Morgunblaðið - 12.01.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANUÁR 1990
„Ég stenst þetta ekki — ég ætla að eyða þjónustu-
gjaldinu þínu í eftirrétt.“
*
Ast er...
. . .stórt skref.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1990 Los Angeles Times Syndicate
1202
Nú er nóg komið. Þú verður
að ná af þér þessum ósköp-
um, maður ...
HÖGNI HREKKVÍSI
, HÖGNI KO/H i VBG P/C/R RAN Á
/VlEÐAN HANN R/ENDl AUG "
Með
morgunkaffinu
Þú verður kominn á kreik
áður en viðgerðinni á bílnum
lýkur...
Þessir hringdu ..
Jakki
Svartur stutturrt modelkven-
mannsjakki úr fínullarefni, rúnað-
ur að framan og óhnepptur, tap-
aðist 16. desember sl. á Hótel
Borg. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 45039. Fundarlaun.
Gullhringur
Gullhringur með rúbínsteini
sem festur var á Pier Point úr
tapaðist fyrir löngu. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 651649. Þórey.
Úr
Gullkvenúr tapaðist föstudag-
inn 5. janúar við Sæbraut Selt-
jarnarnesi eða á Lindargötu.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band í Huldu í síma 14993.
Slæða
Rauð og blá slæða fannst 9.
janúar. Upplýsingar í síma 75203.
Kettlingar
Kettlingar fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 39289 eftir kl. 20.
Góðir útvarpsþættir
Einar hringdi:
„Ég vil þakka fyrir góða út-
varpsþætti sem Pétur Pétursson
hefur verið með um hernámsárin
og stríðið á Rás 1. Þar hafa kom-
ið fram margt forvitnilegt og Pét-
ur hefur haft uppá rnörgum
skemmtilegum viðmælendum. Nú
mun þessum þáttum lokið en það
hefur komið fram _að Pétur hefur
mikið meira efni. Ég vil eindregið
beina því til hans og forráða-
manna útvarpsins að framhald
verði á þessum þáttum. Þetta er
mjög gott útvarpsefni og forvitni-
legt.“
Húfa
*
Blá derhúfa með munstruðum
kolli og grænni nælu tapaðist í
Austurstræti, Lækjargötu eða
Bankastraéti 3. janúar. Svört loð-
húfa með stórri silfurnælu tjipað-
ist á sömu slóðum fyrir u. þ. b.
ári. Fundarlaun. Vinsamlegast
hringið í síma 93-51312,
93-51301 eða 91-681936.
Lyklakippa
Lyklakippa með fimm lyklum
tapaðist í Miðbænum fyrir
skömmu. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 697111 eða 34703.
Sjónauki
Lítill sjónauki í hulstri fannst á
bílastæði Grímsbæjar fyrir jólin.
Upplýsingar í síma 33899.
Gleraugu
Gleraugu töpuðust í vesturbæ
Kópavogs, sennilega við Þinghóls-
braut, 2. janúar. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 42422 eða 641350.
Úr
Casio úr tapaðist, sennilega á
leið frá Álfheimum að Háaleitis-
braut milli jóla og nýárs. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 685169.
Gleraugu
Gleraugu með gylltum málm-
spöngum töpuðust í Miðbænum
eða þar í grennd fyrir jól. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 31249.
KVENNAGUÐFRÆÐI
Til Velvakanda.
Mig langar í fáum orðum að
gera athugasemd við svokallaða
kvennaguðfræði, sem er að skjóta
öngum víða um lönd, og hefur gert
vart við sig hér á Islandi.
Guðfræði þessi kennir meðal
annars, að Guð sé móðir, en ekki
faðir, eins og Biblían kennir.
Kenning þessi á rætur að rekja
til norna, en þær trúa því að Guð
sé til, en taka framhjá Jesú Kristi
sem Guði, föður og frelsara og
skapara alls sem er. Þetta gerðu
ísraelsmenn til forna. Þeir tilbáðu
himnadrottninguna og ýmsa hjá-
guði og kölluðu með því óhamingju
yfir þjóð sína.
Jesús Kristur sagði, að hann og
faðirinn væru eitt, og að sá sem
hefði séð hann, hefði séð föðurinn.
Öll tilbeiðsla á að beinast að honum.
Hann er ekki móðir, heldur faðir
og frelsari frá synd og eilífum
dauða.
Það er engin niðurlæging fyrir
konur að guð skuli vera karl og þær
verða að sætta sig við það. Kristnir
menn hafa alls staðar barist fyrir
kvenréttindum og víða náð langt í
þeim efnum.
Biblían getur víða kvenna af
mikilli virðingu og þær voru margar
mikils metnar í söfnuðunum og
nefndar með nafni í hinni helgu
bók, og þær viðurkenndu Jesú Krist
sem guð og föður og skapara allra
hluta.
Margir heiðingjanna dýrkuðu
hinsvegar konur, sem þeir nefndu
gyðjur, gerðu sér líkneski af þeim
og ákölluðu þær. í huga margra
þeirra var guð kona og .þeir risu
öndverðir gegn föðurhugmyndinni
og tilbeiðslu á Jesú Kristi einum,
enda voru þeir flestir fjölgyðis-
menn.
Hugmyndin um að Guð sé kona,
eða móðir, er ekkert annað en að
taka framhjá einum sönnum Guði,
sem er karl, og heitir Jesús Krist-
ur. Hann einn er Guð og faðir og
hann einan á að boða og tilbiðja,
sér til sáluhjálpar. Kvennaguðfræð-
in er byggð á misskilningi og ætti
að leggjast niður, áður en lengra
er haldið út á þá hálu braut.
Eggert E. Laxdal
Víkverji skrifar
Víkveiji dagsins notfærir sér
stundum bílastæði á Bakka-
stæðinu. Þar hafa fengist gefins lítil
box til hagræðis fyrir bíleigendur að
geyma mynt í. Box þessi má líma á
hentugan stað í bflnum og þau eru
merkt gatnamálastjóra og með merki
borgarinnar. Nú eiga menn auðvitað
ekki að agnúast út í það sem þeim
er gefið og þessi box eru ágæt út
af fyrir sig. Én þau koma bara ekki
að tilætluðum notum ! Tíu króna
peningar eru of stórir og 50 króna
peningarnir of þykkir. Og Víkveiji,
sem auk þess að vera bfleigandi
greiðir líka kostnaðinn af embætti
gatnamálastjóra, getur auðvitað not-
að þessi box undir fimmkalla. Þau
eru ágæt til þess. En af fimmköllum
þarf talsvert magn í stöðumæla og
hætt er við að Víkveiji þyrfti að
hafa svona box hangandi út um allan
bíl, ef þau ættu að vera til hægræð-
is varðandi borgun fyrir bílastæði.
Nema gatnamálastjóri ætli að gefa
meira og bjóða upp á eitt box fyrir
hvetja mynttegund. Þá bendir
Víkveiji á, að töskur, eins og hann
hefur séð áætlunarbflstjóra með og
lestarþjóna erlendis, em miklu hent-
ugri en mörg lítil box.
Svo er til ein afbragðslausn á þessu
vandamáli og hún er að lækka verð-
ið í stöðumælunum í 5 krónur. Sú
lausn er vafalaust vinsælust og skor-
ar Víkveiji á gatnamálastjóra að velja
hana.
XXX
Mikið gleðst Víkveiji yfir sigri
Jóns Kristinssonar á Akureyri
í máli hans gegn ríkinu. Þessi mála-
rekstur Jóns hefur leitt til aðskilnað-
ar dómsvalds og umboðsvalds í hér-
aði, þannig að sömu menn stjómi
ekki rannsókn mála og dæmi þau.
Sumir viðmælendur Víkveija hafa
viljað gera lítið úr þætti Jóns í mál-
inu og sagt, að til þessa hefði komið
fyrr en síðar án hans atbeina. Það
skiptir hins vegar engu í augum
Víkveija. Staðreyndirnar eru þær,
að Jón fór í mál og þess vegna varð
ríkisvaldið að bregðast við. Og þess
vegna er fjórdálka frétt á baksíðu
Morgunblaðsins á fimmtudaginn um
dóm Hæstaréttar með fyrirsögninni:
Sýslumenn vinni ekki jafnt sem dóm-
arar og lögreglustjórar. Án Jóns biði
þessi fyrirsögn enn framtíðarinnar.
Og stjómarskrárbrot og mannrétt-
indabrot á þessu sviði væru enn sjálf-
sagður hlutur.
Víkveiji tekur hatt sinn ofan fyrir
Jóni Kristinssyni !
xxx
að virðist vera full ástæða fyrir
fólk til að halda vöku sinni og
verðskyni, þegar virðisaukaskattur-
inn er kominn til sögunnar. f fimmtu-
dagsblaði Morgunblaðsins var sagt,
að virðisaukaskattur yrði niður-
greiddur á hrogn og lifur, þannig að
hann jafngilti 14% skatti, eins og á
annarri soðningu.
Varla var Víkveiji búinn að melta
þessi tíðindi, þegar í hann var hringt
vegna þess, að soðning, sem áður
hefði kostað 378 krónur kostaði nú
425 krónur. Þégar viðkomandi
blöskraði verðmunurinn og benti á
frétt Morgunblaðsins, kom í Ijós, að
þau 14% ættu bara við um fiskinn
frá fiskmörkuðum. Síðan legði fisk-
salinn 24,5% virðisaukaskatt á fisk-
inn hjá sér.
í Morgunblaðinu var önnur frétt
um verðhækkanir á brauðum og var
þar haft eftir starfsmanni verðlags-
stofnunar, að hækkunin hefði verið
á bilinu 5—10%. Annar lesandi Morg-
unblaðsins hringdi í Víkveija af þessu
tilefni og nefndi dæmi um jólaköku,
sem hann sagði hafa kostað 192
krónur áður, en kostaði nú 258 krón-
ur. Skýringin sem hann fékk á þess-
ari verðhækkun var tilkoma virðis-
aukaskattsins.
Verðlagsstofnun gerði verðkönnun
fyrir áramót og aðra eftir að virðis-
aukaskatturinn kom til. Fróðlegt
verður að sjá niðurstöður þessara
kannana.