Morgunblaðið - 02.09.1986, Page 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
B 7
ÍA ER bikarmeistari 1986. Skaga-
menn unnu Frammara 2:1 í
fjörugum og skemmtilegum úr-
slitaleik á Laugardalsvellinum á
sunnudaginn að viðstöddum
4.486 áhorfendum. Hvorugu lið-
inu tókst að skora í fyrri hálfleik,
en Pétur Ormslev kom Fram yfir
i byrjun seinni hálfleiks. Pétur
Pétursson jafnaði þegar tæpar
20 mínútur voru til leiksloka og
hann skoraði sigurmarkið á
sfðustu sekúndum leiksins. Þrátt
fyrir mikið rok var leikurinn góður
og leikmönnum beggja liða til
sóma.
Jafn fyrri hálfleikur
Skagamenn léku undan vindi í
fyrri hálfleik og sóttu meira fyrstu
mínúturnar án þess að skapa sér
hættuleg marktækifæri.
Frammarar komust fljótlega inn
í leikinn og á 13. mínútu varði Birk-
ir Kristinsson, markvörður ÍA,
þrívegis. Fyrst frá Gauta Laxdal,
síðan Guðmundi Torfasyni og loks
Pétri Ormslev. Skömmu áður lenti
Birkir í samstuði og meðan hann
lá á vellinum, tók Sigurður Lárus-
son knöttinn upp. Vildu sumir fá
vítaspyrnu, en ekkert var dæmt
og leikurinn hélt áfram. Pétur fékk
fyrsta góða marktækifæri leiksins
á 26. mínútu, en skaut yfir mark
Skagamanna af markteig eftir
sendingu frá Ormarri Örlygssyni.
Á 31. mínútu gaf Ólafur Þórð-
arsson góða sendingu fyrir mark
Fram frá hægri, Sveinbjörn Hákon-
arson skallaði að marki, en Friðrik
Friðriksson varði vel, knötturinn
fór í þverslána og aftur fyrir. Guð-
björn Tryggvason fékk knöttinn úr
hornspyrnunni, en skaut í stöng
og út af.
Það sem eftir var hálfleiksins
sóttu liðin á víxl, en tókst ekki að
skora. Guðmundur Torfason var
næst því skömmu fyrir hlé, þegar
hann skallaði að marki ÍA eftir
sendingu frá Gauta, en Júlíus Ing-
ólfsson bjargaði á marklínu.
Fram náði forystunni
með marki Péturs
Frammarar komu ákveðnari til
leiks í seinni hálfleik og á 50.
mínútu skoraði Pétur Ormslev
fyrsta mark leiksins. Ormarr sendi
fyrir Skagamarkið frá hægri, Pétur
slapp úr strangri gæslu Júlíusar
Morgunbiaðið/RAX
• Fyrra mark ÍA. Pétur Pétursson liggur lengst til vinstri eftir að hafa skorað. Næstir honum eru Viðar
Þorkelsson (nr. 5) og Pétur Ormslev, en Guðbjörn Tryggvason og Þorsteinn Þorsteinsson standa fyrir
aftan Friðrik Friðriksson í markinu. ..
Morgunblaöiö/Júiíus
• Pétur Pétursson, hetja ÍA,
með bikarinn eftirsótta. Ungir
aðdáendur hópast í kringum
kappann.
ÍA bikarmeistari
Pétur Pétursson skoraði bæði
mörk Skagamanna eftir að Pétur
Ormslev hafði skorað mark Fram
og skoraöi örugglega af stuttu
færi. Frammararfögnuðu gífurlega
og stuðningsmenn þeirra voru vel
með á nótunum. Skömmu síðar
fékk Guömundur Steinsson
stungusendingu inn fyrir vörn
Skagamanna, en Birkir varði
hörkuskot hans.
Eftir þetta tóku Skagamenn við
sér og fóru fyrst almennilega í
gang. Pétur Pétursson fékk góða
sendingu frá Júlíusi á 60. mínútu,
komst einn inn fyrir vörn Fram, en
Friðrik bjargaði glæsilega með út-
hlaupi. Á næstu mínútu fékk
Siguröur Lárusson knöttinn á
markteig Fram eftir hornspyrnu,
en laust skot hans hafnaöi í fangi
Friðriks.
Árni Sveinsson kom inn á sem
varamaður, þegar 25 mínútur voru
til leiksloka, og varð þá sóknarleik-
ur Skagamanna öllu beittari.
Frammarar fengu samt góð mark-
tækifæri skömmu eftir skipting-
una. Fyrst skaut Viðar Þorkelsson
hörkuskoti að marki ÍA, sem fór
naumlega framhjá, og Kristinn
Jónsson fór illa með gott færi,
þegar hann hugðist senda á sam-
herja í stað þess að skjóta sjálfur
þar sem hann var vel staðsettur
rétt utan vítapunkts. Og á 69.
mínútu varði Birkir glæsilegan
skalla frá Guömundi Torfasyni.
„Við viljum bolt-
ann í mark“
HVið viljum boltann í mark,“
sungu æstir stuöningsmenn
Skagamanna í stúkunni og þeim
varð að ósk sinni á 73. minútu.
Sveinbjörn braust laglega upp
iviorgunoiaoio/Ami öœDorg
• ... og hér fagna þeir Guðbjörn og Pótur jöfnunarmarkinu. Frammarar eru aö vonum daufir og Frið-
rik grúfir sig niður í markinu.
Pétur Pétursson, ÍA:
„Þetta var stórkostlegur leikur
og það var sérstaklega gaman
að sigra, að ég tali ekki um að
skora bæði mörkin. Ég var ger-
samlega búinn þegar ég skoraði
sigurmarkið, en það varunaðsleg
tilfinning að sjá á eftir boltanum
í netið. En þetta var góður leikur
tveggja góðra liða, þar sem allir
stóðu sig vel."
Sigurður Lárusson,
fyrirliði ÍA:
„Þetta var æðislegt og ég er
geysilega ánægður með að hafa
unnið bikarinn enn einu sinni.
Bæði liðin fengu nokkur góð
marktækifæri, en þetta var sann-
gjarn sigur. Það er eins og við
þurfum að fá á okkur mark til að
komast í gang, en við sýndum
að við klikkum ekki þegar á reyn-
ir.“
Sveinbjörn Hákonar-
son, ÍA:
„Ég veit ekki hvað það er að
tapa bikarúrslitaleik. Þetta var
minn fimmti úrslitaleikur og jafn-
margir sigrar. Því var ég viss um
að við myndum sigra. Ég hefði
viljað sjá boltann inni, þegar ég
skallaði að markinu í fyrri hálf-
leik, en Pétur bætti það upp í
þeim síðari. Leikurinn var mjög
góður og við unnum vegna þess
að við gáfumst aldrei upp.“
Árni Sveinsson, ÍA:
„Ég hafði alltaf á tilfinningunni
að við myndum skora, því við
áttum meira i leiknum. Frammar-
ar bökkuðu eftir að hafa skorað
og ætluðu að hanga á þessu eina
marki. En þeir gáfu eftir miðjuna
og við gengum á lagið."
Sigurður B. Jónsson,
ÍA:
„Þetta var fyrsti stórleikurinn
minn og stemmningin var ótrú-
leg. Frammararnir voru góðir, en
við tókum á móti þeim eins og
best var á kosið og eftir að við
jöfnuðum var ég viss um að við
myndum sigra.“
Júlíus Ingólfsson, ÍA:
„Ég er ánægður því betra liðið
vann. Við fórum ekki almennilega
í gang fyrr en þeir skoruðu, en
við höfðum viljann til að sigra og
það tókst."
- sagði Ásgeir Elíasson þjálfari Fram
„ÞETTA var mjög góður leikur
þrátt fyrir rokið og Frammarar
voru ekkert si'ðri en mínir menn.
En við náðum yfirhöndinni eftir
að þeir skoruðu," sagði Jim Barr-
on, þjálfari ÍA, eftir leikinn.
„Ungu strákarnir hjá mér voru
nokkuð taugaóstyrkir í upphafi
leiks, en sem betur fer jöfnuðu
þeir sig fljótlega. Fyrir leikinn gegn
FH héldum við fund á Hótel Loft-
leiðum og þá lagði ég áherslu á
að framundan væru þrír leikir í
deildinni og undanúrslit í bikar og
þessa leiki yrðum við að vinna. Það
tókst og fyrir leikinn í dag héldum'
við fund á sama stað þar sem ég
tók fyrir næstu þrjá leiki, sem við
ætlum einnig að vinna. Við unnum
bikarinn í dag og nú höldum við
áfram þar sem frá var horfið í deild-
inni,“ sagði Jim Barron.
Þetta var
góður leikur
- sagði Jim Barron þjálfari ÍA
„Skagamenn voru betri í leikn-
um, mikiu grimmari og því fór
sem fór,“ sagði Ásgeir Elíasson,
þjálfari Fram, í samtali við Morg-
unblaðið eftir bikarúrslitaleikinn.
„Þetta gekk þokkalega hjá okkur
í fyrri hálfleik, en við náðum aldrei
að spila okkar leik. Það má segja
að við höfum verið á röngum kanti*
í leiknum, því við nýttum ekkert
vinstri vænginn. Markið okkar kom
á góðum tíma, en eftir að Pétur
skoraði, bökkuðum við og þeir
náðu yfirhöndinni," sagði Ásgeir
Elíasson.
Sagt
eftir
leikinn
Morgunblaöiö/KAX
w Sigurður Lárusson, fyrirliði ÍA, hampar mjólkurbikarnum semSteingrímur Hermannsson forsætisráðherra
afhenti honum að leik loknum.
hægri kantinn og gaf fyrir markið,
þegar hann kom upp að enda-
mörkum. Knötturinn barst framhjá
fjærstönginni, en þar kom Pétur
Pétursson að og skoraði af stuttu
færi.
Skagamenn tvíefldust við mark-
ið og á 80. mínútu skallaði Sigurður
Lárusson naumlega yfir mark Fram
eftir hornspyrnu Ólafs Þóröarson-
ar. Frammarar brunuðu upp, Viöar
lék á þrjá andstæðinga rétt við
vítateig IA og gaf á Gauta Laxdal.
Gauti var í ágætis færi, en var of
seinn að skjóta og Skagamenn
bægðu hættunni frá. Skömmu
síðar skaut Guðmundur Steinsson
föstu skoti að marki ÍA, en knöttur-
inn fór í varnarmann og Skaga-
menn náðu að hreinsa frá.
„Við viljum
bikarinn heim“
„Við viljum bikarinn heim,“ kyrj-
uðu áhangendur Skagamanna
síðustu mínúturnar, er allt stefndi
í að framlengja þyrfti leikinn. Þegar
15 sekúndur voru eftir samkvæmt
vallarklukkunni fékk Árni Sveins-
son knöttinn við vinstri hliðaríinu
á eigin vallarhelmingi. Hann gaf
langa sendingu á Pétur Pétursson,
sem var við miðjan vítateiginn.
Pétur lagði knöttinn fyrir sig, en
skaut síðan þrumuskoti, knöttur-
Morgunblaöiö/Julius
&
0
Mark Framara
Morgunblaöiö/RAX
• Pétur Ormslev skoraði mark Fram á 50. mínútu.
eftir sendingu frá Ormarri Örlygssyni. Efri myndin er
tekin rétt eftir að Pétur lét skotið ríða af. Júlfus Ing-
ólfsson og Sigurður Lárusson eru aðeins of seinir til
varnar. Guðmundur Torfason fylgist vel með. Neðri
myndin er tekin frá öðru sjónarhorni. Birkir Kristins-
son kom ekki neinum vörnum við og knötturinn liggur
í netinu.
inn hafnaði í vinklinum nær og
þandi út netið. Skagamenn hrein-
lega trylltust af fögnuði, jafnt
leikmenn sem áhorfendur. Markið
var stórglæsilegt, Skagamenn
voru orðnir bikarmeistarar í fjórða
skipti á fimm árum.
Liðin
Frábærum úrslitaleik var lokið.
Leikurinn var spennandi frá fyrstu
mínútu til þeirrar síðustu og leik-
mennirnir stóðu sig mjög vel
einkum og sér í lagi þegar veðrið
er haft í huga, því mjög hvasst var
meðan á leiknum stóð.
Liðsheild Skagamanna var
sterk. Birkir Kristinsson gerði eng-
in mistök og var góður i markinu.
Heimir Guðmundsson, Sigurður
B. Jónsson, Sigurður Lárusson og
Guðjón Þórðarson voru sterkir í
vörninni og auk þess fékk Sigurður
fyrirliði Lárusson tvö góð mark-
tækifæri sem fóru forgörðum.
Júlíus Ingólfsson hafði góðar gæt-
ur á Pétri Ormslev og Guðbjörn
Tryggvason barðist vel á miðjunni.
Sveinbjörn Hákonarson ógnaði
mikið og Ólafur Þórðarson lék vel,
þó hann virtist á stundum halda
knettinum of lengi. Valgeir Barða-
son fékk lítið að athafna sig í
leiknum, en Pétur Pétursson var
stórhættulegur og skoraði tvíveg-
is. Árni Sveinsson kom inn á sem
varamaður og hafði góð áhrif á liö-
ið.
Frammarar léku vel, en urðu að
bíta í það súra epli að tapa leikn-
um. Friðrik Friðriksson stóð sig vel
í markinu og verður ekki sakaður
um mörkin. Þorsteinn Þorsteins-
son og Jón Sveinsson áttu í erfið-
leikum með Pétur, en komust
annars vel frá leiknum. Ormarr
Örlygsson og Viðar Þorkelsson
skiluðu varnarhlutverkinu ágæt-
lega, en hefðu mátt taka meiri
þátt í sóknarleiknum. Kristinn
Jónsson var lengst af sveltur á
vinstri vængnum, Pétur Ormslev
var í strangri gæslu allan leikinn,
en Gauti Laxdal og Steinn Guð-
jónsson stóðu fyrir sínu. Guð-
mundur Steinsson og Guðmundur
Torfason voru ógnandi, en tókst
ekki að skora að þessu sinni.
Eysteinn Guðmundsson dæmdi
harðan leik vel og sýndi einum leik-
manni gula spjaldið, Siguröi
Lárussyni, ÍA.
Texti:
Steinþór Guðbjartsson
Skagamenn
voru betri