Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 1
msmrðys .1 tbmít/iofo:/.
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1989
ÞRIÐJUDAGUR 14. NOVEMBER
BLAÐ
B
KORFUKNATTLEIKUR
Leikmenn lands-
liðsins sprautaðir
fyrir mislingum
ÆT
Islenska landsliðið í körfuknattleik er nú á keppn-
isferðalagi í Bandaríkjunum og lék þijá leiki
gegn bandarískum háskólaliðum um helgina. Fyrir
leikinn gegn liði Northeasternháskóla á laugardag
kröfðust förráðamenn skólaliðsins þess að leikmenn
íslenska liðsins yrðu sprautaðir fyrir mislingum —
annars félli leikurinn niður. Ástæðan var sú að
tveir nemendur skólans höfðu greinst með misl-
inga. Islendingarnir reyndu að semja, en það gekk
ekki. Þeir létu því undan og létu sprauta sig, en
léku síðan fyrir tómu húsi áhorfenda og sigruðu.
■ Nánar um leikina/B 3
HANDKNATTLEIKUR
Þorgils Óttar
og Valsararnir
veðurtepptir
í Manchester
Fjórir leikmenn íslenska lands-
liðsins í handknattleik eru veð-
urtepptir í Manchester á Englandi,
og komust því ekki í gær til Tékkó-
slóvakíu, þar sem liðið tekur þátt í
móti.
Þrír leikmenn Vals, sem léku í
Evrópukeppninni á sunnudag; Ein-
ar Þorvarðarson, Jakob Sigurðsson
og yaldimar Grímsson, ásamt Þorg-
ils Óttari Mathiesen, landsliðsfyrir-
liða — sem ekki komst utan fyrr
af persónulegum ástæðum — héldu
ekki utan fyrr en í gærmorgun.
Vegna mikillar þoku í Lundúnum
gat Flugleiðavélin frá Glasgow ekki
lent þar og varð að lenda í Man-
chester. Þar gistu leikmennimir og
áttu að halda af stað í morgun áleið-
is til Vínar í Austurríki og þaðan
yfir til borgarinnar Bratislava í
Tékkóslóvakíu, þar sem leikið er.
■ Nánar um lands-
liðið/B 3 og B 8.
KNATTSPYRNA
Þorvaldur
bíður enn
Þorvaldur Örlygsson, KA, hefur
enn ekki fengið atvinnuleyfi til
að leika með Nottingham Forest 5
Englandi. „Málið er í höndum inn-
anríkisráðuneytisins og við getum
ekkert gert til að flýta því — það
verður að hafa sinn gang,“ sagði
Ron Fenton hjá Nottingham Forest
í samtali við Morgunblaðið.
Þorvaldur bíður því enn eftir at-
vinnuleyfinu og æfir hér heima á
meðan. „Eg verð bara að vera þolin-
móður. Það þýðir ekkert fyrir mig
að fara aftur út fyrr en ég hef feng-
ið réttu pappírana, en það er ein-
hver hreyfing á málinu þessa dag-
ana,“ sagði Þorvaldur í gærkvöldi.
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari KR, varð fyrir aðkasti frá áhorfendum
í leik ÍR og KR í Seljaskólanum á laugardaginn. Jóhann Ingi fékk
rautt spjald í síðari hálfleik og var að ganga af velli þegar einn áhorf-
enda kastaði tómri ávaxtasafafemu í höfuð hans. Líklegt er að ÍR-ingar
verði kærðir fyrir þetta enda siík mál litin alvarlegum augum hjá HSÍ.
„Það verður að stöðva þessi skrílslæti hér í Seljaskóianum. Þetta er
alvarlegt mál,“ sagði Jóhann Ingi, en nokkuð sá á honum eftir atvikið.
„Eg var óánægður með dómarana, þeir vom eins og heimadómarar ger-
ast bestir í Þýskaiandi og gáfu ÍR-ingum að minnsta kosti fimm mörk.
FHefst
eftir
öruggan
sigurá
Stjörnunni
FH-ingar eru á toppi 1. deildar
karla í handknattleik, VÍS-
keppninnar, eftir öruggan sigur
á Stjörnunni, 28:26, á laugar-
dag.
Sigur FH-inga var mun örugg-
ari en tölurnar gefa til kynna
— Hafnfirðingarnir höfðu átta
marka forystu, 28:20, en Garð-
bæingarnir gerðu sex síðustu mörk-
in á heimavelli sínum.
FH-ingar léku sérlega vel að
þessu sinni, og mynd Júiíusar hér
til hliðar er táknræn fyrir viðureign-
ina. Guðjón Árnason, fyrirliði FH,
ber höfuð og herðar yfir starfs-
bróður sinn í Garðabæjarliðinu,
Skúla Gunnsteinsson.
■ Nánar um hand-
bolta helgarinn-
ar/B 4 og B 5
„Verður að stöðva
þessi skrflslæti"
- segirJóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari KR,
sem varð fyrir aðkasti í Seljaskólanum
Tugmilljóna króna virði
- sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri, um auglýsingasamninginn sem Landsbankinn og HSÍ hafa gert
FORRÁÐAMENN Handknattleikssambands íslands og Lands-
bankans undirrituðu í gær auglýsingasamning sem er tugmillj-
óna króna virði fyrir HSÍ, eins og Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri orðaði það á blaðamannafundi.
amningurinn er til sjö ára. A-heimsmeistarakeppni karla á
Hann er um „eflingu hand- íslandi árið 1995 og kynningu á
knattleiksíþróttarinnar á íslandi þjónustu og starfsemi Lands-
og undirbúning og kynningu á banka Islands. Auglýsingasamn-
ingur þessi gildir til 31. desember
1995 með forgangsrétti Lands-
banka ísiands á sviði fjármála-
stofnana til að nota landsliðsmenn
í handknattleik í auglýsingum
sínum,“ segir í fréttatilkynningu.
Skv. samningnum verður bank-
inn einn aðalstuðningsaðili „HM
95 hóps HSÍ“, þ.e. þeirra ungl-
ingalandsliðsmanna sem koma til
álita sem leikmenn í landsliði ís-
lands í heimsmeistarakeppninni
1995. Ekki verður þó um neinar
greiðslur að ræða til leikmanna —
allir peningar sem bankinn leggur
fram renna til Handknattleiks-
sambandsins.
Að sögn forráðamanna Hand-
knattleikssambandsins verður
fjárhagsstaða sambandsins „við-
ráðanleg" með þessum samningi,
en hún hefur verið erfið undanfar-
in ár.