Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBIAÐIÐ FASTEIGNIR . SU.NNUDAGUR 15. OKTÓBER + 28444 SÍMATÍMI KL. 13-15 Lóóir ávallt íyrir hendl ■ íililiitanii' að hefjast í Rima- liveiii ■ Minnkandi eltirspurn 2ja herb. KAPLASKJÓLSVEGUR. 65 fm á 2. hæð. Suðursv. Falleg eign. V. 4,3 m. SEILUGRANDI. Ca 60 fm á 1. hæð. Falleg íb. Bílskýli. V. 4,9 m. AUSTURSTRÖND. 70 fm á 6. hæð í lyftuh. Þvottah. á hæð- inni. Gott bílskýli. Góð lán. Ákv. sala. V. 4,9 m. BOÐAGRANDI. 60 fm á 2. hæð. Suðursv. Laus núna. V. 4,3 m. AUSTURGATA - HF. Ca 40 fm jarðhæð. Laus. V. aðeins 1,6 m. ÓÐINSGATA. Fallegt 40 fm parhús. Mikið endurnýjað. Allt sér. 1,0 millj. áhv. V. 2,7 m. DALSEL. Skemmtil. 50 fm jarðh. Góð lán áhv. Ákv. sala. V. 3,7 m. GRETTISGATA. Mjög góð 61 fm hæð í eldra húsi. Mögul. að hafa 2 svefnherb. Allt sér. V. 4,2 m. GRANDAVEGUR/ÁLAGRANDI. 50 fm ósamþ. kj. Falleg og góð. Sérinng. V. 3,1 m. 3ja herb. FLYÐRUGRANDI. Falleg og góð 80 fm á 3. hæð. Mjög góð áhv. lán. Sala eða skipti á stærri íb. NÖKKVAVOGUR. Falleg 75 fm risíb. íþríb. Steinh. Góð lán áhv. SÓLVALLAGATA. Falleg 70 fm _ á 2. hæð. Skuldlaus. Stórar svalir. V. 5,0 m. GUNNARSBRAUT. Mjög falleg 80 fm á 1. hæð í fjórb. Æskil. skipti á stærri eign í gamla bænum. V. 5,8 m. BRÆÐRABORGARST. Mjög falleg 90 fm íb. á 1. hæð ásamt aukaherb. í kj. TJARNARGATA. Mjög falleg 75 fm jarðh. Allt sér. Ákv. V. 5,2 m. DÚFNAHÓLAR. 80 fm á 6. hæð í lyftuhúsi. Laus. AUSTURBÆR. Ca 85 fm á 1. hæð í lyftuh. Laus fljótt. FREYJUGATA. Mjög skemmtil. 85 fm risíb. Góð lán. Útsýni. V. 5,2 m. 4ra herb. og stærri GOÐHEIMAR. Stórglæsil. 150 fm 1. sérhæð. 4 svefnherb. og stór stofa. Búr og sérþvottah. frá eldh. Laus mars 1990. SUÐURVANGUR. 125 fm falleg endaíb. á 3. hæð. Laus 1. des. '89. Skuldlaus. V. 6,9 m. JÖRFABAKKI. 110 fm mjög góð íb. á 3. hæð. Aukaherb. í kj. ÚTHLÍÐ. Glæsil. 140 fm sérh. ásamt 14 fm auka- herb. í kj. og 27 fm bílsk. Ákv. sala. V. 10,0 m. EIÐISTORG. Sérl. skemmtil. 110 fm íb. á tveimur hæðum. Vel íbhæf. 2 svefnherb. Blóma- skáli. Einkabílast. Bein og ákv. sala eða skipti á 3ja herb. á svipuðum stað. V. 7,0 m. VESTURGATA. 90 fm mikið endurn. og falleg rishæð. Góð lán. V. 5,4 m. HRAUNBÆR. Glæsil. 120 fm endaíb. á 3. hæð. Bein sala eða skipti á 3ja herb. á 2.-3. hæð í efri Hraunbæ. KAPLASKJÓLSVEGUR. 125 fm falleg endaíb. í lyftuh. á 5. hæð ásamt bílageymslu. Laus fljótl. Tvennar svalir. STÓRAGERÐI. 110 fm góð ib. á 3. hæð ásamt aukaherb. í kj. Bílskréttur. HRAUNBÆR. 110 fm mjög fal- leg á 2. hæð. Góð sameign. Vestursv. 2,5 m. góð lán áhv. V. 6,0 m. ÁLFTAMÝRI. Mjög glæsi- leg 115 fm endaíb. á 4. hæð ásamt bílsk. Tvennar svalir. Mikið útsýni. Ákv. sala. VESTURBERG. 95 fm á efstu hæð. Mjög falleg íb. Útsýni. Mikið áhv. Útborgun 34%. Ákv. salá. V. 5,8 m. HRAUNBÆR. Falleg 110 fm á 2. hæð. Mjög góð ib. Ákv. sala. TJARNARGATA. Mjög góð 120 fm íb. á 2. hæð ásamt auka- herb. V 7,3 m. VESTURBORGIN. 170 fm hæð og ris í góðu standi. Allt sér. Skuldlaus. Möguleiki á góðum greiðslukjörum. Laus fljótt. GARÐABÆR - IÐNBÚÐ. 120 fm efri sérhæð. Afh. tilb. undir trév. fullmáluð m/teppum. Afh. nú þegar. Raðhús - parhús BAKKASEL. Glæsil. og fallegt 237 fm raðh. á tveim hæðum ásamt kj. sem nýta má sem séríb. Bílsk. Frábært útsýni. HEIÐNABERG. Mjög gott 140 fm á tveim hæðum ásamt 25 fm bílsk. V. 9,0 m. TORFUFELL. Mjög fallegt og gott 120 fm endaraðh. með bílsk. og góðum innr. kj. Mögul. skipti á 4ra herb. íb. eða bein sala. BÚLAND. Glæsil. 200 fm á tveimur hæðum ásamt bílsk. 5 svefnherb. Vand- aðar innr. Suðursv. Einbýlishús VESTURBRÚN. Sérstakl. fal- legt og gott 250 fm á tveim hæðum ásamt 35 fm bílsk. Laust nú þegar. NEÐSTABERG. Stórgl. 255 fm á tveimur hæðum ásamt bílsk. 4-5 svefnherb. og 20 fm suðursvalir. FJARÐARÁS. Glæsil. 333 fm á tveim hæðum ásamt 27 fm bílsk. Tvennar svalir. Arinn. Útsýni. MIÐSTRÆTI. Stórglæsil. 270 fm tvær hæðir og kj. Ákv. sala. KÁRSNESBRAUT. Falleg 140fm hæð og ris ásamt 48 fm bflsk. V. 9,2 m. GARÐABÆR. 450 fm glæsil. hús á tveimur hæðum ásamt tvöf. bflsk. í húsinu eru tvær fallegar íb. GRJÓTASEL. 320 fm á tveim hæðum ásamt 32 fm bílsk. Hent- ar vel sem tvær íb. Ákv. HVERFISGATA 60A. í þessu húsi eru tvær íb. 2ja herb. 60 fm á jarðhæð. Sérinng. V. 3,0 m. og 100 fm hæð og ris. V. 5,3 m. Húsið selst í einu eða tvennu lagi. LINDARGATA. 137 fm. Hæð, ris og séríb. í kj. Mjög góð áhv. lán. Ákv. sala. V. 7,8 m. __lbyggingii^ fokh./tilb. u. trév. í URRIÐA- OG BRÖNDUKVÍSL eru fokh. 250 fm einbhús á tveimur hæðum ásamt bílsk. Uppl. á skrifst. DALHÚS 51 OG 55. Tvö 160 fm endaraðh. á tveimur hæðum ásamt bílsk. Teikn. eftir Kjartan Sveinsson. Afh. fullfrág. að ut- an, fokh. að innan. 3JA HERB. íb. við Grandaveg 11. Tilb. u. trév. Annað fullfrág. 28444 HÚSEIGMIR VELTUSUNDI 1 Q SIMI 28444 9L 9lllr Daníel Amason, tögg. fast., jmm Hetgi Steingrím&son, solustjóri. II Allir eiga að geta fengiö lóö — segir Ágúst Jónsson, slui fsI o fustj óií borgarverkfræóings Ágúst Jónsson í FYRRA ríkti mikil framkvæm- dagleði á meðal fólks bæði í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þá var út- hlutað lóðum í Reykjavík fyrir 168 einbýlishús, 78 rað- eða par- hús og 205 íbúðir í flölbýlis- húsum. Á þessu ári hefúr heldur dregið úr lóðaeftirspurn hjá borginni. Samt hefur hún verið töluverð, því að firain til 1. októ- ber sl. var búið að úthluta lóðum undir 115 einbýlishús, 45 rað- eða parhús og talsverð eftirspurn eftir ljölbýlishúsalóðum. Lóðir hafa einkum verið til úthlutunar í svone&idu Húsahverfi í Grafar- vogi en einnig í Hamrahverfi og svokallaðri Fögrubrekku. Þessar lóðir eru nú nær allar farnar. Eftirspurn eftir lóðum undir at- vinnuhúsnæði í Reykjavík hefur hins vegar nær alveg dottið nið- ur. Þetta _kom m. a. fram í viðtali við Ágúst Jónsson, skrifstofu- stjóra borgarverkfræðings. — Það sem af er þessu hausti hefur minna verið um fyrirspurnir um lóðir und- ir íbúðarhús, sagði Ágúst.— Það er samt að byija lóð- aúthlutun í nýju hverfi, sem fengið hefur nafnið Rimahverfi og er í Borgarholti norð- an við Foldahverfi. Þar verður úthlut- að í fyrsta áfanga tíu lóðum undir fjölbýlishús með 217 íbúðum og ennfremur nítján einbýlis- húsalóð- um, ellefu tvíbýlishúsalóðum, sex raðhúsalóðum auk 38 íbúða í verka- mannabústöðum. Lóðir þessar hafa verið auglýstar og verður þeim væntanlega úthlutað á næstu dög- um. Eftirspurn eftir atvinnuhúsalóð- um er hins vegar nánast engin á þessu ári. Byggingarhæfar lóðir eru engu að síður fyrir hendi á svæði því, sem kallað er Gylfaflöt og er austur af gömlu sorphaugunum. Þar að auki eru til fáeinar atvinnu- húsalóðir í Seljahverfi og nokkrum öðrum stöðum í borginni. Ágúst Jónsson er fæddur í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Kennaraskóla íslands og stundaði kennslustörf í 15 ár með námi og vinnu. Að afloknu lagaprófi frá Háskóla íslands starfaði hann í Sakadómi Reykjavíkur í 10 ár, en var skrifstofustjóri borgarverk- fræðings í afleysingum árið 1985. Hann kom svo aftur til borgarverk- fræðings haustið 1987 og hefur verið þar skrifstofustjóri síðan. — Um mínar hendur fara lóðar- umsóknir og ég geri tillögur til borgarráðs um lóðarúthlutanir, seg- ir Agúst. Auk borgarráðsfunda sit- ur hann fundi byggingarnefndar og veitir þar lögfræðilega ráðgjöf. Þá er hann ritari skipulagsnefndar Reykjavíkur og einnig ritari stjórn- ar veitustofnana borgarinnar. Það eru því margvísleg mál, sem hann fær til meðferðar sem skrifstofu- stjóri borgarverkfræðings, en öll tengjast þau að meira eða minni leyti skipulags- og byggingarmál- um. Einfaldar reglur En hver eru skilyrðin fyrir því að fá lóð í Reykjavík? — Reglurnar eru einfaldar, segir Agúst,— Frum- skilyrði er, að umsækjendur séu íslenskir ríkisborgarar, séu fjárráða og skuldlausir við borgarsjóð eða gjaldheimtu. Senda þarf inn útfyllt umsóknareyðublöð með upplýsing- um um ýms atriði að auki. Ef þessu er fullnægt, er meginreglan sú, að allir geta fengið lóð. Það er þannig ekki skilyrði, að viðkomandi sé bú- settur í Reykjavík. Hann má vera búsettur, hvar sem er, bara ef hann er íslenzkur ríkisborgari. Hætti við- komandi við að byggja af einhveij- um ástæðum, brýtur hann engar brýr að baki sér og getur fengið lóð úthlutað aftur síðar. Ekki geta samt allir fengið ein- mitt þá lóð sem þeir hefðu ef til vill helzt kosið.?— Lóðaframboð hefur verið gott undanfarin ár og því oftast talsvert úrval, svarar Ágúst.— Þó er fjölbýlishúsalóðum eingöngu úthlutað til byggingar- meistara eða byggingarfyrirtækja byggingarsamvinnufélaga raun- ar líka. Einstaklingar eiga þess ekki kost að koma og sækja um byggingarétt fyrir tiltekna íbúð í fjölbýlishúsi. En hvað þarf að gera til að fá lóð?— Sá sem hefur hug á að sækja um lóð í Reykjavík á að snúa sér til skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, segir Ágúst.— Þar eru veittar upplýsingar um lausar lóðir og þar geta menn fengið skipulags- skilmála og skipulagsuppdrætti. Þar fást einnig umsóknareyðublöð og önnur gögn eins og gjaldskrá um gatnagerðar- gjöld, Þegar um- sókn hefur verið lögð inn, fjallar borgarráð um hana og síðan fær viðkomandi bréf frá borgarstjóra um lóðarúthlutunina. í bréfinu koma fram helstu skil- málar, sem úthlutunina varða eins og um greiðslu gjalda, því að ýms gjöld þarf að greiða af byggingar- lóðum, hvort heldur fyrir einbýlis- hús eða blokkaríbúðir. Mikilvægast þeirra er gatnagerðargjaldið, sem miðast við húsagerð og rúmmetra- fjölda hússins,— Lágmarksgatna- gerðargjald af einbýlishúsum er nú um 1200-1400 þúsund eftir atvik- um, segir Ágúst,— Venjulegt gat- nagerðargjald af raðhúsi er nú um 770 þúsund krónur og Sama á við um parhús. Af gatnagerðargjaldinu þarf umsækjandi að greiða 1/3 inn- an eins mánaðar frá því lóð er út- hlutað og samþykkir þá um leið tvo víxla fyrir eftirstöðvunum, sem greiðast 3 og 6 mánuðum eftir út- hlutun. Þessir vixlar eru vaxtalaus- ir. Gatnagerðargjald af fjölbýlishúsi er pálægt 220.000 kr. á hveija íbúð. Sé byggt stærra en lágmarksgjaldið tekur mið af, þarf að greiða um- framgatnagerðargjald, áður en byggingarleyfi er gefið út. Til viðbótar þessu koma svo hei- mæðagjöld, sem eru nokkuð mis- munandi eftir lóðum og raunar eft- ir hverfum líka, en verða í Rima- hverfi nálægt 100 þúsund krónum fyrir einbýlishúsalóðir, parhúsa- og raðhúsalóðir, en nálægt 190 þúsund krónum fyrir hvert fjölbýlishús. Þarna er átt við heimæð fyrir kalt vatn og skolp. Þar að auki er svo Hitaveitan með sína heimæð svo og Póstur og sími, en fyrir það greiðist sérstaklega og þá hjá þess- um stofnunum. Sömu frumskilyrði eru til staðar við úthlutun lóða fyrir atvinnuhús- næði og íbúðarhúsnæði. Auk þess setur skipulag á stundum ákveðnar skorður við því, hvers konar stárfs- semi þar má vera. Það er t. d. ekki æskilegt að vera með mjög grófa starfsemi alveg við íbúðarbyggð. Lágmarksgatnagerðargjald af atvinnulóð er ákveðið með hliðsjón af leyfilegu nýtingarhlutfalli lóðar- innar. Algengt er að miða gjaldið við nýtingarhlutfallið 0,4 eða 0,5 eftir atvikum og meðallofthæð bygginga við 4 - 4,5 metra. Ef byggt er stærra en þetta, þarf að greiða umframgatnagerðargjald.' Megin reglan varðandi atvinnuhús- næði er sú, að menn greiða 1/3 af gatnagerðargjöldum innan mánað- ar frá úthlutun en eftirstöðvarnar með 6 víxlum án vaxta, sem dreif- ast á tvö ár. Ný hús í staðinn fyrir gömul Ekki ósjaldan eru gömul hús rif- in og ný hús byggð í staðinn. Gilda þá sömu reglur um byggingarleyfi og gjöld og við önnur hús?— Ef ætlunin er að byggja nýtt hús á lóð, þar sem gamalt hús stendur fyrir, þarf að byrja á því að sækja um leyfi byggingarnefndar til að rífa það, þar sem slíkt er óheimilt án leyfis hennar. Byggingarnefnd leitar þá gjarnan umsagnar Um- eftir Mognús Siguiðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.