Morgunblaðið - 16.08.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.08.1985, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1985 4 B LEIKUST StúdentaleiktT og svnir fvrir flesta ungtinaa á landinu Guöirnir ungu, f.v. Börkur Baldvinsson, Arna G. Valsdóttir, Anna E. Borg, Steingrímur Másson, Soffía Karlsdóttir, Guðmundur Karl Friðjónsson, Stefán Jónsson, Halla Helgadóttir, Ari Matthíasson, Einar Þór Gunnlaugsson og Ásta Arnardóttir. — Innfellda myndin er af leikstjóranum, Andrési Sigurvinssyni. FLUG- VELLIR kerfi og má þaðan komast inn í miðborgina á 15 mínútna fresti. HEATHROW/ LUNDÚN- UM/ ENGLANDI Á Heathrow er í boöi fjölbreytt þjónusta viö feröalanga — og ekkl nema von. Þaöan er á degi hverj- um flogiö til um 207 ákvöröunar- staöa, þar af 185 utan Bretlands- eyja. Um 700 flugvélar fara dag- lega um völlinn sem er hvaö „al- þjóölegastur" af evrópskum flug- völlum. Á móti öllum þessum aug- Ijósu kostum eru svo ókostlr. Má þar benda á öngþveitiö sem Iöu- lega myndast fyrir þær einföldu sakir aö flugvöllurinn er ekki nógu stór til aö sinna öllum þeim sem um hann fara. Flugstöðvarnar eru þrjár og dágóöur spölur þeirra i milli, þannig aö farþegar í milli- lendingu eiga oft fyrir höndum þreytandi feröalag innan flugvall- arins þegar þangaö er komiö. Þessar innanhússferöir lengjast væntanlega enn, því aö í október á þessu ári er ráðgert aö taka í notk- un fjóröu flugstöðvarbygginguna. Samkvæmt tölum flugvallaryfir- valda er eölilegur tími ein, til ein og hálf klukkustund til aö komast feröa sinna á milli flugstööva, en þaö er heldur knappur tími og skyldi fólk gefa sér rýmri tíma sé þess kostur. Verölag í fríhöfninni er svona allt í lagi miöaö viö aöra evrópska flugvelli, en aöstaöa í farangurs- móttöku sem og veitingaþjónusta veröur aö teljast heldur fátækleg. Neöanjaröarkerfi Lundúna nær til vallarins og fara lestir þaöan á 48 minútna fresti. MADRID/ MADRID/ SPÁNI Frá flugvellinum í Madrid eru í boöi fleiri möguleikar á aö komast til Suður-Ameríku en frá nokkrum öörum evrópskum flugvelll. Spánska flugfélagiö Iberia flýgur auk þess þaöan til margra áfanga- staöa í Arabalöndum og ráögert er aö auka mjög möguleika á flugi til Afríku og Austurlanda fjær. Frá flugvellinum má komast inn í miöborgina ýmist meö ieigubílum sem eru svona sæmilega ódýrir, eöa meö venjulegum strætisvögn- um. Þjónusta á flugvellinum er þokkaleg, nema yfir hásumariö þegar þar skapast reglulega óviö- unandi ástand, sérstaklega fyrir brottfararfarþega. Fríhöfnin er lítil en verölag þokkalegt. CHARLES DE GAULLE/ PARÍS/ FRAKKLANDI Frá þessum flugvelli má komast til fjölbreytilegra ákvöröunarstaöa um heim allan og þó aö úrvaliö sé kannski ekki sambærilegt viö Heathrow, þá er flugstööin sjálf ólíkt þægilegri. Flugstöð 1, sem tekin var í notk- un fyrir 10 árum er út af fyrir sig meistaraverk arkitektúrlistarinnar — þó listaverkið sé víöa fariö aö láta á sjá vegna hreinnar van- rækslu. Þrátt fyrir falleg form getur þessi hringlaga bygging veriö heldur ruglingsleg fyrir ókunnuga og fríhöfnin er sérstaklega óhent- uglega staösett, a.m.k. fyrir far- þega sem eru í þann mund aö missa af vélinni — þeir þurfa nefnilega aö fara í gegnum fríhöfn- ina til aö komast aö útgönguhliö- unum. Og talandi um fríhöfn, þá er verölagiö á Charles de Gaulle nokkuö frábrugöiö því sem annars staöar flokkast undir „fríhafnar- verölag". Flugstöö 2, þar sem flugfélögin Air France, Sabena og Air Inter hafa sína aöstööu er bersýnilega hönnuö á annan hátt en flugstöö 1, þ.e. meö ánægju farþega í huga fremur en arkitekta. Til aö komast á milli flugstöövanna þarf um eina klukkustund. ORLY/ PARÍS/ FRAKKLANDI Frá Orly eru mun fleiri innan- landsflug í boöi en frá Charles de Gaulle og er ágætt aö feröast á þann mátann þaöan. Flugstööin fyrir utanlandsflug er hins vegar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.