Morgunblaðið - 10.05.1988, Side 5
JHorjmiblnSib /ÍÞRÓTTIR ÞRŒXJUDAGUR 10. MAÍ 1988
B 5
LJOSMYND VIKUNNAR / RAGNAR AXELSSON
SUMARKOMAIM
I hugum margra kemur sumarið ekki
fyrr en frést hefur af lóunni einhvers
staðar á landinu. Aðrir eru á því að
aldrei komi sumar, og til eru þeir sem
viðurkenna ekki sumarkomuna fyrr
en „boltinn“ erfarinn að rúlla. Nú
hefur hann þegar rúllað nokkra hringi
í vor og sumar, og þrátt fyrir að knatt-
spyrnuáhugamenn hafi þurft að grfpa
til föðurlandsins, þykku úlpanna og
lopavettlinganna, ER sumarið komið!
Þegar svo hraði, stutt spil, skipting-
ar, ein snerting og ekki síst glæsi-
mörkin fara að ylja mönnum um hjart-
aræturnar gleymist íslenska veðrátt-
an fljótt og sumarið festir rætur í
hjörtum manna. Að minnsta kosti ef
„þeirra mönnum" gengur vel...