Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985 B 7 leggi hluta hans undir grænmetis- rækt. Ekki þarf bletturinn aö vera stór, en sjálfsagt er aö leita til kunnáttumanna þegar bietturinn er skipulagöur og ákveöiö hvaö rækta skal. Blaöamaöur og Ijós- myndari fengu aö skoöa nokkra garöa og spjölluöu viö eigendur þeirra. Á Látraströnd 11, Seltjarnar- nesi, búa hjónin Inga Hersteins- dóttir og Kornelíus Sigmundsson. Inga sagöi okkur aö Auöur Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, heföi hannaö garöinn og gert ráö fyrir smábletti fyrir grænmeti undir suöurvegg hússins. Hún sagöist vera að prófa sig áfram með þaö hvaö heppilegt væri aö rækta. í ár væri þaö 3 tegundir af salati, grænkál, spínat, dill, radísur, karsi, lægt garörækt áöur, en sér fyndist þaö ótrúlega gaman og þægilegt væri að geta sótt sér sjálfur mat- jurtir úr eigin garöi þegar manni hentaöi. Á Malarási 1 búa hjónin Margrét Egilsdóttir og Jóhann Jóhannsson. Margrét sagöi okkur aö Stanislas Bohic garöarkitekt heföi hannaö fyrir þau garöinn. Hann heföi gert ráö fyrir því aö grænmeti yröi ræktaö í suövesturhorninu. Þar væru 6 hringlaga beö og heföu þau reynt aö rækta gulrætur o.fl. fyrsta áriö, en þaö heföi ekki heppnast vel, enda sumariö kalt og rigningasamt. Síöan heföu þau veriö meö rabarbara sem alltaf sprytti vel og kartöflur er einnig heföu sprottiö mjög vel. f fyrra heföi uppskeran t.d. enst fram aö Stúlka í íslenskum búníngi ( garói viö Árbæjarsafn steinselja og graslaukur. f fyrra heföu þau verið meö kartöflur og heföi uppskeran veriö þokkaleg. Annars væri aöalatriöiö ekki magn uppskerunnar heldur ánægjan og þægindin viö þaö aö hafa græn- metiö alltaf nýtt og ferskt viö hendina. Á Smáragötu 5, er nýendur- skiplagöur garöur í grónu umhverfi og er gaman aö sjá hvaö vel hefur til tekist. Viö töluöum viö einn eig- enda garösins, Ármann Reynisson. Hann sagöi okkur aö Ragnhildur Skarphéöinsdóttir, landslagsarki- tekt heföi hannaö garöinn. f suö- austurhorninu væri hringlaga beö, er skiptist í 5 hluta. I miðjunni væru sumarblóm og eins milli grænmetisjurtanna í ööru beöi til þess aö fá fleiri liti meö hinum græna. i ár væru ræktuö jaröar- ber, salat, kál (blómkál og græn- kál) og sinnepssalat, en íbúar hús- sins heföu fengiö þau fræ send alla leiö frá Thailandi. Ármann sagöi aö jurtirnar þrifust mjög vel og aö uppskeran í fyrra heföi veriö góö og aö útlit væri fyrir hiö sama í ár. Hann sagöist ekki hafa komiö ná- áramótum. Núna væru þau byrjuö aö taka upp og kartöflurnar væru jafnstórar og Ijómandi bragögóö- ar. Margrét sagöi aö steinarööin utan um hvert beö geröi þaö aö verkum aö þægilegt væri aö hiröa garóinn. Gott væri aö komast aö beöunum bæöi tii þess aö reyta arfa og taka upp. Auövelt væri aó skola steinana svo óþrif væru Iftil. Hún sagöi að aöalkosturinn viö svona heimilisgarö væri, aö geta skroppiö út, kippt upp nokkrum grðsum og sótt sér kartöflur í soö- iö. Kartöflurnar geymdust best ( moldinni, en eftir aö taka þyrfti þær upp væru þau svo heppin aö hafa kalda geymslu til aö geyma þær í. Aö lokum lá leiö okkar aö grænmetisgöröunum í Byggöa- safninu í Árbæ. Geröir hafa veriö garóar viö tvö hús, Nýlendu og Dillonshús og eru þar ræktaöar kartöflur og kál. Þetta skemmti- lega framtak gefur okkur smá- hugmynd um, hvernig umhorfs hefur veriö hjá grænmetisrækt- endum fyrri tíma. O LEDU Ljós fyrir alla Þú skiptir ekki um augu - þú bætir lýsinguna. Skrifstofulampinn Vinnuljós með stækkunargleri Rafkaup SUÐURLANDSBRAUT 4 — SÍMAR: 6-81518—6-81574 __T M ra, //------ Frístundalampinn Vinnulampi fyrir skólafólk Skrifstofulampinn Apríkósumauk 100 g þurrkaöar apríkósur, 1 dlvatn. Apríkósurnar kllpptar í bita, soðnar meyrar og síöan kælt. Sett í blandara eöa hrært vel, bragöbætt meö sykri eftir þörf, eöa hunangi, og síöan smurt á kökuna. Uppskeru-máltíð Þaö er áratuga gamall siður á mörgum heimilum, aö sjóða allt þaö grænmeti, sem fáanlegt er aö hausti í máltíö, boröa meö nýupp- teknum kartöflum og hræröu smjöri. Þeir sem vanist hafa slíku frá fyrstu tíö þykjast hafa himin höndum tekiö þegar slíkt góögæti er á boröum. Grænmetiö er allt hægt aö sjóöa í sama potti, en þaö þarf aö sjálfsögöu mislanga suöu. Soöiö í litlu vatni, saltaö. Rófurnar er afhýddar og skornar í bita, gul- rætur skafnar og skornar í tvennt eöa smærra, hvítkál, púrrur, blóm- kál og hvaöeina annaö hreinsaö og skoriö, nema blómkáliö haft heilt. Heitt grænmetissalat 3gulrætur, 3 púrrur, 1 sellerírót, 2 msk. smjör eöa smjörlíki, ’/ítsk. salt, V* tsk. pipar, 1 msk.edik, ’Amsk.sykur. Heitt grænmetissalaf. Kaka með gulrótum, rúsínum og hnetum. Grænmetiö hreinsaö, púrrurnar skornar í sneiöar, gulrætur og sell- erí skoriö í bita. Grænmetinu brugöiö í smjör á pönnu við mjög lítinn straum og látiö malla þar til þaö er meyrt. Bragöbætt meö salti, pipar, ediki og sykri. Boriö fram heitt meö brauöi og smjöri, eöa sem meölæti meö steiktum eöa reyktumfiski. Gulrætur og kartöfflur ífati 500 g gulrætur, 500 g kartöflur, 2 msk. smjör eöa smjörlíki, 1 eggjarauöa, 2dl.rifinn ostur, rjómi, grænmetissoö. Hráar gulrætur og kartöflur rifnar á grófu járni, soöið örstutt í litlu vatni, saltaö. Vatniö látiö síga vel af grænmetinu, sem síöan er sett í smurt ofnfast fat. Eggjarauöa og ostur hrært saman, dál. af græn- metissoöinu og rjóma bætt saman viö og öllu hellt yfir grænmetiö. Sett í ofn, 225° C heitan, í 10-15 mín. Haft sem sjálfstæöur réttur, boriö fram meö brauöi og smjöri, eða meðlæti með ööru. Q

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.