Morgunblaðið - 28.04.1988, Qupperneq 56
WRIGLEY’S
SYKURLAUSI
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Skipulagsstjóm ríkisins um ráðhúsið:
Graftarleyf-
ið er löglegt
Borgarstjóri frestaði framkvæmdum
MEIRIHLUTI Skipulagsstjómar ríkisins komst að þeirri niðurstöðu
á fundi sínum í gær að veiting graftarieyfis fyrir ráðhús Reyk-
víkinga við Tjömina sé í fullu samræmi við byggingarlög og þann
skilning, sem i þau hefur verið lagður. Þrir stjómarmenn greiddu
atkvæði með þessari niðurstöðu en tveir á móti. Félagsmálaráðuneyt-
inu barst i gær þriðja kæran frá ibúum Tjamargötu, í þetta sinn
vegna stærðar ráðhúslóðarinnar. Borgarstjóri frestaði framkvæmd-
um við grunn ráðhússins til sunnudags, eða þar til Bygginganefnd
Reykjavíkur afgreiðir lokateikningar af ráðhúsinu endanlega.
Að sögn Stefáns Thors, skipu-
lagsstjóra, taldi meirihluti Skipu-
lagsstjómar veitingu graftarleyfís
fyrir ráðhúsið í fullu samræmi við
fyrstu málsgrein níundu greinar
byggingarlaga, þar sem segir að
óheimilt sé að grafa grunn án leyf-
is byggingamefndar. Skipulags-
stjóm mun því ekki leggja það til
við félagsmáiaráðherra að graftar-
leyfið verði úrskurðað ógilt.
Á fundi Skipulagsstjómar í gær
var einnig lögð fram kæra frá íbú-
um 'Ijamargötu til félagsmálaráð-
herra um að stækkun á lóð ráð-
hússins hafí ekki verið í samræmi
við skipulagslög. Lóðimar Tjamar-
gata 11 og Vonarstræti 11 hafí
verið sameinaðar og flatarmál
þeirra stækkað úr 1.268 fermetrum
samanlagt í 4.333 fermetra. Þetta
sé stækkun um 3065 fermetra og
auk þess sé lóðin nú orðin meira
en 1000 fermetrum stærri en bygg-
ingarreitur ráðhússins, sem sé 3290
fermetrar. Ekki hafí verið haft sam-
ráð við íbúana uni þessa stækkun,
og því kæri þeir til félagsmálaráð-
herra.
Lára P. Júlíusdóttir, aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra, sagði
að kæra þessi hefði borist ráðuneyt-
inu um miðjan dag í gær og verið
fengin Byggingamefnd Reykjavík-
ur og Skipulagsstjóm til umsagnar.
Byggingamefnd fundar í dag og
verður þar tekin afstaða til kæru
Tjamargötubúa um graftarleyfíð
og til lokateikninga af ráðhúsinu.
„Þetta fólk kærir bara annan
hvem dag. Það væri synd að segja
að það væri kærulaust,“ sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri er hann
var inntur álits á kæru Tjamar-
götubúa.
Sjá bréf borgarstjóra til fé-
lagsmálaráðherra á síðu 4.
Inflúensan líklegast
hingað komin frá
'Bandaríkjunum
INFLÚENSA af A-stofni stakk
sér niður í Reykjavík um miðjan
þennan mánuð. Að sögn Skúla
G. Johnsens borgarlæknis er
flensan þó ekki alvarleg, og þar
sem hún hefur komið upp í öðr-
um löndum hefur hún ekki orðið
að neinni farsótt.
Ólafur Ólafsson landlæknir sagði
að líklegt væri að inflúensan væri
komin frá Bandaríkjunum, en þar
hefði hún einkum verið staðbundin
um um 18% af þjóðinni, sem er
mikiu hærra hlutfall en í nágranna-
löndunum," sagði Ólafur.
Landlæknir sagði að það væru
helst ungmenni, sem ekki hefðu
verið bólusett, sem ættu á hættu
að veikjast. Hann ráðlagði fóiki að
fara vel með sig og spá síðan í hlýn-
andi vorveður.
Vegaskemmdir í Langadal
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Blanda rauf skarð í veginn sitt hvoru megin við Æsustaði í Langadal í fyrrakvöld. Ekki hefur
verið hægt að gera við veginn vegna mikils straumþunga i vegarskörðunum og umferðinni því
beint um Svínvetningabraut sem er fær ölium bílum. sjá frásögn og myndir á bls. 22.
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara:
Lágmarkslaun verslunar-
fólks verði 36.500 krónur
Atkvæðagreiðslum lýkur á laugardag
VERSLUNARMENN og vinnuveitendur höfnuðu f nótt breytingum á
málamiðlunartillögu þeirri, sem ríkissáttasemjari lagði fram f kjara-
deilu þeirra i gær og fer tillagan þvi óbreytt til atkvæða hjá báðum
samningsaðilum. Samkvæmt miðlunartillögunni eiga grundvallarlaun
að vera 36.500 krónur á mánuði, og engir launataxtar skulu hækka
um minna en 8,75% en til launajöfnunar skulu allir taxtar hækka að
lágmarki um 2.100 krónur á mánuði. Gildistími tillögunnar er til 10.
apríl 1989 og á samningstímanum hækki laun að öðru leyti en framan
segir um 2,5% 1. september, 1,5% 1. desember og 1,25% 1. mars á
og ekki um neina farsótt að ræða.
Olafur sagði að um 37.000 íslend-
ingar hefðu verið bólusettir gegn
inflúensu í haust, einkum gamal-
menni og þeir, sem einhverra hluta
vegna voru veikir fyrir, en það hefði
færst í vöxt að fyrirtæki létu bólu-
setja starfsfólk sitt. „Við bólusett-
Konumar komu
en Colgate ekki
HÓPUR bandariskra kvenna í
fræðslustörfum, sem kalla sig
Delta Kappa Gamma, hafði pant-
að gistingu á Hótel Loftleiðum.
Konumar, stm era 116 talsins,
ákváðu að láta verkfall verslunar-
manna ekki aftra sér frá íslands-
ferð og komu i gærmorgun.
Um 170 danskir lesendur Berl-
ingske Tidende voru væntanlegir á
Hótel Sögu í morgun. Annar hópur,
110 manns, á vegum Colgate-fyrir-
tækisins, var væntanlegur á mánu-
daginn, en í gær var ákveðið að
hætta við íslandsferðina.
næsta án.
Starfsmenn, sem hafa verið í fullu
starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og
eru við störf hjá fyrirtækinu í nóv-
embermánuði, skulu eigi sfðar en 15.
desember ár hvert fá greidda sér-
staka desemberuppbót að upphæð
6.000 krónur. Breytingar frá því
samkomulagi sem verslunarmenn
feildu í allsheijaratkvæðagreiðslu 11.
- 13. apríl sl. er 1300 króna hækkun
á grundvallarlaunum, í stað 5,1%
hækkunar á öll laun komi nú 8,75%
og launajöfnun sem nú er 2.100
krónur á mánuði var 2.025 f fyrri
samningnum. Á móti kemur að eng-
in sérstök hækkun verður 1. júní,
sem gert var ráð fyrir að yrði 3,25%
í gamla samningnum. Þá hækkar
desemberuppbótin um 1.500 krónur,
úr 4.500 í 6.000.
Á næstu dögum fer fram atkvæða-
greiðsla um tillöguna hjá félögum
verslunarmanna og vinnuveitenda,
en sáttasemjari hefur ákveðið að
talning atkvæða muni hefjast klukk-
an 18 á laugardag. Að sögn Elísabet-
ar Ólafsdóttur, skrifstofustjóra ríkis-
sáttasemjara, sér hvert félag um
framkvæmd atkvæðagreiðslu hjá sér,
en talning skal alls staðar fara fram
undir eftirliti ríkissáttasemjara eða
skipaðra fulltrúa hans. Hvert féiag
um sig getur samþykkt eða fellt
miðiunartillöguna, en sameiginlegt
atkvæðamagn ekki látið ráða úrslit-
um, eins og heimild er fyrir sam-
kvæmt lögum.
Samkvæmt lögum þarf kosninga-
þátttaka að vera að minnsta kosti
20% tii að hægt sé að fella hana.
Ef þátttaka er 35% eða meiri þurfa
að minnsta kosti 50% að greiða at-
kvæði á móti henni til að hún teljist
felld, og enn stærri hundraðshluti
þarf að greiða mótatkvæði ef kosn-
ingaþátttaka fer undir 35%.
Almennur félagsfundur verður
haldinn hjá Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur I dag klukkan 15, þar
sem miðlunartillagan verður kynnt.