Morgunblaðið - 28.04.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988
HANDKNATTLEIKUR / VESTUR ÞÝSKALAND
Kristján Arason fer frá Gummersbach og segist taka tilboði spánska
félagsins Tecca ef það verði mjög gott.
Fer til Spánar ef
ég fæ gott tilboð
- segir Kristján Arason, sem fer að öllum líkindum
til Spánar eftir helgi til að líta á aðstæður hjá Tecca
„EF óg fœ mjög gott tilboð
frá Tecca þá fer ég til liðsins
og leik með þvf á nœsta
keppnistímabili," sagði Kristj-
án Arason, landsliðsmaður í
handknattleik, í samtali við
Morgunblaðið f gær. Kristján
sagði Tecca vera mjög traust
félag. Liðið tekur þátt í úr-
slitakeppninni um spánska
meistaratitilinn að þessu
sinni og hafði Kristján eftir
forráðamönnum þess að þeir
ætluðu sér að ná f 2-3
spánska landsliðsmenn fyrir
næsta tímabil.
Vestur þýska 2. deildarfélagið
Dankersen hefur sýnt Kristj-
áni áhuga, eins og áður hefur
komið fram í Morgunblaðið og
gerði honum tilboð ( fyrradag.
Að sögn Kristjáns er tilboðið gott,
og mun hann svara félaginu í
næstu viku. Hann sagði það vissu-
lega kitla að vera tekinn fram
yfír júgóslavneska landsliðsmann-
inn Cvetkovic, sem leikið hefur
með liðinu í vetur, en þó hefði
hann meiri áhuga á að leika með
toppliði á Spáni.
Kristján sagði sérstaklega eitt
atriði ýta undir að hann kæmi
heim og léki hér á landi næsta
vetur. „Þorgerður, eiginkona mín,
leggur stund á lögfræði við Há-
skóla íslands. Hún tók fýrsta árið
utan skóla í vetur, en það er vitað
mál að annað árið verður erfíð-
ara, þannig að það væri betra að
vera heima með það f huga." En
hvað Spán varðar sagði Kristján
aftur, að þangað færi hann ef til-
boðið yröi mjög gott.
Því má bæta hér við að órói er á
meðal leikmanna Gummersbach
vegna þess að Kristján verður lát-
inn fara frá félaginu. íþróttablað-
ið Kicker greindi frá því nú í vik-
unni.
{ blaðinu segir að eftir leik Gum-
mersbach um helgina hafí fram-
kvæmdastjóri liðsins greint frá
þvi á fundi með blaðamönnum að
Kristján færi frá félaginu eftir
tímabilið og landsliðsmaðurinn
Andreas Dörhöfer kæmi í staðinn,
frá Schwabing, en hann er örv-
hent skytta eins og Kristján.
„Þetta er óheppileg lausn," er svo
haft eftir landsliðsmanninun
kunna Rudiger Neitzei. „Féiagið
hefði átt að halda Kristjáni,“
bætti hann við, og aðrir leikmenn
eru sagðir á sama máli.
Kristján segist óhress með að
ekki skildi beðið með að tilkynna
að Dörhöfer kæmi f sinn stað þar
til eftir síðasta leik. Um það hefði
verið samið. Ég og forráðamenn
Gummersbach vorum búnir að
semja um það að tiikynna þetta
ekki fyrr en eftir síðasta leik.
Forráðamenn félagsins hringdu
svo í mig eftir helgina og báðu
mig afsökunar á því að fréttin um
að ég færi og Dörhöfer kæmi í
minn stað hefði verið birt svo
snemma," sagði Kristján í gær.
■ GUÐMUNDUR Haraldsson,
milliríkjadómari f knattspymu,
dæmir leik Frakka og Svía í undan-
keppni Ólympíuleikanna, en viður-
eignin fer fram í Lens í Frakklandi
25. maí. Sveinn Sveinsson og
Þorvarður Björnsson verða línu-
verðir. Svíar standa best að vígi í
riðlinum og með sigri tryggja þeir
sér efsta sætið.
■ ÞRÓTTARAR, sem leika í 2.
Tfeild knattspymunnar í sumar, hafa
fengið talsverðan liðsauka. Fyrstan
skal telja Hermann Arason, sem
áður lék með Hvöt frá Blönduósi,
og var raunar fyrirliði liðsins í fyrra
er það sigraði í 4. deild. Þá er Ottó
Hreinsson hættur við að leika með
Gróttu í sumar og verður áfram
hjá Þrótti. Tveir Englendingar
leika svo með Þrótti í sumar: Darr-
en Giles og Peter Frein. Þessir
kappar léku báðir með utandeildar-
liðum á Englandi f vetur, en hafa
verið á mála hjá atvinnuliðum áður.
Giles hjá Aston Villa og Frein hjá
WBA.
H RÁÐSTEFNU landsdómara í
knattspymu, sem vera átti um
næstu helgi, hefur verið frestað um
viku og verður 7. og 8. maf. Ken
Ridden, sem er í dómaranefnd
UEFA, verður með fyrirlestur á
ráðstefnunni og sýnir videómyndir,
sem hann hefur sýnt á alþjóða dóm-
araráðstefnum.
■ SIGURÐUR G. Sveinsson
sigraði í þremur af flórum vegg-
tennismótum („ Squash" ) vetrarins
á vegum Veggsports, Dansstúdíós
Sóleyjar og Sijömunnar og hlaut
utanlandsferð í verðlaun. Hann
verður með á íslandsmótinu, sem
hefst á morgun í Veggsporti við
Seljaveg, en úrslitakeppnin verður
á laugardag. Skráning keppenda
stendur yfír, en hægt er að tilkynna
Sátttöku ísfma 19011 og 687701.
I ÁSMUNDUR Ólafsson lék
sama leikinn f racquetmótunum, en
fyrsta íslandsmótið í greininni
stendur nú yfir í Dansstúdfói Sóleyj-
ar að Engjateigi. Úrslitakeppnin í
kvennaflokki hefst klukkan 10 á
sunnudaginn, en klukkan 13 f karla-
flokki.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Gústaf ráðinn
þjáKari Fram
Aðeins þrjú lyrstu deildarlið eiga
eftir að ráða þjálfara fyrir næsta vetur
Gústaf Bjömsson hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Fram í handknattleik næsta keppn-
istímabii. Gústaf tekur við af Björg-
vini Björgvinssyni sem var með lið-
ið síðasta leikár.
Gústaf er kunnur knattspymu- og
handknattleiksmaður. Hann þjálf-
aði 2. deildarlið KS frá Siglufirði í
knattspymu síðustu tvö árin. Hann
hefur einnig fengist við þjálfun í
handknattleik. Hann hefur stundað
nám í íþróttafræðum við íþrótta-
háskólann í Osló í Noregi undanfar-
in ár.
Fram átti frekar slæmu gengi að
fagna á sfðasta keppnistímabili að-
allega vegna meiðsla leikmanna
þess í upphafi keppnistímabils.
Óll fyrstu deildarliðin nema UBK,
FH og KA hafa nú gengið frá þjálf-
aramálum sínum fyrir næsta keppn-
istimabil. KA-menn hafa verið í við-
ræðum við Júgóslavann, Mlaten
Miskowic, og má telja líklegt að
hann verði ráðinn þangað. Einnig
má telja nokkuð öruggt að Viggó
Sigurðsson verði áfram með FH.
Stanislaw Modrowski mun þjálfa
Val, Bogdan Kowalczyk mun þjálfa
Vfking, Gunnar Einarsson verður
áfram með Sijömuna, Sigurður
Gunnarsson þjáifar ÍBV, Jóhann
Ingi Gunnarsson verður með KR,
Ami Indriðason með Gróttu og
Gústaf Bjömsson með Fram.
Qústaf Björnsson.
HANDBOLTI
Essení
úrslití
bikar-
keppninni
- mætirþar
Massenheim
Alfreð Gíslason og félagar hjá
TUSEM Essen tryggðu sér í
gærkvöldi sæti í úrslitum þýsku
bikarkeppninnar í handknattleik.
Essen lagði 2. deild-
Frá arliðið Huttenberg
Jóhannilnga að velli, 21:27, á
Gunnarssyni útiveUi j undanúr.
,Þyskaland, gUtum
í hinum undanúrslitaleiknum sigr-
aði Wallau Massenheim lið Weche
Handewitt, 24:20.
Það verða því Essen og Massenheim
sem leika til úrslita í bikarkeppn-
inni. Spilaðir em tveir leikir og fer
fyrri leikurinn fram í Massenheim.
KNATTSPYRNA / SVISS
Sigurður skoraði í
2:1-sigri á Servette
Luzern er nú í 3. sæti deildarinnar
„ÉG skoraði fyrra mark Luz-
em gegn Servette meö skalla
eftir hornspyrnu. Viö kom-
umst í 2:0 eftir aðeins 20
mínútur, en Servette setti eítt
í síðari hálfleik," sagði Sig-
urður Grétarsson um leikinn
gegn Servette í fyrra kvöld.
Luzem er nú í þriðja sæti úr-
slitakeppninnar og hefur unn-
ið tvo útileiki í röð. „Þetta hefur
gengið mjög vel hjá okkur að
undanfömu. Við höfum sett stefn-
una á Evrópusæti og ef við höld-
um þriðja sætinu náum við því
takmarki," sagði Sigurður.
Sigurður hefur verið dijúgur við
markaskorun f síðustu leikjum
Luzem og hann sagði að hann
væri nú að komast í sitt besta
form eftir að hafa átt í hnémeiðsl-
um f upphafí keppnistímabilsins.
Næsti leikur Luzem er heimaleik-
ur gegn efsta Iiði deiidainnar,
Xamax, á sunnudaginn.
Staðan f deildinni þegar fimm
umferðir em eftir er þessi:
Xamax 8 4 3 1 22:12 27
Aarau 8 4 3 1 17:10 24
Luzern 8 3 4 1 8:7 22
Servette 8 3 3 2 21:17 21
Grasshopper 8 2 2 4 14:17 21
St. Gallen 8 3 1 4 9:13 19
Lausanne 8 2 2 4 11:20 18
YoungBoys 8 2 0 6 11:17 17
Slgurður Qrétarsson hefur leik-
ið vel með Luzem að undanfömu.