Morgunblaðið - 17.12.1989, Síða 1
SM323G ,?r HuOAG
OKlAJSMíJOSOM
HEIMILI
283.942
Fasteignamat
Meóaleign
liveis ís-
lendlngs
2,4 millj.
Verðmæti allra fasteigna á
landinu er nú 615,2 milljarð-
ar kr. Þannig metið er eign hvers
íslendings 2,4 milijónir kr. í fas-
teignum að meðaltali. Eins og
fram hefur komið ffréttum
hækkaði fasteignamatið um
18% milli ára á landinu öllu, þó
með ákveðnum undantekning-
um. Hérá myndinnitil hliðar
sést fasteignamat í einstökum
landshlutum fyrir árin 1988 og
1989. Fasteignamat íbúða i
Reykjavík er rösklega 46% af
matinu fyrir landið f heild. Að
meðtöldum nágrannasveitarfé-
lögunum, Garðabæ, Seltjarnar-
nesi, Kópavogi og Hafnarfirði
er fasteignamatið á höfuðborg-
arsvæðinu 64% af heildarmati
fyrir landið allt.
Samkvæmt nýjum lögum skal
álagningarstofn á hús og mann-
virki utan Reykjavíkur vera fast-
eignamat þeirra eins og þau
væru staðsett í Reykjavík. Þann-
ig hækkar álagningarstofninn
úr 615,2 milljörðum Í721,6 millj-
arða eða um 17,3%. Á hinn bóg-
inn var ákvæðum um álagning-
arprósentu breytt, þannig að
sveitarstjórnir hafa heimild til
að ákveða prósentuna innan
vissra marka.
OB1 des ‘88
EUl.des. '89
SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1989
BLAÐ
FASTEIGNAMAT 1-des 1988 og 1989
(milljónir kr.)
REYKJANES1)
REYKJANES 2'
Heimild: Fastelgnama! Rikisins
1) Kópavogur, Garðabær, Haínartjörður
gg Seltjamames
2) Onnur sveitarfélög á Reykjanesi
Kramar-
hns og
músa-
stlgar
Aðventukransar og alis
kyns jólaskreytingar, sem
setja svip sinn á jólahaldið,
taka breytingum frá ári til árs.
Þessar breytingar virðast ætíð
haldast f hendur við breyttan
tíðaranda og þann stfl, sem
ríkir f hönnun hverju sinni.
í þætti sínum Híbýli/Garður
fjallar Elísabet V. Ingvarsdóttir
um jólaskreytingar. Þar kemur
fram, að f ár sækja skreytingar
hugmyndir til eldri tíma og
minna þær einna helzt á heldir-
mannaskreytingar síðan rétt
upp úr aldamótum. Hið sama
gildi og um þessar skreytingar
og aðra hönnun nú. Leitað er
fanga í náttúrunni og horfið til
handverksins. ^ ^
Byggingarsýn-
ing í Hannover
Alþjóðlega byggingarsýn-
ingin CONSTRUCTA verð-
ur haldin í Hannover dagana
1. til 7. febrúar n.k. Sýningin
er haldin á þriggja ára fresti
og er ein stærsta sinnar teg-
undar í heiminum. Það er
Landssamband iðnaðarmanna
sem skipuleggur hópferð á
sýninguna.
í frétt frá Landssambandi iðn-
aðarmanna kemur fram að á
sýningunni verður m.a. sýnt
byggingarefni og byggingar-
kerfi, efni til verndunar bygg-
inga, gluggar, hurðir, rafbún-
aðurtil lýsinga, loftræstikerfi,
hitunarbúnaður, vegg- og gólf-
klæðningarefni, stigar, utan-
húss- og garðaarkitektúr, vélar
og tæki til byggingariðnaðar
ásamt vél og hugbúnaði til
skipulagningar, stjórnunar og
ráðgjafar í byggingariðnaði.
Þar segir að hér sé um að
ræða sýningu sem henti mjög
breiðum hópi s.s. verktökum,
byggingameisturum, hönnuð-
um og skrúðgarðyrkjumeistur-
um.