Morgunblaðið - 11.04.1989, Side 2
2 6
ÍÞRÖmR
FOLK
■ INGEMAR Stenmark keppti
á sínu síðasta skíðamóti í Salen í
Svíþjóð um helgina. Stenmark,
sem er 33 ára, ætlar að njóta lífsins
í Mónakó. „Mér líður vel í Monte
Carlo. Þar abbast enginn upp á
mig í veðurblíðunni," sagði sænski
skíðakappinn. „Hann var sá besti,“
sagði Italinn Alberto Tomba.
„Það verður langt þangað til ein-
hver annar verður á toppnum í 16
ár,“ sagði Gustavo Thoeni.
H ÞRJÁR konur fóru holu í
höggi á sama golfmótinu í Japan
um helgina. Tu Ai-yo frá Taiwan
og Yuko Moriguchi frá Japan
náðu áfanganum á sömu holu, en
Chihiro Nakajima lék leikinn öðru
sinni. Stúlkurnar fengu tæplega
190.000 ísl. krónur hver.
■ SEVERIANO Ballesteros
var sæmdur æðstu verðlaunum,
sem íþróttamaður á Spáni, getur
fengið, á dögunum. Spænski golfar-
inn, sem sigraði á síðasta opna
breska meistaramótinu, fékk verð-
launin fyrir árangur á undanförnum
árum.
■ HM í köríuknattleik 1994
verður í Belgrad í Júgóslavíu.
■ KRUN Ivanov, 16 ára gamall
langstökkvari frá Búlgaríu féli
nýlega á lyfjaprófi og var hann
dæmdur í lífstíðar keppnisbann
ásamt kraflyftingarstúlkunni
Senka Asenova, sem er 21 árs.
Þjálfari hennar á einnig yfir höfði
sér sams konar bann.
■ SIEGFRIED Habrl, lands-
liðsmaður Austurríkis í ísknattleik,
féll á lyfjaprófi í b-keppninni í Nor-
egi og var dæmdur í 18 mánaða
keppnisbann.
■ HM í borðtennis 1993 verður
í Mexíkó. Alþjóðasambandið kaus
á milli Mexíkó og Novi Sad í Júgó-
slavíu og féllu atkvði 55:37. HM
1991 verður hins vegar í Chipa í
Japan.
■ JOHN Ngugi, heimsmeistar-
inn í viðavangshlaupi frá Kenya,
sigraði í fyrsta sinn í hálfmaraþoni
nú um helgina.
■ DENIS Durnian stóð sig vel
á opna golfmótinu á Jersey um
helgina og þakkaði púttæfingum á
hótelherberginu árangurinn. „Ég
varð að skipta um hótel vegna þess
að gólfteppið var of þykkt þar sem
ég var,“ sagði Bretinn, sem slær
200 högg innanhúss á hveiju kvöldi.
■ STEFFI Graf sigraði Natalíu
Zverevu frá Sovétríkjunum í úr-
slitaleik á sterku móti í Suðui;-
Karólínu um helgina. Graf, sem
hefur aðeins tapað einni lotu á ár-
inu, vann örugglega, 6:1 og 6:1.
Flestir áttu von á að Martina
Navratilova myndi mæta Graf í
úrslitum en Navratilova tapaði
óvænt fyrir Zverevu í undanúrslit-
um. Þess má geta að Steffi Graf
fékk 60.000 dollara (um þijár millj-
ónir kr.) fyrir sigur í úrslitaleiknum
sem tók 55 mínútur.
■ WAYNE Gretzky, einn besti
leikmaður heims í ísknattleik, ætlar
að leika með kanadíska landsliðinu
í heimsmeistarakeppninni, sem
hefst í Stokkhólmi í vikunni, ef
Los Angeles Kings kemst ekki
áfram í úrslitakeppni NHL. Staða
Kings er ekki góð gegn Edmonton
Oilers — liðið hefúr unnið einn
leik og tapað þremur, en það lið,
sem sigrar í fjórum leikjum af
sjö, heldur áfram. Gretzky , sem
er 27 ára, gerði einmitt garðinn
frægan með Oilers og var maður-
inn á bak við fjóra meistaratitla liðs-
ins, en var seldur til Kings í fyrra
fyrir níu milljónir dollara ( um 360
milljónir ísl kr. ). Ljóst er að hann
myndi styrkja kanadíska liðið mjög
á HM, en Sovétmenn eru almennt
taldir sigurstranglegastir ásamt
heimamönnum, sem hafa titil að
veija.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
•AGUR ií : ARRÍL 1989.
KÖRFUKNATTLEjKUR / NBA-DEILDIN
isiah Thomas meiddist á hendi í leik gegn Chicago og gæti misst af fyrstu
leikjum úrslitakeppninnar.
Isiah Thomas
handarbrotinn?
STÓRSTJARNA Detroit, bak-
vörðurinn Isiah Thomas,
meiddist á vinstri hendi í leik
í Chicago á föstudagskvöld er
hann lenti í slag við Bill Cart-
wright í fyrsta leikhluta. Cart-
wright ýtti við kappanum og
áður en samherjar hans gátu
áttað sig á hlutunum var hann
kominn í hörkuslag við mið-
herja Chicagoliðsins. Dómarar
leiksins vísuðu báðum leik-
mönnunum af leikvelli.
Asunnudag var hendi Thomas
enn mjög bólgin og ekki hægt
að röntgenmynda hana. Læknar
liðsins töldu þó að hún væri örugg-
lega brákuð og e.t.v.
Gunnar brotin. Fyrstu fréttir
Valgeirsson benda til að kappinn
skrífar munj missa
af leikjum Detroit
fram að úrslitakeppninni og einnig
fyrstu vikuna þar á eftir.
Þessi slagsmál koma sér illa fyr-
ir Detroit, sem á í harðri baráttu
við Cleveland um sigurinn í austur-
deildinni. Á laugardag voru síðan
leikmennirnir tveir sektaðir af
NBA-deildinni. Cartwright fékk
2.500 dala sekt (um 125 þúsund
krónur) og eins leikja bann og
Thomas var sektaður um 5.000
dali (um 250 þúsund krónur) og
fékk tveggja leikja bann. Þá var
einkavinur Thomas, Mark Aguirre,
sektaður um 2.000 dali (um 100
þúsund krónur) fyrir að skipta sér
of mikið af handalögmálum þeirra
félaga.
Nú eru einungis tvær vikur eftir
af keppnistímabilinu í deildinni áður
en úrslitakeppnin hefst. Í vestur-
deildinni er Phoenix komið á hæla
Los Angeles Lakers í keppninni um
fýrsta sætið, en Lakers eiga auð-
veldari leiki eftir og ættu að vinna
deildina enn eina ferðina. Onnur lið
sem komast næsta örugglega áfram
úr vesturdeildinni eru Utah, Den-
ver, Golden State, Houston, og
Seattle. Þá heyja Portland og Dall-
as nú harða keppni um áttunda og
síðasta sætið.
í austurdeildinni beijast Detroit
og Cleveland um sigurinn en New
York, Milwaukee, Chicago, Atlanta
og Philadelphia komast öll átaka-
laust áfram í úrslitakeppnina. Um
áttunda sætið beijast Boston og
Washington Bæði þessi lið hafa
leikið vel undanfarið.
Því má bæta við að Larry Bird
mun ekki leika meira með Boston
á þessu keppnistímabili. Hann er
enn ekki kominn í leikhæft ástand
eftir uppskurð í haust. Þá er James
Worthy hjá L.A. Lakers meiddur á
hendi, en talið að hann verði orðinn
I góður þegar úrslitakeppnin hefst.
HANDKNATTLEIKUR
Carien frá Granollers?
Per Carlen, sænski landsliðs-
maðurinn hjá Granollers,
hefur ekki gert upp hug sinn -
hvort að hann verði áfram hjá
■■■■■■ félaginu, eða fari
FráAtla aftur til Svíþjóðar.
Hilmarssyni „Fjölmörg félög í
aSpam Svíþjóð hafa haft
samband við mig.
Það er mjög freistandi að fara
aftur heim, en ég hef verið fjögur
ár á Spáni,“ sagði Carlen í stuttu
spjalli við Morgunblaðið.
Carlen sagðist hafa áhuga á
að taka þátt í undirbúningi
sænska landsliðsins fyrir HM í
Tékkóslóvakíu 1990 á fullum
krafti. „Sænska landsliðið tekur
þátt í mörgum mótum og hef ég
mikinn hug á að Ieika með því í
Super Cup í V-Þýskalandi.“
„Nei, það verða ekki miklar
breytingar á sænska landsliðinu
frá Ólympíuleikunum í Seoul. Það
er spurning um hvort að bræðurn-
ir Per og Björn Jilssynir verða
með. Þá eru nokkrir ungir leik-
menn að banka á dyrnar, þannig
að menn þurfa að leggja sig alla
fram til að halda landsliðssætum
sínum," sagði Carlen.
Stefan Edberg lék mjög vel fyrir Svía gegn Austurríkismönnum og bætti fyrir mjög slaka frammistöðu Mats Wilanders.
Meistar-
arnirí
vandræð-
um með
varalið
Tékka
VESTUR—ÞJÓÐVERJAR, sigur-
vegarar í Davis-bikarnum í
fyrra, áttu í mestu vandræðum
með varalið Tékka í 8-liða úr-
slitum Davis-bikarsins um
helgina. Vestur-Þjóðverjar
mörðu þó sigur 3:2, eftir að
hafa verið undir 1:2. Önnur
úrslit voru eftir bókinni: Svíar
sigruðu Austurríkismenn,
Bandaríkjamenn Frakka og
Júgóslavar unnu Spánverja.
estur-Þjóðverjar áttu von á
auðveldum sigri gegn Tékkum
sem voru án sinna bestu manna,
m.a. Miloslav Mecir. En Þjóðveijar
þurftu að hafa fyrir sigrinum. Bor-
is Becker vann fyrsta leikinn en í
kjölfarið fylgdu tveir tapleikir. En
Carl Uwe Steeb sigraði Karel
Novacek, sem kom inn í liðið í stað
Mecir. Boris Becker tryggði Þjóð-
veijum svo sigur í síðasta leiknum
gegn Milan Srejber.
Edberg í stuði
Svíar þurftu einnig að hafa fyrir
sigri sínum gegn Austurríkismönn-
um, 3:2. Mats Wilander, einn besti
tennisleikari heims, hefur leikið illa
að undanfömu en kom þó á óvart
með slakri frammistöðu; tapaði báð-
um leikjum sínum í einliðaleik. Fé-
lagi hans Stefan Edberg var hins-
vegar í miklu stuði og sigraði í
tveimur viðureignum í einliðaleik
og einni í tvíliðaleik.
McEnroe sjaldan betri?
Bandaríkjamenn sigruðu Frakka
mjög örugglega. John McEnroe lék
mjög vel og segja margir að hann
hafi sjaldan verið betri. Andre Ag-
assi sýndi einnig mikið öryggi í
leikjum sínum.
Júgóslavar sigruðu Spánveija,
4:1. Slobodan Zivojinovic, einn besti
tennisleikari heims og örugglega
sá latasti, sigraði í öllum Ieikjum
sínum. Zivojinovic er af mörgum
talinn einn af fimm bestu tennisleik-
urum heims. Hann hefur hinsvegar
hvorki áhuga né þolinmæði til að
æfa á hveijum degi og hefur því
oft tapað á úthaldsleysi á stórmót-
um.
í undanúrslitum mæta Banda-
ríkjamenn Vestur-Þjóðveijum en
Júgóslavar mæta Svíum.
■ Úrslit/B6
TENNIS / DAVIS-BIKARINN