Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUÐAGOR 4. FEBRÚAR 1990 Borgarafundur um sldpu- lagstillögn í Kópavogí TILLAGA að nýju aðalskipulagi fyrir Kópavog verður kynnt á borgarafundi þar í bæ á mánu- dagskvöld. Fundurinn fer fram i Félagsheimili Kópavogs og hefst kl. 8.30 siðdegis. Þar mun bæj- arbúum og öðrum gefast kostur á að koma athugasemdum og ábendingum varðandi skipulagið á framfæri. SSkipulagning byggðar í Kópa- vogi hófst 1946 og gatnagerð þar hófst árið eftir með Kópavogs- braut. Undirbúningur fyrsta aðat- skipulags fyrir bæinn var hafín 1965 og það samþykkt 1970, en endur- skoðun þess lauk svo 1985. Nú hef- ur ný endurskoðun aðalskipulagsins farið fram og nær hún yfír tímabi- lið 1988-2008. í þeirri skipulagsti- lögu kemur m. a. fram hámarksnýt- ing á nýjum íbúðar- og athafna- svæðum, en áætlað er, að íbúafjöldi í Kópavogi verði um 24.000 í lok skipulagstímabilsins árið 2008. I Kópavogi eru nú um 5.600 Mð- ir, sem samsvarar því, að 2,8 Mar séu í hverri íbúð. Um 34% alls Mð- arhúsnæðis í bænum er sérbýli og um 7% í eigu utanbæjarmanna. Áætlað er að fjöldi fullgerðra íbúða verði að meðaltali 150-200 íbúðir á ári út skipulagstímabilið og að 3.000-4.000 Mðir hafí bætzt við húsakost Kópavogsbúa í Jok tíma- bilsins frá því sem nú er. Á árunum 1982-1988 voru fullgerðar 682 Mðir í Kópavogi eða að meðaltali 97 á ári. Ný athafnasvæði á skipu- lagstímabilinu verða m. a. í Kópa- vogsdal vestan Reykjanesbrautar, en þar er alls áformað að byggja 175.000 fermetra af atvinnuhús- næði, þar af rúml. 110.000 fermetra á svæði því, sem afmarkast af Reykjanesbraut, Arnarnesvegi, Smárahvammsvegi og Fífuhvam- mesvegi. AuStan Reykjanesbrautar er áætlað að byggja annað eins af atvinnuhúsnæði í framtíðinni en að um helmingur þess verði byggður á skipulagstímabilinu. Laugavegur Rúmgóð u.þ.b. 132 fm íb. á 4. hæð í lyftuhúsi. Góðar svalir. Nýtt gler. íbúðina þarf að standsetja. Laus nú þegar. Verð 5,5 millj. Möguleiki er á að óinnréttað ris geti fylgt. Góð greiðslukjör. EIGNAMIÐLIMN 2 77 II ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum. Þórólfur Halldórsson, lögfr.—Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320 ' Lögmanns- & fasteignastofa REYKJAVÍKUR Skútuvogi 1 3, sími 678844 Opið kl. 1-3 f nágrenni Reykjavíkur. Ca 180 fm einb. með bílsk. Frábært út- sýni. Verð 8,5 millj. Grafarvogur. Ca ZOO fm raðhus tilb. að utan, fokh. að utan. Áhv. nýtt veðdeildarlán. Nánari uppl. á skrlfst. Suðurhlíðar — Kóp. Ca 200 fm parhús á tveimur hæðum. Bílsk. Hús- ið afh. tilb. að utan og fokh. að innan. Seljahverfi. Ca 210 fm raðhús meö innb. bílsk. 4 svefnherb. Vandaö og skemmtil. hús. Ákv. sala. Álftanes. Eitt glæsil. húsið á Álfta- nesi ca 235 fm. Hagst. áhv. lán. Ákv. sala. Grafarvogur — einbýli á einni hæð. Smekklegt 180 fm einb. á einni hæð. Innb. bílsk. Afh. fullb. að utan en fokh. að innan. Teikn. á skrifst. Mosfellsbær. Stórgott ca 160 fm parhús. Verð 8,4 millj. Byggðarholt — Mos. Ca 180 fm raöhús á einní hæð. 4 svefnherb. 4ra-5 herb. Vogar. Ca 120 fm hæð í þríb. Bílsk. Góð eign. Hafnarfjördur Ca I10fm íbúðir í fjórbhúsi. Hver íb. hefur sérinng. Afh. fullfrág. að utan. Teikn. og uppl. á skrifst. Vesturberg. Ca 100 fm íb. á 2. hæð. Þvottahús í íb. Mikið útsýni. Sval- ir í suð-vestur. íb. er laus nú þegar. Grafarvogur. Höfum til sölu 4ra herb. íbúðir frá 100 fm. íb. er á tveimur hæðum. Fagurt útsýni. Uppl. á skrifst. Miðbærinn. Lúxusíb. í hjarta borgarinnar 80 fm. íb. er öll sérhönnuð. Bílskýli. Nánari uppl. á skrifst. Reykás. Ca 70 fm jarðhæð í blokk. Útsýni. Laugavegur. Ca 70 fm íb. á 2. hæö. íb. er laus nú þegar. Verð 4,2 millj. Þingholt. Ris ca 70 fm óinnr. í þríb. Hentar þeim sem vill lagfæra. Ein- stakt tækifæri. Týsgata. Góð 3ja herb. Ib. Istein- húsi ca 70 fm. Nánari uppl. á skrifst. Ingólfsstræti. Mjög þokkaleg ca 50 fm íb. I þríb. Verð 3 millj. Ólafur Örn, Hreinn Garðarsson og Sigurberg Guðjónsson hdl. f® | Metsölublað á hverjum degi! Smiðjan IHeiiiiir smlóur á 17. öld MAÐUR VAR nefíidur Guðmund- ur og var Guðmundsson frá Bæ í Borgarfirði. Hann gat sér gott orð fyrir hagfeik og húsbygging- Eg nefni Guðmund hér í smiðj- unni af því að mér þykir verð ugt að hans sé getið í framhaldi af gömlu smíðisgripunum. ■■■■■■■■■■■■ Guðmundur Guð- mundsson var óvenju vel mennt- aður iðnaðarmaður á sinni tíð. Hann lærði trésmíðar í Danmörku og trú- legt er að hann hafi numið fleiri greinar eftir Bjoma Ólofs- son svo sem tréskurð og jámsmíði. Eftir námið í Danmörku hélt hann suður til Þýskalands og bætti við sig þekkingu og kunnáttu. Á sautjándu öld var það ekki sældarbrauð að nema iðngrein, þvert á móti, þá mun það hafa verið líkara því að vera hnepptur í þrældóm. Piltar réðu sig í nám hjá meistur- um og voru þá skuldbundnir til að vera undir meistarann gefnir kaup- laust, en fengu mat og svefnpláss þau Qögur ár sem námstíminn stóð. Vinnudagamir voru langir. Kristján Eldjárn skrifaði góða ritgerð um Guðmund Guðmundsson frá Bæ í bókinni Staksteinar. Eins og Kristjáni var lagið dró hann saman þær heimildir sem hann taldi öruggar um Guðmund og skráði í ritgerðinni. Ég styðst hér við ritgerð Kristjáns. Guðmundur mun hafa fæðst í byijun 17. aldar og kom heim að námi loknu um 1647, e.t.v. fáum árum fyrr. 1647 er Guðmundur ráðinn af Brynjólfi Sveinssyni bisk- upi í Skálholtsstifti til að standa fyrir kirkjubyggingu í Skálholti. Brynjólfskirkja stóð á Skálholtsstað fram á síðari hluta 19. aldar. Eitt- hvað mun hafa verið af spýtum úr þeirri kirkju í litlu kirkjunni sem rifin var niður er undirbúningur hófst að byggingu steinsteyptu kirkjunnar sem nú stendur á staðn- um. Guðmundur lifði og lærði á þeim tíma er hinn íburðarmikli skrautstíll barokktímans var allsr- áðandi. Leitt er að við eigum ekki marga gripi varðveitta eftir þennan mikla meistara. Myndir eru til af kirkj- unni í Skálholti, en að lokinni kirkjusmíðinni þar fluttist Guð- mundur norður í Skagafjörð. Bænhús byggði hann að Gröf á Höfðaströnd og þótt það hafí verið lítið guðshús var það vandað að allri gerð. Vindskeiðar voru fagur- lega útskomar og tréverkið bar meistara sínum vitni. Vandvirknis- leg viðgerð fór fram á þessu guðs- húsi fyrir allmörgum árum. Það er ómaksins vert fyrir vegfarendur að skoða kirkjuna, sem er orðin vel yfír þrjúhundruð ára gömul. Einnig vil ég vekja athygli þeirra sem ekki vita það, að kirkjugarður- inn er hringhlaðinn, eða sporöskju- lagaður, en það er hið forna lag slíkra garða. Auk þessara tveggja kirkna er fullvíst talið að Guðmundur hafí byggt kirkju að Mælifelli í Skaga- fírði og nokkrir smíðisgripir eru til eftir hann á Þjóðminjasafninu, svo sem prédikunarstóll frá Illugastað- arkirkju, kista, brúðarbekkur og trafaöskjur. Kristján Eldjám telur sig ekki geta sagt með vissu hvenær Guð- mundur fæddist né heldur hvenær hann dó en smíðisgripir eftir hann bera ártalið 1686, svo að ætla má að hann hafí lifað eitthvað lengur. Flökkusveinar Vitað er að Guðmundur fór til Þýskalands til að bæta við nám sitt. í Evrópu var mikil eftirspum eftir iðnsveinum á 17. öld. Trésmlð- asveinar höfðu þá mikið að gera og nutu álits og voru mikils metnir í þjóðfélagi þess tíma. Iðnaðarmenn mynduðu þá merki- leg samtök í Þýskalandi, þau voru nefnd „zunften". Frá Þýskalandi breiddust samtökin út um mestalla Evrópu, þau byggðust á reglum og siðum er giltu um iðnsveina hverrar greinar í öllum Evrópulöndum. Samtökin vom áhrifamikil og veittu iðnsveinum rétt til að ferðast á milli allra landa Evrópu, fjarri heimalandi sínu, og gátu þeir hvar- vetna fengið vinnu við sína grein. Mikilvægi þessara réttinda má líkja við nútíma framhaldsnám. Það er auðvitað alltaf einstaklings- bundið hvernig hver og einn vinnur úr þekkingu sinni og reynslu. Það er augljóst að dýrmætt var fýrir iðnsveina að geta ferðast um og komist í vinnu í öðrum löndum, lært af góðum iðnaðarmönnum sem orð fór af fyrir verkkunnáttu og þekkingu, auk þess sem sveinamir fluttu einnig með sér og miðluðu þekkingu og kunnáttu að heiman. „Zunften" eða iðnsveinasamtökin voru það sterk að ekki var vænlegt fýrir einvaldskonunga þeirra tíma að reyna að skerða réttindi iðn- sveinanna. Kristján fímmti, konungur Dan- merkur og íslands, gerði tilraun til að banna þessi samtök. Bar hann m.a. frám þau rök að þau ættu sök á háu verðlagi á vinnu iðnsvein- anna. Ekki stóð á viðbrögðum samtaka iðnaðarmanna. Eriendir iðnaðarmenn sniðgengu strax Dan- mörku og danskir sveinar fengu ekki vinnu í öðrum löndum. Árið 1699 neyddust dönsk yfír- völd til að viðurkenna samtökin aftur og veita leyfí fyrir þeim rétt- indum er samtökin höfðu, en þar með var talin vígsluhátíð nýsveina að loknu námi, sem nefnd var „heflingin". Eng^ir óheflaðir trésmíðasveinar Þegar lokið var þrældómi náms- áranna hlaut hinn ungi sveinn ekki réttindi I samtökum iðnsveina nema að gangast undir vígslu sem nefnd var „heflingin". Áður en vígslunni var lokið var hann aðeins „kuh- Teikning frá 1772 eftir John Clevely af Skálholtskirkju, þar sem Brynjólfur biskup Sveinsson þjónaði. schusel" eða „koschwanz" (kýr- hali). Heflunin fór þannig fram að á borðplötu var teiknaður með krít stafurinn Q, sem átti að tákna kýr- hala. Nýsveininum var svo skipað að þurrka Q-ið af borðinu með hári sínu. Hann svaraði þá að meistari sinn hefði ekki kennt sér að vinna með hári sínu, heldur með höndun- um og um leið máði hann stafinn af borðinu með höndum sínum. Að loknum þessum inngangi gekk „presturinn" fram og hélt langa ræðu í ljóðum og kom það fram í ræðunni að nýsveinninn væri ennþá óttalegur beljurass. Hátíðlega hélt hann áfram ræðu sinni og ræddi nú um hið ábyrgð- armikla starf trésmiðanna og .um flökkusveinana. Ræðan var krydd- uð grófum setningum og orðtökum sem vöktu óblandinn fögnuð hjá áheyrendum. Nú var komið að vígslunni. Ný- sveinninn var lagður upp á borð og „djákninn“ sem var aðstoðarmaður „prestsins" rétti fram píningartólin. Var nú hafist handa með tréverk- færum, sem voru stækkaðar eft- irlíkingar af venjulegum verkfær- um, að snikka og móta vesalings nýsveininn á alla vegu. Stundum voru aðfarimar svo öflugar að sveinninn hentist fram á gólfíð, en það jók aðeins á fagnaðarlæti áhorf- endanna. Hlátrasköllin ómuðu í salnum þegar tekið var til við að snitta til kvistinn á maganum. Væri ekki einhver ung stúlka við- stödd er bæði unga manninum vægðar, átti að höggva kvistina brott. Loks hélt „presturinn“ reglustiku undir höku sveinsins og spurði hann að nafni. Gaf hann sveininum síðan snöggan löðrung og fylgdu þau fyrirmæli að þetta bæri honum að sætta sig við, en hann mætti aldrei framar láta bjóða sér slíkt. „Hefluninni" var lokið og undir dynjandi hljóðfæraleik var sveinn- inn leiddur inn í veitingastofuna, þar sem hann varð, með tilheyrandi siðargglum, að drekka af bikar sveinasamtakanna. Drykkjuhátíð sem fygldi í kjölfarið var að sjálf- sögðu á kostnað nýsveinsins. Nú var sveinninn fullgildur innan sam- takanna og gat lagt land undir fót, hvarvetna voru réttindi hans virt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.