Morgunblaðið - 28.04.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988
Minning:
Jón Hjálmarsson
Fæddur 9. október 1924
Dáinn 18. apríl 1988
Vinur minn og góður ráðgjafí,
Jón Hjálmarsson fyrrv. erindreki
ASÍ, er fallinn frá, langt um aldur
fram, aðeins 63 ára gamall. Það
eru ekki margir dagar síðan hann
gekk á minn fund, ásamt öðrum
stjómarmönnum Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni, til
þess að reifa áform og tillögur um
að koma upp félagsmiðstöð og
samastað fyrir eldri kynslóðina á
höfuðborgarsvæðinu til samveru-
stunda, tómstundaiðju og heilsu-
ræktar.
Jón var einn af hvatamönnum
að stofnun þessa félagsskapar fyrir
tveimur árum og bar hag samborg-
ara sinna mjög fyrir bijósti eins og
hann reyndar gerði alla sína tíð.
Það voru engin elli- eða þreytu-
merki á málflutningi nafna míns.
Hann ræddi ekki liðna tíð heldur
framtíðaráform af þeim hugsjóna-
eldmóði sem nærðist af umhyggju
fyrir samborgurum, en var á sama
tíma tempraður raunsæi og ábyrgð-
artilfínningu, í anda þeirra lífsvið-
horfa sem Jón tileinkaði sér ungur.
Kynni okkar Jóns hófust fyrir
tæpum áratug, þegar ég settist í
ritstjórastól Alþýðublaðsins. Jón var
einn þeirra reyndu og rótgrónu
Reykjavíkurkrata sem lagði hlustir
við málflutningi nýja ritstjórans.
Hann átti oft leið á ritstjómarskrif-
stofur Alþýðublaðsins, til að ræða
málefni líðandi stundar.
Ég veitti því strax eftirtekt að
þama var sérstakur maður á ferð.
Jón var jafnaðarmaður af hugsjón.
Hann hugsaði sína pólitík út frá
gagnrýninni umhyggju fyrir mál-
stað verkalýðshreyfíngar og vinn-
andi fólks. Hann þekkti sögu verka-
lýðshreyfíngarinnar og Alþýðu-
flokksins í þaula. Það sem hann
miðlaði mér af þeirri sögu kom mér
að góðu haldi þegar ég tók að kynna
mér innviði Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Jón Hjálmarsson var
einn þessara fágætu hugsjóna-
manna, sem aldrei hugsa um eigin
hag heldur ævinleg um framgang
málstaðar og máiefna sem hann
batzt ungur ástfóstri við.
Jón Hjálmarsson var ekki einasta
fróður um lífsbaráttu og pólitík fyrri
tíðar. Hann hafði lært af reynslunni
og vildi gjaman leggja sitt af mörk-
um til að bæta fyrir fyrri mistök
okkar hreyfíngar og treysta sam-
stöðu vinnandi fólks um samtök sín
og meginstefnu fremur en ala á
fyrri misklíðarefnum. Þess vegna
var Jón Hjálmarsson umburðar-
lyndur gagnvart mönnum og mál-
efnum. Hann var fróður, íhugull og
gagnrýninn á leiðir — en ævinlega
jákvæður í afstöðu sinni. Þess
vegna var bæði gaman að gagnlegt
að ræða við hann málefni líðandi
stundar og að setja þau í stærra
samhengi fortíðar og framtíðar.
Það kom því eins og af sjálfu sér
að ég leitaði í smiðju til nafna míns
þegar sækja þurfti og veija málstað
okkar jafnaðarmanna_ í fólkorr-
ustum stjómmálanna. Á það reyndi
strax í alþingiskosningum 1979 og
í þeirri kosningabaráttu, sem háð
hefur verið síðan, bæði bæjar- og
Alþingiskosningum.
Þá er ekki síður eftirminnilegt
samstarfíð innanflokks, í nefnda-
vinnu og á málfundum þar sem Jón
Hjálmarsson lét sig sjaldan vanta.
Ég treysti því að aðrir verði til
þess að gera lífshlaupi og æviferli
Jóns Hjálmarssonar betri skil f
minningarorðum, því að þessar
línur em hripaðar á blað á stolnum
stundum milli funda. En að leiðar-
lokum vil ég nota tækifærið og
þakka Jóni Hjálmarssyni fómfúst
og óeigingjamt starf, í bókstafleg-
um skilningi þeirra orða, f þágu
jafnaðarstefnu, verkalýðshreyfíng-
ar og Alþýðuflokksins. Eftirlifandi
konu hans, Huldu Þorsteinsdóttur,
bömum þeirra og öðmm vanda-
mönnum flyt ég hugheilar samúðar-
kveðjur.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins.
Með nokkmm orðum langar mig
til að minnast Jóns Hjálmarssonar
sem í dag er til moldar borinn.
Það má segja að kynni okkar
Jóns hafí fyrst hafíst fyrir rúmlega
þremur ámm þegar við hófum við-
ræður, nánast fyrir tilviljun, um
nauðsyn þess að stofna samtök
manna, sem orðnir vom 60 ára og
eldri, með það markmið í huga, að
efla innbyrðis kynni þeirra og sam-
starf um að sinna áhugamálum
sínum, gera þeim efri árin létt-
bærari og ánægjulegri en ella.
Jón var einn aðalforgöngumanna
um stofnun Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni þann 15.
mars 1986 og hann var einnig aðal-
hvatamaður að stofnun svonefnds
Opins húss sem var ein aðallífæð
félagsins. Hann var kjörinn gjald-
keri félagsins og síðasta árið var
hann varaformaður þess.
Það sem einkenndi Jón í störfum
sínum fyrir FEB var brennandi
áhugi á öllu því sem hann taldi til
heilla félaginu og helgaði því þá
þekkingu og þann kraft sem hann
bjó yfír.
Jón flutti mál sitt af krafti og
einurð og hans síðustu orð vom
hvatning til samstjómarmanna
sinna um að hvika hvergi frá þeim
málum sem félagið berst fyrir og
hafði þá efst í huga nauðsyn þess
að félagið eignaðist sitt eigið félags-
heimili. Nokkmm mínútum síðan
var hann látinn, svo skammt er
milli lífs og dauða.
Félaginu er mikill missir að jafn
ötulum forystumanni sem einnig
bjó yfír víðtækri reynslu og þekk-
ingu.
Jóns er ekki einungis saknað af
nánustu aðstandendum. Við sem
störfuðum með honum höfum einn-
ig misst mikið.
Um leið og ég þakka Jóni störf
hans í þágu félags okkar vil ég
sérstaklega þakka persónuleg kynni
mín við hann, sem mann og sam-
starfsmann. Við höfðum náið og
gott samstarf, hann var sá maður
sem gott var að leita til og ávallt
reiðubúinn til að leggja fram krafta
sína í þágu félagsins og alls sem
til heilla horfði fyrir eldra fólk í
þessu landi.
Með slíkum manni er gott að
starfa og fyrir það samstarf vil ég
þakka. Um leið og ég votta aðstand-
endum og vinum hins látna samúð
mína óska ég honum velfamaðar á
þeim vegum sem hann gengur nú.
Blessuð sé minning góðs drengs.
Bergsteinn Sigurðarson
Ég rita þessi fáu kveðjuorð um
elskulegan tengdaföður minn, Jón
Hjálmarsson, sem féll skyndilega
frá þann 18. apríl síðastliðinn.
Fátt er dýrmætara en að eiga
góðan vin. í dag kveðjum við mann
sem var vinur vina sinna og það
sem meira er vinur og félagi bama
sinna og bamabama. Það em um
átta ár síðan ég kom fyrst inn á
heimili þeirra Huldu og Jóns, þá
nýbúin að kynnast Brynjari syni
þeirra. Mér var strax tekið opnum
örmum og hefur verið svo ætíð
siðan.
Jón var einstaklega ljúfur og hlýr
í viðmóti og vildi öllum vel. Jóni
kynntist ég best þegar við Brynjar
bjuggum í Skúlatúni, en þar var
hann húsvörður. Voram við þá í
návist hans daglega. Á hveijum
degi kom hann til okkar og spurði:
„Get ég gert eitthvað fyrir ykkur,
elskumar mínar." Svona var Jón,
alltaf boðinn og búinn til að hjálpa
öðrum. Og ófáar vora ferðimar sem
hann fór með okkur Bimu ef við
þurftum einhvers með og Brynjar
var að vinna. Bima okkar var svo
hrifín af afa sínum og kemur hún
nú til að sakna mikið góðs afa. Það
var gaman að tala við Jón. Hann
trúði á iíf eftir dauðann og töluðum
við stundum saman um hinar dul-
rænu hliðar mannlífsins, en bæði
höfðum við mikinn áhuga á þeim
málefnum. Þær vora margar bæk-
umar sem ég fékk lánaðar hjá hon-
um um þau efni. Það sem ein-
kenndi Jón öðra fremur var heiðar-
leiki hans, höfðingslund, hógværð og
drengskapur ásamt skarpri greind
og víðsýni. Nú er Jón farinn í sitt
hinsta ferðalag og veit ég að hans
bíða góð vist og góðar móttökur.
Ég minnist tengdaföður míns
með þakklæti og miklum hlýhug
og þakka fyrir að hafa fengið að
kynnast honum. Þar sem góðir
menn fara era Guðs vegir. Blessuð
sé minning hans.
Elsku Hulda mín, megi Guð gefa
þér styrk á þessari erfíðu stund.
Þá allt er dáið
er ekkert til nema líf.
Dauðinn er aðeins að deyja.
Og líka hann er líf.
(S.H.)
Steinunn Steinarsdóttir
Að kvöldi þann 18. apríl sl. and-
aðist elskulegur afí minn og nafni,
Jón Hjálmarsson. Mig langar til að
____________________________43
minnast hans með því að skrifa
nokkur kveðjuorð og þakka honum
fyrir allt sem hann kenndi mér um
lífíð og tilverana. Við gátum spjall-
að tímunum saman og alltaf hafði
afi tíma til að hjálpa og snúast með
mig hvað sem mig langaði til að
gera, enda var hann þekktur fyrir
greiðvikni sína og hjálpsemi. En
minningamar hrannast upp, og ég
á svo erfítt með að trúa þvf að afí "
minn sé farinn héðan af þessari
jarðvist, og ég spyr aftur og aftur
hvers vegna hann? Við voram svo
miklir félagar og vinir og áttum
eftir að gera svo margt saman. En
ég veit að nú líður afa mínum vel,
og ég á ekkert nema yndislegar
minningar um hann. Ég og mamma
mín þökkum afa fyrir samfylgdina
og biðjum guð að varðveita hann
og gefa afa sinn himneska frið.
Amma mín, algóður guð styrki
þig og varðveiti.
Jón Brynjarsson
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
KRISTINN HALLVARÐSSON,
Kleifarseli 10,
Reykjavlk,
lést á heimili sínu þriöjudaginn 26. apríl.
Seselja Jónsdóttir, Hallvaröur Ferdinandsson,
Ágúst Hallvarðsson, Hildur Hallvarðsdóttir.
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
GUÐRÚN LIUA KRISTMANNSDÓTTIR,
Stóragerði 13,
Reykjavfk,
verður jarösungin fró Dómkirkjunni föstudaginn 29. apríl kl. 10.30.
Ásgeir P. Agústsson,
María Ásgeirsdóttir, Ágúst Breiðfjörð,
Guðbjörg Elin Ásgeirsdóttir, Davfð Þjóðleifsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín og móöir okkar,
STEINUNN BRAGADÓTTIR,
Blóhvammi,
verður jarösungin fró Grenjaöarstaöarkirkju föstudaginn 29. apríl
kl. 14.00.
Jón Frfmann,
Ólafur Skúli, Guðný Hólmfrfður,
Böðvar,
Guðrún Hulda, Þórður Bragi.
t
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Faxaskjóli 10,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. apríl kl. 15.00.
Hólmfríður R. Árnadóttir,
Þórunn Árnadóttir,
Svala Eyjólfsdóttir,
Jón R. Árnason.
t
Elsku dóttir mín, fósturdóttir, systir og barnabarn,
LINDA BJÖRK BJARNADÓTTIR,
Sogavegi 158, Reykavfk,
veröur jarösungin frá Bústaðakirkju í dag, fimmtudaginn 28. apríl
kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina, ættingja og vina,
Ragnheiður Magnúsdóttir,
Kristfn Kristjánsdóttir,
Júlíana Árnadóttir,
Sigurður Óli Sigurðsson,
Steingrfmur Bjarnason,
Magnús Ingjaldsson.
t
Utför eiginkonu minnar, móður okkar, systur, tengdamóður og
ömmu,
SVANHVÍTAR ÞORBJARNARDÓTTUR BENNETT,
Faxabraut 31D, Keflavfk,
áður búsettri í Flórfda,
fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, fimmtudaginn 28. apríl, kl. 14.00.
James Bennett
Þorbjörn Datzko, Sigurlaug Kjartansdóttir,
Robert Bounds, Sara Bounds,
Katrfn Þorbjarnardóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð ykkar og hjálp vegna andláts og viö
útför sonar okkar, unnusta og bróöur,
ÁSGEIRS ÞRASTAR BENTHSSONAR,
Skógargötu 18,
Sauðárkróki.
Helga Jónsdóttir,
Alda Ferdinandsdóttir, Benth Behrend,
Þyri Edda Benthsdóttir,
Guðrún Benthsdóttir,
Gústav Benthsson,
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö
andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
RÓSU JÚLÍUSDÓTTUR,
Hólavegi 28,
Sauðárkróki.
Friðrika Hermannsdóttir, Bragi Skúlason,
Agnar Hermannsson, Anna Leósdóttir,
Kári Hermannsson, Sigurlína Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
ELÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR SNÆHÓLM.
Alda Snæhólm,
Njörður Snæhólm,
Kristfn Snæhólm,
Guðmundur Snæhólm,
Edda Snæhólm
og fjölskyldur.