Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 1
TfW
( WG A IHT/T
HEIMILI
lllulverk
útllýs-
íngar
Utilýsingar hafa lengi
verið sá þáttur heimili
slýsing ar, sem hvað mest
hefur verið vanræktur hér
á landi. Það er eins og fólk
sé feimið við að lýsa upp
hús sín að utan. I þættinum
Híbýli/Garður segir Helgi
Kr. Eiríksson lýsingarhönn-
uður, að kostnaður vegna
útilýsingar þurfi ekki að
vera mikill. Á markaðnum
eru ótal útilampar, sem
nota svonefndar sparnað-
arperur sem Ijósgjafa, en
þessar perur gefa frá sér
mikið Ijós miðað við orku-
notkun. ^ g
1.728
íbúóir
fullgeró-
ai 1988
Þróunin íbyggingu íbúðar-
húsnæðis var mjög breyti
leg eft ir landshlutum á árunum
1986-1988 eins og fram kemur
á meðfylgjandi mynd. Samtals
voru fullgerðar 1.728 íbúðir á
landinu öllu árið 1988 sem er
rösklega 12% aukning frá árinu
áður. Þessa aukningu er vart
hægt að skýra nema á einn veg
þ.e. að áhrif góðæris í efna-
hagslífi landsmanna 1986-
1987 hafi verið að skila sér.
Athyglisvert er að í grann-
byggðum Reykjavíkur voru full-
gerðar íbúðir tvöfalt fleiri árið
1988 en næstu tvö ár á undan.
Hins vegar er um stórfelldan
samdrátt að ræða á Suðurnesj-
um þar sem fullgerðar íbúðir á
árinu 1988 urðu aðeins 22
samanborið við 122 árið áður.
Þá vekur einnig athygli mikil
aukning á fullgerðum íbúðum
á Norðurlandi eystra. Þess ber
að geta að erfitt er að greina
áhrif hagsveiflna með því að
skoða yfirlit yf ir svo stutt tíma-
bil sem hér um ræðir. Tilviljun
kann því að ráða einhverju um
hvoru megin við áramót bygg-
ing íbúðar lendir
Kinialivei'll
Uthlutun lóða í svonefndu
Rimahverfi í Reykjavík
hófst sl. haust. Hverfi þetta
mun standa norðan megin við
Grafarvog, fyrir norðan svo-
nefnd Folda- og Húsahverf,.
Þegar er búið að úthluta mörg-
um lóðum ífyrsta áfanga hverf-
isins og gátnagerð þar vei á
veg komin. Gert er ráð fyrir,
að uppbygging þessa áfanga
hefjist nú í sumar og flest hús
þar tekin í notkun á árinu 1992.
Ibúðir þar verða um 500 og
íbúar um 1.500-2.000 en í
Rimahverfinu öllu er gert ráð
fyrir um 1.000 íbúðum og 3.500
íbúum.
Þetta kemur m. a. fram í við-
taii við Guðna B. Pálsson arki-
tekt í blaðinu í dag, en hann
hefur ásamt Dagnýju Helga-
dóttur arkitekt skipulagt þetta
nýja hverfi. Þar verður m. a.
sú nýjung, að göngugata er
lögð þar í gegn, þar sem
byggðin verður þéttust og í
hverfinu verður jafnframt eins
konar miðbær með verzlunum
og öðrum þjónustufyrirtækj-
um.
— Það
sýndi sig
þarna, að það
erenntals-
verð eftir-
spurn eftir lóð-
um, að
minnsta kosti í
Reykjavík,
segir Gúðni. —
Lóðirnar undir
fjölbýlishús í
þessum fyrsta
áfanga fóru
mjög fljótlega
og einsvarum
lóðir undir
svokölluð
parhús.