Morgunblaðið - 31.03.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987
33
Poindexter sagði
Reagan frá greiðsl-
unum til kontra
New York, Reuter.
JOHN Poindexter, fyrrum ör-
yggisráðgjafi, sagði Ronald
Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands og Sir Geoffrey Howe utanríkisráðherra fylgjast með
guðsþjónustu í Þrenningarkirkjunni í klaustri heilags Sergiusar í Zagorsk á sunnudag.
Heimsókn Margaret Thatcher til Sovétríkjanna:
Sýndi samstöðu sína
með trúuðum mönnum
Zagorsk, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands og Sir
Geoffrey Howe utanríkisráð-
herra heimsóttu á sunnudag
klaustur rússnesku réttrúnaðar-
kirkjunnar í Zagorsk. Kveikti frú
Thatcher þar á kerti við helgiat-
höfn. Er litið á þetta, sem tákn
um vilja hennar til að tjá sam-
stöðu sína með trúuðu fólki i
Sovétríkjunum, en þar er guð-
leysi hin opinbera afstaða stjórn-
valda til trúarbragða.
Thatcher hóf fimm daga opinbera
heimsókn sína til Sovétríkjanna á
laugardag. Við komu hennar til
Zagorsk tók Alexei erkibiskup á
móti henni, en hann er yfirmaður
klaustursins þar, sem stofnað var
á 14. öld. í för með honum voru
Verðhækk-
unumí
Póllandi
mótmælt
Varsjá, AP. Reuter.
PÓLSKA stjórnin reitti kirkju
landsins og opinber og útlæg
verkalýðsfélög til reiði með
verðhækkunum á matvælum,
rafmagni og eldsneyti.
í yfirlýsingu kaþólsku kirkjunn-
ar í Póllandi voru stjórnvöld vöruð
við og minnt á að þau myndu ekki
geta leyst efnahagsvanda landsins
ef þau nytu ekki stuðnings þjóðar-
innar.
„Hækkanirnar eru alvarlegt mál
og munu valda skiljanlegri ólgu.
Margar fjölskyldur munu ugga um
afkomu sína,“ sagði í yfirlýsing-
unni. Þar var einnig sagt að
aðgerðir af þessutagi hefðu hingað
til ekki leyst neinn vanda.
Bæði hin leyfilegu verkalýðs-
samtök ríkisstjórnarinnar og hin
útlægu óháðu félög, Samstaða,
lýstu andúð sinni á hækkununum
og mótmæltu þeim í gær. Sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar
hækkuðu matvæli 9,6%, eldsneyti,
gas og rafmagn 25% og kol 50%.
Þá ákvað stjórnin að 10% verð-
hækkun á kjöti 10% frá og með
1. apríl nk. og fargjöld með al-
menningsvögnum og járnbrautar-
lestum um 30%.
fyrir auknum réttindum gyðinga í
Sovétríkjunum, þar á meðal því að
þeir fái óhindraðir að fara frá Sov-
étríkjunum til Israels.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR
snarlækkaði í gærmorgun.
Gengi hans varð þó stöðugra,
er líða tók á daginn. Var það
þakkað þvi, að seðlabankinn
í Japan greip til sinna ráða
og keypti gífurlegar fjár-
hæðir af dollar til þess að
draga úr framboði hans.
Verð á gulli hækkaði veru-
lega.
Síðdegis í gær kostaði sterl-
ingspundið 1,6095 dollara í
London (1,6030), en annars var
gengi dollarans þannig, að fyrir
hann fengust 1,8015 vestur-
þýzk mörk (1,8240), 1,5040
svissneskir frankar (1,5210),
6,0025 franskir frankar
(6,0620), 2,0340 hollenzk gyll-
ini (2,0585), 1.284,75 ítalskar
lírur (1.297,50), 1,30715
kanadískir dollarar (1,30630)
og 146,20 jen (149,45).
Verð á gulli hækkaði veru-
lega og var 423 dollarar únsan
(417,30).
Reagan Bandaríkjaforseta frá
því árið 1986 að peningum, sem
Iranar greiddu fyrir vopna hefði
verið veitt til skæruliða í Nic-
aragua, að því er fram kom í
grein í vikuritinu Time í gær.
Poindexter sagði af sér embætti
yfirmanns þjóðaröryggisráðsins í
nóvember þegar Bandaríkjastjórn
greindi frá því að hann hefði vitað
að greiðslur hefðu runnið í vasa
skæruliða, sem beijast gegn stjórn
sandinista í Nicaragua.
í frétt Time er haft eftir ónefnd-
um vinum Poindexter að hann hafi
talið að hann hafi farið eftir fyrir-
skipunum í vopnasölumálinu og
veitt forsetanum fullnægjandi upp-
lýsingar.
„Líklegt er að hann beri því vitni
að hann hafi tvisvar á árinu 1986
sagt Reagan í grófum dráttum að
verið væri að hjálpa kontra-skæru-
liðum og væri það eins konar
aukageta af vopnaviðskiptunum við
Irana,“ sagði í Time.
Reagan hefur þráfaldlega neitað
að hafa nokkuð vitað af gi-eiðslum
til skæruliða í Nicaragua.
ýmsir helztu frammámenn rétttiún-
aðarkirkjunnar.
Á laugardag var Thatcher við-
stödd sýningu á „Svanavatninu" í
Bolchoileikhúsinu í Moskvu í boði
Mikhails S. Gorbachev Sovétleið-
Snn* taS1'i5r,ÍS isr Yfirmaður vestur-þýsku leyniþjónustunnar:
leikvang og heimsótt stórmarkað í
Krylatskoye, einu af úthverfum
Moskvu.
Talið er, að Thatcher muni hitta
andófsmanninn og nóbelsverð-
launahafann Andrei Sakharov, á
meðan heimsókn hennar stendur.
Sakharov og kona hans, Yelena
Bonner, eru nýkomin aftur til
ERLENT
Kommúiiistaríkin aðstoða
evrópska hryðjuverkamenn
Moskvu eftir nokkurra daga dvöl í
Gorki, en þar voru þau í nær 7 ára
útlegð, unz þeim var loks leyft að
snúa aftur heim til Moskvu í des-
ember sl.
I gær var ekki vitað, hvenær
þessi fundur færi fram, en talið var
líklegt, að hann yrði aðskilinn frá
fyrirhuguðum fundi Thatcher og
Josif Begun í brezka sendiráðinu í
Moskvu á miðvikudagsmorgun.
Begun er kunnur fyrir baráttu sína
Hamborg. AP.
YFIRMAÐUR vestur-þýsku
leyniþjónustunnar, Gerhard Bo-
eden, segist þeirrar skoðunar,
að Sovéska leyniþjónustan, KGB,
og leyniþjónustur annarra
kommúnistaríkja aðstoði bæði
vinstri- og hægrisinnaða hryðju-
verkamenn í Vestur-Evrópu, að
því er fram kom í vestur-þýsku
tímariti á sunnudag.
Boeden, sem varð yfirmaður
vestur-þýsku leyniþjónustunnar um
miðjan janúar, heldur fram í „leyni-
skýrslu", að fjölmargt bendi til, að
leyniþjónustur kommúnistaríkjanna
veiti fyrrnefnda aðstoð, enda þótt
engar áþreifanlegar sannanir liggi
fýrir um slíkt, að því er segir í viku-
ritinu ,JA
Foringjar Rauðu herdeildarinnar,
sem eru vinstrisinnuð hryðjuverka-
samtök, hafa ferðast til Austur-
Ritun sögu Sovétríkjanna:
Tengdasonur Khruchev
biður um sannsfirni
Moskvu, Reuter. ^
ALEXEI Adzhubei, tengdasonur Nikita Khruchev, fyrrum aðalrit-
ara sovézka kommúnistaflokksins, hvatti í gær til meiri heiðar-
leika við ritun sögu Sovétríkjanna.
Adzhubei skrifaði grein í vikuri-
tið Ogonyok um helgina þar sem
hann sagði að búið væri að fylla
ungt fólk efasemdum með stanz-
lausri endurritun sögubóka, sem
jafnvel þegðu um forystumenn og
tímabil í sögu Sovétríkjanna.
Adzhubei var háttsettur emb-
ættismaður og áhrifamikill í
Kreml á árUnum 1959 til 1964. Á
þeim tíma var hann m.a. aðalrit-
stjóri Izvestia, málgagns ríkis-
stjómarinnar, og ráðgjafi
Khruchev. Hann fylgdi tengdaföð-
ur sínum gjarnan á ferðum til
útlanda og var sjálfur sendur í
mikilvægar sendiferðir, m.a. til
Vatikansins og til Vestur-Þýzka-
lands. Adzhubei hrökklaðist frá
þegar Khmchev var settur af og
er nú ritstjóri mánaðarritsins Sov-
étríkin.
í greininni gagmýndi Adzhubei
hreinsanir Josefs Stalín og sagði
að margir, sem komu við sögu
byltingarinnar 1917, hefðu þá
verið látnir gjalda þungt fyrir
skoðanir sínar. „Við erum að
blekkja okkur sjálf og leiða æsk-
una inn á villigötur með því að
fella þennan kapítula úr og útiloka
þar með að menn geti skoðað
hann í ljósi atburða líðandi stund-
ar,“ sagði Adzhubei.
„Hálfur sannleikur stuðlar ekki
að háu siðgæði. Ungir menn, sem
snúa heim [frá bardögunum í]
Afganistan þurfa ekki á aðlöguð-
um sannleika að halda. Ekki
heldur skólabörnin sem sjá á
morgun að sögutextanum sem
þau lásu í gær hefur verið breytt,
og að breytingarnar voru ekki í
samræmi við sagnfræðilega hlut-
lægni,“ sagði hann ennfremur.
I grein sinni nefndi Adzhubei
Khruchev sinn ekki á nafn, en
nafn hans var þurrkað út úr
sovézkum sagnfræðibókum á
valdatíma Leonid Brezhnev og
hans var ekki getið í heimildakvik-
myndum um Sovétríkin frá þeim
tíma.
Brezhnev er nú ákaft gagn-
rýndur af opinberum sagnaritur-
um og helztu sagnfræðingar hafa
geið í skyn að hugsanlega verði
kapítulinn um Khruchev endur-
skoðaður og jákvæðari afstaða
tekin til hans.
Loks lofaði Adzhubei umbótat-
ilraunir Mikhails Gorbachev og
sagði að í þeim tilraunum væri
ekki aðeins nauðsynlegt að af-
menga þá eldri heldur væri ekki
síður þörf fyrir að göfga æskuna,
sem ætti eftir að erfa landið.
Evrópu-landanna á undanförnum
árum án minnstu fyrirstöðu, segir
Boeden í skýrslunni, að sögn JA.
Tímaritið vitnar í skýrsluna og
segir, að ljóst sé, að yfirvöldum
austantjalds hljóti að hafa verið
kunnugt um ferðir þessa fólks, þeg-
ar haft sé í huga, hversu landa-
mæragæsla ríkjanna sé ströng.
Boeden segir, að vestur-þýskur
hryðjuverkamaður, Christa Frölich,
sem handtekin var í Róm 1982,
hafi verið með falsað vegabréf, sem
var „sláandi líkt fölsuðum skilríkj-
um frá Austur-Þýskalandi", að
sögn JA.
Boeden segir enn fremur í skýrsl-
unni, að félagar í vestur-þýsku
nýnasistahreyfingunni, hafi ferðast
erfiðleikalaust um Austur-Berlín til
Líbanons.
Danmörk:
Vörubíl-
stjórar loka
landamærum
Padborg, Reuter.
DANSKIR vörubílstjórar hafa Iok-
að helstu landamærastöðinni milli
Danmerkur og Vestur-Þýska-
lands, að því er haft var eftir
lögreglu. Bílstjórarnir eru að mót-
mæla kjörum sínum.
Um 200 vörubíla röð hefur mynd-
ast við landamærin síðan á sunnu-
dagskvöld. Aftur á móti hafa
aðgerðir bílstjóra ekki áhrif á umferð
einkabíla, þar sem þeim er ekki yfir
landamærin eftir annarri akrein.
Vörubílstjórar samþykktu í at-
kvæðagreiðslu í gærmorgun að halda
aðgerðum sínum við landamærin
áfram og sjá hvað setur í viðræum.