Morgunblaðið - 15.07.1988, Page 5

Morgunblaðið - 15.07.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988 C 5 Leikftmiœfingar a Jyrir konur miðjum aldri Við fengum til liðs við okkur Hjördfsi Magnús- dóttur íþróttafræðing sem kennir hjá líkams- ræktarstöðinni Hress í Hafnarfirði. Hún sagði að konur á miðjum aldri væru duglegar að sækja leikfimitíma og vildu gjarnan vera saman í hópi. „Við buðum í fyrravetur upp á sérstaka tíma fyr- ir þennan aldurshóp kvenna og verðum áfram með þannig nám- skeið í haust." Á hinn bóginn sagði Hjördís að til væru líka þær konur á miðjum aldri sem stunduðu erfið- ustu leikfimina og væru mjög vel á sig komnar líkamlega. „Stór hóp- ur þeirra sem stunda leikfimi hjá okkur eru miðaldra konur. Þær eru með áhugasömustu nemendunum og passa að missa ekki úr tíma.“ Hún sagði að það væri ekki nóg að gera styrkjandi æfingar, heldur þyrftu konurnar líka að hugsa um að bæta úthald sitt. „Til þess að auka súrefnisupp- töku vöðva og þarmeð að bæta úthaldið er nauðsynlegt að stunda hreyfingu sem reyndir á hjarta-og æðakerfi líkamans svo sem göngu, skokk, sund, hjólreiðar, skíða- göngu eða eróbikk leikfimj. Æski- legt er að stunda eitthvað af fyrr- greindu að minnsta kosti þrisvar í viku í tuttugu til sextíu mínútur í senn allt eftir því hvaða íþrótta- grein viðkomandi velur sór. Areynslan á að vera sem nemur sextíu til áttatíu prósent af hám- arks súrefnisgetu líkamans. Til þess að reikna út þessi sextíu til áttatíu prósent af hámarksgetunni er yfirleitt notuð sú regla að draga lífaldur frá tölunni 220 og fæst þá þannig hjartsláttarpúls sem gefur bestan árangur. Sú tala er svo margfölduð með sextíu til áttatíu prósentum. Tökum dæmi um fimmtuga konu: 220 -50 220 -50 170 *0.60 170 *0.80 102 sl. á mín. 136sl. ámfn. Lægri mörkin (60%) hafa meiri áhrif á fitubrennsluna á móti hærri mörkunum (80%) sem hafa meiri áhrif á aukningu þolsins. Því er æskilegra fyrir þá sem aðallega eru að hugsa um fitubrennsluna að velja þá hreyfingu sem hefur minni áreynslu, svo sem göngu." Ganga er mjög í tísku núna, enda að sögn Hjördísar margt sem mælir með henni. Flestir geta stundað göngu og hægt er nánast að ganga hvar sem er og við hvaða aðstæður sem er. Auk þess sem ganga hefur hámarks fitubrennslu þá er álagið á vöðva, vefi og liöa- mót líkamans minna þegar gengið er en ef verið er að skokka eða hlaupa. Texti: Guðbjörg R. Guðmunds- dóttir BAKÆFINGAR Mjóbaksteygja Teygið gagnstæðan handlegg á móti fæti og skiptið svo yfir á hina hliðlna. Æfing fyrir innri lærvöðva. Lyftið neðri fótlegg upp og látið síga rólega niður. Æfing fyrir lærvöðva að aftan. Beygið hnéð 30 til 40 gráður og lyftið öllum fætinum. Rassvöðvar. Lyftið hnénu rólega f rá jörðu að mjöðm og látið það sfðan sfga rólega niður aftur. Bakið á að vera beint eða örlítið bogið. Æfing fyrir lærvöðva að framan. Lyftið hnénu upp og láta það sfga rólega niður. Sigurjóna hefur verið úti á vinnumarkaðnum utan þess tíma er hún bjó erlendis um ára- bil. „Það hefur alltaf átt við mig að vinna úti. Við hjónin eigum að- eins eina dóttur og þegar hún komst á leikskólaaldurinn fór ég að vinna hálfan daginn." Hún fer hálfvegis hjá sér þegar það er borið undir hana hvað hún geri til að halda sér í svona góðu formi. „Þetta er mér eðlilegt. Ég hef alia tíð hugsað um það sem ég borða og það er einfaldlega af því að ef ég er vel á mig komin líkamlega þá líður mér vel og það helst svo í hendur við andlega vellíðan. Þetta á líka við um útlit. Það hefur alltaf skipt mig, eins og aðra, miklu máli að líta þokkalega út. Ég hef i sjálfu sór aldrei eytt miklu í fatn- að og hef haft aðstæður til að kaupa mín föt erlendis og þar er verðið ekkert sambærilegt. Hvað snertir líkamsrækt er ég kannski ekki nógu dugleg við slíkt. Ég er hinsvegar mikið á hreyfingu. Til að mynda starfa óg á fyrstu hæð en þarf nokkrum sinnum á dag að fara upp á sjöttu hæð hússins. Ég hef það fyrir reglu að hlaupa upp stigana, var auðvitaö lafmóð i fyrstu en það vandist og nú finnst mér þetta hressandi. Við hjónin göngum töluvert líka, sérstaklega á veturna." Hvernig tilfinning er það að komast á miðjan aldur? „Ég hef aldrei fundið sórstak- lega til þess að ég væri orðin mið- aldra. Eina skiptið sem mér fannst ég verða gömul var þegar ég varð tuttugu og fimm ára“ segir Sigur- jóna. „Síðan hefur þessi hugsun aldrei hvarflað að mér. Það hefur mikið að segja að hafa góða heilsu og vera ánægð með viðfangsefni sín. Hvorutveggja á við mig, ég er hress andlega og líkamlega, svo spillir ekki fyrir að ég hef mjög gaman af því sem ég er að fást við í vinnunni og starfa með frábæru fólki hjá Arnarflugi. Það skiptir mig miklu máli að hafa alltaf nóg fyrir stafni og þegar ég er ekki aö vinna er það ýmis- legt sem ég sinni og dunda mér við.“ Það er óhætt að segja að Sigurjóna sé með það sem kallað er að hafa grænar hendur. Garð- stofan hennar ber vott um það, þar má finna allar hugsanlegar plöntur sem eru hver annarri fal- legri. Hún segist lika hafa mikinn áhuga á gróðri og það kemur á daginn að garðurinn ber þess glöggt vitni að um hann fara vanar hendur. Það er í sjálfu sér líkams- rækt að sinna garðinum og vinna í honum. En hún hefur gaman af því að hlúa að plöntunum sínum. „Fyrir utan áhuga á gróðri, má segja að maðurinn minn hafi smit- að mig af sínu aðal áhugamáli, sem er rallý og kappakstur. Mér finnst mjög gaman að fylgjast með þess- um bílaíþróttum. Við förum líka gjarnan á skíöi, i gönguferðir, ferð- umst víða og njótum þess að vera tiL GRG KOIMURKOIMURKONUR konur." Það er án efa erfitt fyrir konu sem hefur ekki unnið úti í tuttugu ár að drífa sig af stað og hefja atvinnuleit upp á nýtt. Það þarf vissan kjark til að þora að rífa sig upp úr því mynstri sem konan hefur verið í lengi og byrja upp á nýtt. En þessi ár, þetta nýja skeiö í lífi konunnar getur verið spennandi og kannski þau ár sem fólk fær hvað mest út úr í Irfinu. Þro- skinn sem það býr að ætti að geta nýst því vel í starfi eða námi. Ef konan hefur ekki aflaö sór menntunar á sínum yngri árum eru ýmsar leiöir opnar. Möguleikarnir eru óteljandi. Og það sem meira er, konur eru famar að nýta sér þessa möguleika. Ef fylgst hefur verið með fréttum undanfarið hefur ekki farið framhjá fólki að konur sækja á. Þegar guö- fræðingar útskrifuðust fyrir nokkru var þeirra á meðal sextug kona, sr. Ólöf Ólafsdóttir sem mun gegna prestþjónustu við Umönnunar og hjúkrunarheimilið Skjól. Hún segir í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu að hún hlakki til að takast á við starfið, hún sé að fara að fást við nokkuð sem hana hafi allt&f lang- að til að vinna við. Hún segir enn- fremur: „Ég er lika hraust og þakklát fyrir það. Eg hef reynt að hugsa vel um heilsuna, stunda leikfimi og stund. Meðalaldur íslenskra kvenna er rúm 80 ár og mér finnst það vera skylda manns að leggja sitt af mörk- um til að halda líkamanum í lagi eins Linda Grey ein aðalstjarnan f Dallas, framhaldsmyndaflokknum vlnsæla, er komin vel á miðjan aldur. Flestar konur sem eru áberandl og þekktar í bandarísku þjóðlífi þessa stundina eru konur á miðjum aldri. Það er sama hvort veriA er að tala um fallegustu og kynþokkafyllstu konur Bandarfkjanna, eftirsóttar lelkkonur eða konur í áhrifastöðum. lengi og kostur er.“ Þá voru fregnir af mæðgum sem útskrifuðust saman sem stúdentar og meira að segja með glæsibrag. Dæmin eru mýmörg allt í kringum okkur um konur sem hasla sér völl i námi eða atvinnulífi eftir að börnin eru komin á legg, enda virðist þörfin fyrir starfskrafta þeirra næg, einkum ef þær epdurmennta sig eftir langa veru heima við. í boði eru ýmis sórhæfð nám- skeið, Iðntæknistofnun hefur verið með námskeiö fyrir konur sem vilja fara út i sjálfstæðan atvinnurekstur, tölvunámskeið eru í boði víða, hægt er að fara í öldungadeild til að afla sér stúdentsprófs, Tómstundaskól- inn er með allskonar námskeið, Námsflokkar Reykjavikur bjóða upp á ýmislegt .listinn er nánast enda- laus. Við ræddum við tvær konur á miðjum aldri, konur sem hugsa um útlit sitt, eru í starfi sem þær hafa ánægju af, njóta lifsins og líta björt- um augum til komandi ára. Texti: Guðbjörg R. Guðmunds- dóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.