Morgunblaðið - 21.11.1989, Qupperneq 5
Mm
FOLK
■ FRANCO Baresi, fyrirliði AC
Mílanó og ítalska íandsliðsins í
knattspyrnu, hefur verið dæmdur í
tíu mánaða fangelsi fyrir skattsvik.
Einnig voru fyrrum þjálfari félags-
ins, Svíinn Nils Liedholm, og
stjórnarformaður félagsins, Gius-
eppe Farina dæmdir auk fimm
annarra leikmanna. Allir þeir sem
dæmdir hafa verið hafá ákveðið að
áfrýja og talið ólíklegt að þeir þurfi
að afplána dóminn í fangelsi. Bar-
esi var dæmdur í 10 mánaða fang-
elsi auk þess að greiða sex milljón-
ir lira [260.000 íslenskar krónur] í
sekt.
■ DJDIER Deschamps, lands-
liðsmaður Frakka hjá Nantes, hef-
ur gengið til liðs við Marseille.
Deschamps skoraði fyrra mark
Frakka gegn Kýpur í undankeppni
HM í Montpellier á laugardaginn
og þykir einn besti knattspyrnu-
maður Frakka. Marseille þarf að
greiða andvirði 190 milljóna
íslenskra króna fyrir landsliðs-
manninn. Auk þess fær Nantes
miðvallarleikmanninn Patrice Ey-
raud að láni í 18 mánuði.
■ DANIEL Oaida frá Rúmeníu
lést í gær vegna meiðsla sem hann
hlaut er fjögurra mann bobsleði
hans lenti í árekstri á æfingu í Alt-
enberg-brautinn í A-Þýskalandi.
Bobsleðabrautin í Altenberg þykir
ein sú glæfralegasta sem keppt er
í á heimsbikarmótunum. Oaida var
ökumaður sleðans.
■ STEFFI Graf sigraði Martinu
Navratilovu, 3:1 (6:4, 7:5, 2:6 og
6:2), í úrslitaleik á síðasta tennis-
móti ársins í kvennaflokki í New
York á sunnudag. Graf vann tíu
mót á síðasta ári og tapaði þá að-
eins þremur leikjum. Hún gerði enn
betur í ár því hún hefur unnið 14
mót og tapað aðeins tveimur. Hún
hefur unnið alls 40 mót og það virð-
ist því aðeins tímaspursmál hvenær
hún nær að slá met Navratilovu
sem er 74 sigrar. Navratilova var
í éfsta sæti heimslistans frá 1982
til 1987 að Steffi Graf tók við og
hefur haldið sætinu síðan.
■ KRISIN Otto frá Austur-
Þýskalandi, sem vann sex gull-
verðlaun á Ólympíuleikunum í
Seoul og er ein mesta sundkona
sem uppi hefur verið, lýsti því yfir
í viðtali við austur-þýska dagblaðið
Junge Welt um helgina að hún
væri hætt að keppa. Otto, sem er
23 ára, vann fyrsta heimsmeistara-
titilinn aðeins 16 ára gömul árið
1982. Hún tók sér hvíld frá æfing-
um eftir Ólympíuleikana í Seoul,
en keppti á Evrópumótinu sem fram
fór í Bonn í ágúst. „Eg fann fyrir
því á Evrópumótinu í Bonn að ég
hafði náð náð toppnum. Svo ég
sagði við sjálfa mig: „Nú er rétti
tíminn til að hætta“. Það var efitt
að þurfa að viðurkenna þetta fyrir
sjálfum sér því ég hef mjög gaman
af íþróttinni," sagði Kristin Otto
sem nú er í starfsþjálfun sem frétta-
maður hjá útvarpsstöð í Leipzig.
■ KÚBA sigraði Bandaríkin,
3:0, í á heimsmeistaramótinu í blaki
karla sem nú stendur yfir í Osaka
í Japan. Bandarikjamenn, sem eru
núverandi ólympíumeistarar, áttu
ekkert svar við stórleik Kúbu-
manna og töpuðu öllum hrinunum,
15:8, 15:12 og 15:11. Nýkrýndir
Evrópumeistarar ítala unnu Sovét-
menn, 3:0 (15:8, 15:12 og 15:7).
„Við höfum verið með sömu ieik-
menn í tvö ár á meðan Bandaríkja-
menn hafa breytt liði sínu frá því
þeir sigruðu í SeouI,“ sagði Ór-
lando Samuels, þjálfari Kúbu.
Otto.
Baresi.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 21. NOVEMBER 1989
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 21. NOVEMBER 1989
KNATTSPYRNA
„Agætis tími nú
tilaðskipta
um formann KSÍ“
- segir Ellert B. Schram, formaður undanfarin 16
ár. „Höfum unnið upp níu milljón króna halla"
ELLERT B. Schram hefur verið formaður Knattspyrnusambands íslands undanfarin 16 ár. Hann hefur
sagt að hann sækist ekki eftir endurkjöri á ársþingi sambandsins um aðra helgi. „Það er ágætis tími nú
til að skipta um formann KSÍ,“ sagði Ellert við Morgunblaðið og tilnefndi þrjár ástæður helstar. „Það
eru viss tímamót. Nýr formaður getur ráðið sér nýjan framkvæmdastjóra og nýjan landsliðsþjálfara,
og fjárhagurinn er góður. Við erum með veltu upp á um 50 milljónir og höfum unnið upp níu milljón
króna halla síðasta árs. Það er mikill hagnaður á rekstrinum og það er eitt mesta afrekið á árinu,
þegar allir eru á hausnum í þjóðfélaginu.11
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Fullvíst má telja að Ellert verði
kosinn í stjórn Knattspyrnusam-
bands Evrópu í vor og sitji í stjórn
UEFA næstu fjögur árin. Því fylgir
það skilyrði að hann
gegni einhveiju hlut-
verki hjá KSÍ og hafa
ýmsir lagt til að hann
verði gerður að heið-
ursformanni sambandsins, ef hann
hættir sem formaður.
Stærsta íþróttaafrek ársins
Ellert er ánægður með starfsárið,
sem er að ljúka. Á siðasta ársþingi
var boðaður niðurskurður, en að
mati formannsins hefur hann ekki
komið niður á árangrinum. „Við hefð-
um ekki getað skilað svo góðum
reikningum nema af því að við fórum
í sparnaðarráðstafanir. Ég held því
fram að niðurskurður að því er varð-
ar a-landsliðið hafi sem betur. fer
ekki komið niður á frammistöðunni
og eitt stærsta íþróttaafrekið, sem
hefur verið unnið af íslenskum
íþróttamönnum á árinu, er jafnteflið
í Moskvu. Og útkoman í þessum
riðli, sem við vorum í; það munaði
ekki nema hársbreidd að við kæm-
umst til Ítalíu.
Ekki má gleyma því, sem margir
hafa ekki áttað sig á, að 21 árs liðið
stóð sig frábærlega vel. Vann
Finnana 4:0 hérna heima, Hollend-
inga úti 3:2 og gerði 1:1 jafntefli við
Vestur-Þjóðveija. Hollendingar eru
Evrópumeistarar, Þjóðveijar eru á
meðal bestu þjóða í knattspyrnu í
heimi og það að litla ísland vinni
þessar þjóðir er alveg einstakt. Þá
sigraði 16 ára liðið England 1 Eng-
landi og íslandsmótið fór fram með
glæsibrag. Þetta hefur allt verið okk-
ur í knattspyrnunni til sóma — knatt-
spyrnan stendur vel.
Þegar ég byijaði sem formaður
voru landsleikir seldir úr landi og við
þökkuðum fyrir ef við töpuðum minna
en 5:0. Nú erum við þremur stigum
frá því að komast til Ítalíu. Þetta eru
stórstígar framfarir. Við erum á réttri
leið. Með þessum árangri höfum við
fengið meira sjálfstraust. Andstæð-
ingarnir bera meiri virðingu fyrir
okkur. Það hjálpar okkur í næstu
kepDtu Nægverkefni
Ellert sagði íslenska knattspyrnu
á réttri leið, en halda þyrfti áfram á
framfarabraut með því að tryggja
tekjur sambandsins, skapa meiri
verkefni, lengja keppnistímabilið hér
heima, hjálpa félögum víðs vegar um
land við að koma upp gervigrasvöllum
og efla þátttöku í knattþrautum KSÍ.
„Við verðum að byija fyrr á vorin
og hætta seinna á haustin. Ef við
byijum að spila fyrr á vorin við erfið-
ar aðstæður þá knýr það á um að
bæta aðstöðuna. Alveg eins og þegar
horft er á þróunina af mölinni yfir á
grasið. Það er ekki langt síðan 1.
deildin var meira eða minna leikin á
möl. Keppnin þrýstir á að aðstæður
séu lacraðar.
Knattspyrnan þarf að auka upplýs-
ingar og áróður um eigin ágæti til
að laða æskuna inn í íþróttina í sam-
keppni við aðrar íþróttir og aðra tóm-
stundaafþreyingu. Knattspyrnan þarf
að opna sig meira og skapa fleiri
verkefni frekar en færri.
Ég var talsmaður þess í mörg ár
að það yrði hætt að leika í 11 manna
liðum í yngstu aldursflokkunum og
það hefur verið tekið upp í 5. og 6.
flokki með mjög góðum árangri.
Enginn flokkur %r eins marga leiki
og 6. flokkur. Þetta er í rétta átt.
Við þurfum hins vegar að gera meira
heldur en að bjóða unglingum í knatt-
spyrnuskóla og á skipulagðar æfing-
ar á svæðunum. Við þurfum að skapa
þeim aðstæður til að sparka bolta í
öllum sínum frítímum. Eins og maður
gat gert hér áður fyrr, þegar auðu
svæðin og grænu svæðin voru um
allt. Núna sérðu varla stingandi strá
þar sem hægt er að sparka bolta
nema á lokuðum svæðum félaganna.
Aðalatriðið varðandi þá yngstu er
að krakkarnir hafi gaman af þessu,
séu fijálsari við að leika sinn bolta
og geti tileinkað sér knatttækni —
sigrarnir koma svo seinna.
Ég er hlynntur föstum leikdögum,
en við þurfum að vera íhaldsamir
varðandi deildakeppnina. Því fleiri
sem komast að í bestu deildinni hjá
okkur, þeim mun meira úrval og
meiri tækifæri fyrir unga leikmenn
að komast að. Við sjáum það í lands-
liðunum — þetta eru strákar, sem
„Stöndum og föllum
með nýrri stúku“
Eins og fram hefur komið verður bannað að selja stæðismiða á leiki
í næstu Heimsmeistarakeppni og sami háttur verður hafður á í
Evrópukeppninni í náinni framtíð. Ellert gerði grein fyrir þessum vanda
við yfirvöld í haust og í framhaldi var arkitektum falið að teikna 6.500
manna stúku gagnstætt stúkunni á Laugardalsveili og gera kostnaðar-
áætlun.
„Svona stúka myndi leysa brýnasta vandamál okkar og ég treysti
því að borgaryfirvöld hafi skilning á því að við stöndum og föllum
með nýrri stúku. Við getum getum ekki tekið þátt í næstu undan-
keppni HM við núverandi aðstæður,“ sagði Ellert.
Hann er í eftirlitsnefnd leikvanga hjá Knattspyrnusambandi Evrópu
og nefndi sem dæmi að Gautaborg gerir ráð fyrir að endurbætur á
Ullevi-leikvanginum, sem tekur 52.000 áhorfendur, kosti einn milljarð.
„Þetta var lagt fyrir bæjarstjómina, sem samþykkti um leið og er
þegar hafist handa við breytingarnar,“ sagði Ellert.
Ellert B. Schram formaður KSÍ síðastliðin 16 ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
koma víðs vegar að af landinu. Það
er af því að þeir hafa fengið tæki-
færi til að sýna sig og spreyta sig.
Sama á við í kvennaboltanum.
Niðurskurðurinn bitnaði á kvennalið-
inu eins og öðrum, en það hafa verið
miklar breytingar í kvennaboltanum
og ástæða var talin til að byggja upp
nýtt landslið. Því hefur stefnan verið
sú að skapa verkefni fyrir telpnaliðið,
en kvennalandsliðsmál eru í athugun
og vonandi verður mörkuð stefna um
þau á þinginu.“
100 milljónir í augsýn
Varðandi- landsliðið og árangur
þess er formaðurinn sannfærður um
að margir íslenskir knattspyrnumenn
hafi alla burði til að fara út í atvinnu-
mennsku og það myndi hjálpa
íslenskri knattspyrnu mikið. „Þessir
strákar bæta ekki svo mikið við sig
með því að leika í áhugamennskunni
hér heima ár eftir ár, en góðir leik-
menn erlendis hafa meiri verkefni í
harðri keppni meira og minna allt
árið og það styrkir landsliðið. Eftir
því sem Island kemst meira á blað í
knattspyrnunni, því meiri athygli
vekur það og því meiri möguleikar
eru á að afla tekna í gegnum sjón-
varp og auglýsingar.
Málið er að það er dýrt að halda
úti landsliðum og það var ekki
skemmtilegt að draga 18 ára liðið
úr keppni á árinu svo dæmi sé tekið.
Það er óþægilegt að geta ekki sett á
leiki, vegna þess að það kostar mik-
ið, leiki, sem eru nauðsynlegir til
æfinga og undirbúnings. Og það er
óþolandi til lengdar að allur tíminn
fari í að snikja peninga og vera í
fullkominni óvissu um hvort endar
nái saman.
Það eru gífurlegir peningar í fót-
boltanum. Þó ég sé ekki að jafna
okkur við lið eins og Real Madrid,
þá get ég nefnt sem dæmi að leikur
Real Madrid og Inter Mílanó á Spáni
um daginn gefur Real Madrid 250
milljónir. Við þurfum ekki nema 10%
af því.
Þannig að eftir því sem við stönd-
um okkur betur og með meiri sjón-
varpsútsendingum og auknum skiln-
ingi fyrirtækja á því að þetta sé at-
burður sem fólk fylgist með, þá opn-
ast meiri möguleikar á að KSÍ geti
aflað fjár erlendis frá. Ef við hefðum
komist til Ítalíu hefðum við fengið
100 milljón krónu tékka sendan frá
FIFA sem fyrirframgreiðslu fyrir að
vera komnir í úrslit.“
Virk starfsemi
Margir halda því fram að mikil gjá
sé á milli Knattspyrnusambandsins
og félaganna, en Ellert er á öðru
máli. „Stjórnarmenn hjá KSI koma
Sænskur þjálfari undir
smásjánni fyrir landsliðið
Siegfried Held, fyrrverandi landsliðsþjálfari. Við hlið hans er Guðni Kjartans-
son, sem Ellert segir að sé einn þeirra sem hljóti að koma „alvarlega til greina“
sem eftirmaður Vestur-Þjóðveijans.
Næsta stjórn KSÍ tekur ákvörð-
un um hver verður næsti
landsliðsþjálfari og segir Ellert að
helst verði að vera búið að ráða
mann fyrir febrúarbyijun, en þá
verður dregið í riðla fyrir Evrópu-
keppnina, sem hefst næsta haust.
„Við höfum verið að leita að
mönnum í Vestur-Þýskalandi, Holl-
andi og Svíþjóð og staðnæmst við
sænskan þjálfara, sem mér líst vel
á og hef verið að afla mér nánari
upplýsingar um,“ sagði Ellert, en
vildi ekki segja hver maðurinn væri,
þar sem ekki hefði verið rætt við
hann.
Ellert sagði að samráð væri haft
við landsliðsmenn um hvar borið
væri niður. „Áhugi reyndari leik-
manna í landsliðinu undanfarin ár
beinist að meginlandinu, Hollandi
og Vestur-Þýskalandi, þeirri knatt-
spyrnu, sem þar er leikin, en þeir
vilja ekki enskan þjálfara. Hins j
vegar er það stjórn KSI sem tekur
endanlega ákvörðun. Hún ber
ábyrgð á ráðningunni og tekur
skellinn, ef illa gengur, þannig að
hún verður að eiga síðasta orðið.“ ,
Tími Ásgeirs ekki kominn
Formaðurinn sagði ennfremur að
verið væri að undirbúa og afla ,•}
nafna og að íslenskir þjálfarar væru
ekki útilokaðir. „Ég hef rætt við
Ásgeir Sigurvinsson um þessa hluti,
en við erum sammála um að hans
tími sé ekki kominn. Hann er samt
ágætis maður með alla sína reynslu ,
til að gerast landsliðsþjálfari KSÍ í
framtíðinni. Guðni Kjartansson er;)
líka einn af þeim. sem hlýtur að
koma alvarlega til greina.“
1,5 milljón í árslaun
Formaðurinn sagði að KSÍ þyrfti
að greiða mikið fyrir góðan, erlend-
an þjálfara, mikið meira en Siegfri-
ed Held fékk, en hann var með 1,5
milljónir í árslaun sem landsliðs-
þjálfari KSÍ.,Hann gerði samning
við tyrkneska félagsliðið Galatas-
aray í júlí, en stjómaði landsliðinu
í næstu tveimur leikjum KSI að
kostnaðarlausu. Það var gagnrýnt
og eins að honum skyldi hafa verið
leyft að fara áður en sanrmingurinn
var útranninn. „Maðurinn fékk slíkt
gylliboð að ekki var veijandi að
neita honum um fararleyfið enda
ljóst að hann hefði farið ella. Árs-
laun hans lækkuðu hins vegar um
helming, við spöruðum 750 þúsund
krónur og fengum ágætan mann í
staðinn.
Held var hjá okkur í þijú ár.
Undir hans stjórn náðum við mjög
góðum árangri í Evrópu- og Heims-
meistarakeppninni — því besta, sem
við höfum gert og það er ekki hægt
að dæma manninn út frá öðru en
því. Hins vegar þekki ég engan
þjálfara, sem hefur verið hjá KSI,
sem hefur verið fullkominn. Held
var gallaður eins og aðrir, en það
var afskaplega slæmt að missa
hann á miðju keppnistímabili.“
Margir hafa viljað sjá landsliðs-
þjálfara sinna öðru og meira en
aðeins landsliðinu; fylgjast betur
með knattspyrnunni hér heima og
liðsinna félögum víðs vegar um
land. „Hingað til höfum við fyrst
og fremst ráðið landsliðsþjálfara,
ráðið menn, sem geta stýrt liðinu
og náð árangri. Þetta hef ég alltaf
látið ráða — hitt kemur á eftir.
Nefna má tvo erlenda þjálfara,
Held og Tony Knapp. Þeir hafa
báðir verið góðir landsliðsþjálfarar,
en ekki tiímikils brúks að öðra leyti
og við höfum þurft að sætta okkur
við það.“
úr félögunum, eru sprottnir úr þess-
um jarðvegi og eru í rnjög nánu sam-
bandi við félögin. Reyndar held ég
að það sé hvergi virkara starf en ein-
mitt í knattspyrnuhreyfingunni, þó
ég undanskilji ekki alls kyns önnur
félagasamtök utan íþróttanna.
Hins vegar er það rétt að mikilvæg
mál verða oft út undan á KSÍ-þing-
um. Þingin hafa oft farið í miklar
umræður um breytingar á reglugerð-
um og umræður um smámál. Það
getur vel verið að þetta séu of stór
þing til að menn geti verið að ræða
ítarlega um hugmyndafræðina pg
stefnumótunina til langs tíma. Ég
lagði t. d. fram ítarleg drög að stefnu-
mótun til aldamóta fyrir nokkrum
árum, en um þau urðu sáralitlar
umræður. Ég skil það þannig að
hreyfingin vilji að stjórn KSI marki
stefnuna og komi með tillögur inn á
þingið og ætlist til að formaður og
stjórn leiði þessa hreyfingu. Þingið
sé þá meira afgreiðslu- og vinnuþing.
Þetta eru það fjölmennar samkomur
að ekki er hægt að reikna með að’
það verði mjög fræðilegar umræður
— það gefst ekki tími til þess.“
Tímamót
Það verða vissulega tímamót hjá
KSÍ ef Ellert hættir sem formaður,
en hættir hann? „Einhvern tíma verð
ég að hætta. Það er gott að hættq,
þegar staðan er góð, áður en ég verð
fyrir og allir verða þreyttir á mér.
Mér stendur auðvitað ekki á sama
um KSÍ og mér er ekki sama hvað
við tekur. Þess vegna sagði ég
snemma í haust að ég sæktist ekki
eftir endurkjöri. Knattspyrnuhreyf-
ingin hefur haft tíma til að skoða
sinn hug og vonandi næst samstaða
á þinginu í byijun desember um eftir-
mann, sem þingið getur sætt sig við.“
PILUKAST
Asgeir Sigurvinsson, hugsanlegur
framtíðarþjálfari. Ellert segist hafa rætt
við Ásgeir „en við erum sammála um
að hans tími sé ekki kominn,“ segir
formaðurinn.
Morgunblaðið/Rax
íslandsmeistararnir nýbökuðu eftir sigurinn á laugardaginn, Anna Kristín
Bjarnadóttir og Kristinn Þ. Kristinsson með verðlaunagripi sína.
Kristinn og Anna
íslandsmeistarar
KRISTINN Þ. Kristinsson og
Anna Kristín Bjarnadóttir urðu
íslandsmeistarar í pílukasti um
helgina. Anna erfyrsta konan
sem hlýtur þennan titil, því
keppt var í fyrsta skipti í
kvennaflokki.
Kristinn sigraði Óskar Þór-
mundsson í undanúrslitum 2:0
(2:1, 2:0). I hinum undanúrslita-
leiknum áttust við Guðjón Hauks-
son og Ægir Ágústsson. Guðjón
sigraði 2:1 (1:2, 2.1, 2:0). Kristinn
vann svo Guðjón í mjög góðum úr-
slitaleik 2:0 (2:1, 2:0). Kristinn lék
frábærlega vel á móti besta pílu-
kastara landsins að margra mati,
var einbeittur og mjög öraggur í
útskotum. Þrátt fyrir að Guðjón
BLAK
Hauksson hafi verið við eða á
toppnum í öllum þeim mótum sem
hann keppti í á árinu átti hann ein-
faldlega engin svör við frábæram
leik Kristins.
Til úrslita um íslandsmeistaratit-
il kvenna léku Kolbrún Tobíasdóttir
og Anna Kristín Bjarnadóttir. Kol-
brún vann fyrsta legginn en Anna
Kristín náði sér síðan heldur betur
á strik og sigraði í fjórum næstu —
vann því viðureignina 4:1.
Bestu pílukastararnir á þessu
móti sýndu að þeir eru óðfluga að
nálgast meðaltal atvinnumann í
leiknum „501“. Þeir eru með að
meðaltali 20 pílur í leik sem er frá-
bær árangur og sannar að íslend-
ingar eru orðnir frambærilegir á
alþjóðamótum.
L . I. •
Oruggir sigrar
hjáKAogíS
Stúdentar á toppi 1. deildar karla
og Víkingur í kvennadeildinni
KA vann öruggan sigur á Þrótti,
Reykjavík, 3:0, og ÍS lagði Fram
með sama mun í deild karla í
blaki á Akureyri um helgina,
3:0. Þrír leikir fóru þá fram í
karla- og kvennaflokki. ÍS er
nú á toppnum í karladeildinni
en íslandsmeistarar KA í öðru
sæti.
Það var einungis í fyrstu hrinu
sem Þróttarar náðu að sýna
einhvern lit gegn KA. Þeir komust
í 8:0 í fyrstu hrinu en síðan ekki
mpg söguna meir. KA-
Guðmundur menn náðu að vinna
Þorsteinsson upp forskotið og
skrifar vinna hrinuna. I
næstu tveimur hrin-
um var eftirleikurinn auðveldur og
sigruðu heimamenn án mikillar fyr-
irstöðu gestanna. Jason Ivarsson,
leikmaður Þróttar, hafði fyrir leik-
inn átt við lasleika að stríða, fór
þó með Þróttarliðinu norður en varð
hætta þátttöku í leiknum og munar
um minna.
Jafnt á Neskaupstað
Leikur Þróttar N og HK var jafn
og spennandi. HK-menn geta sjálf-
um sér um kennt hvernig fór. Þeir
voru yfir í 4. hrinunni 10:7 og ieiddu
leikinn með tveimur hrinum gegn
einni. Þróttarar neituðu hins vegar
að gefast upp og náðu að knýja
fram sigur.
Leikur ÍS og Fram í Hagaskóla
á sunnudag var í heild slakur og
þurftu Stúdentar ekki að hafa mik-
ið fyrir sigrinum.
1. deild kvenna
íslandsmeistarar Víkings eru á
toppi 1. deildar kvenna; yíkings-
stúlkurnar sigruðu ÍS 3:1. ÍS var á
toppnum fyrir leikinn, en það veikti
sigurvonir Stúdína að uppspilari
liðsins, Bergrós Guðmundsdóttir
gat ekki leikið vegna meiðsla. ÍS-
stúlkurnar léku vel í fyrstu hrin-
unni og sigruðu. í annari hrinu tóku
Víkingsstúlkurnar síðan leikinn í
sínar hendur með Birnu Hallsdóttur
fremsta í flokki og unnu. Stúdínur
áttu svo ekkert svar við góðum leik
Víkinga í tveimur síðustu hrinun-
um.
KA sigraði Þrótt R 3:0 á Akur-
eyri. Þróttarar áttu aldrei mögu-
leika án Snjólaugar Bragadóttur og
Lindu Jónsdóttur, burðarása liðsins.
Þróttur N sigraði svo HK 3:1 án
teljandi erfiðleika.
Urslit/B 6.
Staðan/B 6.