Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLADIÐ IÞROTTIR ÞRÍÐJUDÁGÚR 5. SÉPtÉMBBR Í989
Óvænt
tap Víðis
Völsungurog Ein-
herji halda ívonina
Einheijamenn beijast hatramm-
lega við falldrauginn og á laug-
ardaginn tókst þeim að koma á
hann höggi er þeir sigruðu Víði 3:2
■£■■■■ á Vopnafirði. Fall-
Frá Birni draugurinn hefur
Björnssyniá samt ekki yfirgefið
Vopnafirði. Hðið því það þarf
helst að vinna báða
leikina sem eftir eru, gegn ÍBV og
Leiftri, eigi liðið að halda sér í deild-
inni.
Leikurinn byijaði vægast sagt
illa fyrir Einheija því strax á 4.
mínútu skoraði Björn Ingimarsson
fyrir Víði. Þrándur Sigurðsson jafn-
aði leikinn svo fyrir Einheija á 25.
mínútu, og brögguðust heimamenn
töluvert við markið.
í síðari hálfleik voru Eir.heijar
ákveðnari og sóttu mun meira. Það
var samt ekki fyrr en á 70. mínútu
sem Njáli Eiðssyni tókst að koma
þeim yfir, en Adam var ekki lengi
í Paradís því Daníel Einarsson jafn-
aði fimm mínútum síðar fyrir Víðis-
menn. Sigurmark Einheija kom svo
þegar 5 mínútur voru eftir af leikn-
um, en þá var það Hallgrímur Guð-
mundsson sem tryggði heimaliðinu
öll stigin.
Tilþrifalítið á Selfossi
Leikur Selfoss og Breiðabliks á
Selfossi hafði ekki mikla þýð-
ingu fyrir liðin. Hvorugt liðið berst
um toppsæti og ekki þarf að óttast
að þau falli í 3. deild. Leikurinn var
því aldrei tilþrifamikill, og lék veð-
rið stórt hlutverk á vellinum, en
eins og víðast hvar sunnanlands var
rigning og rok.
Eina mark leiksins skoraði Gylfi
Siguijónsson í fyrri hálfleik fyrir
Selfyssinga og þar með skaust liðið
upp í 4. sæti deildarinnar.
Völsungar voru sprækari
Völsungar halda enn i vonina um
að haida sér í 2. deild eins og Ein-
heijamenn, eftir nauman sigur
gegn Leiftri. Það voru samt Ólafs-
firðingar sem sóttu meira til að
byija með og áttu þá meðal annars
skot í þverslána.
Völsungar mættu mun ákveðnari
til leiks í síðari hálfleik, og voru
sæmilega sprækir í sóknaraðgerð-
um sínum. Sigurmarkið kom samt
ekki fyi-r en rétt undir leikslokin,
og þá eftir mjög góða samvinnu
ungu mannanna í liðinu; Jónasar
Garðarssonar, Þórs Stefánssonar
og Ásmundar Arnarssonar, en það
var sá síðast nefndi sem batt enda-
hnútinn á sóknina.
Enda-
spretturinn
, ' Morgunbtaðið/RAX
Bergur Ágústsson var sérstaklega sóttur til Tromsö í Noregi fyrir leik ÍBV og Stjörnunnar, og hann þakkaði fyrir
sig með því að skora fyrsta mark leiksins. Hér stekkur hann hærra en Égill Einarsson, Stjörnunni, og vinnur skallaeinvígi.
Eyjamenn sóttu gull
í greipar Stjörnunnar
- eru komnir í annað sæti eftir tap Víðis gegn Einherja
EYJAMEIMN höfðu sannarlega
ástæðu til að fagna að leik
loknum í Garðabæ á laugar-
daginn. Þeir höfðu borið sigur-
orð af efsta liði deildarinnar,
Stjörnunni, auk þess sem
helstu keppinautar þeirra um
sæti í 1. deild, Vfðismenn, töp-
uðu leik sínum gegn Einherja
á Vopnafirði. Við þessi úrslit
vænkaðist hagur ÍBV til mikilla
muna, því þegar tvær umferðir
eru eftir hefur liðið eins stigs
forskot á Vfði, en þveröfug úr-
slit leikjanna hefðu gert það
að verkum, að hið ágæta lið
Eyjamanna hefði getað sagt
skilið við alla drauma um sæti
f 1. deild að ári.
Vestmannaeyingar léku undan
sterkum vindi í fyrri hálfleik,
og sóttu mun meira til að byija
með. Fyrsta markið kom svo á 14.
mínútu eftir horn-
Kristinnlens sjayrnu. Bergur
Sigurþórsson Agústsson, sem
skrifar. kom alveg sérstak-
lega í þennan leik
alla leið frá Tromsö í Noregi, skor-
aði þá af stuttu færi. Tíu mínútum
síðar var hinn ungi og efnilegi Sig-
urður Gylfason í dauðafæri eftir
frábæra sókn ÍBV, en skot hans fór
yfir.
Eftir þetta sóttu Stjörnumenn í
sig veðrið og tóku leikinn að mestu
í sínar hendur. Fengu þeir nokkur
ágæt marktækifæri, sem ekki tókst
að nýta. Það voru hins vegar Eyja-
menn sem bættu öðru marki við á
43. mínútu. Gerðist það eftir ein-
kennilegan dóm Ólafs Lárussonar,
en hann dæmdi óbeina aukaspyrnu
á Jón Otta, markvörð Stjörnunnar,
inni í vítateig. Það var svo Hlynur
Stefánsson sem lét skotið ríða af,
og í netið fór boltinn eftir að hafa
breytt um stefnu af einum leik-
manni Stjörnunnar.
Stjörnumenn sóttu svo nær lát-
laust allan síðari hálfleik, og á 57.
mínútu minnkaði Árni Sveinsson
muninn með alveg sérlega glæsi-
legu marki. Tók hann knöttinn við-
stöðulaust á lofti fyrir utan víta-
teig, og þaðan fór knötturinn rak-
leitt undir þverslána.
Eyjamenn pökkuðu í vörn, stað-
ránir í að halda fengnum hlut, og
þrátt fyrir upplögð tækifæri Stjörn-
unnar, tókst þeim að halda hreinu
það sem eftir var.
Sigur sinn í leiknum innsigluðu
þeir svo á 77. mínútu eftir skyndi-
sókn, þar sem Hlynur Birgisson lék
aðalhlutverkið, og Leifur Geir Haf-
steinsson átti síðasta orðið.
íþrmr
FOLK
■ ÞÓRIR Áskelsson kom í fyrsta
sinn við sögu í 1. deild er hann
kom inná í leik Vals og Þórs að
Hlíðarenda á laugardaginn. Þórir
er bróðir Halldórs Áskelssonar í
Valsliðinu, og eins og stóri bróðir
hefur hann feril sinn með Þór.
■ ALVEG nákvæmlega sömu
leikmenn gerðu mörkin í leik Fram
og KR um helgina og í bikarúrslita-
leiknum fyrir rúmri viku. Pétur
Pétursson gerði bæði mörk KR í
þessum leikjum með skalla, en
Guðmundur Steinsson og Pétur
Ormslev létu sér hins vegar nægja
að sparka í boltann með fótunum.
■ MÖRK Valsmanna gegn Þór
skoruðu þeir Magni Blöndal Pét-
ursson, Gunnlaugur Einarsson
og Steinar Adolfsson, og eru þetta
fyrstu mörk þeirra í sumar í 1.
deild. Alls voru 19 mörk skoruð í
deildinni um helgina.
H DUMITRU Dumitru, aðstoðar-
þjálfari rúmenska liðsins Steua
Bukarest, var staddur á leik Fram
og KR á sunnudaginn. Var hann
kominn til að fylgjast með væntan-
legum mótheijum Steua í Evrópu-
keppni meistaraliða, en Framar-
ar drógust gegn þeim. Eftir leikinn
sagði hann að Framliðið hefði ver-
ið sterkari aðilinn í leiknum og átt
sigurinn skilið. Fannst honum að
þeir hefðu mátt pressa meira í leikn-
um, því vörn KR-inga hefði ekki
verið sannfærandi.
■ DUMITRU hafði meðferðis
upptökur af leik Steua Búkarest
frá síðasta keppnistímabili, en í
farteski hans á heimleiðinni verður
að finna upptökur af tveimur leikj-
um Fram í sumar; bikarúrslita-
leiknum gegn KR' og leiknum á
sunnudag.
■ FRAMARAR leika fyrri leikinn
gegn Steua í Rúmeníu miðviku-
daginn 13. september. Til baka
komast þeir ekki fyrr en um hádegi
á föstudag, en daginn eftir mæta
þeir svo Víkingum í siðustu umferð
Islandsmótsins. Síðari viðureignin
gegn Steua verður svo á Laugar-
dalsvellinum 27. september.
■ BELGAR og Hollendingar
munu líklega sækja í sameiningu
um Evrópukeppnina í knattspyrnu
1996. Þjóðirnar munu leggja fram
umsókn á næsta ári en nú eru unn-
ið að því að fínpússa tillöguna.
■ BANDARÍSKA fyrirtækið
PING, sem framleiðir golfvörur,
hefur ákveðið að höfða mál gegn
bandaríska golfsambandinu,
USGA. Fyrirtækið mun krefjast
100 milljón dollara, afiétti golfsam-
bandið ekki banni sem það hefur
sett á kylfur sem PING framleiðir.
Sambandið hefur þegar bannað eina
kylfu, PING EYE2 og segir af lítið
bil á milli rákanna. Fleiri kylfur
munu bætast við bannlistann fyrir
næsta keppnistímabil. Þessar kylfur
eru sérstaklega lagaðar og auka
bakspuna boltans og gera þannig
að verkum að hann stöðvast fyrr
þegar slegið er inná flöt. Margir
snjallir kylfingar nota þessa kylfu,
s.s. Mark Calcavecchi sem sigraði
á opna breska meistaramótinu.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
BARÁTTAN um sæti í 1.
deild að ári fer harðnandi
eftir úrslit helgarinnar, því
með sigri ÍBV gegn Stjörn-
unni er liðið komið einu
stigi upp fyrir Víði, sem
virðist vera áð missa flugið.
17. umferð:
Tindastóll—Selfoss
ÍR—Völsungur
Leiftur—Stjaman
ÍBV—Einheiji
Viðir—Breiðablik
18. umferð:
Selfoss-Víðir
Völsungur—Tindastðll •
Stjaman—lR
Einheiji—Leiftur
Breiðablik—iBV
KNATTSPYRNA / U-21 ÁRS
Ólafur með 21 árs liðinu
Guðni Kjartansson, þjálfari
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu - skipað leikmönnum 21
árs og yngri, hefur valið 16 leik-
menn til að leika gegn Finnum í
Evrópukeppninni. Leikurinn fer
fram á Akureyri kl. 18.30 íkvöld.
Eftirtaldir leikmenn voru valdir:
Markverðir:
Óiafur Gottskálksson, ÍA og Adóif
Óskarsson, ÍBV.
Aðrir leikmenn:
Einar Páll Tómasson, Val, Steinar
Adólfsson, Val, Eyjólfur Sverrisson, Tinda-
stóli,1 Alexander Högnason, íA, Haraldur
Ingólfsson, ÍA, Kjartan Einarsson, ÍBK,
Baldur Bjarnason, Fylki, Þórhallur Víkings-
son, FH, Ólafur Kristjánsson, FH, Þorsteinn
Halldórsson, KR, Heimir Guðjónsson, KR,
Jóhann Lapas, KR, Ólafur Þórðarson, Brann
og Kristinn R. Jónsson, Fram.
Olafur Þórðarson, sem tekur út
leikbann í HM leik Islands og Aust-
ur-Þýskalands 6. september, og
Kristinn R. Jónsson verða eldri leik-
menn liðsins.
Þetta verður 4. leikur íslenska
liðsins í keppninni. Liðið gerði jafn-
tefli, 1:1, við Hollendinga og Vest-
ur-Þjóðverja, en tapaði fyrir Finn-
um á útivelli, 2:1.
Heiðursgestur á leiknum verður
Sigfús Jónsson, Bæjarstóri Akur-
eyrarbæjar.
Staðan
V-Þýskaland 4 3 1 0 7:1 7
Finnland 3 1 1 1 3:5 3
ísland 3 0 2 1 3:4 2
Holland 4 0 2 2 2:5 2
Ólafur Þórðarson.