Morgunblaðið - 01.11.1989, Page 1
/ H; r H!
B
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 1. NOVEMBER 1989
BLAÐ
SasöguR
moggans
m*' • £
i«íSt
Draugasaga
Krakkamir í 2. bekk í gmnn-
skóla Hólmavíkur sömdu
þessa sögu. Þau heita: Heiða
Dóra, Heiða, Elvar Þór, Guð-
björg, Harpa Hlín, Gunnar
Bragi, Gunnar Logi, Sigríð-
ur, Sigurrós, Steingrímur,
Steinunn og Smári.
0“* li og Ása voru að fara
að sofa.
Þá heyrðu þau fótatak.
Þau héldu að þetta væri
draugur.
Ása greip í Ola og hvíslaði:
Er þetta draugur?
Já, sagði Óli.
Við skulum skríða undir
rúm og fela okkur.
Þau hlupu undir rúm dauð-
hrædd.
Dyrnar opnuðust hægt og
hægt.
Börnin skulfu á beinunum
af hræðslu.
- En þá var þetta bara
mamma með heitt kakó og
snúða.
Helga Friðriksdóttir, 9 ára, Bugðutanga 34, Mosfellsbæ, teiknaði þessa fallegu sveitamynd.
HUGSANALESTUR
Láttu félaga þinn hafa 10 krónur og 25 krónur. Nú snýrð
þú baki að honum og hann á að fela 10 krónurnar í annarri
hendi en 25 krónurnar í hinni. Nú snýrðu þér að honum og
segir að þú getir sagt til um hvar 25 krónurnar eru. Félagi
þinn trúir því ekki. Þú biður hann að margfalda upphæð penings-
ins í annarri hendi með 13 og kinka kolli þegar hann er búinn
og síðan að margfalda upphæðina í hinni hendinni.með 13 og
kinka kolli þegar það er búið. Nú getur þú bent á höndina með
25 krónunum. Hvernig komstu að því hvar peningurinn er?
Hann er í hendinni sem félagi þinn var lengur að margfalda.
Hann er eflaust fljótari að margfalda með 10 en 25.
Pennavinir
Lilja Björk Stefánsdóttir,
Hálsaseli 19,
109 REYKJAVÍK
Lilja Björk er 12 ára og vill eignast pennavini á aldi-inum 11-14
ára. Áhugamál: Skíði, skautar, lestur, ballett og margt fleira. Þar
sem Lilja á heima í Reykjavík vill hún helst eignast pennavini utan
af landi.
Steinunn Á. Hermannsdóttir,
Heiðarvegi 27,
900 VESTMANNAEYJUM
Steinunn vill eignast pennavini á aldrinum 13-15 ára.
Hugrún Hauksdóttir,
Laugabóli,
650 LAUGUM
Ilugrún vill skipta við ykkur á plakötum. Hún vill fá plaköt með
Guns ’n’ Roses, Söndru og Michaei Jackson. í staðinn getið þið feng-
ið plaköt og úrklippur með Roxette, Jeremy Days, Corey Haim, Ja-
mes Read, Patrick Swayze, Madonnu, Bros, Sylvester Stallone, Tom
Crouise og mörgum fleiri. Ef þið viljið skipta þá hafið samband við
Hugrúnu.
Orða-
leikur
Klippið niður heilan helling
af pappírsmiðum. Á miðana
eru skrifaðir bókstafir, einn á
hvern miða. Miðarnir eru sett-
ir í kassa og án þess að horfa
ofan í kassann nær hver þátt-
takandi í þijá miða. Nú á að
reyna að búa til orð þar sem
allir þrír stafirnir koma fyrir.
Sá sem í lok leiksins hefur
búið til flest orð vinnur.