Morgunblaðið - 11.04.1985, Side 4

Morgunblaðið - 11.04.1985, Side 4
MORGUfrBLAÐIft, FTMMTUtMGUR 11. APRÍL 1985 4 B Undirbúningur landssöfnunarinnar Hjá Lions-klúbbunum er að baki gífurlegt starf við undirbúning landssöfnunarinnar. Hér eru Lionessur eða ljónynjur, að ganga frá Rauðu fjöðrinni í hendur landsmanna. Lions-menn með landsöfnun í fjórða sinn: „Gerum okkur vonir um að ná saman því sem þarf til að kaupa línuhraðal“ l>egar undirbúningur landssöfn- unar Lions-hreyfíngarinnar stóö sem hæst gáfu þeir Jóhann Ein- varósson aóstoóarmaður _ félags- málariðherra og Ágúst Ármann stórkaupmaður, sem standa fram- arlega í röóum Lions-manna, sér þó tíma til aó segja frá söfnuninni og helztu viófangsefnum hreyf- ingar sinnar. Jóhann er formaður framkvæmdanefndar Rauðu fjaör- arinnar 1985. „Þetta er í fjórða sinn sem við förum af stað með Rauðu fjöðr- ina og árangurinn hefur alltaf orðið glæsilegur þannig að nú gerum við okkur vonir um að ná saman því fé sem þarf til að kaupa línuhraðalinn. Kaupverð á þessu nauðsynlega geislalækn- ingatæki er um 30 milljónir svo það þarf mikið til, en undirtektir fólksins í landinu hafa líka alltaf verið mjög góðar þegar við höf- um verið með landssöfnun. Við seldum Rauðu fjöðrina í fyrsta sinn árið 1972 en þá var verið að safna fé til kaupa á tækjum vegna skurðaðgerða f sambandi við augnlækningar. Þá var verð- lag í landinu ekki fjarri því sem nú er miðað við krónutölu. Síga- rettupakki kostaði 87 krónur og Rauða fjöðrin 100 krónur. Nú er j verið á sígarettupakka hátt í 80 krónur og Rauða fjöðrin á að kosta 100 krónur. Næst fórum Jóhann Einvarósson sem hefur meó höndum framkvæmdastjórn landssöfnunar Lions-hreyfíngar- innar vegna kaupa á línuhraóli. við af stað með landssöfnun árið 1976, en þá kostaði sígarettu- pakki 255 krónur og Rauða fjöðr- in 300 krónur. í það sinn söfnuð- um við fyrir útbúnaði til tann- viðgerða vangefinna. Loks seld- um við Rauðu fjöðrina árið 1980 en þá var verið að safna til kaupa á tækjum í Háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans. Þá kostaði fjöðrin 1.000 krónur og sígarettupakki um 800 krónur. Við höfum venjulega selt í kring- um 75 þúsund fjaðrir í hverri Ágúst Ármann stórkaupmaöur landssöfnun. Að þessu sinni þarf meira til og það gerum við okkur vonir um að takist," segir Jó- hann. — Er ekki mikill kostnaður við fjársöfnun sem á að fara fram um allt land? „Eins og gefur að skilja er þetta mikið umstang en kostnað- ur er allur í lágmarki þvf að nær undantekningarlaust er öll vinna við söfnunina gefin," segir Ágúst Ármann. „Flestir þeir Svavar Gests er formaóur Fjöl- umdæmisráðs Lions-hreyfíngar- innar en á íslandi eru 82 khúbbar starfandi innan hreyfíngarinnar. sem að undirbúningi starfa eru úr röðum okkar Lions-manna og innan hreyfingarinnar ríkir góð- ur andi sem m.a. hefur það í för með sér, að það þarf ekki annað en nefna það sem þarf að eiga sér stað þá er það komið. Undir- búningurinn hefur gengið frá- bærlega vel og það gefur til kynna að ekki sé óraunsætt aö vænta stórkostlegs árangurs." — Hvað eru margir Lions- klúbbar starfandi á landinu? „Lions- og Lionessu-klúbbar á íslandi eru 82 að tölu og innan vébanda þeirra eru starfandi alls um þrjú þúsund félagar. Þetta eru allt þjónustuklúbbar, þ.e. klúbbar sem miða starfsemi sína við þjónustu í þágu samfélagsins og sú starfsemi er sannarlega fjölbreytt. Klúbbfélagar vinna ýmis störf, taka að sér að skrapa skip og mála hús ef því er að skipta, og allt fé sem inn kemur rennur til þjóðþrifamála," segir Jóhann Einvarðsson. „Lions- hreyfingin er mjög þróttmikil hér á landi og félagar hér eru fleiri miðað við fólksfjölda en gerist víðast hvar í öðrum lönd- um. Sem dæmi má nefna að fé- lagar í Danmörku eru um sex þúsund en við hér á íslandi erum um þrjú þúsund." „Að þessu sinni höfum við lát- ið gera kubba úr plexi-gleri. I kubbunum er Rauða fjöðrin en þessir kubbar eru ætlaöir fyrir- tækjum og samtökum em vilja styrkja þennan málstað með sér- stökum hætti,“ segir Ágúst Ármann. „í sambandi við Rauðu fjöðrina má geta þess að við höf um ávallt lagt á það áherslu að selja hana sjálfir. Við teljum að það gefi betri raun að Lions-fé- lagar sjái sjálfir um söluna i stað þess að fá sölubörn til að gera það.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.