Morgunblaðið - 22.02.1989, Side 1
LEIKHORNH)
Lengd striksins
Stór pappírsörk er hengd á vegginn. Síðan teiknið þið til skiptis strik með
litum. í hvert skipti sem nýtt strik hefur verið teiknað eiga allir að geta uppá
hve langt allt strikið er orðið. Því næst er línan mæld og sá sem kemst næst
, því að geta uppá réttri lengd vinnur og hættir keppni en hinir halda áfram.
Skugginn
Þetta er skemmtilegur leikur sem þið getið verið mörg í, því fleiri því
skemmtilegri verður leikurinn. Einn er valinn til að vera hann fyrst. Hann
sest og nýr sér að veggnum. Síðan hafið þið lampa sem lýsir á vegginn fyrir
framan hann. Eftir röð stillið þið ykkur fýrir framan lampann en fyrir aftan
þann sem er hann. Nú á hann að geta uppá hvers skugga hann sér á
veggnum. Til að gera þetta erfiðara gætuð þið rétt upp hendumar eða fett
ykkur og brett þannið að ekki sé eins auðvelt að þeklcja ykkur. Þegar sá sem
er hann þekkir skugga einhvers þá skipta þeir um pláss og leikurinn heldur
áfram þar til allir eru þekktir.
VOR
Einu sinni var stelpa sem hét Lára
Kata. Einu sinni sagði mamma. Það
er fyrsti dagur vorsins. Þá hrópaði
Lára Kata vor, vor, vor. Lára Kata
fór út að tína blóm gul, rauð, græn
og blá.
Endir.
Ingunn Guðjónsdóttir, Þvergötu 5, ísafirði, sendi þessa sögu.
VINIR
Einu sinni var stelpa sem hét
Cecelía. í dag ætluðu Cecelía og
Tommi vinur hennar út úr þorpinu
og tína skeljar, kuðunga og margt
fleira. Klukkan 7 kom Stína að
spyija eftir Cecelíu, en Cecelía
sagðist ekki geta leikið núna. í sama
augnabliki kom Tommi og sagði að
Stína mætti alveg koma með og
Stína fór heim að ná í poka og
nesti. Síðan kom Stína, þau lögðu
af stað og fundu fullt af kuðungum,
skeljum og fullt af fallegum steinum.
Þegar þau fóru heim ákváðu þau
að hittast heima hjá Cecelíu og búa
til þijár stórar myndir. Eftir matinn
komu Stína og Tommi. Þau byrjuðu
á Tomma svo Stinu loks Cecelíu,
síðan límdu þau þetta á blaðið.
Cecelía sagði að sitt væri ljótast og
Tomma og Stínu miklu flottara en
sitt. Stína og Tommi sögðu að sitt
væri ljótt og Cecelíu væri flottast.
Síðan fóru þau Stína og Tommi að
rífast um hvað væri ljótara. Svo
komust þau að samkomulagi um að
myndirnar væru jafn ljótar.
Endir.
Soffia Ösp Bæringsdóttir, Sæbóli 35, Grundarfirði, sendi þessa sögu.
PENNAVINIR
Hildur Arsælsdóttir,
Asvallagötu 71,
101 REYKJAVIK.
Hildur er 8 ára og vill
eignast pennavini á öllum
aldri. Hún lofar að svara öll-
um bréfum sem hún fær.
Rúnar Pálmarsson,
Sæbóli 30,
350 GRUNDARFIRÐI.
Rúnar vill eignast penna-
vini á aldrinum 10-12 ára,
bæði stelpur og stráka.
Rúnar ætlar að svara 12
fyrstu bréfunum sem hann
fær.
Aðalheiður Hanna Björns-
dóttir,
Leynisbraut 9,
240 GRINDAVÍK.
Aðalheiður Hanna er 12
ára og vill eignast penna-
vini, bæði stelpur og stráka,
á aldrinum 12 og 13 ára.
Aðalheiður ætlar að reyna
að svara öllum bréfum sem
hún fær.
Olga Sif Guðgeirsdóttir,
Elliðavöllum 17,
230 KEFLAVÍK.
Olga Sif er að verða 13
ára og vill skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum
11-13 ára. Áhugamál: Skíði,
körfubolti og margt fleira.
Kristjana E. Birgisdóttir,
Hlíðarvegi 31,
400 ÍSAFJÖRÐUR.
Kristjana er 11 ára og vill
eignast pennavini á öllum
aldri, bæði stelpur og stráka.
Áhugamál hennar eru
margvísleg. Mynd fylgi
fyrsta bréfi og Kristjana
ætlar að svara öllum bréfum.
Ragnhildur Guðmunds-
dóttir,
Breiðvangi 28,
220 HAFNARFIRÐI.
Ragnhildur er 12 ára og
vill eignast pennavini á aldr-
inum 11-13 ára, bæði stelpur
og stráka, þó helst stráka.
Áhugamál: lþróttir og margt
fleira.