Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 3
B 3 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞREJUDAGUR 5, SEPTEMBER 1989 --------_-----------------------------~r-r--------------- KNATTSPYRNA / HM-KEPPNIN || HANDKNATTLEIKUR / U-21 ÁRS „Ætlum að hef na ófar- anna“ - segir Bjarni Sig- urðsson, landsliðs- markvörður „VIÐ erum ekki búnir að gleyma síðustu viðureign okkar gegn Austur-Þjóðverjum á Laugardalsvellinum. Við erum staðráðnir í að hefna ófaranna," sagði Bjarni Sig- urðsson, landsliðsmarkvörður, sem mátti hirða knöttinn sex sinnum, 0:6, úr nétinu hjá sér í leik gegn A-Þýskalandi í Evr- ópukeppni landsliða 1987. að verður ekkert gefið eftir og eins og áður munum við leika til sigurs. Það er ekki endalaust hægt að sætta sig við jafntefli. Við höfum beðið lengi eftir sigurleik í undankeppni heimsmeistarakeppn- innar,“ sagði Bjarni Sigurðsson. Gunnar Oddsson úr KR var kall- Bjarni Sigurðsson aður til liðs við landsliðið á sunnu- daginn, eftir að landsliðsnefnd KSÍ hafði árangurslaust reynt að- ná í Sigurð í London. Landsliðsnefndar- menn fengu aftur á móti þær frétt- ir að Sigurður hafi hringt í mann á Akranesi á sunnudaginn og sagt honum að hann væri ekki búinn að gera þáð upp við sig hvort að hann kæmi í landsleikinn og myndi hafa samband við landsliðsnefndina á mánudaginn. í gær hafði Sigurður ekki haft samband við landsliðs- nefndarmennina. Landsleikurinn gegn A-Þjóðveij- um hefst kl. 18 á morgun. Strákamir burstuðu Bandaríkjamenn Hilmarhefurvalið HM liðið að undanskildum markvörðum Islenska landsliðið, skipað leik- mönnum 21 árs og yngri, sigraði Bandaríkin, 30:21, í æfingaleik á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. Is- lenska liðið hafði mikla yfirburði strax frá upphafi og komst fljótlega í 10:3 og aldrei spurning eftir það. Markahæstir voru: Héðinn Gils- son 4, Konráð Olavson 4, Sigurður Sveinsson 4, Finnur Jóhannsson 3, Þorsteinn Guðjónsson 3 og Júlíus Gunnarsson 3. Hilmar Bjömsson, þjálfari liðs- ins, valdi í gær útileikmennina sem komá til með að leika í lokakeppni HM á Spáni sem hefst 14. septemb- er. Hilmar treysti sér ekki til að velja markverðina þrjá, en mun til- kynna val þeirra eftir leikinn gegn Bandaríkjamönnum í kvöld. Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir: Héðinn Gilsson, FH, Páll Ólafsson, KR, Þorsteinn Guðjóns- KNATTSPYRNA / Héðinn Gilsson . DEILD son, KR, Konráð Olavson, KR, Sig- urður Sveinsson, KR.Árni Friðleifs- son, Víkingi, Hilmar Hjaltason, Stjörnunni, Sigurður Bjarnason, Stjörnunni, Halldór Ingólfsson, Gróttu, Davíð Gíslason, Gróttu, Jú- líus Gunnarsson, Val, Finnur Jó- hannsson, Val og Einar Gunnar Sigurðsson, Selfossi. Fimm mark- verðir hafa æft með liðinu þeir em: Bergsveinn Bergsveinsson, FH, Páll Guðnason, Val, Sigtryggur Albertsson, Gróttu, Leifur Dagf- innsson, KR og Bjarni Frostason, HK. Þrír þeirra verða valdir eftir leikinn í kvöld. Liðið heldur utan á mánudag, en fyrsti leikurinn verður gegn Vest- ur-Þjóðveijum 14. september. ís- land er í riðli með V-Þýskalandi, Spáni og Tékkóslóvakíu. Þijú efstu liðin í riðlinum komst áfram í milli- riðil. FRJALSIÞROTTIR Afsökunarbeiðni VEGIMA umræðu ífjölmiðlum að undanförnu skal eftirfar- andi tekið fram: 1. Ásakanir mínar varðandi astmalyQatöku Kristjáns Skúla Ásgeirssonar vom byggðar á mis- skilningi og því alrangar. Ég harma þau óþægindi sem þetta kann að hafa valdið honum og bið hann því hér með afsökunar. Það var aldrei ætlunin að draga hann persónulega inn í þessi mál með þeim hætti sem svo varð. Það er bæði rétt og skylt að hafa það sem sannara reynist. Haraldur Magnússon, formaður fijáls- íþróttadeildar FH. Grindvíkingar í Grindvíkingar tryggðu sér sæti í 2. deild í fyrsta sinn um helg- ina er þeir sigmðu Hveragerði 3:0 í Grindavík. Grindvíkingar fengu jafn mörg stig og IK Frá Frímanni en sigra í riðlinum á Ólafssynií hagstæðari marka- Grindavik Leikuijnn var sögulegur því rok og rigning gerðu leikmönnum lífið leitt. Réyndar var gert klukkustundar hlé í hálfleik meðan beðið var-eftir að veðrinu slotaði og stóð jafnvel til að flauta leikinn af þegar mest gekk á. Grindvíkingar höfðu nokkra yfir- burði í leiknum og voru yfir, 2:0 í leikhléi með mörkum Hjálmars Hallgrímssonar og Guðlaugs Jóns- sonar. Þórarinn Olafsson bætti svo þriðja markinu við skömmu fyrir leikslok. „Góð liðsheild og samhettíni leik- manna var það sem kom okkur KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ „Skytturnar þijár“ úti í kuldanum MARGIR spyrja þessa dag- ana hvers vegna þrír leik- menn, sem sýnt hafa frábæra leiki á íslandsmótinu í knatt- spyrnu undanfarið, eru ekki í landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Austur-Þjóðverjum á morgun. Það eru þeir Pétur Pétursson, Pétur Ormslev og Þorvaldur Örlygsson, sem eru lykilmenn með liðum sínum. Þeireiga það sam- merkt að hafa ekki gefið kost á sér í ákveðna leiki með landsliðinu og eftir það hafa þeir ekki átt upp á pallborðið hjá Siegfried Held landsliðs- þjálfara. Það má því segja að „skytturnar þrjár“ séu út í kuldanum. Pétur Ormslev Pétur Pétursson Pétur Onnslev gaf ekki kost á sér gegn Austurrikismönnum og Tyrkjum fyrir ári og hefur ekki fengið tækifæri síðan, þrátt fyrir góða frammistöðu með Fram að undanfórnu. Pétur Pétursson gaf ekki kost á sér í æfingaleik gegn Englend- ingum í vot- og tilkynnti KSÍ meiðsli á ökkla fyrir leikinn gegn Sovétmönnum í Moskvu. Eftir það hefur hann ekki verið inni í mynd- inni hjá Sigi Held, landsliðsþjálf- ara. Pétur hefur leikið mjög vel í leikjum sínum með KR að undanf- örnu og hefur sýnt að hann hefur engu gleymt síðan hann var fasta- maður í landsliðinu. Sá þriðji, Þorvaldur Örlygsson, hefur í sumar verið burðarásinn hjá KA, sem situr nú á toppi 1. deildar. Hann gaf ekki kost á sér i hópinn fyrir leikinn gegn Aust- urríki um daginn vegna þess að hann var þá að ganga frá samn- ingum við Nottingham Forest. Nú geldur hann þess dýru verði og er ekki í hópnum nú. „Hef alltaf gefið kost á mér“ Sá orðrómur hefur verið á kreiki, að Pétur Ormslev gefi ekki kost á sér í landsliðið. Pétur segir þetta hins vegar rangt. „Ég hef aldrei sagt, að ég gefi ekki kost á mér í landsleikina. En landsliðs- nefnd hefur ekki haft samband við mig til að biðja mig um að leika. Ef hún gerði það býst ég við að ég myndi gefa kost á mér en eins og ég segi Sigi Held hefur ekki séð ástæðu til að velja mig,“ sagði Pétur Ormsiev í gær. „Það er Héld sem ræður“ Þorvaldur Örlygsson bíður nú eftir að fá atvinnuleyfi með Nott- ingham Forest Hann segir að. það að hann hafi ekki verið valinn í hópinn kunni að hafa neikvæð áhrif á það mál. „Ég verð auðvit- að að sætta mig við vera ekki valina. Það er Held sem ræður. En mörgum íslenzkum knatt- spyrnumönnum finnst undarlegt hvernig staðið er að vali landsliðs- ins, því að Held hefur lítið vera hér heima í sumar,“ sagði Þor- valdur Örlygsson. „Ég er ekki nægilega góður að mati Held“ Pétur Pétursson sagði í gær- kvöldi,.að það væri greinilegt að hann væri ekki nægilega góður að mati Siegfrieds Held og hann sæi því ekki ástæði til að velja hann í landsliðið. „Held velur sitt lið og ég er ekki inn í myndinni hjá honum. Ég er alltaf tilbúinn að leika fyrir hönd íslands, svo framarlega að ég er ekki meidd- ur. Ef það er not fyrir krafta mína í landsliðinu - er ég tilbúinn ,að leika," sagði Pétur Pétursson. 2. deild áfram. Leikmenn misstu aldrei sjón- ar af markmiðinu og héldu ótrauðir áfram,“ sagði Hjálmar Hallgríms- son, fyrirliði Grindvíkinga. toóm FOLK ■ SIEGFRIED Held, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, stjórnaði ekki landsliðsinsæfingu í gærmorg- un - en aftur á móti var hann mættur í gærkvöldi. Held stjórnaði Galatasaray í 1. deildarkeppninni í Tyrklandi á sunnudaginn og mátti liðið þola tap, 0:1, á útivelli gegn Samsunspor. ■ GUNNAR Gíslason og Ágúst Már Jónsson komu til leiks um leið og Held. I VIÐAR Þorkelsson á við • smávægileg meiðsli að stríða og var hann ekki með á æfingu í gær- kvöldi. ■ HELD mun ekki stjórna lands- liðinu gegn Tyrklandi á Laugar- dalsvellinum. Guðni Kjartansson mun stjórna landsliðinu í leiknum gegn Tyrkjum. Guðni hefur stjórn- að landsliðinu í tveimur leikjum gegn Tyrkjum og hafa þeir báðið unnist - 3:1 og 2:0. ■ A-ÞÝSKA landsliðið kemur til landsins í dag með leiguflugvél frá Austur-Berlín. Með vélinni kemur einnig handknattleikslands- lið A-Þýskalands, sem leikur hér tvo landsleiki - á Akureyri annað kvöld og í Garðabæ á fimmtudags- kvöldið. ■ GAETANO Scirea, sem var í heimsmeistaraliði ítala í knatt- spyrnu 1982 og lék 78 landsleiki, fórst í bílslysi í Póllaiidi á sunnu- dag, 36 ára að aldri. Á ferli sínum vann hann næstum því alla helztu titla, sem hægt er að vinna með félagi sínu Juventus og landsliðinu. Undir það síðasta starfaði hann sem aðstoðarþjálfari hjá Juventus og var í Póllandi í þeim erindagjörðum að kíkja á andstæðinga félagsins í Evrópukeppninni. ■ DIEGO Maradona er nú loks- ins kominn til Napólí. Um tvö hundruð manns fögnuðu honum við komuna en kappinn t'orðaðist að ræða við blaðamenn. Áður hafði hann lýst þvi yfir að hann ætlaði að henda samningi sínum í andlitið á forseta Napóli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.