Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 1
(, BLAÐ ALLRA LANDSMANNA KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Morgunblaðið/Bjarni Kveðjuleikur Siegf rieds Held íslendingar leika næstsíðasta leik sinn í undankeppni HM gegn Austur-Þjóðverjum á Laugardalsvelli á morgun kl. 18.00. Hér eru „út- lendingarnir" Gunnar Gíslason, Ásgeir Sigurvinsson og Guðmundur Torfason á æfingu með íslenska liðinu í gær. Leikurinn verður síðasti landsleikurinn sem Siegfried Held stjórnar íslenska iiðinu. Guðni Kjartansson mun stjórna landsliðinu gegn Tyrklandi. GOLF Jacobs hrósar íslendingum John Jacobs, golfkennarinn þekkti sem kom til íslands í sumar, hrósaði íslendingum í stuttu viðtali sem birtist í enska blaðinu Sunday Mirror fyrir skömmu. Þar segir Jacobs að íslendingar gætu líklega fylgt í fótspor Spánvetja, Svía og Vest- ur-Þjóðverja en þessar þjóðir hafa náð góðum árangri á al- þjóðlegum vettvangi. „Ég verð mjög hissa ef íslenskir kylfingar eiga ekki eft- ir að vekja mikla athygli innan fárra ára,“ sagði Jacobs. „Ég var í hópi með 20 strákum milli 10 og 15 ára og þeir voru mjög snjallir. “ Jacobs sagði að íslendingar hefðu greinilega lært mikið af Englendingum John Garner sem er þjálfari íslenska landsliðsins. ísland á korlið! John Drummond Drummond keppir fyrir íslands hönd á mótum atvinnumanna John Drummond golfkennari, sem búið hefur hér á landi nokkur undanfarin ár, mun keppa á mótum atvinnumanna í Ástalíu í vetur fyrir Islands hönd. Hann er Englendingur að uppruna en er nú meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur. I dag fer hann til'Eng- lands, þar sem hann mun keppa og að því loknu kepp- ir hann í Kalíforníu í Bandaríkjunum. I októberbyijun heldur hann síðan til Ástralíu og.tekur þar þátt í tíu atvinnumannámótum fram að jólum. Þetta er í fyrsta skipti, sem kylfingur keppir undir merkjum íslands á stórmótum sem þessum en frægir kappir verða meðal keppenda, þeirra á meðal Greg Norman. „Fram til jóla geri ég ekkert annað en að æfa og keppa. Ef vei gengur, held ég áfram á mótunum í Ástralíú til vors en þetta er alltaf spurning um pen- inga. Mörg hundruð kylfingar þátt í mótunum en auðvitað væri gaman að geta komið íslandt á blað,“ sagði John Drummond í gær. Ben Johnson FRJALSAR IÞROTTIR Heimsmetið tekið af Ben Johnson Heimsmetið í 100 m hlaupi, 9,83 sek, sem Ben Johnson setti á heimsmeistaramótinu í Róm 1987, verður tekið af honum innan skamms, að því er vara- forseti Alþjóða frjálsí- þróttasambandins, Arne Ljungqvist, sagði í gær. Hann sagði hins vegar að engin ákvörðun hefði verið tekin um hvort Jo- hnson héldi heimsmeist- aratitlinum eða ekki. Johnson varð sem kunnugt er uppvís að ólöglegri lyfjanotkun á Ólympíuleikunum í Seoul í fyrra. Ljungqvist sagði, að hver sá íþróttamaður, sem viður- kenndi að hafa tekið óögleg lyf síðustu sex árin, myndi missa heimsmet sitt. LYFJANOTKUN Trina Solberg féll á lyfjaprófi NORSKA stúlkan Trina Solberg, sem verið hefur í fremstu röð í spjótkasti kvenna, féll á lyíjaprófi, sem framkvæmt var eftir B-keppni Evrópuþjóða í fijálsum íþróttum í Strassbourg í síðasta mánuði. Að sögn Alþjóða fijálsíþróttasambandsins fundust merki um anabólíska stera í þvagprufu hennar. Solberg, sem er aðeins 23 ára, hefur verið í miklu uppáhaldi hjá frændum okkar Norðmönnum og því koma fréttimar eins og reiðarslag yfir þá og skyggðu þær meira að segja á þingkosningar þar í landi, sem fara fram í næstu viku. Mál þetta er einnig mikið áfall fyrir norsku íþróttahreyfinguna en Norðmenn hafá verið í fara- broddi í baráttunni gegn ólöglegri lyfjanotkun og verið með strangari lyfjapróf en gengur og gerist. Solberg fer sjálfkrafa í tveggja ára keppnisbann. Ekki er ljóst hvort hún áfrýjar málinu. Hún sagði þó í viðtali við norskt blað, að sennilega hefðu hormón- ar í getnaðarvarnapillu orsakað þessa niðurstöðu. Forráðamenn norskra íþróttamála virðast hins vegar svartsýnir á að banninu verði hnekkt. KORFUBOLTI Þjalfari Þors látinn fara Þórsarar hafa ákveðið að losa sig við þjálfara sinn, Bandaríkjamanninn Brian Hagwood, og eru nú að leita að öðrum í hans stað. Að sögn Kjartans Braga- sonar, formanns körfuknattleiksdeildar Þórs, upp- fyllti Hagwood ekki þær kröfur sem gerðar voru til hans, hvorki sem leikmanns né þjáifara. Eftir æfingaleik gegn Tindastóli, sem Þór tapaði með miklum mun, komu leikmenn Þórsliðsins saman og þar var samstaða um að láta Hagwood fara. Hann var hér á reynslutíma og enginn samningur hafði verið gerður við hann. Þórsarar þurfa nú að hafa snör handtök við að útvega sér annan þjálf- ara, því að nú styttist í að keppni í úrvalsdeildinni he§ist. KORFUKNATTLEIKUR Bow með KR í Evrópukeppninni Jonathan Bow, bandaríski leikmaðurinn í liði Hauka mun leika með KR-ingum í Evrópukeppni félagsliða í körfuknattleik. Leyfilegt er að nota tvo erlenda leikmenn í Evrópukeppni og munu, KR-ingar því nota Bow og sovéska leikmanninn Anatolí Kovtoum sem leikur mun leika með KR-ingum í vetur. Ekki hefur enn verið dregið í, Evróþukeppninni en þijú íslensk lið verða með í vetur: KR, ÍBK Evrópukeppni meistaraliða og Njarðvík í keppni bik arhafa. Þess má geta að KR-ingar hafa komist að sam komulagi við forráðamenn íþróttahússins á Seltjam arnesi og munu leika heimaleik sinn í Evrópukeppn inni þar og einnig leiki sína í úrvalsdeildinni í vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.