stöddu máii, en í fljótu bragöi má
segja aö hann sýni ýmsar uppá-
komur og margvíslegar afleiö-
ingar af komu utanbæjarfólks í
lítiö sámfélag.
Meö aöalhlutverk myndarinnar
fer Ragnhildur Gísladóttir, sem
segja má aö nú þreyti frumraun
sina sem leikari í kvikmynd, í
hlutverki Svölu. „Ég get varla
sagt aö ég hafi leikiö mikiö í '
„Með allt á hreinu". Þar byggöist
minn hlutur mest á söng og
sviösframkomu," segir Ragnhild-
ur.
Hvernig líst henni svo á aö
bæta leiklist viö tónlistina?
„Þetta er ofsalega gaman,
skemmtileg vinna og góöur sam-
starfshópur. Ég haföi ekki hugs-
aö um leiklistina neitt sérstaklega
hér áöur fyrr, en sjálfsagt ein-
hverntíma dottiö í hug aö þaö
gæti nú veriö gaman aö vera
leikari! Samt er þaö svolítiö
skrýtiö aö þegar ég lauk prófi
sem tónmenntakennari sagöi
pabbi minn: — ég haföi alltaf
ímyndaö mér aö þú færir í leik-
listarskólann."
Meö önnur aöalhlutverk í
myndinni fara þau Tinna Gunn-
laugsdóttir sem Helga og Egill
Ólafsson í hlutverki Odds, eig-
inmanns hennar. „Ég er hætt aö
vera draumadísin og komin í
hlutverk eiginkonunnar. Ætli ég
leiki ekki aldraöa móöur Egils í
næstu mynd!" segir Tinna um
mótleik þeirra hjóna, fyrst í „Meö
allt á hreinu" og nú í „Hvítum
mávum". Auk aöalleikaranna
þriggja leika um 25 manns í
myndinni og má þar nefna m.a.
þau Rúrik Haraldsson, Flosa
Ólafsson, Tómas Tómasson,
Þórhall Sigurösson, Tyrone
Troupe, Pamelu Brement, Karl
Guömundsson, Jón Tryggvason,
Magnús Ólafsson, Herdísi Þor-
valdsdóttur, Jónas R. Jónsson,
Guöjón Pedersen og Arnþór
Jónsson. ---
Þá er ótalinn fjöldi staögengla
í myndinni, flestir Seyðfiröingar
sem studdu kvikmyndatökuhóp-
inn meö ráöum og dáö meöan á
Seyðisfjarðardvölinni stóö.
Hyggjast Stuömenn m.a. þakka
þeim móttökurnar meö því aö
frumsýna myndina samtímis á
Seyöisfirði og í Reykjavík.
Én kvikmynd veröur víst ekki
til meö leikurum einum saman,
þar kemur til samvinna stórs
hóps og taldi sá hópur sem sá
um myndatöku, búninga, leik-
mynd, leikmunasmiöju, hár-
greiöslu, föröun og ótalmörg at-
riöi önnur samtals um 30 manns.
„Einvalaliö" er samdóma álit þre-
menninganna á samstarfsmönn-
unum. „Þessi mynd var öll unnin
meö ákaflega lýöræöislegum
vinnubrögöum og þaö er ekki
haegt nema meö valinn mann á
hverjum staö," segir Jakob.
Þó aö tökum sé lokiö er margt
eftir áöur en myndin veröur kom-
in í endanlegt form. Klippingu
hennar mun væntanlega Ijúka um
miöjan desember, en þaö er
Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda-
geröarmaöur sem annast hana.
Um hljóösetningu myndarinnar
sér Júlíus Agnarsson. Endanleg-
ur kostnaöur viö gerö myndar-
innar liggur ekki fyrir, en hann
mun verða á annan tug milljóna
króna.
Fram að sýningu myndarinnar
er því margt eftir, en líklegast
munu Stuömenn láta heyra í sér
þangaö til. „Við reynum aö fylgja
plötunni úr hlaöi meö tónleika-
haldi, en þaö hefur enn ekki unn-
ist tími aö undanförnu til aö
skipuleggja þaö. Viö höfum lagt
nótt viö dag til aö Ijúka upptök-
um á plötunni og enginn tími ver-
iö til annars," segir Jakob þegar
viö kveöjum Stuömenn aö kvöldi
dags í hljóöstúdióinu Grettisgati
og gefum þeim friö til aö Ijúka
síðustu upptökum á „Kókoshnet-
um og hvítum mávum", sem eiga
aö sendast utan aö morgni.
\&%XST
.srst
Hvíld frá
kvikmyndatökum
F.v. Ólafur Rögnvaldsson, Agúst
Baldursson, Jakob Magnússon, Jón
Tryggvason, Valgeir Guöjónsson,
Egill Eövarösson, Karl Óskarsson
og Hilmar Oddsson. Litla daman
fyrir miöju er Erna, dóttir Ragnhildar
Gísladóttur.