Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
B 7
ON
Leiðin í úrslitin
Það er ekki hlaupið að því að
komast í úrslit á Wimbledon leik-
unum í tennis. Til þess þarf sex sigra
í röð og keppnin er ávallt hörð um
sæti í næstu umferð.
Stefan Edberg:
1. umferð: Guy Forget, Frakklandi, 6:4, 3:6,
6:3, 6:4.
2. umferð: A. Rennenburg, Bandaríkjunum,
6:3, 7:6, 5:7, 6:2.
3. umferð: K. Flach, Bandaríkjunum, 6:2,
7:5, 2:6, 7:5.
4. umferð: S. Voul, Austurríki, 6:2,6:4,6:4.
5. umferð: Patrick Kuhnen, V-Þýskalandi,
6:3, 4:6, 6:1, 7:6.
Undanúrslit: Miloslav Mecir, Tékkóslóvakiu,
4:6, 2:6, 6:4, 6:3, 6:4.
Boris Becker:
1. umferð: John Frauley, Ástr. 6:3, 6:1, 6:2.
2. umferð: K. Novacek, Tékk. 6:3,6:4,6:4.
3. umferð: Sammy Jiammalvi, Bandaríkjun-
um, 7:6, 6:4, 6:4.
4. umferð: Paul Anacone, Ástr. 6:3,6:4,6:4.
5. umferð: PatCash, Ástralfu, 6:4, 6:3,6:4.
Undanúrslit: Ivan Lendl, Tékkóslóvakfu, 6:4,
6:3, 6:7, 6:4.
Reuter
!8 slær hér boltann yfir netið í leik sínum gegn Becker. Hann lék mjög vel, «n þetta
. Á efri myndinni fagnar hann sigri.
i stfllinn endurvakinn
sinni sigraði glæsileikinn.
Leikurinn tafðist vegna rigningar og
var margfrestað. Á sunnudaginn
hófst leikurinn og Edberg byijaði af
krafti. Hann komst í 3:0, en Becker
minnkaði muninn í 3:2. Eftir það var
leiknum frestað til mánudags.
í gærmorgun hófst keppni að nýju
og Becker tókst þá að knýja fram
sigur, 6:4.
Edberg fer í gangl
Eftir tapið í fyrstu lotu tók Edberg
við sér og lék mjög vel í annarri lotu.
Hann sigraði 7:6 og eftir það virtist
hann vera búinn að fá sjálfstraustið
að nýju.
í tveimur síðustu lotunum sýndi Ed-
berg mikið öryggi, þrátt fyrir að þetta
væri fyrsti úrslitaleikur hans á
Wimbledon. Smám saman náði hann
undirtökunum og sigraði í 3. lotu, 6:4.
Þegar fjórða lotan hófst var strax
ljóst í hvað stefndi. Becker komst
aldrei inn í leikinn og sigur Edberg
var öruggur og sanngjarn.
Becker var að vonum óánægður eftir
tapið. „Ég var þreyttur eftir erfiða
leiki í fyrri umferðunum. Ég vann
meistarann og efsta mann á heims-
listanum í þremur lotum. Það var
erfítt að fara svo í úrslitaleikinn,"
sagði Becker. „Ég átti ekki von á að
Edberg næði svo langt. En sigur í
undanúrslitum, eftir að hafa verið
tveimur lotum undir hefur gefið hon-
um aukinn kraft.“
Undir áhrifum frá Borg
„Ég neita því ekki að Björn Borg
hafi haft áhrif á mig. Ég sá alla úr-
slitaleiki hans. En hann hefur ekki
haft svo mikil áhrif á leikstíl minn,
heldur frekar framkomu mína á vell-
inurn," sagði Edberg. „Önnur lotan
var mikilvæg og eftir byijunina á
þeirri þriðju vissi ég að ég gæti sigr-
að.“
ta leiksins á Wimbledon
—Miloslav Mecir.
„Ég kom með 200 ennisbönd með
mér og hef gefið 100. Ég hef ekki
hugmynd um hve mörg eru eftir.“
—Pat Cash.
„Hann kenndi mér nokkur ný orð.“
—Boris Becker um orðbragð Pat
Cash í leik þeirra.
„Ég sver það, allan tímann var ég
aðeins að blóta sjálfum mér.“
—Pat Cash.
„Kæri Boris. Þér eruð sannur
íþróttamaður og þjóð þinni til
sóma.“
—Buzzer Hadingham, yfirmaður
Wimbledon biður Boris Becker af-
sökunnar á skrifum breskra blaða
um óíþróttamannslega framkomu
hans.
„Þetta er ekkki lengur tennis þeg-
ar komið er í undanúrslit á stór-
móti, eða í úrslit... Maður reynir
að vinna hvað sem það kostar."
—Boris Becker um ásakanir um
óíþróttamannslega framkomu.
„Tennis er leikur þar sem þú bíður
eftir síðasta boltanum."
—Miloslav Mecir.
„Ef þetta er það besta sem ég get
þá get ég alveg eins hætt á morg-
un... Ég hefði ekki einu sinni unn-
ið kvennakeppnina með slíkum
leik.“
—John McEnroe eftir að hafa tapað
fyrir Wally Masur.
„Ég er Kuhnen og ég hef unnið
Connors. Ég er tennisleikari, ekki
aðeins æfingafélagi Boris Beck-
er.“
—Kuhnen, spurður hvort sigur hans
á Connors muni breyta lífi hans.
„Fyrstu uppgjafir hans voru eins
og kjarnorku eldflaugar. Aðrar
uppgjafir voru bara eins og eld-
flaugar.“
—Mark Woodforde eftir að hafa tap-
að fyrir Ivan Lendl.
„Stigin komu bang, bang, bang.“
—Mary Joe Pernandez lýsir leik
sínum gegn Steffi Graf.
„Þetta er dýragarður.“
—Pat Cash um völl númer 14.
„Hún er frábær leikmaður og mjög
góð stúlka.“
—Martina Navratilova eftir að mis-
tekist að vinna 9. Wimbledon titil
sinn gegn Steffi Graf.
„En átta er ekki svo slæmt...“
—Martina Navratilova.
„Ég veit ekki hvað fór úrskeiðis."
—Mats Wilander eftir að hafa sigrað
Menno Oosting 6:1, 6:4 og 6:4.
„Þegar ég heyrði Chirs Evert fyrst
getið var ég sex ára og notaði
Chris Evert spaða... Hann var úr
tréi.“
—Katarina Adams 18 ára frá Banda-
ríkjunum.
„Æ nei, ekki hér, ekki núna ekki
gegn Ros Fairbanks.“
—Martina Navratilova um hvort hún
gæti tapað fyrir Fairbanks á velli 14.
„Þegar hann var í 15. sæti spurði
ég hann hvort hann vildi fá mig
sem þjálfara... Honum fannst það
hræðileg hugmynd."
—Pavel Slozil, ráðgjafi Steffi Graf,
um félaga sinn frá Tékkóslóvakíu,
Miloslav Mecir.)
„Hugmyndir hans um æfingar eru
að slá boltann í tíu mínútur, and-
varpa og segja „Jæja nú er nóg
komið."
—Pavel Slozil um Miloslav Mecir.
„Já ef ég hitti.“
—Ivan Lendl spurður um hvort upp-
gjafir hans væru „hættulegar.“
Einliðaleikurkvenna:
Graf batt enda
á sigurgöngu
Navratilovu
Sigraði í úrslitaleik í einliðaleik kvenna
STEFFI Graf, frá V-Þýskalandi,
batt enda á sjö ára sigurgöngu
Martinu IMavratilovu, frá
Bandaríkjunum, á Wimbledon
leikunum ítennis. Navratilova
hafði unnið 47 leiki í röð og
ekki tapað á Wimbledon síðan
1981. En Steff i Graf sá við
henni og sigraði 5:7,6:2 og 6:1
í úrslitaleiknum.
að var Navratilova sem vann
fyrstu lotuna, 7:5. Graf hafði
þó undirtökin og hagnaðist á mis-
tökum Navratilovu sem voru mörg.
En þegar staðan var 5:3, Graf í
vil, tók Navratilova við sér og vann
næstu fjóra og sigraði 7:5.
Navratilova byijaði mjög vel í 2.
lotu, en Graf tókst að jafna, 2:2.
Frábær endasprettur
Eftir það réði Graf gangi leiksins
og vann 12 af síðustu 13 leikjunum.
Mestu munaði um frábæra bakhönd
sem kom Navratilovu í opna skjöldu
og Graf sigraði örugglega í 2. lotu,
6:2.
Graf hélt sínu striki í úrslitalotunni
og komst í 3:0 áður en Navratilovu
tókst að svara fyrir sig. Hún minnk-
aði muninn i 1:3, en þá var leiknum
frestað vegna rigningar.
Graf mætti til leiks full af sjálfs-
trausti og gerði út um leikinn á
skömmum tíma. Navratilova átti
ekki svar við öruggum leik hennar
og síðasta stigið fékk Graf eftir að
hafa sneitt boltann glæsilega yfir
netið. Hann lenti við fætur Navra-
tilovu sem varð að horfa á eftir titl-
inum í fyrsta sinn í sjö ár.
„Sannur meistari
„Ég var reið eftir að hafa tapað
fyrstu lotunni og ég hugsaði um
það allan tímann," sagði Graf eftir
leikinn. „I 2. lotu lék ég hinsvegar
af fullum krafti því ég ætlaði ekki
að tapa annarri lotu.
Þegar fór að rigna sá ég að Navra-
tilova var niðurlút og ég hugsaði
með mér: „Ef hún leikur svona þá
er hún í vandræðum."
Navratilova tók ósigrinum vel: „Ég
tapaði ekki vegna pressunnar sem
var á mér. Ég tapaði vegna þess
að hún var betri,“ sagði Navrat-
ilova. „Þetta var ekki svo erfitt því
ég var ánægð fyrir hennar hönd.
Ég veit hvernig henni leið... Mér
hefur liðið eins.
Steffí Graf er frábær tennisleikari
og góð stúlka. Hún er sannur meist-
ari.“
Stefnirað „slemmu"
Steffi Graf hefur verið ósigrandi
undanfarið ár. Hún hefur sigrað á .
opna ástralska og franska meist-
aramótinu og nú bætti hún Wimble-
don titlinum í safnið. Hún þarf því
aðeins að sigra á opna bandaríska
meistaramótinu til að vinna
„slemmu,“ þ.e. sigra á fjórum
stærstu tennismótum heims.
Flestir eru sammála um að þessi
sigur Steffi Graf marki tímamót í
tennis kvenna. Valdadagar Navar-
tilovu sem drottningar tennisvallar-
ins eru senn á enda og ný prinsessa
hefur verið krynd, Steffi Graf.
Reuter
Steffi Qraf Wimbledon meistari ! kvennaflokki, hampar hér sigurskildinum.
Hún hefur nú sigrað á þremur stórmótum í röð og þar aðeins að sigra á opna
bandaríska meistaramótinu til að tryggja sér „sletnmu."