Morgunblaðið - 18.05.1988, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
/
Krummi
Krummi er gælunafn á hrafninum.
— Hrafninn er óvenju stór spörfugl.
— Hrafninn er staðfugl og fínnst um allt land.
— Hrafninn er alæta, þ.e. hann borðar fjölbreytta fæðu,
miklu fjölbreyttari en aðrir spörfuglar. Hann lifír m.a. á
hræjum.
— Hrafninn velur sér gjaman varpstað á grýttum svæðum,
í bröttum fjallshlíðum og gljúfrum, þ.e. á stöðum sem erfítt
er að komast á. Hann gerir sér stórt hreiður sem kallað er
laupur.
— Hrafninn verpir snemma, stundum síðast í mars eða í
byijun apríl. Hann verpir 4-6 eggjum. Þrem vikum seinna
koma ungamir úr eggjunum. Þeir em fleygir um miðjan júní.
— Hrafninn er svartur á lit og hljóðið sem hann gefur frá
sér er kallað kmnk.
Hrafna-Flóki fékk viðumefni sitt af hröfnum sem hann
hafði meðferðis á skipi sínu. En það var einmitt hann sem
gaf landinu nafnið ísland.
Við þekkjum öll vísur um hrafninn. „Kmmminn í hlíðinni",
„Kmmmi svaf í klettagjá" og „Kmmmi kmnkar úti“.
H.TOL
Síðast ræddum við um að
hækka stýri og hnakk til þess að hjólið
passaði betur. í sumum tilfellum er það
ekki nóg og þarf að kaupa stærra hjól.
Ekki virðist hægt að hjóla inn á gamla
hjólinu og láta það ganga uppí nýtt hjól.
Þið getið reynt að auglýsa hjólið ykkar
til sölu, eða fínna kaupanda hjá nágrönn-
unum eða hreinlega gefa yngri systkin-
um, frændum eða frænkum hjólið.
En hvað skyldi nýtt hjól kosta? Ég
spurði í Fálkanum um hjól fyrir 10 ára
og fékk þær upplýsinginar að 26 tommu
venjuleg hjól væri hægt að fá frá 10.000
og upp í um 20.000 krónur. Við verð
hverrar tegundar má bæta frá 2.000-
4.000 krónum fyrir gíra og fer verðið
eftir fjölda gíranna, en hér miða ég við
3-5 gíra. BMX hjólin virðast ögn ódýr-
ari, en einnig er hægt að fá vönduð og
sterkbyggð fjallahjól á yfír 30.000. kr.
Það getur sem sagt borgað sig að
fara vel með hjólið sitt og getur verið
athugandi að kaupa sér notað, vel með
farið hjól.
En við ætluðum ekki bara að ræða
um verðið. Samkvæmt umferðarlögunum
á að vera hæfílega traustur hemill á hjól-
inu. Þú ættir því að kanna hvemig heml-
amir eru á þínu hjóli og fá hjálp við að
herða og stilla ef þörf er á.
Á hjólinu þínu á einnig að vera lukt
og glitauga að aftan. Á fótstigunum eiga
að vera gul eða hvít glitaugu sem hreyf-
ast við notkun hjólsins.
Það er skylda að hafa lás og einnig
bjöllu, en ekki má nota önnur hljóðmerki
en bjöllur á hjólin.
Hrafnsungar
Drátthagi blýanturinn