Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988 FRJÁLSAR Mary Slaney frá Bandaríkjunum sigraði í miluhlaupi kvenna á sterku frjálsíþróttamóti í Oregon í Banda- ríkjunum um helgina. Mary Slaney sigraði Harrison nálægt bandaríska metinu í stangarstökki Mary Slaney frá Bandaríkjun- um sigraði í mfluhlaupi kvenna á sterku frjálsíþróttamóti í Oregon í Bandaríkjunum um helg- ina. Slaney hljóp á 4:21.25 mínútum og hafði mikla yfírburði. Þetta var fyrsta mfluhlaup hennar síðan hún setti heimsmet í greininni 1985. Kory Tarpenning stökk 5,85 metra í stangarstökki og var aðeins 11 sm frá bandaríska metinu sem er í eigu Joe Dial. Tarpenning, sem er 25 ára, átti ágætar tilraunir við 5,97 metra. Eral Bell með 5,65 metra. Dial varð aðeins fímmti með 5,45 metra. Willie Banks varð að lúta í lægra haldi fyrir Kenny Harrison í þrístökki. Banks stökk 17,01 metra, en Harrison 17,12 metra. Uchenna Agu varð þriðji með 16,17 metra. Lynn Nelson sigraði í 5.000 m hlaupi kvenna á 15:21.25 mínútum og er það besti tími kvenna í þess- ari vegalengd á þessu ári. Hún bætti eldri árangur sinn um 17 sek- úndur. Judi Brown King, sem á banda- ríska metið í 400 m grindarhlaupi, sigraði á 55.30 sekúndum. Schow- onda Williams hljóp á sama tíma en King var sjónarmun á undan. Joaquim Cruz, brasilíski Ólympíu- meistarinn í 800 m hlaupi, sigraði í mfluhlaupi á 3:56.9 mínútum og var 3/100 úr sekúndu að undan Jeff Atkinson frá Bandaríkjunum. Brian Crouser frá Bandaíkjunum sigraði í spjótkasti karla. Hann kastaði 79,24 metra. Mike Barnett varð annar með 76,42 metra. Jose Luiz Barbosa frá Brasilíu sigraði 800 m hlaupi karla á 1:46.55 mínútum. Paul Osland frá Kanada varð annar á 1:46.98 mín. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / BISLETT Cram vann einvígið við Bile í mfluhlaupinu Heike Drechsler hljóp 100 metrana á 10,91 sek. ÞRÁTT fyrir frekar óhaggstætt veður mættu um 18.000 áhorfendur á Bi- slett-leikana í Osló um helgina til að fylgjast með einu stærsta frjálsíþrótta- móti sumarsins. Fæstir urðu fyrir von- brigðum því góð stemmning var og mörg góð afrek voru unnin. Dagskráin byijaði með því að Heike Drechsler frá Austur-Þýskalandi hljóð 100 metrana á 10,91 sek., sem er besti tími sem náðst hefur á árinu í þessari vegalengd. „Þetta var góður tími þar sem ég er ekki komin í mitt besta form enn þá, en ég býst við að vera í toppformi á Ólympíuleikunum í haust. Hraðinn er mikilvægur fyrir langstökkið," sagði Drechsler eftir hlaupið. Aðspurð hvaðst hún taka þátt í 100 og 200 metra halupi og langstökki í Seoul. Það kemur nokkuð á óvart að hún verður ekki í austur- þýsku sveitinni í 4 x 100 m hlaupi. Rétt efítir að Heike kom í mark í 100 metra hlauðinu, kastaði vinkona hennar og heims- methafí, Petra Falke, 75,16 m í spjótkasti og sigraði örugglega. Önnur varð Maria Colon frá Kúbu með 64,90 metra. Ingrid átti enga möguleika Einn aðalviðburður kvöldsins var einvígi Ingridar Kristiansen, Noregi og Liz McColg- an, Bretlandi, í 10.000 m hlaupi. Hlaupið fór vel af stað og lengi var útlit fyrir að heimsmet yrði sett. Þær stöllur hlupu hlið við hlið fyrstu 20 hringina en þá var Ingrid orðin frekar þreytt, en Liz virtist eiga nóg eftir. Smá saman varð Ingrid að gefa eftir og að lokum vann Liz örugglega og hljóp á 31.06,99 mín. Ingrid varð að sætta sig vip annað sætið. „Ég sprakk, ég fékk hlaupasting og eftir það átti ég aldrei möguleika gegn Liz. En ég verð sterkari í haust og þá lofa ég því að Liz fær meiri keppni," sagði Ingrid eftir hlaupið. Þess má geta að þetta var í annað sinn á einni viku sem Ingrid tapar fyrir Liz, en fyrr í vikunni sigraði Liz úrslitahlaup í Belfast. Draumamílan Hápunktur kvöldsins var hin svokallaða draumamfla (Dream Mile). í því sambandi beindist athygli manna einkum að einvígi Steve Cram frá Bretlandi og Adbi Bile frá Sómarlíu, sem varð heimsmeistari í 1.500 m hlaupi í Róm á síðasta ári. Strax í byijun var mikill hraði í hlaupinu og tíminn eftir 800 metra var 1.53,50 mín. Bæði Cram og Bile höfðu sig lít í frammi til að byija með, Bile var meira að segja síðastur lengi vel en þegar 300 metrar voru eftir, var eins og Bile skipti um gír og fór fram úr öllum og tók góða forystu. Síðustu 100 metramir voru geysilega spennandi. Bile varð að gefa eftir og Cram náði að sigra naumlega á 3.48,85 mín. en Bile hafn- aði aðeins í 4. sæti. Beter Elliott frá Bret- landi varð annar á 3.49,20 mín. Cram ðnægöur Cram var að vonum ánægður eftir hlaupið, og sagði að þetta hafði verið einn af sínum sætustu sigrum eftir allt sem miður fór hjá honum á síðasta ári. (Cram var meðal ann- ars síðastur í 1.500 m hlauðinu í Róm í fyrra). Hann á góðar minningar frá Bislett því hann sett heimsmet í míluhlaupi þar fyrir þremur árum, 3.46,32 mín. og stendur það enn. Frá Erlingi Jóhannssyni íNoregi Góður endasprettur hjá Cram Steve Cram tók góðan endasprett og sigraði í míluhlaupinu í Osló. Hann náði sér ekki á strik á síðasta ári en virðist nú til alls líklegur. Að lokum má svo geta þess að þrír Norðmenn náðu ÓL- lágmarkinu á Bislett. Lars Strömme í 5.000 m hlaupi, en hann hljóp á 13.20,75 mín. sem er aðeins 15/100 frá norska metinu. Georg Anderson kastaði kúlu 20,27 metra og Jo- hann Hallvorsen hljóp 10.000 m á 27.47,20 mín., sem er mjög góður tími, einkum ef haft er í huga að þetta var í þriðja sinn sem hann hljó þessa vegalengd. ■ Úrslit/B10 TENNIS / WIMBLED Stefan Edberg Wimbledon meistari 198 var fyrsti úrslitaleikur hans á Wimbledon Einliðaleikur karla: Sænsk STEFAN Edberg sýndi það að sænski stfllinn í tennis er langt frá því að vera liðin tíð. Edberg sigraði Boris Becker í úrslitaleik í einliðaleik karla á svipaðan hátt og Björn Borg vann sína glæsilegustu sigra fyrir nokkrum árum. Edberg hafði mikla yfir- burði og sigraði, 4:6,7:6,6:4, 6:2. Þetta var leikur tveggja ólíkra tennisleikara. Edberg sem hefur verið talinn með leiknustu tennis- mönnum heims og Boris Becker sem er einn sá kraftmesti. Og að þessu Sagtíhi AWimbledon leikunum í tennis má heyra mörg gullkorn frá keppendum, áhorfendur og þjálfur- um. Hroki, kaldhæðni, kurteisi, lygi og hrós er meðal þess sem má finna í þessum ummælum. Mörg þeirra eru sögð í hita leiksins og hér fylgja nokk- ur góð. „Wimbledon er stærra en Ástralía.“ —Stefan Edberg „Hann (Andrei Olkhovsky) er frá Rússlandi." —Pat Cash er hann var spurður um hvað hann vissi um næsta andstæð- ing sinn. „Japönsk eftirlíking." —Áhorfandi um bakhönd Akiko Kij- imuta gegn Chris Evert. „Ég var Englendingur í tvær vik- ur. Ég bara fæddist hérna óvart því foreldrar mínir voru á ferða- lagi um Evrópu.“ —Wally Masur frá Ástralíu um til- raunir breskra fjölmiðla til að gera hann að enskri þjóðhetju. „Það eru ekki margir sem bera nafn mitt rétt fram, ekki einu sinni í heimalandi mínu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.