Morgunblaðið - 05.07.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.07.1988, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐŒ) IÞROTT1R ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988 GADDASKÓRí SPÖRTU Adistar Competition, alhliða skór Nr. 36-48. Kr. 4.305 Adistar Sprínt, skór fyrir spretthlaup Nr. 36-48. Kr. 4.100 Langstökksskór Nr. 37-46. Kr. 3.990 Hástökksskór fyrir hægri og vinstri fót Nr. 38-46. Kr. 4.990 Adistar toppskórinn fyrirlanghlaupo.fi. Nr. 39-46. Kr. 7.600 Einnig fyrir spretti. Adistar Sparta fyrir spretthlaup Nr. 40-44. Kr. 3.490 Spjótkastsskór Nr. 39-47. Kr. 7.940 Kastskór fyrirkúlu ogkringlu Nr. 40-47. Kr. 6.590 Póstsendum samdægurs SPORTVÖRUVERSLUNtN_ eUújIíI'ií LAUGAVEGI 49 SIMI 12024 KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 2. DEILD Morgunblaðið/Einar Falur Qunnar Qylfason var sterkur á miðjunni hjá UBK. Hér sést hann eiga í höggi við þijá Þróttara. Þróttarar áfram í botnbaráttunni ÞRÓTTUR vermir nú neðra fall- sæti annarrar deildar eftir að liðinu tókst einungis að ná einu stigi i leik gegn Breiðabliki á Valbjarnarvelli á laugardag. Úrslitin, 2:2, verða að teljast nokkuð sanngjörn, því hvorugt liðið hafði teljandi yfirburði yfir hitt í þessum leik. Þróttarar verða hins vegar að herða sig eigi þeir ekki að falla niður í þriðju deild, eins og það er nú skemmtileg tilhugsun. Báðum liðum tókst þó á köflum að sýna ágætan samleik og skapa sór þokkaleg færi, en samt var eins og alian brodd vantaði í sóknarleik þeirra beggja. róttarar voru meira með knött- inn í fyrri hálfleik og sóttu þar af leiðandi meira en andstæðingam- ir. Breiðabliksmenn vörðust hins vegar af miklu kappi KristinnJens og virtust ætla kom- Sigurþórsson ast hjá því að fá á sknfar sig mark áður en hálfleikurinn yrði úti. Ekki varð þeim þó að þeirri ósk sinni, því þegar u.þ.b. mínúta var eftir af hálfleiknum var Peter Frain felldur innan vítateigs og Magnús Jónatansson, dómari, dæmdi víta- spymu. Sigurður Hallvarðsson tók vítaspymuna og skoraði úr henni. í seinni hálfleik komu Breiðabliks- menn mun ákveðnari til leiks, stað- ráðnir í að verða ekki skildir eftir of nálægt botninum. Þeir sýndu ágætan samleik á köflum og svo virtist sem þeir hefðu náð yfir- höndinni í leiknum. Það var svo á 56. mín. sem jöfnunarmark þeirra kom, og var það Jón Þórir Jónsson, sem skoraði það mark. Eftir jöfnunarmarkið komu Þróttar- ar betur inn í leikinn og tóku að sækja meira en þeir höfðu gert fram að þessu í hálfleiknum. Það sem eftir lifði leiksins var nokkum veg- inn jafnræði með liðunum. Þau skiptust á um að sækja og skora. Þróttarar voru fyrri til að koma knettinum í netið, og var það Sig- urður Hallvarðsson, sem rétt einu sinni var þar að verki. Þróttarar gafu langa stungusendingu .fram völlinn, og Sigurður tók á mikinn sprett, komst einn langt inn fyrir vöm Breiðabliks og sendi knöttinn örugglega framhjá markmanninum í vinstra homið. Sú dýrð, að vera marki yfír, stóð hins vegar ekki lengi yfir því fjórum mínútum síðar jafnaði Gunnar Gylfason fyrir Breiðablik. Sigurður Hallvarðsson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt, en þrátt fyrir það var hann ekki eins áberandi og oft áður í leikjum liðsins. Meira bar á Peter Frajn, sem er óþreytandi bar- áttujaxl. í liði Breiðabliks var mið- vallarleikmaðurinn, Gunnar Gylfa- son, nokkuð áberandi en það henti hann hins vegar of oft að vera ekki á sínum stað, þegar andstæðingam- ir sném vöm í sókn. ■ Staðan/B10 Þróttur-UBK 2 : 2 (1 : 0) Mttrk Þróttar: Sigurður Hallvarðsson (44. og 71. mín.). Mttrk Breiðabliks: Jón Þórír Jónsson (56. mín.) og Gunnar Gylfason (75. mín.). Maður leiksins: Peter FYain, Þrótti. Páll sá um KS-inga Skoraði fjögur mörk í stórsigri ÍBV PÁLL Grímsson fór á kostum þegar Vestmanneyingar gjör- sigruðu Siglfirðinga, 6:1 íVest- mannaeyjum. Páll skoraði þrjú mörk á hálftíma, í fyrri hálfleik, og bætti svo einu marki við í síðari hálfleik. Heimamenn höfðu mikla yfír- burði.og gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik. Þeir byijuðu af krafti og Ingi Sigurðsson og Hlynur Elísson fengu FráSigfúsi dauðafæri á fyrstu Gunnari mínútunum, án þess Guömundssyni að skora pá]l skor. i y/um aði svo fyrsta mark- ið á 10. mínútu eftir góða sendingu frá Jóni Atla Gunnarssyni. Skömmu síðar bætti Páll öðru marki við og var það mjög laglegt. Tómas Tómasson gaf fyrir markið og Páll kastaði sér fram og skallaði knött- inn í netið. Það þriðja kom svo á 32. mínútu. Páll komst þá í gegn, en brotið var á honum í vítateig Páll Grfmsson gerði fjögur mörk fyrir ÍBV gegn KS. og dæmd vítasp)ma sem Páll skor- aði af öryggi úr. Þrátt fyrir þijú mörk í fyrri hálfleik var Páll ekki hættur og fjórða mark- ið kom í upphafí síðari hálfleiks. Hann fékk sendingu frá Jóni Atla og skoraði af öryggi. Þá var komið að Hlyni Elíssyni og hann skoraði næstu tvö mörk. Fyrst lyfti hann boltanum yfír mark- manninn og síðara markið skoraði hann eftir að Tómas Tómasson hafði skotið í stöng. Siglfírðingar náðu að laga stöðuna rétt fyrir leikslok. Þá var dæmd vítaspyrna á Vestmanneyinga, fyrir að hafa rekið hönd í boltann. Úr vítinu skoraði Baldur Benónýsson. Páll Grímsson átti mjög góðan leik og var frískur í sókninni, Elías Frið- riksson batt vömina vel saman og Friðrik Sæbjömsson stjómaði spili Eyjamanna. ÍBV-KS 6:1 (3:0) Mðrk ÍBV: Páll Grfmsson (10., 21, 40, 60.) Hlynur Elísson (73, 80.) Mark KS: Baldur Benónýsson (86. vsp.) Mattur leiksins: Páll Grímsson, ÍBV.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.