Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIRsUNNUDAGUR S. OKTÓBER 3 li Vegna stærðar sinnar hefur Reykjavík sérstöðu í skipulagsmálum. Morgunbiaðið/Charies Egiii Hirt Rekstrarútgjöld 60 millj. kr. — Rekstrarútgjöld embættisins eru um 60 millj. kr. á ári og þar af notum við 12-15 millj. kr. í að- keypta vinnu af sjálfstætt starfandi ráðgjöfum á sviði skipulags- og kortagerðar, segir Stefán Thors.— Hér starfa 12 manns. Sigurður Thoroddsen arkitekt er aðstoðar- skipulagsstjóri og vinnur að ýmsum stjórnunarstörfum, en auk hans eru hér tveir arkitektar, sem vinna aðal- lega að eftirliti og umsjón með gerð aðalskipulags fyrir nokkur sveitar- félög. Annar þeirra er á Akureyri og sér þá um leið um rekstur skrif- stofunnar þar. Einnig starfar hér landfræðingur, sem aðstoðar við gerð svæðisskipulagsáætlana, en nú er nýlega bytjað á þremur slíkum verkefnum. Eitt þeirra er fyrir sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar og inn í Hvalfjarðarbotn, annað fyrir þrjú sveitarfélög á Þingvalla- svæðinu, en það eru Grafnings-, Grímsnes- og Þingvallahreppar. Þriðja verkefnið er svo endurskoðun á svseðisskipulagi Ölfusins, það er iyrir Ölfushrepp, Hveragerði og Selfoss. Skipulagning sumarbústaða- svæða og bygging einstakra sumar- bústaða utan skipulagðra svæða hefur orðið æ umfangsmeiri mála- flokkur á undanförnum árum vegna mikillar grósku í sumarbústaða- byggingum.— Hér starfar lands- lagsarkitekt, sem undirbýr af- greiðslu skipulagsstjórnar á öllum málum, er varða sumarbústaði, auk þess sem hann vinnur að leiðbein- ingarriti um meðferð slíkra mála, segir Stefán.— Þar fyrir utan starfa við embættið teiknarar, sem annast þær teikningar, sem þar eru gerðar og hafa umsjón með teikningasafni embættisins, sem er orðið mikið að vöxtum, en nú er verið að tölvu- væða. Þá starfar hér ennfremur skrifstofufólk, skrifstofustjóri, sem sér um bókhald og fjármál stofnun- ar og svo fulltrúi, sem sér um rit- vinnslu og uppsetningu á skýrslum. Starfsemi skipulagsins er fjár- mögnuð með skipulagsgjaldi, sem er 3 af þúsundi af brunabótamati nýbygginga. Húsbyggjendur í landinu ijármagna því stóran hluta af .starfseminni. Auk þess greiðir ríkið fjárhæð sem nemur helming innheimtra skipulagsgjalda frá því árið áður til rekstursins.— Við selj- um ennfremur út þá vinnu, sem við innum af hendi í þágu sveitarfélaga í sambandi við skipulagsáætlanir á þann hátt að þau greiða fyrir heim- ing þess tíma, sem við látum þeim í té, segir Stefán. Sem skipulagsstjóri undirbýr Stefán og situr fundi hálfs mánað- arlega með skipulagsstjórn ríkisins, sem er ráðgjafarnefnd félagsmála- ráðherra. Þar eru afgreiddar til ráðherra ýmsar skipulagstillögur og málefni, sem varða stjórn skipu- lagsmála. — Á undanförnum árum höfum við tekið upp mjög gott samstarf við náttúrverndarráð, segir Stef- án,— Við höldum fundi hálsmánað- arlega, þar sem fjallað er um mál, sem koma upp á þeim vettvangi. Á sama hátt höfum við einnig komið á samstarfi við mengunarvarna- deild Hollustuverndar ríkisins. Þar er rætt um afgreiðslu leyfa fyrir byggingu og rekstur fiskeldis- stöðva., að því er varðar fiskeldis- mál í landinu. Við höfum ennfremur komið á samstarfi við Byggðastofn- un og fáum þaðan þær tölfræðilegu upplýsingar, sem sú stofnun ræður yfir um það sem nefnt er hin hag- ræna hlið skipulagsmála. Tölvutækar upplýsingar Hjá Skipulagi ríkisins er nú unn- ið að því að koma á fót upplýsinga- þjónustu, sem að mati Stefáns á eftir að gerbylta allri skráningu og meðferð upplýsinga í skipulagsmál- um. — Hún mun leiða til þess, að hönnuðir og skipulags- og bygging- aryfirvöld geta farið að einbeita sér að skapandi störfum. Slíkt kerfi mun einnig gera alla vinnslu kynn- ingarefnis fyrir stjórnmálamenn og almenning mun auðveldari. Við þetta verkefni starfa tækni- fræðingur og landfræðingur auk þess sem sjálfstætt starfandi ráð- gjafi á þar stóran hlut að máli, en þessi upplýsingaþjónusta á að ráða í tölvutæku formi yfir sem flestum upplýsingum, sem á þarf að halda við gerð aðal- og svæðisskipulagsá- ætlana,— Þetta gerum við í sam- vinnu við Byggðastofnun, Fast- eignamat ríkisins, Landmælingar íslands og fleiri stofnanir, sem safna og geyma upplýsingar, segir Stefán,— Með þessu á að vera unnt að stytta þann tíma verulega, sem fer í upplýsingaöflun, en fram að Tvíbýlishús í Mosfellsbæ Nú stendur til að byggja glæsilegt hús með tveimur 122,1 fm sérhæðum og fylgir bílskúr báðum. Húsið afhendist fullfrágengið að utan og íbúðir fokheldar en 912 fm lóð verður grófjöfnuð. Teikningar ásamt öllum upplýsingum á skrifstofu. 28444 HÚSEIGNIR &S8ÖP Opið kl. 13-15 VELTUSUNDI 1 SIMI 28444 Daníel Amason, lögy. fast., Heigi Steingrímsson, sölustjóri. Höfum í einkasölu þriggja hæða 7 íbúða hús (tvær íbúð- ir seldar) við Suðurvang. Um er að ræða mjög skemmtil. íb. 3ja og 4ra herb. íb. skilast tilb. u. trév. Eldhús, stofa og svalir snúa í suður með útsýni yfir fjörðinn. Til afh. 1. maí nk. Verð frá 5,8 millj. Upplýsingar og teikningar á skrifstofu. Opið í dag kl. 12-15. HRAUNHAMARhf áá wáwá FASTEIGNA-OG SKIPASALA Reykjavikurvcgf 72. Hafnarfirdi. S- 54511 Sími54511 Sölumaður: Magnús Emilsson, hs. 53274. Lögmann: Guðmundur Kristjánsson hdiM Hlöðver Kjartansson hdl. / ®621600 Opið kl. 1-3 Mosbær - 2ja herb. Mjög falleg ib. á 3. hæð. Glæsil. innr. Beikiparket. Suðursvalir. Skipti á íb. m/áhv. veðdeild i austurborg Rvík. Miðbær - 2-3 herb. Skemmtil. íb. á 1. hæð í fjórbýl- ishúsi. Nýl. uppg. m.a. ný eld- húsinnr. Verð 4,0 m. Vesturbær - 3ja herb. 80 fm íb. í eftirsóttri blokk. Nýuppg. sameign. Fráb. staðs. Á'hvíl. ca. 450 þús veðdeild. Verð 5,9 millj. Njörvasund - 4ra herb. Falleg íb. í fjórbhúsi. Ný eld- hinnr. Ljós teppi. Sérherb. í forst. Bílskréttur. Áhv. 2,2 millj. Verð 5,4 millj. Langholtsv. - 4ra herb. 100 fm hæð í þríbhúsi. Hluti hæðar er undir súð. Mjög rúmg. svefnherb. Áhv. 2,2 m. veðdeild. Blöndubakki - 4ra herb. Mjög falleg og vönduð íb. á 3. hæð. Glæsil. útsýni. Nýuppg. sameign. Vesturbær - sérh. Rúmg. sérh. í þríbhúsi á eftir- sóttum stað. Suðursvalir. Bílsk. Verð 9,5 millj. Borgartún 29 40^%. Ragnar Tómasson hdl. ^^■^^Brynjar Harðarson viðskfr EHGuðrún Árnad. viðskfr. lf HUSAKAUP þessu hefur farið mestur hluti tímans við gerð skipulagsáætlana í hlaup á milli staða til að afla upplýs- inga, töluiegra gagna o. s. frv. Unnið hefur verið að undirbún- ingi þessarar upplýsingaþjónstu sl. 2-3 ár og er hann langt komin. — Stefnt er að svokölluðu kortaupp- lýsingakerfi, segir Stefán. — í - fyrstu munum við safna saman upplýsingum frá öðrum stofnunum og vinna úr þeim efni til að nota við skipulagið. Sérstaða Reykjavíkur Vegna stærðar sinnar hefur Reykjavíkurborg sérstöðu í skipu- lagsmálum. Með útkomu fyrsta aðalskipulags Reykjavíkur 1967 og unnið var af dönskum prófessor og arkitekt, Peder Bredsdorff, tók Reykjavíkurborg frumkvæðið og markaði stefnuna í skipulagsgerð á íslandi. Æ síðan hefur borgin starf- rækt stóra skipulagsstofu, nú Borg- arskipulagið, þar sem starfar fjöldi fagmanna og stór hluti þeirrar skipulagsvinnu, sem fer fram hjá borginni, er unnin. Auk þess er Reykjavíkurborg með marga ráð- gjafa á sínum snærum, sem vinna að skipulagsgerð,— Þetta breytir því þó ekki að í eðli sínu eru verk- efnin þau sömu þar og á Selfossi, Húsvík eða Patreksfirði, segir Stef- án. Ekki ósjaldan koma upp deilur, ef ekki er fylgt þeim samþykktum, sem búið er að gera samkvæmt lögum eða byggt öðru vísi en áform- að var. Þetta hefur átt sér stað bæði í Reykjavík og annars staðar. En eru þessar deilur óþarfar eða innbyggðar í kerfið eða á að kenna stjórnmálamönnunum um þær?— Þetta liggur að nokkru í því, að lög og reglugerðir hafa ekki verið nægi- lega afgerandi á þessu sviði, segir Stefán Thors,— Því hafa komið upp túlkunaratriði, sem síðan hafa leitt til deilna og ágreinings, sem ekki hefði þurft, e_f þessi ákvæði hefðu verið skýrari. í flestum löndum, sem ég þekki til, er allaf fyrir hendi viss spenna milli höfuðboi'garinnar og ríkisvaldsins. ísland er því engin undantekning. Reykjavík er svo lang stærst alira sveitarfélaga hér á landi, að það er ekkert óeðliiegt, að slík spenna komi upp hér. Hvernig hún lýsir sér í einstökum atriðum, er oft spurning um persónur og valdahlutföll og því getur þessi spenna fengið á sig margs konar myndir eftir aðstæð- um. Ég fæ ekki séð, að þetta sé kerfinu að kenna. Ég held líka, að fólk verði að átta sig á því, að sveit- arstjórnir eru ekki að fylgja lögum og reglum til að þóknast ákveðnu ráðuneyti eða valdboði. Með því að fylgja reglunum, er sveitarfélagið að sýna íbúunum virðingu sína. Þennan skilning finnst mér stund- um skorta. Með þeim breytingum, sem ég á von á, að verði gerðar á skipulag- og byggingalögum, munu þessir hlutir skýrast betur. Verka- skiptingu milli ríkis og sveitarfélaga þarf að gera afdráttarlausari, þann- ig að fækka megi ágreiningsatrið- unum. Samkvæmt drögum að nýjum skipulags- og byggingalögum skal stefnt að því, að frumkvæðið og ábyrgðin í skipulagsgerð vei'ði í auknum mæli hjá sveitarfélögunum og skýrt kveðið á um verkaskipt- ingu milli ríkis og þeirra á þessu sviði, segir Stefán Thors að lok- um.— Hugmyndin er sú er að sam- eina lögin og gera Skipulag ríkisins að Skipulags- og byggingarstofnun ríkisins. Jafnframt verður skýrar kveðið á um það, hvert hlutverk ríkisins eigi að vera og þá á sviði leiðbeininga og eftirlits fyrir sveit- arfélögin pg upplýsinga fyrir al- menning. Ég vona, að nefndin Ijúki störfum nú í vetur og frumvarp hennar sent til kynningar og síðan lagt fram á alþingi. Vonandi verður það að lögum fyrir vorið. Ég tel, að um leið og skipulag samkvæmt skipulagslögum sé fyrst og fremst stjórntæki sveitarstjórna, þá sé fólk almennt og löggjafinn að vakna til vitundar um, að skipu- lagsáætlun og framkvæmd hennar komi öllum við. VITASTIG 13 260S0-26065 Oplð í dag 1-3 Maríubakki. Einstaklib. 30 fm. Sérinng. Laus. Fljótasel. 2ja herb. íb. 40 fm í tvíbhúsi. Sérinng. Verð 3,0 millj. Laugavegur. 2ja herb. íb. á 2. hæð 40 fm. Verð 2,6 millj. Laus. Ásgardur. 2ja herb. góð íb. 60 fm i tvíbhúsi. Nýtt gler. Sérinng. Suður- garður. Verð 4,3 millj. Vitastígur. 3ja herb. íb. á tveimur hæðum. Góð lán áhv. Verð 2,9 millj. Engihjalli — Kóp. 3ja herb. íb. 80 fm. Verð 5,5 millj. Ástún — Kóp. 3ja herb. góð íb. 75 fm. Fallegt útsýni. Verð 5,5 millj. Blöndubakki. 4ra herb. íb. 110 fm á 3. hæð. Verð 5,8 millj. Kóngsbakki. 4ra herb. íb. 90 fm á 3. hæð. Stórar svalir. Góð sameign. Verð 5,7 millj. Hrafnhólar. 4ra herb. íb. 110 fm i lyftublokk. Frábært útsýni. Suöurhólar. 4ra herb. ib. 100 fm á 2. hæð. Mikið endurn. Suðursvalir. Góð lán áhv. Melgerði — Kóp. 4ra herb. góð sérhæð 109 fm. Suðurgarður. Bílskrétt- ur. Verð 7,5 millj. Leifsgata. 4ra herb. íb. á 1. hæð 90 fm. Verð 5,6-5,7 millj. Hraunbær. 4ra herb. góð íb. á 2. hæð. 110 fm. Suðursv. Makaskipti mögul. á 2ja herb. íb. Verð 6,5 millj. Hraunbær. 4ra herb. íb. 110 fm á 3. hæð. Tvennar svalir. Herb. á jarðh. Verð 6,5 millj. Njálsgata. 4ra herb. íb. 100 fm á í jarðhæð. Sérinng. Verð 5,5 millj. Boðagrandi. 4ra herb. íb. ca 100 fm á 8. hæð í lyftuh. Bílskýli. Fráb. útsýni. Hraunbær. 5 herb. íb. á 3. hæð 125 fm. Suðursvalir. Verð 7,1 millj. Háaleitisbraut. 4ra herb. íb. 115 fm á 3. hæð. Sér- þvottah. Laus. Verð 6,7 millj. Seljahverfi. 4ra herb. ib. 100 fm á tveimur hæðum. Góðar innr. Bílskýli. Verð 6,5 millj. Grettisgata. 5 herb. íb. ca 160 fm á 3. hæð. Glæsil. innr. Breiðás — Gbæ. Efri sérhæð ca 130 fm auk bílsk. Suðursvalir. Verð 8,2 millj. Seljahverfi. Raðhús á tveimur hæðum 225 fm. Góðar innr. Verð 9,5 millj. Kleifarsel. Endaraðh. 180 fm. Innb. bílsk. Fallegar innr. Suðurgarður. Hálsasel. Raðh. á tveimur hæðum 220 fm. góður bílskúr. Suður garður. Verð 11 millj. Dalhús — nýbygging. Til sölu endaraðh. á tveimur hæðum 162 fm auk bílsk. sem er 33,6 fm. Húsið afh. fullb. að utan, fokh. að innan. Verð 7,3 millj. Sæviðarsund. Endaraðh. á tveimur hæðum 235 fm m. innb. bflsk. Suðurgarður. Arbæjarhverfi. Einbhús á einni hæð 140 fm auk 40 fm bilsk. Góð lán áhv. Garðhús — nýbygging Efri sérhæð 120 fm auk 40 fm bílsk. Húsið skilast fullb. að utan en fokh. að innan. Bústaðahverfi. Einbýlishús á tveimur hæðum auk bílsk. ca 170 fm. Makaskipti mögul. á góðri sérh. Sævangur. Til sölu glæsil. einbhús á tveimur hæðum. Séríb. á jarðhæð. Fráb. útsýni. Stórar svalir. Kársnesbraut. slðnaðar- og verlshúsn. til sölu ca 370 fm. Góð lán áhv. Laust nú þegar. Lyngás - Gbæ. Til sölu iðnað- ar- og verslhúsn. sem er 100 fm að stærð í nýbyggingu. 2 stórar innkeyrslu- dyr. Teikn á skrifst. Barnafataverslun. Til sölu þekkt barnafataversl. í miðb. Góðar vörur. Góð umboð. Uppl. á skrifst. Langholtsvegur. Til söluversi- unar- og skrifsthæð 312 fm á tveimur hæðum. Góðar innkdyr. Mögul. að breyta í góðar íb. Suðurgata. Til sölu verslunarhæð 125 fm. Góð lán áhv. Skoðum og verðmetum samdægurs. jím Bergur Oliversson hdl., II Gunnar Gunnarsson, s. 77410 -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.