Morgunblaðið - 22.09.1989, Page 1
Nýtt
líf
Sjónvarpið sýnir á miðviku-
dag Nýtt líf, eina af þekktari
gamanmyndum íslenskum
er framleiddar hafa verið
hérlendis á yfirstandandi
áratug. Nýtt líf er verk þeirra
Jóns Hermannssonar og
Þráins Bertelssonar, en hinn
síðarnefndi var í senn höf-
undar handrits og leikstjóri.
Nýtt líf rekur sögu tveggja
pörupilta er halda út í Eyjar
í atvinnuleit. Er í fiskvinnuna
kemur, taka þeir félagar upp
á því að villa á sér heimildir
og segja verkstjóranum að
þeir séu útsendarar Sjávar-
útvegsráðuneytisins. Til-
heyrandi misskilningur og
uþþákomur fylgja síðan í
kjölfarið, eins og vera ber.
Þá fara „erindrekar ráðu-
neytisins" heldur ekki var-
hluta af skemmtanalífi úti í
Eyjum. Nytt líf var framleidd
árið 1983. Aðalhlutverk
leika Eggert Þorleifsson og
Karl Ágúst Úlfsson.
VIKUNA 23. - - 29. SEPTEMBER
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989 BLAÐ
Poirot og Dalgfiesh
Tveir kunnir sakamálasérfræðingarverða á skjánum í þessari viku, hvor á sinni sjónvarpsstöðinni
og um margt óíkir. Stöð 2 sýnir á sunnudag þátt með einni frægustu skáldsagnapersónu glæpasagn-
anna; belgíska einkaspæjaranum Hercule Poirot. Hann leysti hvert málið á fætur öðru í bókum
Agöthu Christie og hafa verið gerðar um hann kvikmyndir og sjónvarpsþættir. Stöð 2 sýndi um
páskana þreskan þátt um Poirot og nú er þúið að framleiða níu þætti til viðbótar og verða þeir sýndir
á sunnudagskvöldum næstu vikurnar. Fyrsti þátturinn er í kvöld og segir hann frá dularfullu láti
ungrar stúlku sem lögregluyfirvöld telja sjálfsvíg, en Poirot erá öðru máli... Hercule Poirot er leikinn
af David Suchet, en aðstoðarmann Poirots, Hastings, leikur Hugh Fraser.
Sjónvarpið sýnir þætti um lögregluforingjann Aðam Dalgliesh sem er hugarfóstur annarrar konu sem
sérhæft hefursig íglæþasögum, P.D. James. Hún hefurskrifað 11 metsölubækur
víða um heim og flestarfjalla þær um
Dalgliesh lögregluforingja. í þáttaröðinni
sem hefst á þriðjudag er Dalgliesh, sem
Roy Marsden leikur, kallaðurtil vegna hót-
unarbréfa sem ráðherra hafa borist. Rétt
| í þá mund sem hann er að hefja rannsókn
sína finnast tvö lík í kirkju skammt frá.
Dalgliesh sér strax að það eru
tengsl á milli, en fleiri eiga
eftir að falla í valinn áður en
málið er upplýst, en alls eru
þættirnirsex.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Utvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-6
Myndbönd bls. 6
Bíóin í borginni bls. 7
Visælustu tnyndböndin bls. 8