Morgunblaðið - 14.03.1989, Page 8
ItfiómR
fHftvgttttMa&ifr
Pressað til hins ýtrasta!
KR-ingartryggðu sérsæti í úrslitum með sigri á Njarðvík
Forest á góðri siglingu
Vann öruggan sigurá Arsenal, 3:1, á Highbury
NOTTINGHAM Forest sigraði
Arsenal örugglega á Highbury
um helgina og og jók þar með
spennuna á toppi deildarinnar.
Norwich, sem sigraði Wimble-
don, er nú aðeins tveimur stig-
um á eftir Arsenal, en á leik til
góða.
Nigel Clough skoraði fyrir For-
est eftir sex mínútur, en Alan
Smith jafnaði sjö mínútum síðar.
Franz Carr náði forystunni fyrir
gestina á ný og Stu-
art Pearce innsiglaði
sigurinn á 35.
mínútu — skoraði
beint úr auka-
spymu. Þetta var 16. leikur Forest
í röð án taps, en liðið er komið í
úrslit í deildarbikamum og átta Iiða
úrslit í ensku bikarkeppninni.
Trevor Putney tryggði Norwich
1:0 sigur, en lánið lék við heima-
Frá
Bob
Hennessy
íEnglandi
menn. Keith Curle, fyrirliði Wimble-
don, varð að fara meiddur af velli
eftir átta mínutur og John Fashanu
skoraði, en markið var dæmt af —
dómarinn sagði að Fashanu hefði
stjakað við Gunn, markverði Nor-
wich.
Millwall vann Luton 2:1 á „plast-
inu“ í Luton og er enn í þriðja
sæti. Jimmy Carter skoraði tvívegis
í fyrri hálfleik, en Danny Wilson
minnkaði muninn úr vítaspymu á
54. mínútu.
Colin Clarke og Mark Stein skor-
uðu fyrir QPR í fyrsta deildarsigri
liðsins á árinu, en Ray Ranson skor-
aði fyrir Newcastle.
Brian Kilcline, fyrirliði Coventry,
gaf tóninn og skoraði úr vítaspymu
á 12. mínútu, en Paul Ince jafnaði
fyrir West Ham níu mínútum fyrir
leikslok. Steve Sedgeley lék ekki
með Coventry — var tekinn út úr
liðinu vegna ummæla í dagblaði
þess efnis að hann vildi fara til liðs
í London.
Liverpool átti ekki í erfiðleikum
með Middlesboro í sjónvarpsleikn-
um og vann 4:0. Beardsley, Hough-
ton, Aldridge og McMahon skoruðu
fyrir meistarana. „Þeir sem héldu
að keppninni um meistaratitilinn
væri lokið geta þurft að skipta um
skoðun," sagði Dalglish, stjóri
Liverpool. „Við höfum verið 18 stig-
um á eftir efsta liði en sigrað
samt,“ sagði Grobbelaar.
Manchester United getur þakkað
Jim Leighton, markverði, marka-
laust jafntefli gegn Aston Villa í
Birmingham á sunnudag. Heima-
menn áttu leikinn, en Leigton var
réttur maður á réttum stað.
Urslit/B6
Staðan/B6
KR—INGUM tókst það sem
fæstir áttu von á; að slá
Njarðvíkinga út í úrslitakeppn-
inni og tryggja sér sæti úrslita-
leiknum. KR-ingar sigruðu í
ótrúlegum leik í Hagaskólanum
í gærkvöldi, 72:59, og mæta
því Valsmönnum eða Keflvík-
ingum. Likt og í fyrri leik lið-
anna var það mjög sterk og góð
pressuvörn KR-inga sem lagði
upp þennan sigur og Njarðvík-
ingar áttu ekkert svar við bar-
áttugleði og sigurvilja KR-inga.
Segja má að KR-ingar hafi
pressað til hins ýtrasta því
undir lokin voru fjórir leikimenn
liðsins komnir útaf með f imm
viilur.
KR-ingar voru yfir allan leikinn
og höfðu átta stiga forystu í
hálfleik, 40:32. Njarðvíkingar náðu
að minnka muninn en þegar staðan
wmmmmm var 47:40 tóku kr-
LogiB. ingar við sér svo um
E/ðsson munaði. Þeir gerðu
skrifar næstu 13 stig og
komust í 60:40.
Síðustu stigin í þessari rispu gerði
ívar Webster, tróð boltanum í körf-
una með tilþrifum, og þá var sem
Njarðvíkingar játuðu sig sigraða.
Eftir það gekk ekkert upp hjá
Njarðvíkinum og þrátt fyrir mikil
villuvandræði héldu KR-ingamir
forystunni og sigruðu örugglega.
KR-ingar með 34 villur!
KR-ingar voru fastir fyrir í vöm-
inni og lentu fljótlega í villuvand-
ræðum. Þeir fengu 17 villur í fyrri
hálfleik en Njarðvíkingar aðeins 5.
KR-ingar fengu alls 34 villur og
undir lokin voru Láms Ámason,
Matthías Einarsson, Guðni Guðna-
son og Birgir Mikaelsson allir
komnir útaf með 5 villur.
„Ég var orðinn hræddur þegar
menn fóm að tínast útaf og gerði
mér grein fyrir því að við gætum
tapað. En við höfum notað marga
leikmenn í vetur og það kom okkur
til góða í lokin því varamennimir
stóðu sig mjög vel,“ sagði Laszlo
Nemeth, þjálfari KR. „Við höfðum
mikinn sigurvilja og tókum áhættu
með þessari vöm. Það gekk upp
og því er ég mjög ánægður," sagði
Nemeth.
KR-ingar hafa leikið pressuvörn
í nokkmm af síðustu leikjum sínum
og unnu leikinn í Njarðvík einmitt
með slíkri vöm. Þrátt fyrir það
höfðu Njarðvíkingar ekki enn fund-
ið svar við pressunni og því töpuðu
þeir.
Jóhannes Kristbjömsson átti
mjög góðan leik, hélt boltanum vel
og átti mjög margar stoðsendingar.
Guðni Guðnason fór á kostum í
síðari hálfleik og gerði 12 af fyrstu
14 stigum KR-inga í síðari hálfleik.
Ivar Wester hirti aragrúa frákasta
og varði fjölmörg skot í vöminni
og Birgir Mikaelsson lék einnig
mjög vel. Þá áttu Ólafur og Matt-
hías góðan leik, einkum í síðari
hálfleik.
Njarðvíkingar léku ágætlega
framan af en í síðari hálfleik gáfu
taugamar sig. Ótímabær skot og
slæmar sendirtgar gerðu stöðu
þeirra vonlausa og í lokin var sem
liðið gæfist upp. Teitur Örlygsson
átti þó mjög góðan leik og Helgi
Rafnsson stóð sig vel í vörninni.
Aðrir vom langt frá sínu besta.
Það er ekki hægt að segja annað
en að þessi sigur KR komi á óvart.
Njarðvíkingar hafa haft mikla yflr-
burði í vetur og leikið vel. Þeir
hafa hinsvegar ekki náð að sýna
sitt besta í úrslitakeppninni. Það
hafa KR-ingar hinsvegar gert og
sigur þeirra í gær var sanngjam.
Nigel Clough kom Forest á bragðið
gegn Arsenal.
KR—UMFN
72 : 59
íþróttahús Hagaskólans, íslandsmótið
í körfuknattleik, úrslitakeppnin, 2. leik-
ur, mánudaginn 13. mars 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 6:5, 16:5, 22:11,
22:18, 31:21, 37:28, 40:32, 42:38,
47:40, 60:40, 62:44, 62:50, 64:54,
67:54, 69:55, 70:57, 72:59.
Stig KR: Guðni Guðnason 23, Birgir
Mikælsson 18, Jóhannes Kristbjöms-
son 8, ívar Webster 8, Matthías Einars-
son 5, Hörður Gunnarsson 5, Lárus
Ámason 2, Ólafur Guðmundsson 2 og
Lárus Valgarðsson 2.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 27,
Helgi Rafnsson 16, Friðrik Ragnarsson
6, ísak Tómasson 4, Hreiðar Hreiðars-
son 3 og Kristinn Einarsson 3.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Sig-
urður Valgeirsson. Sluppu vel frá mjög
erfíðum leik.
Áhorfendur: 350.
fvar Webstor átti mjög góðan leik
í gær og hirti mörg fráköst.
FráBob
Hennessy
í Englandi
ÍÞRÓmR
FOLX
■ FRANK McAvennie lék ekki
með Celtic um helgina. Ástæðan
var sú að hann vill fara frá félaginu
og á föstudag kom tilboð upp á
800.000 pund. Talið
er að það hafí verið
frá West Ham eða
Arsenal.
■ PAUL Stew-
art er með fjögurra ára samning
við Tottenham, en konan og sonur-
inn kunna ekki við sig í London
og því vill Stewart fá sig lausan.
■ NORWICH lék 1000. deildar-
leikinn á Carrow Road á laugar-
dag. Völlurinn var tekinn í notkun
í ágúst 1935 eftir að framkvæmdir,
sem kostuðu 25.962 pund, höfðu
staðið yfír í 82 daga.
■ NORMAN Hunter hefur verið
ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Brad-
ford City. Terry Yorath er þar
við stjómina, en þeir félagar gerðu
garðinn frægan með Leeds á árum
áður.
I DAVH) OldGeld, miðheiji
Luton, vildi ekki fara til West
Ham, en tók boði Manchester City,
sem greiddi 600.000 pund fyrir
kappann.
BELGÍA
„I Arnór: Léttasti
Frá
Bjama
Markússyni
iBeigiu
leikurinn
í vetur"
Amór Guðjohnsen átti mjög
góðan leik er Anderlecht
vann Lokeren 5:1 í 1. deild
belgísku knattspymunnar á
laugardag. „Ég
hef ekki séð
Lokeren eins
slakt og í vetur
síðan ég kom til
Belgíu og þetta var léttasti leik-
urinn í vetur," sagði Amór, sem
gerði þriðja mark Anderlecht —
fékk knöttinn á bijóstkassann
og beindi honum þaðan í netið.
Arnór er enn bólginn í nára
en hann fær nú tveggja vikna
frí og vonast til að verða orðinn
góður, er hann mætir Jean-
Marie Pfaff og félögum í Lierse
eftir hálfan mánuð, en Amór
verður í leikbanni um næstu
helgi.
Mechelen vann Liege 1:0 og
skoraði Rutjes á 90. mínútu.
Fimm stig skilja Mechelen og
Anderlecht að en níu umferðir
eru eftir.
V-ÞYSKALAND
Asgeir skor-
aði beint úr
aukaspymu
Asgeir Sigurvinsson skoraði
mark beint úr aukaspymu af
20 m færi — á síðustu mín., þegar
Stuttgart lagði Stuttgart Kicker að
velli, 2:0. Fritz
Walter skoraði hitt
markið.
Bayem Munchen,
sem hefur leikið
tuttugu og einn leik í röð án taps,
vann Hamburger SV í Miinchen —
1:0. Jurgen Wegmann skoraði mark
Bayem.
FráJóni
Halldóri
Garóarssyni
i V-Þýskaiandi
Urslit/B 6.
Staðan/B 6.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNIN
GETRAUNIR: 2 X X 122 21X X 2 X
LOTTO: 4 7 12 18 19 + 5