Morgunblaðið - 16.08.1985, Qupperneq 12
12 B
mi tíí'joa ,at auoAQUTacr? .QiqAjawoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1985
OG HVER VAR SVO
AÐ TALA UM
VEIKARA
KYNIÐ?
AF ÞEIM SEM HEIMA
SÁTU í FYRRI
HEIMSSTYRJÖLDINNI
Ekki alls fyrir löngu var sýnd í einu kvikmyndahúsanna myndin „Swing
Shift“, sem segir af eiginkonum þeim sem heima sátu í stríði. Með öðrum
orðum konunum sem í einni svipan sáu á eftir stærstum hópi frískra
karla þjóðarinnar til annars lands og þurftu að axla ýmsa ábyrgð og störf
sem þar á undan höfðu tilheyrt körlum og fátítt var að konur kæmu
nálægt eða þeim væri treyst fyrir. í kvikmyndinni er sagt af bandarískum
konum og tíminn er seinni heimsstyrjöldin. Myndirnar hér segja frá
konum í svipaðri aðstöðu, nema hvað tímabilið er fyrri heimsstyrjöldin,
1914—1918, og konurnar breskar. Myndirnar sem teknar voru af G.P.
Lewis og Horace NichoIIs eru í eigu Imperial War Museum í Lundúnum,
og líklegast segja þær meira en mjög mörg órð um þetta tímabil sem á
sinn hátt markaði stefnubreytingu í viðhorfum og hugsunarhætti gagn-
vart konum og því hvers megnugar þær væru — hugarfarsbreytingu sem
gerðist kannski ekki síst hjá konunum sjálfum. Og með þessari hugar-
farsbreytingu var lagður til stór skerfur í jafnréttisbaráttu 20. aldarinn-
ar, jafnvel þótt margar þessara kvenna hafi verið sendar með svuntuna
aftur heim í eldhús að stríðinu loknu. En myndirnar tala sínu máli — og
hver var annars að minnast á „veikara kynið“? — VE
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Blómkál á
lækkuðu verði
Nú er rétt búið að auglýsa að
lækkað hafi veriö verð á blóm-
kóli og þá vœntanlega vegna
mikíllar uppskeru í góðri tíð hér
sunnanlands. Það er með fyrra
fallinu í ór aö býöst aö kaupa
blómkól ó lægra verði, þaö er
ekki svo ýkja langt síöan að ís-
lenska blómkóliö kom ó mark-
aöínn. En nú er kílóiö selt í
heildsölu af 1. fl. ó kr. 56.00 og 2.
fl. á kr. 37.00. Það er því rétti
tíminn til að snúa sér aö mat-
reiðslu ó blómkóli, reyna þaö í
nýja rétti og matbúa ó allann
máta, sem hugsast getur. Hrótt
blómkól, tekið sundur í greinar,
er Ijómandi gott í grænmetissal-
at hverskonar.
Blómkál a la Polonaise
1 lítiö blómkálshöfuö, eöa V4
stærra,
1 soöiö egg, brytjað,
2 sneiöar skinka, brytjuö
smátt,
2—3 matsk. steinselja, brytjuö
smátt,
1 matsk. smjör.