Morgunblaðið - 14.03.1989, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1989
ÍÞR&mR
FOLK
■ BRANISLA V Pokrqjac, fyrr-
um landsliðsþjálfari Júgóslavíu,
sem var þjálfari bandaríska lands-
liðsins á Olympíuleikunum í Seoul,
hefur verið ráðinn
FráAtla landsliðsþjálfari
Hilmarssyni Spánverja í hand-
áSpáni knattleik. Pokrajac
fær það hlutverk að
byggja upp nýtt landslið fyrir ÓL
í Barcelona 1992.
I ZLATKO Portner, landsliðs-
maður Júgóslavíu og leikmaður
með Metaloplastica, mun að öllum
líkindum ganga til liðs við
Barcelona og taka stöðu landa síns
Milan Kalina hjá félaginu næsta
vetur.
■ INTER Mílanó vann sinn
fyrsta sigur í Róm í níu ár, þegar
félagið lagði Roma, 3:0, á sunnu-
daginn. Lothar Matth&us, Aldo
Serena og Ramon Diaz skoruðu
mörk Inter, sem er með þriggja
stiga forskot á Napolí. AC Milanó
vann stórsigur, 4:0, á Juventus.
Nítján ára nýliði, Graziano Mann-
ari, skoraði tvö mörk fyrir Mílanó-
liðið.
■ BRA SILÍUMAD URINN
Baltazar de Morais, sem er marka-
hæsti knattspymumaður Evrópu,
með 24 mörk, skoraði eitt mark
fyrir Atletico Madrid gegn Mala-
ga, 3:0, á Spáni. Mexikaninn
Hugo Sanches skoraði tvö mörk
fyrir Real Madrid, sem vann
Zaragoza, 4:1. Bernd Schuster,
sem skoraði mark beint úr auka-
spymu, lagði upp hin þrjú mörkin
og átti snilldarleik. Barcelona vann
Real Sociedad með sömu marka-
tölu. Gary Lineker skoraði eitt af
mörkum Barcelona.
■ AJAX vill fá Rinus Michels,
þjálfara Bayer Leverkusen til sín
og er hollenska félagið tilbúið að
kaupa upp samning þjálfarans hjá
Leverkusen.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Sannaiörn úrslit
STJARNAN heldur enn f vonina
um Evrópusæti eftir jafntefli
gegn KA á sunnudag. Leikurinn
endaði 23:23, þar sem Stjörn-
unni tókst ekki að knýja fram
sigur þrátt fyrir að leika einum
fleiri síðustu tvær mínúturnar.
KA leiddi í leikhléi 15:13.
Norðanmenn byijuðu leikinn vel
og höfðu yfirhöndina framan
af. Stjaman komst smám saman
betur inn í leikinn, og stærstan
■■■■■■■I hluta síðari hálfleiks
Katrín var jafnt á öilum
Fríðriksen tölum — jafntefli því
skrifar sanngjöm úrslit
þegar upp er staðið.
Vamarlega séð var mikið um
mistök hjá báðum liðum, og mark-
varslan eftir því. Sóknarleikurinn
naut þessa hins vegar og var mikið
um glæsileg mörk. Hjá Stjömunni
skoraði Sigurður Bjamason mörg
falleg mörk með langskotum og
Skúli Gunnsteinsson var iðinn á
línunni og auk þess sterkur í vöm.
Erlingur Kristjánsson var atkvæða-
mikill hjá KA í fyrri hálfleik. Þá
gladdi línuspii KA-manna oft augað
og Sigurpáll Aðalsteinsson var at-
Stjaman — KA
23 : 23
íþróttahúsiö f Digranesi, íslands-
mótiA f handknattleik — 1. deiid
karia, sunnudaginn 12. mars
1989.
Gangur leiksins: 0:3, 3:5, 6:7, 9:9,
11:10, 11:13, 13:15, 14:16, 16:16,
19:18, 22:21, 23:23.
Stjaraan: Sigurður Bjamason 7, Skúli
Gunnsteinsson 6, Gylfí Birgisson 6/3,
Hafsteinn Bragason 3, Axel Bjömsson
1, Magnús Eggertsson, Siguijón
Bjamason, Einar Einarsson, Þóroddur
Ottesen, Hilmar Hjaltason.
Varin skot: Brynjar Kvaran: 7, Halld-
ór Kjartansson.
Utan vallar: 8 mínútur.
KA: Erlingur Kirstjánsson 6, Sigurpáll
Aðalsteinsson 6, Guðmundur Guð-
mundsson 4, Pétur Bjamason 3, FVið-
jón Jónsson 2. Jakop Jónsson 2, Bragi
Sigurðsson, ólafur Hilmarsson, Karl
Karlsson, Jóhannes Bjamason.
Varið: Axel Stefánsson 7, Bjöm
Bjömsson 5/1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Áhorfendur: 99
Dómarar: Guðjón Sigurðsson og
Rögnvald Erlingsson dæmdu ágætlega.
kvæðamikill í vinstra hominu.
■ Staðan/B 6.
BLAK / URSLITAKEPPNIN
KA á sigurbraut
KA er enn taplaust í blak-
keppni vetrarins. Liðið sigraði
HK örugglega, 3:0, í úrslita-
keppninni á Akureyri um
helgina.
Norðanmenn hafa því unnið
§óra leiki f úrslitakeppninni,
en eiga tvo eftir. Þeir unnu allir
hrinumar næsta auðveldlega
gegn HK, 15:3, 15:8 og 15:10.
Þróttarar áttu ekki í neinum
erfíðleikum með lið Stúdenta f
Hagaskólanum á sunnudaginn. í
lið IS vantaði Sigfús Viggósson
sem er meiddur og leikur ekki
meira með í vetur. Þróttur vann
í þremur hrinum. Þá fyrstu unnu
þeir 15:3 og tvær næstu 15:10.
IS komst í 0:4 í þriðju hrinu en
Þróttur jafnaði 8:8 og eftirieikur-
inn var auðveldur.
í kvennaflokki voru tveir leikir.
Víkingur brá sér austur á Nes-
kaupstað og eins og vænta mátti
unnu þær auðveldiega í þremur
hrinum, 15:4, 15:5 og 15:8.
ÍS og Breiðablik áttust síðan
við f Hagaskóla og þar þurfti einn-
ig aðeins að leika þijár hrinur.
Stúdínur unnu í slökum leik 15:11,
15:7 og 15:13.
SKJALDARGLIMA ARMANNS
Ólafur sigraði
í sjötta skipti
ÓLAFUR Haukur Ólafsson, KR,
vann allar sínar glímur, fókk
fimm vinnlnga og sigraði í
skjaldarglfmu Ármanns í sjötta
sinn, en keppnin fórfram um
helgina.
KR-ingar höfnuðu í fimm efstu
sætunum. Helgi Bjamason
varð í 2. sæti með 4 vinninga, Ás-
geir Víglundsson fékk 2 vinninga,
Jón B. Valsson og Orri Bjömsson
einn og hálfan vinning hvor og Al-
fons Jónsson, Armanni, einn vinn-
ing.
Ólafur vann Asgeir á vinstri fót-
ar klofbragði, Jón Birgi á utanfótar
hælkróki á vinstri, Orra á mjaðma-
hnykk með vinstri, Helga á leggjar-
bragði með vinstri fæti og Alfons
SKÍÐI
Anna
María
vann
tvöfalt
Akureyringar hrepptu þrenn gull-
verðlaun af fjórum sem í boði
voru á bikarmótum SKÍ f alpagreinum
um helgina. Keppt var á Dalvík í
blfðskaparveðri. Tvívegis var keppt í
stórsvigi karla og kvenna. Anna María
Malmquist vann tvöfalt í kvenna-
flokki, en Valdimar Valdimarsson,
Akureyri, og Helgi Geirharðsson,
Reykjavík, skiptu með sér sigrunum
í karlaflokki.
Röðin þriggja efstu í kvennaflokki
var eins báða dagana: Anna María
fyrst, María Magnúsdóttir önnur og
Margrét Rúnarsdóttir þriðja. Hjá körl-
unum vann Valdimar Valdimarsson á
laugardag en Helgi Geirharðsson úr
Reykjavík á sunnudag. Helgi varð
annar í fyrri keppninni en Valdimar í
þeirri síðari. Þriðji báða dagana var
Daníel Hilmarsson.
■ Úrsllt/B 6.
Anna Marla.
KÖRFUBOLTI / ÚRSLITAKEPPNIN
Morgunblaöiö/Einar Falur
Jón Kr. Gíslason skoraði grimmt og var besti maður vallarins. Hér á hann
í höggi við Valsmanninn Bjöm Zoega
„Ætlum ekki að
láta slá okkur út
þriðja árið í röd“
- sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og
leikmaður ÍBK eftir sigurinn gegn Val
Við ætlum að ljúka þessu dæmi
og sigra Valsmenn í næsta
leik, því við ætlum ekki að láta slá
okkur út úr úrslitakeppninni þriðja
Bjöm
Blöndal
skrifarfrá
Kefíavik
árið í röð,“ sagði Jón
Kr. Gíslason þjálfari
og leikmaður ÍBK
eftir sigurinn gegn
Val í Keflavík á
sunnudagskvöldið. Liðin leika aftur
að Hlíðarenda í kvöld og sigri
Keflvíkingar halda þeir áfram, en
sigri Valsmenn þarf þriðji leikurinn
að fara fram og verður hann þá í
Keflavík á fimmtudagskvöldið.
Leikur liðanna var oft á tíðum
vel Ieikinn og hin ágætasta
skemmtun. Valsmenn voru sterkari
framan af en Keflvíkingar gáfust
ekki upp.
í síðari hálfleik hélt sama barátt-
an áfram og liðin skiptust á um að
halda forystunni fyrstu 10 mín-
útumar. En þá for að draga af
Valsliðinu og Keflvíkingar náðu að
breyta stöðunni úr 65:68 í 73:68.
Þetta virtist setja Valsmenn úr jafn-
vægi, þeir hættu að hitta og eftir-
leikurinn var auðveldur hjá Keflvík-
ingum sem óneitanlega standa vel
að vígi eftir þessi úrslit. Jón Kr.
Gfslason þjálfari og leikmaður ÍBK
var besti maður vallarins að þessu
sinni, átti margar gullfallegar send-
ingar og skoraði mikið. Þá var
ÍBK-Valur
99 : 86
íþróttahúsið f Keflavfk, úrslitakeppn-
in/undanúrslit f íslandsmótinu f körfu-
knattleik, sunnudaginn 12. mars 1989.
Gangur leikslns: 3:0, 3:6, 15:14,
16:25, 19:29, 25:29, 35:39, 43:42,47:
49,51:51, 59:59, 61:66, 65:68, 73:68,
82:75 89:79, 92:79,99:86.
Stig IBK: Jón Kr. Gíslason 27, Guðjón
Skúlason 23, Axel Nikulásson 17,
Magnús Guðfinnsson 10, Sigurður
Ingimundarson 9, Albert Óskarsson 6,
Nökkvi M. Jónsson 4 og Falur Harðar-
son 4.
Stig Vals: Hreinn Þorkelsson 22, Matt-
hías Matthíasson 18, Tómas Holton
15, Bjöm Zoega 11, Reynir Þór Jóns-
son 10, Bárður Eyþórsson 7 og Ari
Gunnarsson 3.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Helgi
Bragason og dæmdu vel.
Áhorfendur: 500.
Guðjón Skúlason góður í síðari hálf-
leik, en þeir félagar skoruðu 50
stig í leiknum. Axel Nikulásson var
sterkur að vanda og skoraði mörg
mikilvæg stig.
Þremenningamir Hreinn Þor-
kelsson, Matthías Matthíasson og
Tómas Holton voru aðalmennimir
í Valsliðinu, en náðu ekki að halda
sínu striki út leikinn.
Ólafur H. Ólafsson.
BIKARINN
ÍBVvann HK
Vestmanneyingar sigruðu efsta
lið 2. deildar HK, 29:28, eftir
framlengingu í 16-liða úrslitum bik-
arkeppni HSÍ á laugardag. Leikið
var í Digranesi, heimavelli HK.
Eftir venjulegan leiktíma var staðan
jöfn, 24:24.
á leggjarbragði.
Helgi vann Ásgeir á vinstri fótar
klofbragði, Jón Birgi á utanfótar
hælkróki vinstri á hægri, Orra á
hælkróki hægra megin utan fótar
og Alfons á leggjarbragði.
Ásgeir vann Orra á hælkróki
aftur fyrir báðar tekið með hægri
fæti og Alfons á utanfótar hæl-
króki.
Jón Birgir vann Ásgeir á vinstri
fótar klofbragði.
Orri vann Alfons á sniðglímu
niðri hægra megin.
Alfons vann Jón Birgi á
sniðglímu.
FIMLEIKAR / ISLANDSMÓTIÐ
Linda og Guðjón með forystu
Islandsmótið í fimleikum hófst
um helgina með keppni í
skylduæfingum, en um næstu
helgi lýkur mótinu er keppt verð-
ur í fijálsum æfmgum. Islands-
meistararnir frá því í fyrra, Linda
S. Pétursdóttir og Guðjón Guð-
mundsson hafa þegar tekið for-
ystu á mótinu.
Linda, frá Björk { Hafnarfirði,
hlaut 36,30 stig fyrir skylduæf-
ingar sínar. í öðru sæti er Bryndis
Guðmundsdóttir, Ármanni með
35,19 og þriðja er Fjóla ólafs-
dóttir, Ármanni, sem hlaut 34,45
stig.
Guðjón, sem keppir fyrir Ár-
mann, leiðir karlakeppnina sem
fyrr segir. Fékk 54,36 stig. Annar
er Jóhannes Níels Sigurðsson,
sem einnig er úr Ármanni, með
62.65 stig og þriðji Guðmundur
Þór Brynjólfsson, Gerplu með
44.45 stig.