Morgunblaðið - 28.04.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988
Blanda flæðir yfir bakka sína:
Þjóðvegurinn í Langadal
í sundur á tveimur stöðum
Ellefu bæir í Svartárdal einangraðir um tíma
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blanda hefur valdið stórfelldum skemmdum á veginum í Langadal
víðar en þar sem hún rauf hann í sundur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Blðnduósi.
ÞJÓÐVEGURINN í Langadal í
Austur-Húnavatnssýslu er í sund-
ur á tveimur stöðum vegna
vatnavaxta í Blöndu. Ennfremur
hefur Svartá í Svartárdal farið
yfir veginn í dalnum á nokkrum
stöðum og voru um 11 bæir ein-
angraðir af þeim sökum um tíma.
Ástæður þessara miklu vatna-
vaxta eru mikil hlýindi undan-
farna daga og mynduðust klak-
astíflur í Blöndu ofarlega í
Langadal og hækkaði það vatns-
borð Blöndu með þessum afleið-
ingum. Ljóst er að mikið tjón
hefur orðið í þessum hamförum
og að sögn vegagerðarinnar á
Blönduósi er tjónið í Langadal
ekki undir tveimur miljónum
króna
Það var um kl. 23 í gærkveldi
sem vegagerðinni á Blönduósi var
tilkynnt um að Blanda væri farin
að renna yfír veginn skammt utan
við Svartárbrú nálægt bænum Ár-
túnum. Það var síðan snemma f
morgun sem ljóst var að áin leitaði
aftur í sinn.gamla farveg skammt
utan við Æsustaði og fór þar yfír
veginn. Á báðum þessum stöðum
sem Blanda rennur yfír veginn hef-
ur myndast um 400 metra geil í
veginn.
Að sögn Þormóðs Péturssonar
vegaverkstjóra vegagerðarinnar á
Blönduósi eru ekki líkur á að klak-
astíflan í Blöndu muni bresta og
þar með aflétta þessu ástandi held-
ur mun vatnavextir minnka smátt
og smátt en meðan þetta ástand
varir mun norðurleiðin um Langad-
al vera lokuð. Norðurleiðin er þó
fær um Svínvetningabraut.
Ekki er vitað um nein óhöpp sem
þessum vatnavöxtum fylgdu en
fólksflutningabifreið frá Halli Hilm-
arssyni þurfti að snúa frá skömmu
eftir miðnætti vegna klakaburðar
yfír veginn. Einnig gátu nokkurir
wunglingar sem áttu að taka sam-
ræmdu prófín ekki komist í skólann
af þessum sökum. Þetta er í fyrsta
sinn sem Blanda fer yfir veginn frá
því hann var lagður á þessum stað
fyrir nokkrum árum.
- Jón Sig.
Séð yfir Langadal í gær
Æsustaðir í Langadal. Myndin var tekin eftir hádegið í gær. Morgunbiaðifl/Ámi Sæberg
Það var nöturlegt að
vakna í rafmagns-
leysi og einangrun
- segir Jóhanna Þórarinsdóttir
hósfreyja á Æsustöðum
ÞAÐ var nöturlegt að vakna i morgun i rafmagnsleysi og einangr-
un,“ sagði Jóhanna Þórarinsdóttir, húsfreyja á Æsustöðum í Langa-
dal, í samtali við Morgunblaðið i gær. Vegna klakastiflu rauf Blanda
stórt skarð i veginn rétt neðan við brúna yfir Svartá fyrir innan
Æsustaði og annað fyrir ofan Auðólfsstaði sem er næsti bær fyrir
neðan Æsustaði. Áin rennur yfir meirihlutann af túni Æsustaða en
fyrir neðan bæinn þannig að hægt er að komast fótgangandi að og
frá honum. Blanda tók með sér 3 háspennulínustaura við bæinn
Hamar i Langadal i fyrrinótt og við það fór rafmagnið af bæjum í
Langadal, Svinadal, Blöndudal og Svartárdal en hægt var að koma
þvi á aftur, nema til Hamars, klukkan 8 í gærmorgun. ,
Vegavinnumenn að störfum I Langadal í gær.
Ekki hefur verið hægt að gera
við háspennulínuna, sem liggur að
Hamri, vegna vatnavaxtanna í
Blöndu en reyna átti að setja upp
ljósavél fyrir bæinn, að sögn Jónas-
ar Sigurgeirssonar flokksstjóra hjá
Rafmagnsveitum ríkisins á Blöndu-
ósi.
Ekki hefur heldur verið hægt að
gera við veginn við Æsustaði vegna
mikils straumþunga i vegarskörð-
unum en möl hefur verið keyrð í
vamargarð fyrir neðan Auðólfsstaði
því hætta hefur verið talin á að
Blanda ijúfi þar einnig skarð í veg-
inn, að sögn Páls Þorsteinssonar
fulltrúa hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki. Á meðan vegurinn um
Langadal er ófær verður umferðinni
beint um Svínvetningabraut og er
hún þokkaleg og fær öllum bílum,
að sögn Oskars Stefánssonar
bílstjóra hjá Norðurleið.
Vegna vegaskemmdanna við
Æsustaði missti sonur Jóhönnu
Þórarinsdðftur, husrrey]u 1 Dænum,
Sverrir Þór Sverrisson, af sam-
ræmdu prófi í stærðfræði í Húna-
vallaskóla í gærmorgun. Sverrir Þór
sagði að skólaeinkunn hans yrði
látin gilda í staðinn fyrir prófið.
„Mér fínnst þó slæmt að missa af
prófínu og ég þarf að ganga fjóra
kílómetra til að komast í samræmt
próf í ensku í fyrramálið,“ sagði
Sverrir Þór.
Svartá ruddi sig eínnig í fyrradag
og klaki úr ánni fór upp á veginn
í Svartárdal og lokaði honum á
þremur stöðum, við Leifsstaði og
Skottastaði um hádegisbil og Gil
um kvöldmatarleytið, að sögn Bimu
Sigvaldaóttur húsfreyju á Barkár-
stöðum í Svartárdal. „Strákur frá
Fossum, sem hefur verið í sam-
ræmdum prófum i Húnavallaskóla,
var hjá okkur f nótt því hann komst
ekki heim til sín í gær. Strákurinn
komst þó aftur í skólann í morgun
þvf þá var búið að opna veginn aft-
ur,“ sagðí Birilá. ! ■ '• 1 ‘ “