Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Antony Karl af-
greiddi Árbæinga
Skoraði bæði mörk KA gegn Fylki á Akureyri
Antony Karl Gregory færði
KA-menn skrefi nær sögulegu
marki, þ.e. íslandsmeistaratitl-
inum, þegar hann skoraði bæði
mörk Akureyrarliðsins í 2:1
sigri gegn Fylki á laugardaginn.
Þessi bráðsnjalli leikmaður, er
ekki þótti geta komið Valsliðinu
að gagni fyrir tveimur árum,
hefur leikið firnavel með KA
undanfarin tvö sumur. Saman
fara afburða knattleikni,
snerpa og einstök hæfni til að
lesa leikinn. Hann ásamt sínum
gamla félaga úr Val, Jóni Grét-
ari Jónssyni, myndar eitthvert
öflugasta sóknarpar deildar-
innar. Að sönnu er lið KA meira
en Antony Karl; liðið hefur á
að skipa vel spilandi og dug-
miklum leikmönnum.
Leikurinn fór fjörlega af stað.
Heimamenn fóru mikinn, og
eftir einungis tveggja mínútna leik
■■IhhhhhI
Antony Karl Gregory gerði tvö
mörk gegn Fylki.
lá knötturinn í Fylkismarkinu. Að-
dragandinn var hinn
Magnús Már snotrasti. Knöttur-
Þorvaldsson jnn gekk frá manni
skrifarfrá til manns að vítateig
Akureyn Fylkis og Antony
Karl afgreiddi fasta fyrirgjöf Orm-
arrs Örlygssoanr af öryggi í mark
andstæðinganna.
Markið varð til að draga eitthvað
úr sóknargleði KA-manna. Fylkis-
menn komust meira inn í leikinn
og áttu sín færi og svo fór að á
57. míútu jafnaði Kristinn Tómas-
son, eftir að KA-vörnin hafði opn-
ast_ illilega.
Asýnd leiksins breyttist við jöfn-
unarmarkið, því KA-menn sáu að
við svo búið mátti eigi standa og
hver sókn þeirra rak nú aðra. Það
var svo eftir fimm stífar sóknarlot-
ur, sem hið langþráða sigurmark
kom. Maðurinn á bak við það, var
Þorvaldur Örlygsson. Með krafti
sínum og leikni, hjó hann skarð í
þéttan varnarmúr Fylkis, og á víta-
teigslínu tók Antony Karl við knett-
inum, og aðþrengdur skoraði hann
fallegt mark.
Að vinna leik án þess að sýna
nokkra snilidartakta, þar sem miðj-
an brást, er laglega af sér vikið,
og vonir um íslandsmeistaratitilinn
eru nú meiri en nokkru sinni áður.
Lið Fylkis er samkvæmt frammi-
stöðunni j þessum leik, betra en
staða þess í deildinni gefur til kynna
og það sýndi á köflum stórgóðan
samleik.
KA—Fylkir 2 : 1
Akureyrarvöllur, íslandsmótið, 1. deild, laugardaginn 2. september 1989.
Mörk KA: Antony Karl Gregory (2. og 75.).
Mark Fylkis: Kristinn Tómasson (57.).
Gul spjöld: Halldór Halldórsson, KA. Baldvjn Baldvinsson, Fylki.
Dómari: Óli Olsen var frekar slakur.
Áhorfendur: 1080.
Lið KA: Haukur Bragason, Halldór Halldórsson, Erlingur Kristjánsson, Gauti Laxdal,
Ormarr Örlygsson, Steingrímur Birgisson, Jón Kristjánsson (Örn Viðar Amarson 70.),
Þorvaldur Örlygsson, Bjami Jónsson, Atnony Karl Gregory, Jón Grétar Jónsson.
Lið Fylkis: Guðmundur Baldursson, Pétur Oskarsson, Gústaf Vífilsson, Gísli Hjálmtýs-
son, Anton K. Jakobsson, Hilmar Sighvatsson, Finnur Kolbeinsson (Valur Ragnarsson
80.), Öm Valdimarsson, Þórhallur Jóhannsson (Guðmundur Magnússon 80.), Kristinn
Tómasson, Baldvin Bjamason.
Pétur Pétursson sækir að Þorsteini Þorsteinssyni. Þorsteinn var eini leikmað-
urinn á vellinum sem lék ekki með í bikarúrslitaleiknum viku áður.
Enda-
sprett-
urinn
TVÆR umferðir eru eftir
af íslandsmótinu og hefur
spennan sjaldan verið meiri.
Þijú lið eiga mesta mögu-
leika á íslandsmeistaratitl-
inum; KA, FH og Fram, og
önnur þrjú lið; Fylkir, IBK
og Þór, eru í bullandi fall-
hættu. KR-ingar eiga enn-
þá fræðilega möguleika á
að hreppa titiiinn, en Valur
og ÍA sigla alveg lygnan
sjó. Það sama verður hins
vegar ekki sagt um
Víkinga, því falldraugurinn
getur þá og þegar ákveðið
að snúa sér að þeim.
Það er athyglisvert að í
síðustu umferðinni mætast
efstu liðin og þau neðstu,
þannig að baráttan verður
án efa hatrömm fram á
lokamínútur íslandsmóts-
ins.
17. umferð:
KA-Valur
ÍA—Fram
KR-Þór A
Fylkir—ÍBK
Víkingur—FH
18umferð:
Valur-KR
ÍBK-KA
FH—Fylkir
Fram—Víkingur
Þór A—ÍA
Sæt hefnd fyrir bikaríeikinn
- sagði Hörður Magnússon, sem gerði tvö mörk þegar FH-ingar sigruðu Skagamenn
VAR einhver að tala um að
FH-liðið væri loftbóla? Það er
ekki réttnefni. Með 3:2 sigri
gegn Skagamönnum um helg-
ina sýndu FH-ingar og sönn-
uðu, að þeir eiga skilið að vera
í toppbaráttunni. Þeir hafa til
að bera þann sigurvilja, sem
kann að ráða úrslitum þegar
upp er staðið.
Mesta furða var hversu vel leik-
mönnum gekk að spila í rok-
inu og rigningunni á Kaplakrika-
velli á laugardaginn. FH-ingar voru
mun beittari í
Guðmundur sóknaraðgerðum
Jóhannsson sínum í fyrri hálfleik
skrifar 0g 0ft var skaga-
vörnin ekki með á
nótunum. FH-ingar áttu fjölda
góðra færa en létu sér nægja að
gera tvö mörk. Hið fyrra gerði
Hörður Magnússon eftir skyndisókn
snemma í leiknum. Hann lék þá
Guðbjörn Tryggvason grátt og
renndi boltanum í markið framhjá
Ólafi Gottskálkssyni. Síðara markið
gerði Pálmi Jónsson af stuttu færi
eftir aukaspymu utan af kanti.
Eftir afleitan fyrri hálfleik blésu
Skagamenn nýju lífi í sóknina í
síðari hálfeik og Guðbjörn og Sigur-
steinn Gíslason færðu sig framar á
völlinn. Það bar árangur, því að
þeim tókst fljótlega að jafna með
mörkum úr tveimur upphlaupum.
Hið fyrra gerði Guðbjörn Tryggva-
son með lausu skoti, sem Halldór
Halldórsson hefði átt að verja og
hið síðara gerði Bjarki Pétursson
með góðu skoti í bláhornið.
Skyndilega var því komin óvænt
spenna í leikinn og áttu bæði lið
ágæt færi eftir þetta. FH-ingar
voru þó ívið sterkari en náðu ekki
..Júlíus Pétur
ná boltanum en
Morgunblaöiö/tíjarm
Hörður Magnússon gerir fyrra mark sitt. Hann á skot úr þröngu færi, umkringdur varnarmönnum íA...
að skora fyrr en dæmd var
umdeild vítaspyrna á Sigurð
B. Jónsson fyrir brot á Herði
Magnússyni. Úr henni skoraði
Hörður sigurmarkið.
„Sæt hefnd“
„Við hefðum átt að vera 3-4
mörkum yfir í hálfleik. Þetta
er einhver bezti fyrri hálfleik-
ur, sem við höfum spilað í
sumar. í seinni hálfleik hleypt-
um við þeim inn í leikinn það
hafðist að lokum. Sigurinn
sýnir, að það er engin tilviljun,
að við erum svo ofarlega. Þetta
var líka sæt hefnd fvrir bikar-
leikinn," sagði Hörður Magn-
ússon, FH, eftir leikinn.
Með sigrinum náðu Hafn-
firðingar náðu að hefna fyrir
rassskellinguna, sem þeir
fengu í 16-liða úrslitum bikar-
keppninnar. Þá burstuðu
Skagamenn þá 6:1.
„Leikaraskapur“
Hörður sagðist aðeins hafa
það að segja um vítaspyrnu-
dóminn, að þegar dómarinn
dæmdi vítij þá væri víti. Sig-
urður B. Jonsson, Skagamað-
ur, var hins vegar á öðru
máli.„Ég er mjög óhress með
að að vítið, sem dæmt var á
mig. Hann snýr sér með bolt-
ann og keyrir inn í mig. Síðan
kastar hann sér niður. Svona
leikaraskapur platar oft dóm-
ararna en Hörður er af þekkt-
um leikaraættum," sagði Sig-
urður B. Jónsson og glotti.