Morgunblaðið - 01.08.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986
f
f
Bíóhöllin sýnir „Óvinanámuna“
— myndina sem átti að taka á íslandi
Bíóhöllin hefur tekið til sýn-
Stallone í
Austurbæjarbíó
ingar kvikmyndina „Enemy
Mine“, sem fengið hefur nafnið
Óvinanáman i íslenskri þýðingu.
Kvikmyndin gerist í framtíðinni
og fjailar um samskipti manna
við verur frá annarri plánetu.
Upphaflega var ætlunin að taka
hluta myndarinnar hér á landi, m.a.
í nýja hrauninu í Vestmannaeyjum,
og var það gert eins og margir
muna eflaust eftir. En eftir það var
skipt um leikstjóra og krafðist nýi
leikstjórinn, Wolfgang Petersen,
þess að myndin yrði tekin í hans
eigin myndveri. Þeim hluta myndar-
innar sem búið var að taka, þar
með talið því sem tekið var hér á
landi var því fleygt og byijað upp
á nýtt. Kvikmyndin „Ovinanáman"
er því orðin ein sú dýrasta sem
gerð hefur verið.
Kvikmyndin ijallar sem fyrr seg-
ir um samskipti manna á 21. öldinni
við verur á annarri plánetu. Plánet-
an heitir Drakon og íbúar hennar
því nefndir Drakar. Aðal söguhetjan
er Davidge, sem Dennis Quaid leik-
ur. Hann er orustuflugmaður í stríði
sem jarðarbúar heyja við Draka.
Hann er skotinn niður og lendir á
ókunnugri stjömu þar sem hann
kynnist Draka nokkrum sem leikinn
er af Louis Gossett, Jr. Af honum
lærir hann ýmislegt um lífshætti
og samfélag Drakanna. Drakinn
deyr en Davidge heitir honum að
sjá um son hans, þó til þess þurfi
hann að leggja sig í Iífshættu.
Framleiðandi er Stephen Fried-
man, leikstjóri Wolfgang Petersen,
handrit eftir Edward Khmara og
tónlist eftir Maurice Jarre. Myndin
er frá Twentieth Century Fox.
Austurbæjarbíó hefur tekið til
sýningar kvikmyndina Cobra,
með Syvester Stallone í aðal-
hlutverki. Stallone hefur sjálfur
skrifað handritið að myndinni,
en það er byggt á sögunni „Fair
Game“ eftir Paulu Gosling.
Sagan er eitthvað á þá ieið að
morðingi gengur laus í Los Ange-
les. Hann hefur komið 16 manns
fyrir kattamef þegar ung kona,
Ingrid Knudssen, sem leikin er af
Brigitte Nielssen, tilkynnir lögregl-
unni að hún hafi ástæðu til að
óttast um líf sitt. Meðal þeirra lög-
reglumanna sem falið er að rann-
saka málið er Marion Cobretti,
kallaður Cobra; en með hlutverk
hans fer Sylvester Stallone.
Leikstjóri er George Pan Cosmat-
os en tónlist eftir Sylvester Levay.
Það er Wamer Bros fyirtækið sem
framleiðir myndina.
Samtökin
Lífsvon
opna
skrifstofu
LÍFSVON er samtök sem tejja
sér skylt að standa vörð um líf
ófæddra barna. Samtökin voru
stofnuð fyrir rúmu ári og for-
maður þeirra er Hulda Jens-
dóttir, forstöðumaður Fæðingar-
heimilis Reykjavíkur.
Síðastliðið ár hafa kraftar sam-
takanna að mestu farið í upplýs-
ingastarfsemi og félagasöfnun, auk
nokkurrar ráðgjafar, sem að mestu
hefur verið á persónulegum gmnni.
Nú hafa samtökin opnað skrifstofu
að Auðbrekku 2 í Kópavogi og er
hún opin kl. 15.00—17.00 alla virka
daga og er síminn þar 44500. Þar
em veittar upplýsingar um samtök-
in auk þess ssem þar er aðstaða til
að sjá myndbandasafn sem samtök-
in eiga. Síðar mun stefnt að því að
koma á ráðgjafaþjónustu á sama
stað í þeirri von að fleiri böm fái
að lifa, en líf þeirra verði ekki fljót-
fæmi og vanhugsun að bráð.
LEGUKOPAR
I
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
ERTU AÐ FARAST
UR ÞORSTA?
BJARGAÐU ÞER!
... AHHHHHH
Atlas hf
Borgartún 24, a'mi 621155
Pósthólf493 — Reykfavik