Morgunblaðið - 07.12.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
B 15
Leikfélag og karlakór:
Jólavaka
JÓLAVAKA Leikfélags Mosfellssveitar og karlakórsins Stefnis veröur haldin í Hlégarði á sunnu-
dag kl. 21. Karlakórinn syngur undir stjórn Helga R. Einarssonar, en einsöngvari er Sigmundur
Helgason. Leikfélagið flytur einþáttunginn Ferðin til skugganna grænu eftir Finn Methling og er
í því verki sagt frá lífshlaupi konu frá vöggu til grafar. Sr. Birgir Ásgeirsson flytur hugvekju og
Stefnurnar sjá um kaffiveitingar.
götu. Sýning þessi er önnur einka-
sýning listamannsins og eru á henni
landslagsmyndir og myndir frá sjáv-
arsíðunni. Sýningin er opin frá kl.
16—22 virka daga og frá kl.
14—22 um helgar, en henni lýkur á
sunnudag.
Norræna húsið:
Þræðir úr Ijóðum
Snorri Sveinn Friöriksson heldur
nú myndlistarsýningu (Norræna
húsinu og mun hún standa til sunnu-
dags. A sýningunni eru 50 myndir
unnar á þessu ári út frá Ijóðum I nýrri
Ijóðabók Sigvalda Hjálmarssonar,
Víðáttur. Sýningin er 4. einkasýning
Snorra Sveins og er hún opin frá kl.
17—23 virka daga og frá kl.
15—23 um helgar.
ListmunahúsiÖ:
Jólasýning
Ellefu listamenn halda nú sýningu
á verkum slnum f Listmunahúsinu
við Lækjargötu. A sýningunni eru
leirverk, tauþrykk og myndverk unn-
in með ýmissi tækni. Þeir sem eiga
verk á sýningunni eru: Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Asrún Kristjáns-
dóttir, Borghildur Óskarsdóttir, Eyj-
ólfur Einarsson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson, Herborg Auðunsdóttir,
Kolbrún Björgólfsdóttir, Kolbrún
Kjarval, Llsbet Sveinsdóttir, Ólöf Ein-
arsdóttir og Sigurður Örlygsson.
Sýningin er opin virka daga frá kl.
10—18 og um helgar frá kl.
14—18, en lokað er á mánudögum.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safnahús og högg-
myndagarður
Safnahús Listasafns Einars
Jónssonar er opiö daglega, nema á
mánudögum, frá kl. 13.30—16 og
höggmyndagarðurinn, sem I eru 24
eirafsteypur af verkum listamanns-
ins, er opinn frá kl. 10—18.
Listasafn ASÍ:
Verk Muggs
I Listasafni Alþýðusambands Is-
lands við Grensásveg stendur nú yfir
sýning á verkum Muggs, Guðmund-
ar Thorsteinssonar. Sýningin er
haldin i tilefni útkomu listaverkabók-
ar um Mugg eftir Björn Th. Björns-
son. A sýningunni eru 66 þeirra lista-
verka Muggs, sem birt eru I bókinni,
olíumálverk, olfukrftarmyndir,
vatnslitamyndir, teikningar, útsaum-
ur o.fl. Sýningin stendur til 16. des-
ember og er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 14—22.
Gallerí Borg:
Sigurður
Thoroddsen
Nú stendur yfir f Gallerf Borg við
Austurvöll sýning á verkum Sigurðar
heitins Thoroddsen, verkfræðings.
Sigurður hætti verkfræðistörfum að
mestu árið 1974 og helgaði sig
myndlist þau níu ár sem hann átti þá
ólifuð. Flestar myndanna á sýning-
unni eru málaðar á árunum
1974—1983. Gallerl Borg er opið
frá kl. 10—18 virka daga og frá kl.
14—16 um helgar, en sýningu á
verkum Sigurðar lýkur á mánudag.
SAMKOMUR
Orator:
Lft í Borgina
Orator, félag laganema, hyggst
hleypa nýju lífi I starfsemi Hótels
Borgar I vetur og gengst þvl fyrir
dansleikjum þar um helgar frá kl.
22—03. Dansleikir þessir eru öllum
opnir, en Orator heidur þá til að afla
fjár, svo unnt sé að halda norrænt
laganemamót hér á landi I ár.
Árnagarður:
Reyklaus jól
(slenska bindindisfélagið, með
aðstoð Krabbameinsfélags Reykja-
vfkur, heldur námskeið fyrir þá, sem
vilja hætta að reykja. Námskeiðið
veröur haldið i Arnagarði, stofu 201,
og hefst þaö á sunnudagskvöld kl.
20.30. Stjórnandi og leiðbeinandi er
Jón Hjörleifur Jónsson. Fjórir læknar
flytja erindi, þeir Sigurður Björnsson,
Kjarvalsstadir:
listamenn
FIMM LISTAMENN sýna nú verk sín í eystri sal Kjarvals-
staöa. Það er þeir Magnús V. Guölaugsson, Pétur Stefáns-
son, Steingrímur Þorvaldsson, Ómar Skúlason og Stefán
Axel. Steingrímur og Magnús sýna verk, sem unnin eru á
árunum 1983 og 1984. Stefán og Ómar sýna verk unnin á
þessu ári og Pétur sýnir teikningar, sem einnig eru unnar á
þessu ári. Sýning þeirra atendur til aöfangadags jóla og er
hún opin alla daga frá kl. 14—22.
Sigurður Arnason og dr. G. Snorri
Ingimarsson, sérfræöingar í krabba-
meinslækningum, og Sigurgeir
Kjartansson, æðaskurðlæknir. Einn-
ig flytur Eric Guömundsson, sjúkra-
þjálfari, erindi. Innritun og upplýs-
ingar eru i sima 36655.
Hið íslenska
bókmenntafélag:
Aðalfundur
Aðalfundur hins íslenska bók-
menntafélags verður haldinn í Lög-
bergi, húsi lagadeildar Háskóla ís-
lands, á morgun kl. 14. Dagskrá
fundarins verður sem hér segir: 1.
Venjuleg aðalfundarstörf, sbr.
18.—21. grein félagslaga og 2.
Vilhjálmur Arnason, lektor, flytur er-
indi, sem nefnist Saga og siðferði.
I fyrirlestrinum verður fjallað um
þá viðleitni fræðimanna, sem athuga
siðfræði íslendingasagna, að sýna
fram á kristnar fyrirmyndir I boðskap
sagnanna eða sanna heiðnina I
þeim. Vilhjálmur Arnason færir að
þvl rök, að þessi túlkunaraðferð dugi
engan veginn til að veita innsýn I
viðfangsefnið og heldur þvi fram, aö
árangursríkara sé að greina siðferöi
söguhetjanna I Ijósi þeirrar samfé-
lagsgerðar, sem sögurnar lýsa.
Norræna húsið:
Holbergsminni
A mánudag kl. 20.30 verður 300
ára afmæli Ludvigs Holberg minnst
með hátíðardagskrá I Norræna hús-
inu. Dagskráin hefst með þvl að
Nýja strengjasveitin flytur Hol-
bergsvítuna eftir Edvard Grieg. Ivar
Eskeland, fyrrum forstöðumaður
Norræna hússins, spjallar um Hol-
berg og eftir hlé flytja leikararnir
Guðmundur Pálsson, Ragnheiöur
Steindórsdóttir, Þorsteinn Gunnars-
son og Guðrún Stephensen þætti úr
leikritum Holbergs, Jeppa á fjalli,
Æöakollinum og Johannes von Hak-
sen.
FERÐIR
Ferðafélag íslands:
ÚKarsféll
Ferðafélagið fer I gönguferð á
sunnudag kl. 13 og er þá gengið á
Olfarsfell. Brottför er frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Ath. aug-
lýsingu undir Félagsllf í Morgunblað-
inu.
Útivist:
Slunkaríki
Ferðafélagið Útivist heldur á
morgun kl. 20 skemmtikvöld á
Hverfisgötu 105. A sunnudag verður
ganga frá Slunkarlki, sem er i ná-
grenni Straumsvlkur, að Óttarsstöð-
um. A mánudagskvöldið verður
Tunglskinsganga og fjörubál. Geng-
ið verður um Gjögur og Hvaleyri.
13 mm höggborvél, stiglaus
hraðastillir, 0—3400 snún./-
mín., snýst afturábak og
áfram. 650 wött.
PST 50 stingsög
Sagardýpt í stál 3 mm, í tré
50 mm. 350 wött. 3000
slög/mín.
Verð kr. 3.900,-.
PSS 230 slípivél (juðari)
150 wött, slípiflötur 92x182,
sveifluhraði 10.000 snún./-
mín. Verð kr. 3.215,-.
PSP 70 sett
Málningarsprauta, 30 wött,
afköst 70 gr/min., könnu-
stærð 0,34 1. Verð kr. 1.728,-.
PKP 15 límbyssa
Límir öll efni fljótt og vel,
t.d. tré, fataefni, málma, gler,
leður og fleira. Límnotun
15 gr./min.
Verð aðeins
kr. 998,-.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Sudurtandsbraut « Simi 9135200
reglulega af
ölmm
. fjöldanum!