Morgunblaðið - 19.08.1987, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
Einar Júlíusson, aðalfararslj óri:
„íslendingar geta
haldið Olympíuleikana
í eðlisfræði“
„Aðalávinningur okkar af
þátttöku í Ólympíuleikunum í
Eðlisfræði er sá áhugi á eðlis-
fræði og samanburður á
* kröfum sem hún veitir inn í
íslenskt skólakerfi. Ég hef orð-
ið var við að kennarar taka
keppnisdæmi, aðlaga að náms-
efni sínu og leggja fyrir
nemendur. Nemendur kynna
sér einnig dæmin sem birtast í
Morgunblaðinu og bera saman
við verkefnin úr skóla sínum.“
Einar Júlíusson, eðlisfræðing-
ur, fór nú í annað sinn sem
aðalfararstjóri íslenska keppnis-
liðsins. Hann var jafnframt
formaður dómnefndar þeirrar sem
samdi og fór yfir verkefni í for-
keppni og úrslitakeppný innan-
lands síðastliðinn vetur. í sumar
fékk hann ásamt nokkrum öðrum
eðlisfræðingum styrk til að full-
komna myndgreiningu með tölv-
um er nýst gæti m.a. við
fískvinnslu.
„Landskeppnin og Eðlisfræði-
leikamir eru kjörinn vettvangur
til að kynna viðfangsefni eðlis-
fræðinnar og stuðla að eflingu
eðlisfræðideilda skólanna" segir
Einar um dvínandi hlutfall nem-
enda í raunvísindum. „Þátttak-
endur í eðlisfræðikeppnum njóta
margvíslegrar skemmtunar í sam-
bandi við þær og eiga möguleika
á umtalsverðum verðlaunum.
Þetta er eðlileg umbun fyrir góðan
árangur í þessari námsgrein líkt
og íþróttir gefa afburðamönnum
kost á“.
„Islendingar eiga að stefna að
áframhaldandi þátttöku í
Ólympíuleikunum í Eðlisfræði og
að setja sig á lista yfir gestgjafa
leikanna á næsta áratug" segir
Einar um þá skyldu þátttökuþjóð-
anna að halda Eðlisfræðileikana.
„Við ráðum yfír nægum fjölda
íslenskra eðlisfræðinga til að
semja verkefni og fara yfír lausn-
ir, ásamt aðstöðu fyrir þá fjöl-
mörgu sem tengjast keppnishald-
inu. Þá hefur ísland upp á margt
að bjóða sem í eðlisfræðilegum
skilningi er forvitnilegt og
skemmtilegt".
AheyrnarfuIItrúi frá Grikklandi við merki 18. Ölympíuleikanna í
eðlisfræði.
XVIII.
Internationale
Physik-
Olympiade
Aheyrnarfulltrúi Grikklands:
„Við munum fjölga
stúlkum á
Ólympíuleikunum“
A-þýska menntamálaráðu-
neytið bauð gríska mennta-
málaráðuneytinu að ^ senda
áheyrnarfulltrúa á Ólympíu-
leikana í Jena þar eð Grikkir
hafa lengi sýnt áhuga á að taka
þátt í keppninni. Dionissios
Marinos, formaður griska eðlis-
fræðifélagsins og fyrrum
aðstoðarprófessor við háskól-
ann í Aþenu, var valinn til
fararinnar og kynnti hann sér
hvernig leikarnir fara fram.
„Við bindum miklar vonir við
að þátttaka í eðlisfræðileikunum
sprauti vítamíni í eðlisfræðideildir
grískra skóla og stefnum á að
mæta með fullt lið næsta ár.
Landskeppni verður haldin í vetur
og síðan munum við þjálfa keppn-
isliðið vel. Gríska eðlisfræðifélagið
stefnir að því að grískir keppend-
ur sem ná góðum árangri í
landskeppninni fái inngöngurétt í
háskólann án skólagjalda og inn-
tökuprófa. Mörgum fínnst sem
nóg sé komið af prófum og því
viljum við reyna að láta land-
skeppnina koma í stað eins
þeirra."
Dionissios sagði að í eðlisfræði-
deildum grískra skóla væru
jafnmargar stúlkur og drengir og
þráfaldlega væru stúlkur með
hæstu einkunnirnar í háskólanum.
Hann bjóst við því að gríska lands-
keppnin myndi endurspegla þessa
staðreynd. „Og á næstu Olympíu-
ieikum munum við laga hlutfallið
milli kynjanna með mörgum
grískum stúlkum.
Keppendur frá Kuwait lentu í neðsta sæti:
„Mikill skortur á
innfæddum læknum
og verkfræðingum“
Þijár blæjum skrýddar stúlk-
ur og tveir smávaxnir drengir
meðal keppenda vöktu mikla
athygli á eðlisfræðileikunum.
Ekki minni athygli vakti einn
' fararstjóranna fyrir að vera i
kufli frá enni að tám og krjúpa
með syni sínum í bænastöðu
múhameðstrúarmanna í átt að
Mekka á ýmsum tímum.
Þessir fyrstu keppendur frá
Kuwait koma frá ýmsum lands-
hlutum en hinn smávaxni 19 ára
Waleed Mohammad kemur frá
Kuwait-borg. „Við vorum 3000 í
landskeppninni en síðan vom vald-
ir 25 drengir og 25 stúlkur í
úrslitakeppnina. Þá var valið 5
manna lið og við fengum aðeins
einnar viku þjálfun í háskólanum
í Kuwait-borg áður en við komum
til Jena“ sagði Waleed, alveg sátt-
ur við að verma neðsta sætið.
Kuwaitönsku krakkamir hafa
allir lokið stúdentsprófí og fara í
háskólann í Kuwait-borg næsta
vetur. Dhaya Al-Jaber, 18 ára,
og Amina A1 Mu Tairi, 17 ára,
ætla báðar í læknisfræði, en
Dheya Abdin, 18 ára, og Mahamo-
ud Kazem, 18 ára, fara bæði í
verkfræði. „Það eru margir er-
lendir verkfræðingar og læknar í
Frá vinstri: Mahmoud, Waleed, Amina, Dheya og Dhaya.
Kuwait en við þörfnumst inn-
fæddra manna með þessa þekk-
ingu“ segja þau.
Waleed ætlar einnig að verða
læknir. „Það er engin framtíð í
að læra eðlisfræði í Kuwait því
þá getur maður aðeins orðið kenn-
ari,“ segir hann snúðugt og bætir
við. „Gakktu úr skugga um að
þetta birtist í blaðinu þínu!“