Morgunblaðið - 26.09.1989, Page 1

Morgunblaðið - 26.09.1989, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA SPJOTKAST Hættir Einar? Einar Vilhjálmsson, spjótkastarinn snjalli, er ekki ánægður með spjótið sem hafur komið frá Ungveijalandi. Telur það ólögleg og nálgist að vera eins og spjótið sem var bannað fyrir þremur árum. „Þetta er sorgarsaga," sagir Einar í viðtali við Morgunblaðið. „Þriggja ára æfingar mínar eru í hættu. Það verður að beijast gegn þessu spjóti með kjafti og klóm,“ segir Einar, sem er að hugsa um að hætta að keppa í ef ólöglegt spjót frá Ung- veijalandi verði samþykkt. Einar hótaði að hætta við að keppa í Tókýó á dögunum, ef keppt yrði með spjótinu þar. ■ Sjá / B2 KNATTSPYRNA Jóhannes Atlason. Jóhannes áfram með Stjörnuna JÓHANNES Atlason verður áfram þjálfari Stjörnunnar. Undir stjórn Jóhannesar náði Stjarnan að tryggja sér sæti f 1. deild og er mikill hugur í herbúðum Stjörnumanna. Okkar bíður skemmtilegt verk- efni,“ sagði Jóhannes, sem vissi ekki annað en allir leikmenn Stjörnunnar, sem léku með í sum- ar, yrðu áfram með næsta sumar. Jóhannes er ekki ókunnugur 1. deildarbaráttunni. Hann hefur áður þjálfað tjögur 1. deildarlið; íþrótta- bandalag Akureyrar, Fram, KA og Þór. Þá hefur hann verið landsliðs- þjálfari. Jóhannes, sem er einn reyndasti þjálfari landsins, hélt upp á 25 ára þjálfaraafmæli sitt sama kvöld og lokahátíð 1. deildarfélag- anna fór fram. Þijú 1. deildarfélög hafa gengið frá ráðningu á þjálfara. Stjarnan, Vestmannaeyjar (Sigurlás Þor- leifsson) og KR (Ian Ross). Líklegt er að Guðjón Þórðarson verði áfram með KA, Ásgeir Elíasson með Fram, Ólafúr Jóhannsson með FH, Júgóslavinn með Þór. Júrí Sedov er samningsbundinn Víkingi til 1. mars. Margir Valsmenn eru spenntir fyrir erlendum þjálfara og Hörður Helgason og George Kirby hafá verið orðaðir við ÍA. KNATTSPYRNA Hörður á förum til Brann Hörður Magnússon, marka- kóngur 1. deildar úr FH, fer til Brann í Noregi í byijun næsta mánaðar. Hann kemur til með að æfa með liðinu, en Teitur Þórðar- son, þjálfari þess, vill gera samn- ing við markakónginn. „Teitur hafði samband og bauð mér út. Það er spennandi að reyna eitt- hvað nýtt og vel kemur til greina að ég gangi til liðs við Brann,“ sagði Hörður við Morgunblaðið. FH-ingar höfnuðu sem kunn- ugt er í 2. sæti 1. deildar og tryggðu sér þátttökurétt í Evrópu- keppni í fyrsta sinn. Stjórn knatt- spymudeildar FH hefur hug á að verðlauna leikmenn og maka þeirra með því að bjóða hópnum til Hollands og er verið að reyna að koma á leik fyrir liðið 5. októ- ber. Hörður sagðist fara í um- rædda ferð, en síðan beint til Noregs. Ef Hörður gerist leikmaður með Brann verður hann fjórði FH-ingurinn sem gerist leikmaður með erlendu félagsliði. Janus Guð- laugsson lék með Fortuna Köln í V-Þýskalandi og Lugano í Sviss, Pálmi Jónsson með Vasalund í Svíþjóð og Jón Erling Ragnarsson var í herbúðum Víkings frá Sta- vangri í Noregi. KNATTSPYRNA / NOREGUR Hér rhá sjá línu- ritið í Aftenpost- en, sem var með greininni um tekjuhæstu þjálf- ara Noregs. Teifur næst launahæsti þjálfarinn TEITUR Þórðarson, þjálfari norska 1. deildar knattspyrnuliðsins Brann, er næst launahæsti þjálfarinn í Noregi samkvæmt úttekt Dagblaðsins Aftenposten. Benny Lennartsson, þjálfari knattspyrnuliðs Víkings, fær að sögn blaðsins 470.000 norskar krónur í árslaun, en Teitur kemur næstur með 450.000 nkr. (um fjórar millj. ísl. kr.). Báðir eru með frían bíl og húsnæði, en Lenn- artsson fær auk þess fríar ferðir til síns heima. Áætlað er að Teitur fái með öllu 680.000 nkr. í árslaun. George Kingston, landsliðsþjálfari í ísknattleik, er þriðji í röðinni með 400.000 nkr. í árslaun, frían bíl og fríar ferðir til Kanada. Ingvar Stadheim, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, fær 375.000 nkr. í árslaun, frían bíl, síma, húsnæði og ferðir. Teitur Þórðarson (t.h.) og Ólafur bróðir hans hafa gert góða hluti hjá Brann. Eftir að Teitur tók við liðinu hefur hann náð að byggja upp kjölfestu í leik Brann, sem var þekkt fyrir að flakka á milli deilda áður en Teitur kom til félagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.