Morgunblaðið - 05.07.1988, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROT71R ÞRŒUUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
Patrick Sjöbarg
■ RUI Aguas, aðal markaskor-
ari Benfica hefur verið seldur til
Portó. Hann skrifaði undir þriggja
ára samning í gær og verður líklega
launahæsti leikmaðurinn í Portúg-
al.
■ HÁSTÖKKVARA TRÍÓ, sem
inniheldur Patrick Sjöberg frá
Svíþjóð, Dietmar Mögenburg og
Carlo Thrftnhardt frá V-Þýska-
landi, hefur gefíð út hljómplötu.
Lagið heitir „Winner takes it all“.
I DANNY Begara, frá Úr-
úgvæ, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Rochdale. Begara
er fyrsti framkvæmdastjórinn í
Englandi sem ekki er breskur.
Hann hefur búið í Englandi í 14
ár og var m.a. aðstoðarþjálfari hjá
Sheffield United.
■ DES Hazell var í gær seldur
frá Sheffield Wednesday til Rot-
herham fyrir 45.000 pund.
■ DANSKI landsliðsmaðurinn
Jan Bartram, sem lék með Glas-
gow Rangers hefur verið seldur
til dönsku meistaranna Bröndby
fyrir 350.000 pund. Bartram var
hjá Rangers í 6 mánuði, en féll
ekki inn í leik iiðsins.
■ LOU Macari hefur verið ráð-
inn aðstoðarframkvæmdastjóri
Chelsea. Hann var áður stjóri hjá
Swindon og kom liðinu upp úr 4.
deild f 2. á fjórum árum. Hann mun
lfklega taka við af núverandi fram-
kvæmdastjóra Chelsea, Bobby
Campell, áður en langt um líður.
■ DAGANA 9. - 19. júlí dvelur
hér á landi 34 manna fímleikahópur
frá Kaupmannahöfn á vegum fím-
leikadeildar Stjörnunnar í
Garðabæ. Hópurinn mun halda
sýningu í íþróttahúsinu Ásgarði
f Garðabæ sunnudaginn 10. júlí
kl. 20:00. Síðan mun hópurinn
halda námskeið og mun sýna í
Keflavík, á Akureyri og í Vest-
mannaeyjum.
KNATTSPYRNA
Guðmundur Torfason skoraði
með þrumufleyg af 20 m færí
Óvíst hvort að Guðmundur gangi til liðs við Rapid Vín, sem hefur einnig augastað á Sovétmanni
GUÐMUNDUR Torfason skor-
aði glæsilegt markfyrir Rapid
Vín, þegar hann lék æfingaleik
með félaginu gegn Vulkmark,
7:0. Guðmundur sveiflaði
vinstri fæti og sendi knöttinn
með þrumuf leyg af 20 m færi
í netamöskvana - knötturinn
skall fyrst á stöng og þeyttist
þaðan í netið.
uðmundur fékk góða dóma í
blöðum í Austurríki og var
sagt að hann væri búinn að gera
óformlegan samning við Rapid Vín,
sem hefur einnig augastað á so-
véskum landsliðsmanni. „Það mun
skfrast á morgun, hvort að ég geri
samning við Rapid Vín, eða ekki,“
sagði Guðmundur Torfason í viðtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, en
önnur félög eru einnig inn í mynd-
inni hjá honum.
Þess má geta að Winterslag, eða
hið nýja félag í Belgíu, Racing Club
Genk, hefur áhuga á að Guðmundur
verði áfram hjá félaginu. „Forráða-
menn Racing Club Genk höfðu sam-
band við mig fyrir helgina og ósk-
uðu eftir því að ég kæmi aftur. Það
verður að koma eitthvað stórt upp
á, ef ég fer aftur til félagsins,"
sagði Guðmundur.
Ef Guðmundur gerir ekki samning
við félag í útlöndum á næstunni,
þá mun hann koma heim og leika
með Fram í sumar.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
„Óvíst hvort að
ég keppi hér
í Stokkhólmi“
-segir Einar Vilhjálmsson, sem á við
smávægileg meiðsli að stríða á hné
EINAR Vilhjálmsson hefur
æft á fullum karfti i Sviþjóð
síðan hann varð sigurvegari
i spjótkasti i Helsinki í Finn-
landi. „Ég fékk þursabit á hnó
vinstri fótar á æfingu á
sunnudaginn," sagði Einar,
sem á að keppa í spjótkasti
í dag.
Eg mun sjá til og taka ákvörð-
un rétt fyrir keppnina, hvort
að ég verð með. Ég hef verið hjá
sjúkraþjálfara, sem setti kalda
bakstra og bólgueyðandi vökva á
þann stað sem ég varð fyrir
hnjaski. Ég vona að þetta sé að-
eins smá verkir, sem hafa komið
fram við álagsæfíngar - hnébeyju
og hopp,“ sagði Einar, en hann
mun ekki taka neina áhættu.
Sigurður Einarsson hefur æft með
Einari í Svíþjóð, en hann mun
einnig kappa á mótinu í Stokk-
hólmi.
Þeir sem sáu Einar í keppninni í
Helsinki, segja að hann hafí tekið
hina spjótkastarana á taugum,
þegar hann náði strax góðu kasti
í fyrsti tilraun - 81.32 m. Þá
fóru hinir kastaramir að keppast
við að kasta lengra, en Einar gerði
út um keppnina í þriðja kasti sínu,
þegar hann kastaði spjótinu 82.68
m. Annað og flórða kast hans
vom ógild, en Einar kastaði síðan
79.72 og 78.20 m.
Guðmundur Torfason skoraði fallegt mark fyrir Rapid Vín.
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Þorsteinn Bjarnason varði
þijár vítaspymur
Keflvíkingar sterkari en Selfyssingar í vítaspyrnukeppni
ÞORSTEINN Bjarnason og Sig-
urður Björgvinsson voru hetjur
Keflvíkinga, þegar þeir slóu
Selfyssinga út úr 16-liöa úrslit-
um Mjólkurbikarkeppninnar í
gærkvöldi - í vítaspyrnu-
keppni, 2:1. Staðan var jöfn,
0:0, eftir framlengdan leik í
Keflavík.
Þorsteinn varði þijár vítaspym-
ur, en það kom svo í hlut Sig-
urðar Björgvinssonar að skora sig-
urmarkið, 2:1, úr síðustu vítaspymu
Keflavíkinga.
Bjöm Leikmenn liðanna
Blöndal misnotuðu fjórar
skrifar fyrstu spymumar.
Selfyssingurinn
Bjöm Axelsson varð fyrstur til að
skora, en Kjartan Einarsson jafn-
aði, 1:1. Þorsteinn Bjamason, sem
hafði varði frá Þórami Ingólfssyni,
varði tvær síðustu spymur Selfýss-
inga - skot frá Guðmundi Magnús-
syni og Heimi Bergssyni, en Páll
Guðmundsson skaut fram hjá marki
Keflvíkinga. Anton Hartmannsson,
markvörður Selfoss, varði eins
spymu - frá Grétari Einarssyni,
en þeir Ragnar Margeirsson og
Daníel Einarsson skutu fram hjá
marki Selfyssinga.
Selfyssingar komu á óvart í leiknum
og veittu Keflvíkingum harða
keppni.
Eyjólfur Ólafsson, dómari leiksins,
sýndi sex mönnum gula spjaldið.
Keflvíkingunum Ingvari Guð-
mundssyni og Guðmundi Sighvats-
syni. Selfyssingunum Sævari
Sverrissyni, Heimi Bergssyni, Ing-
ólfí Jónssyni og Magnúsi Jónatans-
syni, þjálfara. Hann fékk að sjá
spjaldið eftir mikil hróp inn á völl-
inn.
Þorsteinn Bjarnason, markvörð-
ur Keflvíkinga.
■ BIKARMEISTARAR Fram
heQa vöm sína á bikamum í Vest-
mannaeyjum í kvöld. Þar hitta
þeir einn fyrri félaga sinn, Pál
Grímsson, sem skoraði fjögur mörk
fyrir Eyjamenn í stórsigri þeirra,
6:1, yfír Siglfirðingum.
■ SKAGAMENN fá tækifæri til
að hefna deildarófaranna gegn KA
á Akranesi.
■ VALSMENN leika á
Vopnafirði, þar sem þeir mæta
Njáli Eiðssyni og félögum úr Ein-
heija. Njall lék með Valsliðinu sl.
keppnistímabil.
■ HEIMIR Guðjónsson fer ekki
með KR-liðinu til Sauðárskróks,
þar sem KR mætir Tindastóli.
Hann varð fyrir því óhappi að fót-
brotna í leik gegn Þór í 2. flokki
um sl. helgi.
■ JÓNAS Róbertsson. leikmað-
ur Þórs, tognaði á nára í leik gegn
Keflavík. Ovíst er með hvort að
hann geti leikið með gegn Víkingi
á Akureyri. Þá hefur Halldór
Áskelsson verið veikur.
■ VÖLSUNGUR og Leiftur
leika á Húsavík. Reynir leikur
gegn FH í Sandgerði. Allir bikar-
leikirnir hefjast kl. 20 í kvöld.